Þjóðviljinn - 14.01.1983, Blaðsíða 16
DWÐVHIINN
Föstudagur 14. janúar 1983
Aðalsími Þjóðviljans cr 81333 kl. 9—20 mánudag til föstudags. Utan þess
tíma er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum
símum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, ljósmyndir
81257. Laugardaga kl. 9—12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins í síma
81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt
öll kvöld.
Aðalsími
81333
Kvöldsími
81348
Helgarsími
afgreiðslu
81663
Filman af Reykjavíkurmynd Lofts Guðmundssonar. Eins og sjá má eru hvítar rákir og kúlur á filmunni, en
það er froða sem vellur upp eins og gerist þegar nitrat-filmur skcmmast. Negatív þessarar myndar er til og
enn er hægt að bjarga myndinni með því að taka kópíur af því, en það er byrjað að skemmast og aðeins
tímaspursmál hvenær það verður orðið ónýtt. Samt fékkst ekki fjárveiting hjá Reykjavíkurborg uppá 200
þús kr. til að bjarga myndinni nú þegar. )Ljósm. - eik )
Reykjavíkurmynd Lofts Guðmundssonar frá 1940:
Sýningareintakið
er orðið ónýtt...
og „negatívið” á síðasta snúningi — fjárveiting fékkst ekki
hjá Reykjavíkurborg til að bjarga myndinni
Á árunum 1940-1942 tók Loftur
Guðmundsson ljósmyndari,
heimildarkvikmynd um Reykja-
víkurborg. Sýningareintakið af
þessari mynd, ásamt „negatívi“
hennar hefur verið geymt í Árbæj-
arsafni við algerlega ófullnægj-
andi skilyrði, enda er svo komið að
sjálft sýningareintakið er þegar
orðið ónýtt, en „negatívið" er það
ekki, en er byrjað að skemmast.
Það er þvf enn ekki of seint að
bjarga þessari merku heimildar-
mynd, en við afgreiðslu fjárhagsá-
ætlunar í síðustu viku felldi Sjálf-
stæðisflokkurinn tillögu frá Al-
þýðubandalaginu um fjárveitingu
til verksins. Um er að ræða 200
þúsund krónur.
Filmurnar eru nú komnar í
vörslu kvikmyndasafns ríkisins, og
segir Erlendur Sveinsson, forstöðu-
maður þess, að þar sem hér er um
að ræða nítrat-fiimur sem ieysast
upp og tærast, þoli það enga bið, ef
bjarga á myndinni með því að
senda „negatívið" utan og gera
eftir því sýningarfilmu, pósitíf og
negatív á nútíma filmu, sem hægt
er að geyma.
- í Helgarblaði Þjóðviljans á
morgun er viðtal við Erlend um
þetta mál og mörg fleiri sem snerta
geymslu gamalla kvikmyndafilma
og annað sem að safninu snýr.
Arnar
Guðmundsson
deildarstjóri hjá
RLR um „Cannibal
Holocaust”
Fjárveiting til
Torfusamtakanna:
Dæmi
ekki um
saknæmi
„Eins og komið hefur fram hefur
ríkissaksóknari sent okkur þessa
spólu með myndinni „Cannibal
Holocaust" og lagt fyrir okkur að
rannsaka hana og dreifingu hennar
með hliðsjón af 210. grein hegning-
arlaganna. Við hér hjá RLR höfum
skoðað þessa spólu, en á þessu stigi
get ég ekki dæmt um saknæmi
dreifingarinnar," sagði Arnar
Guðmundsson deildarstjóri hjá
Rannsóknarlögreglu ríkisins þegar
Þjóðviljinn hafði tal af honum í
gær. Eins og fram hefur komið hef-
ur ríkissaksóknari sent RLR málið.
Arnar sagði að mál þetta væri á
algjöru frumstigi, Rannsóknar-
lögreglan hefði lagt hald á bók-
haldsgögn sameignarfyrirtækisins
„ÍS - VIDEÓ“ og yfirheyrt skráða
eigendur, þá Jafet Óskarsson og
Pétur Kvaran. Hann sagðist ekki
vita til þess, að þessi tiltekna spóla
hefði verið í umferð annarsstaðar.
Aðspurður um, á hvaða hátt
sjoppa sú sem „ÍS - VÍDEÓ“ hefði
aðstöðu í, tengdist starf&emi
vídeóleigunnar, svaraði Arnar því
til, að sjoppan væri dreifingaraðili
og Rannsóknarlögreglan þyrfti því
að ræða við alla aðstandendur
sjoppunar, eigendur og afgreiðslu-
fólk. -hól.
Veru-
legur
niður-
skurður
Þessi fjárveiting er ekki beint
hvetjandi fyrir uppbyggingu Bern-
höftstorfunnar, sagði Hallgrímur
Guðmundsson formaður Torfu-
samtakanna í viðtali við Þjóðviljann
í gær um fjárvcitingu Reykjavíkur-
borgar fyrir árið 1983. Hér er um
verulegan niðurskurð að ræða eða
sem nemur verðlagsbreytingum.
Við fengum 300 þúsund fyrir árið
1982 og fáum sömu upphæð nú,
sagði Hallgrímur.
- Þessi fjárveiting nýja borgar-
stjórnarmeirihlutans tefur að sjálf-
sögðu framkvæmdir við uppbygg-
inguna, en nú hefur einmitt verið
unnið að endurbyggingu gamla
bakarísins. Við fórum fram á 800
þúsund króna styrk, en fáum 300
þúsund. Frá ríkinu fáum við 900
þúsund, en þetta hrekkur skammt
því uppbyggingin er mjög dýr,
sagði Hallgrímur Guðmundsson að
lokum.
Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar
lagði Alþýðubandalagið til, að
Torfusamtökin fengju eðlilegar
verðlagshækkanir á styrkinn frá
1982 og hann yrði 500 þúsund á
þessu ári. Sú tillaga fékk 9 atkvæði
fulltrúa minnihlutans í borgar-
stjórninni. - óg
Hallgrímur Guðmundsson formað-
ur Torfusamtakanna. Sóttum um
800 þúsund, fengum 300 þúsund.
Standast innflutt einingahús
ekki íslenskar kröfur?_____
Stefnt er á eftirlit
með innflutningi
Gerðar hafa verið athugasemdir
vegna brunavarna og frágangs raflagna,
auk fleiri atriða
Nefnd á vegum félagasmálaráðu-
neytisins undirbýr nú tillögur um
aukið cftirlit með innllutningi ein-
ingahúsa, svo og framleiðslu ein-
ik.gáúúsa innanlands mcð það fyrir
augum að þau falli í einu og öilu að
íslenskri byggingareglugerð. Þykir
sýnt að allnokkuð af þeim húsum,
sem hingað hafa verið flutt inn,
standist ekki íslenskar kröfur, m.a.
um brunavarnir og frágang
raflagna.
Að sögn Óttars P. Halldórssonar
formanns nefndarinnar beinast
augu manna einkum að hinum gíf-
urlega innflutningi einingahúsa
undanfarin misseri og bendi margt
til þess að ýmislegt sé athugavert
við frágang sumra húsanna, sem
ekki virðast alltaf uppfylla ís-
lenskar kröfur um vindálag, snjóá-
lag og jarðskjálftaálag. Þá virðist
ljóst að hér á landi gildi mun stran-
gari reglur varðandi brunavarnir.
svo og frágang raflagna.
„Megintilgangurinn með okkar
starfi er að vernda neytendur gegn
því að aftan að þeim sé komið, því
lagfæringar á innfluttum húsum
sem menn hafa keypt geta oft
reynst mjög kostnaðarsamar. Okk-
ar krafa í nefndinni er einfaldlega
sú að varðandi innflutninginn sé í
einu og öllu farið eftir íslenskum
lögum og reglugerðum og menn
eru sammála um að eftirliti með
Alþýðuflokkurinn dregst saman
Ágúst og Garðar
sögðu af sér
- Það liggja bæði persónulegar og pólitískar ástæður að baki úrsagnar
minnar, sagði Ágúst Einarsson sem hefur sagt af sér trúnaðastörfum fyrir
Alþýðuflokkinn. Garðar Sveinn Árnason fyrrverandi framkvæmdastjóri
Alþýðuflokksins sagði sig einnig úr framkvæmdastjórn (lokksins í
fyrradag.
-Svona erfið persónuleg og pólitísk ákvörðun byggist að sjálfsögðu
aldrei á einhverjum einstökum atburði, heldur hljóta mörg atvik og mál
að leiða til ákvörðunar af þessum toga, sagði Ágúst Einarsson.
Hefur þú hug á að ganga til liðs við Bandalag jafnaðarmanna, sem
væntanlega verður stofnað á næstunni?
-Ég hef áhuga á jafnaðarstefnunni, en ég hef engar ákvarðanir tekið í
þessa veru. Þetta verður að nægja að sinni. -«g
þessum húsum verði hið bráðasta
komið á“, sagði Óttar P. Hall-
dórsson.
Þess má geta að Húsnæðisstofn-
un hefur nýlokið könnun á íslensk-
um einingahúsum, en framleiðend-
ur þeirra munu vera 25 talsins. Er
ætlunin að útbúa staðla fyrir fram-
leiðsluna hér heima og yrðu inn-
fluttu húsin að falla að þeim
stöðlum sem hér verða gerðir.
-v.