Þjóðviljinn - 15.01.1983, Blaðsíða 17

Þjóðviljinn - 15.01.1983, Blaðsíða 17
Helgin 15. - 16. janúar 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17 TU vinstri eru munir úr eigu Bíó-Petersens, stóri kassinn er kvikmyndatökuvél, fremst er tæki til að klippa og líma saman filmur. Til hægri eru munir úr eigu Óskars Gíslasonar, kvikmyndatökuvélar og hljóðupptökutæki. (Ljósm. -eik-) - Ég gerði kostnaðaráætlun á síð- asta ári og mér reiknaðist til að 80 þúsund krónur myndu sleppa, en þessi upphæð hefur að sjálfsögðu hækkað í verðbólgunni. Annað dæmi um söfnunina Mig langar að nefna hér eitt skemmtilegt dæmi um hvernig merkileg filma bjargaðist. Vitað var að Peter Petersen, kallaður Bíó-Petersen, sá er stofnaði Gaml- abíó, lét aðstoðarmann sinn Alfred Lind taka kvikmynd af slökkvi- liðsæfingu í Reykjavík árið 1906. Þetta var stutt mynd, aðeins 3 mín- útur, en er fyrsta kvikmyndin sem tekin er á íslandi, aðeins 11 árum eftir að kvikmynd var fyrst sýnd opinberlega í heiminum. Menn héldu að þessi filma hefði brunnið árið 1962 þegar kviknaði í hjá Nor- disk film í Danmörku, en þar lét Bíó-Petersen geyma filmur sínar. En þegar sonur hans lést fyrir skömmu, fannst þessi filma í hans eigu, og hún var gefin Kvikmynd- asafni Islands. Við létum þegar gera ráðstafanir til að bjarga henni, létum setja hana á nútíma sýning- arfilmu og gera af henni pósitív og negatív eintök, þannig að henni er borgið til langframa. Verk sem tekur enda Þegar við tölum um að bjarga kvikmyndum sem eru á gömlu nitrat-fílmunum, þá megum við ekki gleyma því að þetta er tæmandi verk. Þær myndir sem teknar voru á svona filmur eru ekki svo margar. Við létum til að mynda gera fram- tíðareintök af tveimur merkum kvikmyndum íslenskum í fyrra. Það voru myndir Óskars Gísla- sonar, „Milli fjalls og fjöru“ og „Niðursetningurinn" og það eru ekki svo ýkja margar kvikmyndir sem eftir er að bjarga. Ég veit ekki hvort ég er að guðlasta hjá bóka- þjóðinni þegar ég líki þessu við björgun handritanna hér fyrr á öldum. Fólk hneykslast í dag á þeim hungruðu fátæklingum sem ýmist reyndu að borða eða nota skinnhandrit í skósóla. Það hyllir hinsvegar Árna Magnússon, sem bjargaði handritum frá eyðilegg- ingu. Ef til vill þykir mönnum of mikið að leggja að jöfnu handritin og gamlar kvikmyndir, mér þykir það ekki. Kvikmyndirnar standa okkur bara svo nærri að við lítum á þær sem sjálfsagðan hlut. Menn fara í bíó eða horfa á sjónvarp og sjá kvikmynd renna í gegn og búið Erlendur Sveinsson, forstöðumaður Kvikmynda- Svona fara nitrat-filmur, froða veilur uppúr þeim þegar þær skemmast. Filman sem safns íslands inní eldtraustum skáp, sem fdmur Erlendur heldur þarna á er af Reykjavíkurmynd Lofts Guðmundssonar, hún er algerlega safnsins eru geymdar í. (Ljósm. -eik-) ónýt og stórhættuleg vegna eld- og sprengihættu. (Ljósm. -eik-) mál. Ég er hinsvegar hræddur um að eftir eina eða fleiri aldir, jafnvel eftir hálfa öld verði ekki fallega um okkur núlifandi fólk talað ef við látum elstu íslensku kvikmyndirn- ar eyðileggjast. Á sama hátt og handritin eru heimildarrit síns tíma, eru kvikmyndir allra tíma heimildir þess tíma sem þær eru teknar á og því lengra sem líður, þeim mun verðmætari heimildir verða þær, rétt eins og handrit. Svo margt óunnið Þrátt fyrir allt verð ég var við það að áhugi er að vakna, jafnt hjá ráðamönnum, sem almenningi um að gera Kvikmyndasafnið þannig úr garði að það rísi undir nafni. É? skil það vel að peningar eru ekki nægjanlegir til að gera allt í einu, allt þarf sinn tíma, en ég er von- góður um að úr rætist fyrr en seinna. Það er bara verst að það er svo margt sem þarf að gera í einu, margt sem þolir enga bið. Ég hef áður nefnt filmurnar sem eru að eyðileggjast. Þá má nefna að nauð- syn ber til að skrifa kvikmyndasögu íslands, vegna þess að fólk sem man og þekkti til við kvikmynda- tökur og kvikmyndasýningar frum- herjanna er orðið háaldrað og get- ur fallið frá hvenær sem er. Eg hef lengi átt mér þann draum að geta snúið mér að því að skrifa þessa sögu og hef raunar þegar bjargað frá glötun ýmsum heimildum, með viðtölum við fólk fyrir nokkrum árum, fólk sem nú er fallið frá. Þá þarf að skrásetja safnið, ég er að vísu kominn nokkuð á veg með það, en þar sem ég er bara í hálfu starfi hér og þarf að vinna fyrir mér eins og aðrir, þá hefur mér ekki gefist tími til að sinna öllu því sem ég vildi. Ég nefndi líka áðan hversu tímafrek leit að gömlum filmum er. Maður fær einhvern þráð til að fikra sig eftir, en það getur tekið allan manns tíma vikum og mánuð- um, jafnvel árum saman, eins og dæmin sanna, að finna þessar film- ur. En á meðan menn eru sammála um að Kvikmyndasafnið sé nauð- synlegt til að safna, skrá og geyma filmur sem merkar heimildir, þá er alltaf von til að úr rætist með að- búnað safnsins á öllum sviðum. -S.dór

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.