Þjóðviljinn - 17.03.1983, Side 2
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 17. mars 1983
Vesturþjóðverjar eyddu um 9 miljörðum króna í spilakassa á síðasta ári og þar er nú um hálf miljón
spilasjúklinga.
Spilafíknin
er sjúkdómur
sem er hliðstæður eiturlyfjaneyslu
Bridge
f fyrstu umferð seinni hluta „Knock out"
sveitakeppninnar í Biarritz á OL 82, kom
þetta athyglisverða spil fyrir:
A4
— 98742 952
1053 G109 ÁKG6
K85 ÁK3 6432
DG109874 62
KDG108763
D
ÁD7
5
Tvð pör spiluðu 4 spaða á spilið, og voru
ekkert óánægð með það. Fimm pör náðu 6
spöðum á spilin. Yfir 6 spöðum var svo
fórnað í 7 lauf á einu boröi.
Rodrigue (Br.) og Lindquist (Sv.) fengu
báðir út smátt hjarta og tekið á ás, i 6
spöðum. Hjá báðum var skipt yfir í tigul í 2.
slag og báðir létu dömuna, einn niður.
Sögukornið hjá okkur i dag gerðist á hinum
3 borðunum, þar sem N/S pörin fóru í 6
spaða. Mary Jane Farrell, ein besta spila-
kona USAog heims, fékk einnig sömu vörn
og heiðursmennirnir hér á undan, þ.e.,
smátt hjarta út og skipt í tígul. En daman
var ekki fædd deginum á undan. Hún stakk
upp ás (A/V höfðu ekkert sagt í spilinu,
nema Austur hafði doblað 5 hjörtu) og spil-
aði spaðanum í botn. Aumingja Vestur sá
sitt óvænna í lok spilsins og gafst upp, með
sín 7 lauf og tígulkóng. Nokkuð nett...
En svo voru það tveir aðrir heiðursmenn
frá USA, þeir Lou Bluhm og Ed Mansfield.
Þeir sátu báðir með Austur-hendina, tóku
fyrsta slaginn á hjartaás, og spiluðu smáu
laufi í 2. slag. Hver hefði sóð það við borð-
ið? Brutu upp endastöðuna, því nú vantar
samgang. (ath.)
Skák
Karpov að tafli - 113
Finnski stórmeistarinn Heikki Westerin-
en hefur aldrei verið talinn í hópi sterkustu
stórmeistara. Hann á þó til góða spretti inn
á milli og v'arð stórmeistari árið 1974. Það
ár komust Finnar öllum á óvart í A-riðil í
úrslitakeppni Olympíumótsins og var það
ekki síst Heikki að þakka. Hann mætti
Karpov undir lok mótsins og úr varð athygl-
isverð viðureign:
8 1 wx *
7 §i& Í.AXÍ 4
6 i X
5 K
4 & A A H
3 nt
2 ± aa
1 &
b c d e f g h
k arpov - Westerinen
Svartur á leik i erfiðri stöðu. Hér bjuggust
flestir við 21. - cxb4 en Westerinen hikaði
við. Hversvegna? Jú, hvítur á framhaldið:
22. Bxd7 Dxd7 (22. - Hxal 23. Dxa1 Dxd7
24. Da7 Rc5 25. Dxd7 Rxd7 26. Bxb4
o.s.frv.) 23. Rxe5! dxe5 24. Dg4! og svartur
er glataður þar sem 24. - BÍ6 strandar á
25. Rxe5! óis.frv.)
22. Bc6! Dc7
23. b5 Rf6
24. Dc2 Heb8
25. Re3 Bc8
26. Rc4 Be7
27. b6 Dd8
28. Ha7! Rd7
29. Da4 Hxa7
30. bxa7 Ha8
31. Da6 Dc7
32. Bxd7! Dxd7
33. Rb6 Rd8
34. Da1!
- Svartur gafst upp.
Leiktækja- og
spiiakassafaraldur fer nú um
Evrópu og virðist ekki síst
kærkomin dægradvöl fyrir
marga þá sem hafa orðið
atvinnuleysinu að bráð.
í nýlegri könnun sem þýskur
sálfræðingur gerði á spilafíkn
Vesturþjóðverja kom í ljós að af
um það bil 7 miljón Vesturþjóð-
verjum sem stunda fjárhættu-
spilakassa nokkuð reglulega, þá
séu um hálf miljón orðnir sjúk-
lega háðir spilafíkninni. Sjúk-
dómnum er þannig lýst, að við-
komandi missa yfirsýn yfir þann
tíma og þær fjárhæðir, sem þeir
eyða í spilakassana, en spila þess í
stað á meðan þeir hafa nokkurn
eyri til umráða.
í V-Þýskalandi eru um 5000
spilahallir auk minni staða og þar
eru skráðir um 160.000 spilakass-
ar þar sem spilað er upp á pen-
inga. Samkvæmt gildandi reglum
má hvert spil ekki kosta nema
0,30 DM (2,60 ísl. kr.), það verð-
ur að vara minnst 15 sekúndur og
má ekki gefa stærri vinning en 3
DM (26 kr.). Talið er að Vestur-
Hortensíu Allende, ekkju Salv-
adors Allende fyrrverandi forseta
Chile hefur verið neitað um vega-
bréfsáritun til Bandaríkjanna, en
þarlend samtök áhugamanna um
mannréttindi í Rómönsku Ame-
ríku höfðu boðið henni tii Kalif-
orníu til fyrirlestrahalds. I um-
sögn utanríkisráðuneytisins er
því haldið fram að heimsókn
Hortensíu Allende til Bandaríkj-
anna gæti orðið skaðleg banda-
rískum hagsmunum, sérstaklega
þar sem hún sé í tengslum við
Heimsfriðarráðið.
Hortensía Allende hefur eftir
morðið á manni hennar einbeitt
sér í baráttunni fyrir mannrétt-
þjóðverjar hafi eytt um einum
miljarði marka (tæpl. 9 miljörð-
um kr.) í fjárhættuspilakassa á
síðasta ári. Eins og gefur að skilja
af hinni miklu umsetningu er hér
orðið um afar ábatasama útgerð
að ræða, og lýsa hagsmunaaðilar
atvinnugrein þessari sem mein-
lausri tómstundaþj ónustu, og
nokkrir sálfræðingar hafa jafnvel
skrifað upp á vottorð um að spil-
amennskan feli í sér „mannúð-
legan valkost við að veita árásar-
og eyðingarhvöt útrás“.
I könnun þeirri sem sagt er frá í
nýlegu hefti tímaritsins Der Spi-
egel, lagði sálfræðingurinn
spurningar fyrir 49 spilamenn
sem virtust forfallnir og aðra 49
sem komu sjaldan í spilakassa-
búllurnar. Af tíðu gestunum
sögðust 14 koma sex sinnum eða
oftar í viku hverri og átta þeirra
sögðust eyða yfir 2 1/2 klst. fyrir
framan kassana í hvert skipti. Tíu
þessara spilamanna eyddi yfir 50
DM (440 kr.) í hvert skiptið og
þrír höfðu kastað 1000 DM í
raufina.
Sálfræðingurinn sagði að af
indum og hefur m.a. í því skyni
heimsótt Bandaríkin nokkrum
sinnum, síðast 1981, þegar hún
tók þátt í ráðstefnu sem haldin
var í New York gegn kynþátta-
mismunun í S-Afríku. Hortensía
Allende er ekki flokksbundin, en
maður hennar var formaður Sósí-
alistaflokksins í Chile.
Nú þegar Reagan-stjórnin er
að stórauka hernaðaríhlutun sína
í Mið-Ameríku er það hins vegar
talið skaðlegt bandarískum hags-
munum að ræða mannréttindi í
þessum heimshluta. Franska
blaðið Le Monde segir af þessu
tilefni að það hefði verið Reagan-
stjórninni til sóma og sýnikennsla
þessum 49 hefðu 3/4 talið sig háða
spilafíkninni, og meðal þeirra
hefðu verið tilfelli sem ættu sér
aðeins hliðstæðu meðal forfall-
inna eiturlyfjasjúklinga. 36 af 49
sögðust hafa spilað fyrir „fé ann-
arra“ og ein kona sendi dóttur
sína á götuna til þess að selja sig
fyrir spilapeninga.
Fjárhættuspilakassar sem gefa
vinningsmöguleika í peningum
eru yfirleitt bannaðir fyrir börn
og unglinga innan ákveðins
aldurs. Hins vegar er munurinn
á fjárhættuspilakössum og
leiktækjum, sem gefa vinning í
framlengdum spilatíma eða stig-
um oft frekar stigsmunur en
eðlismunur. í ljósi þess að spila
tækjum fyrir börn og unglinga af
þessu tagi hefur stórlega fjölgað
hér á landi að undanförnu er vert
að spyrja þeirrar spurningar,
hvort hér sé verið að ala upp spil-
asjúklinga fyrir framtíðina, eða
hvort spilakassarnir séu sú lausn
sem yfirvöld telji heppilegasta á
tómstundavandamálum barna og
unglinga.
Hortensía Allende - boðskapur
hennar um mannréttindi í Róm-
önsku Ameríku gæti skaðað
bandaríska hagsmuni segir utan-
ríkisráðuneytið.
í lýðræði að veita Hortensíu Al-
lende vegabréfsáritun, enda þótt
stjórnin telji hana sér andsnúna.
- Er Helsinki-sáttmálinn
gleymdur? spyr blaðið að lokum.
ólg.
Skógar-
beit sauð-
fjár
Fjórir gauskir bændur hafa ný-
lega skýrt frá reynslu sinni af því
að beita fé á skóglendi, að því er
Freyr skýrir frá. Telja þeir að
arður af skóginum hafi vaxið með
beitinni. Þó segja þeir, sem vænta
mátti, óráðlegt að beita nýplant-
aðan skóg.
Nokkru áður en skógarbeitin
hefst fær féð frjálsan aðgang að
vítamínbættum steinefnum og
síðan nokkrum sinnum á mánuði
yfir beitartímann. Á það að draga
úr hættunni af því að féð fari að
éta barr af trjánum. Fosfat var
borið á beitarskóginn til þess að-
bæta fosfórástand jarðvegsins.
Áður en það var gert hungraði
féð mjög í steinefni. En eftir að
fosfórinn hafði verið borinn á
nægði hverri kind hálft kg. á
mánuði.
En hverjir eru þá kostirnir við
skógarbeitina, að dómi Svíanna?
Jú, féð bítur viðarteinunga, kvist
og gras. Við það brotna lífræn
efni ört niður og nýtast fljótt trján-
um og^ öðrum gróðri. Þá rvður
féð braut trjáplöntum, sem ella
næðu aldrei upp úr grasinu. Al-
hliða áburður auk kölkunar á bit-
haga í skógi, kemur trjánum
einnig til góða.
Einn bóndinn sagði: „Með því
að beita fé í skóglendi fæ ég
aukinn hagnað bæði af skógrækt
og sauðfjárrækt og meiri arð með
því að blanda þessum tveim bú-
greinum saman en ef ég stundaði
þær hvora í sínu lagi“. Einn bónd-
inn gat þess, að ársprotar trjánna
hefðu lengst verulega sfðan skóg-
arbeitin hófst.
-mhg
Steingrímur Jónsson lauk
guðfærðiprófí frá Hafnarháskóla
1803. Gerðist lektor við Bessa-
staðaskóla 1805 og gegndi því
starfi til 1811. Síðan prestur í
Odda á Rangárvöllum frá 1811-
1824. Eftir það biskup til ævi-
loka. Steingrímur biskup var
skipaður konungkjörinn alþing-
ismaður 1843, en andaðist
skömmu áður en alþingi kom
fyrst saman 1845.
Biskupa-
skipti
Steingrímur biskup Jónsson í
Laugarnesi andaðist þann 14.
júní 1845 77 ára gamall. Franskir
sjóliðar fluttu lík biskups frá
Laugarnesi til Reykjavíkur og
var hann jarðsunginn frá Dóm-
kirkjunni af sr. Helga G. Thord-
arsen, dómkirkjupresti þann 24.
júní, við mikla viðhöfn, sem
vænta mátti.
Sr. Árna Helgasyni var falið að
gegna embætti biskups þar til nýr
hefði verið skipaður. Hoppe
stiptamtmaður var því hlynntur,
að sr. Árni fengi biskupsembætt-
ið en fékk því ekki ráðið fyrir
stjórninni, sem taldi sr. Árna of
aldurhniginn til þess, en hann var
þá 68 ára gamall. Ofan á varð. að
sr. Helgi G. Thordarsem, dóm-
kirkjuprestur, yrði biskup en
hann komst ekki utan til þess að
taka vígslu fyrr en árið eftir.
-mhg
Hættuleg ekkja
útilokuð frá USA