Þjóðviljinn - 17.03.1983, Blaðsíða 5
Fimnitudagur 17. mars 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5
Marianella Garcia-Villas
var myrt í E1 Salvador
Hún var forseti Mannréttindanefndar E1 Salvador og
kom til íslands í nóvember síðastliðnum
Marianella Garcia-Villas forseti
Mannréttindanefndar E1 Salvador
var myrt á götu úti í þorpinu Berm-
uda I E1 Salvador s.l. sunnudag.
Marianella var nýkomin tU
landsins til þess að kynna sér
ástand mannréttindamála og safna
efni í skýrslu fyrir Mannréttinda-
nefnd Sameinuðu þjóðanna.
Marianella var hér á íslandi í
nóvember s.l. og átti fund með ís-
lenskum fréttamönnum um mann-
réttindi í E1 Salvador.
í hádegisfréttum útvarpsins í gær
var það haft eftir stjórnvöldum í E1
Salvador að Marianella hefði fallið
í átökum á milli skæruliða og
stjórnarhersins.
í samtali við Þjóðviljann í gær
sagði Patricio Fuentes, fulltrúi
Mannréttindanefndar E1 Salvador
á Norðurlöndum, að Marianella
Garcia-Villas hefði verið tekin af
lífi án undangenginna átaka af 8
hermönnum úr stjórnarhernum og
hefði hér verið um kaldrifjað morð
að ræða.
fulltrúi kirkjunnar í Mannréttind-
ánefndinni.
Þær fóru til landsins í því skyni
að safna heimildum um ástand
mannréttindamála í landinu, sem
hafi farið versnandi á síðastliðnu
ári. Segir í skeytinu að nefndin hafi
heimildir um 43.000 morð
óbreyttra borgara frá því í október
1979 þar til í desember 1982, og
enn fremur að stjórnvöld beiti
óbreytta borgara pyntingum auk
þess sem fólk sé látið „hverfa“,
fjöldamorð séu framin á óbreyttum
borgurum og að stjórnarherinn
notist við efnavopn gegn óbreytt-
um borgurum.
í skeytinu segir að Marianella hafi
hætt lífi sínu til að vinna þetta verk í
fullvissu þess að friður, réttlæti og
frelsi verði ekki tryggt í landinu
nema almenn mannréttindi séu
virt. Segir í skeytinu að skipulögð
mannréttindabrot stjórnvalda með
stuðningi Bandaríkjastjórnar séu
rót þess ófriðar sem nú ríki í
landinu.
í skeyti Mannréttindahreyfing-
arinnar er þvertekið fyrir það að
Marianella hafi verið virkur þátt-
takandi í nokkrum pólitískum eða
hernaðarlegum samtökum. Hins
vegar sé Mannréttindanefndin
sjálfstæð stofnun óháð öllum
stjórnmálasamtökum.
Lýsir nefndin ábyrgð á hendur
hinni ólögmætu stjórn E1 Salvador
fyrir morðið á Marianella Garcia-
Villas og 43.000 óbreyttum borgur-
um í landinu.
Skýrsiu sína ætlaði Marianella
Garcia-Villas að vinna fyrir Mann-
réttindanefnd Sameinuðu þjóð-
anna sem hefur aðsetur í Genf.
„Dauði ástkærs félaga okkar,
Marianellu Garcia-Villas, er okkur
mikill harmur en jafnframt hvatn-
ing til að halda áfram starfi okkar í
landi sem er blóði drifið af gegnd-
arlausri kúgun morðóðra stjórn-
valda sem njóta skilyrðislauss
stuðnings Bandaríkjastjórnar í
Marianella Garcia-Villas þegar hún var stödd hér á landi í nóvembcr sl. í
boði Alþýðuflokksins. Myndin er tekin á fundi með forystumönnum Al-
þýðubandalagsins. Ljósm. gel.
mannréttindabrotum sínum“, segir
í skeytinu að lokum.
„Enginn veit...“
Þegar Marianella Garcia-Villas
var hér á landi í nóvember s.l. sagði
hún meðal annars um ástand
mannréttindamála í landi sínu:
Þegar fólk fer að heiman á morgn-
ana til vinnu sinnar er það í full-
kominni óvissu um hvort það eigi
afturkvœmt. Á þessu ári (1982) höf-
um við vitneskju um að 3500
óbreyttir borgarar hafi verið myrtir
í landinu, og 2500 manns hafa horf-
ið sporlaust. Það þarf ekki annað
en að einhver sé grunaður um að
hafa samúð með andstöðuöflunum
í landinu, þá má hann eiga von á að
vera handtekinn, pyntaður og myrt-
ur, það veit enginn hvenœr kemur
að honum..."
Þess má að lokum geta að Reag-
an Bandaríkjaforseti hefur nýlega
farið framá 120 miljónum dollara
aukafjárveitingu til hernaðarað-
stoðar við stjórnina í E1 Salvador.
Slík hernaðaraðstoð er til þess fall-
in að viðhalda ríkjandi ástandi og
gera það enn verra. ólg.
Hætti lífi sínu
Þjóðviljanum barst síðan í gær
skeyti ftá Mannréttindanefndinni
þar sem segir ma. að Marianella
Garcia-Villas hafi komið til E1
Salvador með löglegum hætti sem
forseti Mannréttindanefndar E1
Salvador og hafi hún verið í fylgd
með Luz Maria Hernandez, sem er
Þá segir í skeytinu að Marianella
hafi meðal annars ætlað að leita
staðfestingar á heimildum um að
stjórnarherinn noti efnavopn eins
og hvítan fosfór gegn fólkinu í
landinu. Þá hafi hún einnig ætlað
að kanna ástand mannréttinda-
mála á yfirráðasvæðum FMLN/
FDR, sem eru samtök skæruliða og
st j órnarandstæðinga.
Gervigrasið enn dýrara en ætlað var:
5 miljónir kr.til
jarðvegsskipta!
Nú er orðið Ijóst að framkvaemd-
ir við gervigrasvöll í Laugardal
verða mun dýrari en ætlað var, en á
fjárhagsáætlun var veitt 10 miljón-
um króna til verksins í ár. Var þá
miðað við að teppið yrði lagt í sum-
ar en á næsta ári skyldi veitt 15
miljónum til frágangs Rringum
völlinn. Við rannsóknir nýverið
kom í ljós að skipta þarf um
jarðveg undir teppinu og hefur íþr-
óttaráð lagt til að lagningu teppis-
ins verði frestað um eitt ár og þess í
stað farið í jarðvegsskipti í sumar
en þau munu kosta 4,8 miljónir
króna.
Borgarráð fjallaði um þetta mál
á þriðjudag og var þar felld tillaga
Kvennaframboðs um að hætt yrði
við gervigrasvöllinn. Hlaut tillagan
aðeins tvö atkvæði Alþýðubanda-
lags og flutningsmanns. Sömu full-
trúar sátu svo hjá við afgreiðslu á
endurskoðaðri framkvæmdaáætl-
un íþróttaráðs, en þar er gert ráð
fyrir að 4,8 miljónir fari í jarðvegs-
skiptin. 5,2 miljónum sem þá
standa eftir af fjárveitingu í gervi-
grasið, hyggst íþróttaráð svo verja
til annarra framkvæmda, þ.á.m.
2,5 miljónum í bað- og búnings-
klefa í Laugardalslaug. Þá eru fjár-
veitingar til annarra framkvæmda
hækkaðar nokkuð, m.a. hækkar
stólalyftan í Bláfjöllum um 700
þúsund og ný lýsing í Laugardals-
höll um sömu fjárhæð.
í borgarráði gerði Sigurjón Pét-
ursson svofellda grein fyrir hjásetu
sinni: „Ég fagna því að nú skuli
ákveðið að halda áfram vinnu við
byggingu búningsklefa við sund-
laugarnar í Laugardal eins og Al-
þýðubandalagið lagði til við af-
greiðslu fjárhagsáætlunar en þá var
fellt af Sjálfstæðismönnum. Þar
sem tillagan gerir einnig ráð fyrir
stórri fjárveitingu til jarðvegs-
skipta vegna gervigrasvallar, sem
ég tel ótímabæran, þá sit ég hjá við
afgreiðslu hennar."
-ÁI
Framkvæmdaáætlun endurskoðuð:
2,5 miljónir kr.
í búningsklefana
3000 áskoranir bárust borgarráði
Ákveðið hefur verið að verja 2,5
miljónum króna til framkvæmda
við nýja bað- og búningsklefa við
Laugardalssundlaugina, en við af-
greiðslu fjárhagsáætlunar felldu
Sjálfstæðismenn tillögu frá Al-
þýðubandalaginu þar um. 3000
manns hafa skorað á borgarstjórn
að halda verkinu áfram, en undir-
skriftalistar hafa legið frammi í
sundlaugunum um hríð.
Það er þó varla undirskriftunum
að þakka að þetta mikla mann-
virki, sem 8 miljónum var veitt í á
síðasta ári verður ekki látið standa
óhreyft í ár. Ástæðan er einfald-
lega sú að ekki er hægt að fullgera
gervigrasvöllinn, sem tekinn var
framfyrir bað- og búningsklefana
við afgreiðslu fjárhagsáætlunar,
þar sem skipta þarf um jarðveg
undir plastinu. 5,2 miljónir standa
eftir af fjárveitingu í gervigrasið og
samþykkti íþróttaráð og borgarráð
að veita tæpum helmingi til áfram-
haldandi framkvæmda við bað- og
búningsklefana.
-ÁI
Einingarhelgi
á Akureyri
Landbúnaöarráðstefna Alþýðubandalagsins
verður haldin á Hótel Varðborg, Akureyri 18. og 19. mars.
Dagskrá:
Föstudagur 18. mars kl. 20:30
1. Setning: Svavar Gestsson
2. Skipulagning framleiðslu, landnýting og heimaöflun og nýjar
búgreinar. Framsögumenn: Jón Viðar Jónmundsson kennari,
Þórarinn Lárusson ráðunautur og Jón Árnason ráðunautur.
3. Verðmyndunarkerfi landbúnaðarins. Framsögumaður: Ríkard
Brynjólfsson kennari.
4. Úrvinnsla - iðnaður - markaður. Framsögumaður: Guðrún Hall-
grímsdóttir, og fulltrúar Iðnaðardeildar SlS og Kaupfélags Sval-
barðseyrar.
5. Almennar umræður.
Laugardagur 19. mars kl. 9:30
1. Viðhorf neytenda til landbúnaðarins. Framsögumaður: Jóhannes
Gunnarsson varaformaður neytendasamtakanna..
2. Stefnumörkun Alþýðubandalagsins í landbúnaðarmálum.
Framsögumaður Helgi Seljan alþingismaður.
3. Almennar umræður.
4. Hópstarf - afgreiðsla mála - ráðstefnuslit.
Ráðstefnustjóri: Steingrímur J. Sigfússon.
MiÖstjórnarfundur
Alþýðubandalagsins
verður haldinn á Hótel Varðborg, Akureyri. Fundurinn hefst lauqardaq-
inn 19. mars kl. 14.
Jóhannes Helgi
Gunnarsson Seljan
Jón Viöar Guðrún
Jónmundsson Hallgrímsdóttir
Svavar
Gestsson
Steingrímur J.
Sigfússon
Rfkharð
Brynjólfsson
Þórarinn
Lárusson
Jón
Árnason
Almennur fundur
Alþýðubandalagið boðar til almenns stjórnmálafundar á Akureyri sunn-
udaginn 20. mars kl. 15 á Hótel KEA.
Svavar Gestsson formaður Alþýðubandalagsins flytur ræðu. Ávörp
flytja Kristín Hjálmarsdóttir formaður Iðju, Svanfríður Jónasdóttir
bæjarfulltrúi, Dalvík og Steingrímur J. Sigfússon.
Skemmtidagskrá - m.a. leikur Kammerblásarasveit Tónlistarskólans
undir stjórn Roars Kvan. Fundarstjóri er Heimir Ingimarsson.
FERÐIR
Flogið verður frá Reykjavík kl. 16.00
þann 18. mars og frá Akureyri kl.
20.00 sunnudaginn 20.mars.
Allar nánarí upplýsingar eru gefnar
á skrifstofu Alþýðubandalagsins að
Hverfisgötu 105. Sími 17500. Þátt-
tökutilkynningar þurfa einnig að
berast þangað sem fyrst.