Þjóðviljinn - 17.03.1983, Page 7
Fimmtudagur 17. mars 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19
Góður
sigur
Framara
Fallkeppnin í 1. deild karla í
handknattleik hófst með mikilli
leynd í Laugardalshöllinni í gær-
kvöldi, Framarar komu á óvart
með því að sigra Valsmenn 20-16 og
Þróttur vann ÍR 25-19.
Fyrri hálfleikurinn hjá Fram og
Val var eitt það slakasta sem sést
hefur í vetur. Gönguhandbolti alls-
ráðandi og leikurinn líkastur
æfingaleik. Staðan í hálfleik var
jöfn 8-8 en Fram komst í 14-11 í
síðari hálfleik og síðan 19-14 rétt
fyrir leikslok.
Gunnar Gunnarsson og Dagur
Jónasson voru bestu menn Fram en
liðið tók mikinn kipp þegar Dagur
kom inná snemma í síðari hálfleik.
Gunnar skoraði 6 mörk, Dagur 4,
Egill Jóhannesson og Björn Eiríks-
son 3 hvor. Jón Pétur Jónsson var
bestur Valsmanna en auk þess léku
Þorbjörn Jensson og Jakob Sig-
urðsson þokkalega. Jón Pétur
skoraði 6 mörk, Þorbjörn 4 og Jak-
ob þrjú.
Keppnin heldur áfram í kvöld.
Þróttur og Fram leika kl. 20 en ÍR
og Valur kl. 21.15. Báðir leikirnir
verða í Laugardalshöllinni.
- FE/VS.
Stoke
sigraði
Einn leikur fór fram í 1. deild
ensku knattspyrnunnar í gær-
kvöldi. Stoke sigraði Nottingham
Forest 1-0 á heimavelii sínum,
Victoria Ground.
Tveir Bret-
ar á nám-
skeið FRÍ
Dagana 26. mars til 4. apríl næst-
komandi gengst tæknideild Frjáls-
íþróttasambands íslands fyrir
námskeiði fyrir þjálfara í Reykja-
vík. Námskeiðið er haldið með
aðstoð Ólympíusamhjálparinnar,
og verða leiðbeinendur tveir bresk-
ir toppþjálfarar, Norman Brook og
Shaun Kyle, sem eru sérhæfðir í
spretthlaupum og grindahlaupum
annars vegar og langstökki og þrí-
stökki hins vegar.
Ollum leiðbeinendum og áhuga-
mönnum um frjálsíþróttaþjálfun er
heimil þátttaka í námskeiðinu, en
nauðsynlegt er að tilkynna þátt-
töku til Ágústs Ásgeirssonar for-
manns tækninefndar FRÍ í tíma.
Bláfjalla-
gangan,83
Bláfjallagangan 1983 fer fram
laugardaginn 19. mars n.k. og hefst
kl. 14. Gengnir verða 22 km, frá
Bláfjöllum í Hveradali. Skráning
hefst kl. 11 um morguninn við
Borgarskála í Bláfjöllum og stend-
ur yfir þar til gangan hefst. Þátt-
tökugjald, kr. 150, greiðist við
skráningu. Að göngu lokinni verð-
ur þátttakendum séð fyrir rútuferð
úr Hveradölum í Bláfjöll. Kepp-
endur frá hressingu meðan á göng-
unni stendur og að henni lokinni.
Bláfjallagangan er nú haldin í
fjórða skipti. Þátttaka hefur aukist
árlega og í fyrra gengu um 12o
manns og búist er við fleirum nú.
Umsjón með göngunni hefur
Skíðafélag Reykjavíkur.
íþróttir Víðir Sigurðssön
Evrópumótin í knattspyrnu:
Sex ára einræði
enskra á enda!
Sex ára veldi Englendinga í
Evrópukeppni meistaraliða í knatt-
spyrnu er á enda. Evrópumeistar-
arnir Aston Villa og ensku meistar-
arnir Liverpool féllu úr keppni í
8-liða úrslitunum í gærkvöldi. í
undanúrslitin komust Widzew
Lodz frá Póllandi, Hamburger SV
frá V.Þýskalandi, Real Sociedad
frá Spáni og ítöslu meistararnir Ju-
ventus.
Liverpool hafði tapað 0-2 gegn
Lodz í Póllandi en byrjaði vel í gær-
kvöldi þegar liðið fékk vítaspyrnu á
17. mínútu sem Phil Neal skoraði
úr. Á 30, mínútu urðu hins vegar
fyrirliðanum Graeme Souness á
mikil mistök, hann missti knöttinn
til Smolarek sem komst í gegn, Iék
á Bruce Grobbelaar markvörð, en
sá síðarnefndi felldi hann. Víta-
spyrna, og Tlokinski skoraði.
Smolarek skoraði síðan á 54. mín-
útu 1-2, og 1-4 samanlagt. Ian
Rush náði að skora ellefu mínútum
fyrir leikslok eftir fyrirgjöf David
Fairclough, 2-2, og á lokamínút-
unni gerði David Hodgson sigur-
mark Liverpool eftir hornspyrnu
Craig Johnston en Pólverjarnir
fögnuðu, komust áfram, 4-3.
Aston Villa átti aldrei möguleika
í Torino gegn Juventus. Michel
Platini skoraði á 13. mínútu,
klaufamark því Nigel Spink mark-
vörður Villa missti knöttinn milli
handa sér í netið. Marco Tardelli
Evrópumót á Topper-bátum
verður haldið hér á landi (eða hér
við land) dagana 7.-13. ágúst í sum-
ar. Siglingasambandi íslands var
falið að halda mótið og fól það síð-
an siglingaklúbbnum Vogi í Garða-
bæ að sjá um framkvæmd þess og
stjórna mótshaldi.
Reiknað er með að allt að 70-80
erlendir þátttakendur mæti til
leiks, þar af margir frá Englandi.
skoraði, 2-0, á 26. mínútu og á 67.
mínútu stal Platini knettinum af
McNaught á vítateig Villa og
skoraði 3-0. Mark Peter Withe, 3-
1, breytti engu, Juventus áfram,
samanlagt 5-2.
Real Sociedad sigraði Sporting
Lissabon 2-0 og komst áfram,
samanlagt 2-1, og Hamburger tap-
aði 1-2 fyrir Dynamo Kiev en sigr-
aði þó samtals 4-2.
Lárus skoraði
Lárus Guðmundsson og félagar í
belgíska liðinu Waterschei komust
óvænt í undanúrslit Evrópukeppni
bikarhafa. Þeir töpuðu 2-0 fyrir
Paris St.Germain í fyrri leiknum en
Þá verða íslenskir keppendur allt
að 30. Keppnin fer fram utan Ál-
ftaness, eða ef veður og aðstæður
leyfa, innan Skerjafjarðar.
Siglingasambandið hefur þegar
lagt mikla vinnu í að kynna mótið
erlendis og hefur gert það á líflegan
og skemmtilegan hátt. Til undir-
búnings fyrir íslenska keppendur
kemur þekktur enskur þjálfari
hingað til lands í maí, Keith Musto.
unnu þann síðari í Belgíu í gær-
kvöldi 3-0. Lárus skoraði fyrsta
mark leiksins.
Aberdeen frá Skotlandi sló
vestur-þýsku risana Bayern Munc-
hen út með því að sigra þá 3-2 á
Pittodrie. Liðin höfðu skilið jöfn í
Munchen, 0-0. Bayern riáði tvíveg-
is forystunni en tvö mörk Aberde-
en á síðasta korterinu tryggðu
skoskan sigur. Neil Simpson, Alex
McLeish og varamaðurinn John
Hewitt skoruðu mörk Aberdeen
en Augenthaler og Pfugler fyrir
Bayern.
Real Madrid komst einnig í
undanúrslit, vann Inter Milano 2-1
á Spáni eftir 1-1 í fyrri leiknum á
Hann vann til silfurverðlauna á Ól-
ympíuleikunum í Tokyo 1964 og
var í Ólympíuliði Englands allt til
1980.
íslenskir siglingamenn ætla einn-
ig að láta að sér kveða á erlendum
vettvangi. Þar stefna þeir á að ná
nægilega góðum árangri til að
koma til greina þegar þátttakendur
verða valdir til farar á Ólympíu-
leikana í Los Angeles 1984. -VS
Lárus Guðmundssn skoraði fyrsta
mark Waterschei í gærkvöldi.
Ítalíu. Altobelli kom ítölunum yfir
en Salguero og Santillana tryggðu
Real sigur.
Úrslitin í fjórða leiknum voru
óvænt, handhafar Evrópubikars-
ins, Barcelona, féllu gegn Austria
Wien. Liðin skildu jöfn, 1-1, í
Barcelona en fyrri leikurinn, í
Austurríki, var markalaus svo
Austria komst áfram á útimarkinu.
Allt ætlaði vitlaust að verða í leiks-
lok, Argentínumaðurinn frægi hjá
Barcelona, Diego Maradona, há-
grét og trylltur lýðurinn heimtaði
að öll stjórn félagsins segði af sér!
UEFA-bikarinn
Ekki er mikil reisn yfir UEFA-
bikarnum og austantjaldsliðin, Bo-
hemians Prag frá Tékkóslóvakíu
og Universitata Craiova frá Rúm-
eníu, komust mjög óvænt áfram.
Vonbrigðin í Dundee voru gífur-
leg eftir markalaust jafntefli
Dundee United og Bohemians.
Skotarnir voru nrikið betri og sóttu
látlaust en mark Tékkanna slapp
ótrúlega.
Þróttur
vann HK
Þróttur vann HK 3-0 í undanúr-
slitum bikarkeppni karla í blaki í
gærkvöldi. Hrinurnar enduðu 15-
8, 15-2 og 15-7. Þjálfari HK,
Samúel Örn Erlingsson, fékk
rauða og gula spjaldið í lokahrin-
unni fyrir að mótmæla dómi en slík
sýning þýðjr brottrekstur. Þróttur
leikur til úrslita við ÍS á sunnu-
daginn.
-VS
/
Urslit Evrópuleikjanna
Evrópukeppnj meistaralida:
Liverpool (Englandi)-Wldzew Lodz (Pólland)........................3-2 (3-4)
Juventus (ltaliu)-Aston Villa (Englandi)...........................3.1 (5-2)
Real Sociedad (Spáni)-Sporting (Portúgal).........................2-0 (2-1)
Hamburger(V.Þýsk.)-Dynamo Kiev (Sovétr.)..........................1-2 (4-2)
Evrópukeppní bikarhafa:
Aberdeen (Skotlandi)-Bayern Uunchen (V.Þýsk.)......................3-2 (3-2)
Waterschei (Belgiup-Paris St.Germ. (Frakkl.).......................3-0 (3-2)
Real Madrid (Spáni)-lnter Milano (ítaliu)..........................2-1 (3-2)
Barcelona(Spáni)-Austria Wien (Austurríki).........................1-1 (1-1)
(Austria áfram á útimarki)
UEFA-bikarinn:
Anderlecht (Belgíu)-Valencia (Spáni)...............................3-1 (5-2)
Dundee Utd (Skotlandi)-Bohemians (Tékkosl.)........................0-0 (0-1)
Benfica (Portúgal)-AS Roma (Italiu).............................
Craiova (Rúmeníuj-Kaiserslautern (V.Þýsk.)..........................10 (3-3)
(Craiova áfram á útimörkum)
Evrópumót á Topper-bátum
haldið hér á lándi í ágúst
Árni vann tvöfalt á bikar-
og punktamótinu á Dalvík
Um sl. helgi var haldið bikar- og
punktamót unglinga á Dalvík.
Mótið var haldið í Böggvistaða-
brekku, en þar hafa Dalvíkingar
komið sér upp góðri aðstöðu til
skíðaiðkunar í skemmtilegu landi.
Að halda unglingamót fyrir
skfðamenn er ekki vandalaust.
Þegar fjöldi keppenda er orðinn
130 þá er vinnan er inna þarf af
hendi gífurleg. Slík mót sem þessi
þurfa að gana vel fyrir sig. Þegar
fjölmennur og samhentur hópur,
er lætur vinnugleði sitj a í fyrirrúmi,
er samankominn þá ganga þessi
mót vel. Leikgleði starfsmanna
smitar alla þátttakendur. Hefðu
þeir skíðasambandsmenn er starfa
sem eftirlitsmenn, gjarnan mátt
vera mættir á Dalvík um síðustu
helgi og fylgjast með skemmtilegu
móti.
Fyrri dag mótsins var keppt í
stórsvigi í öllum flokkum, en þeir
eru fjórir, þ.e. 13-14 ára drengir og
stúlkur og 15-16 ára flokkur dreng-
ja og stúlkna.
í yngri flokki stúlkna sigraði
Snædís Úlriksdóttir Reykjavík.hún
hafði bestan tíma keppenda í báð-
um ferðum. Önnur varð Kristín
Ólafsdóttir einnig frá Reykjavík,
stutt á eftir henni kom Akureyrin-
gurinn Arna ívarsdóttir, en hún
hafði annan bestan tíma í seinni
umferð.
í flokki drengja 13-14 ára sigraði
ógjörn Brynjar Gíslason. Hann
hafði það mikið forskot eftir fyrri
^ferð að þó Brynjar Bragason hafi
náð bestum tíma í síðari umferð þá
var sigur Björns Brynjars öruggur.
Þriðji varð Hilmir Valsson. Þessir
drengir eru allir frá Akureyri.
Árni G. Árnason frá Húsavík
sigraði í eldri flokki drengja. Hann
hefur átt mikilli velgengni að fagna
á mótum vetrarins. Annar varð
Smári Kristinsson, Akureyri, og
þriðji Guðjón B. Ólafsson, ísa-
firði. Tímamismunur þessara
drengja og þeirra er á eftir komu
var mjög lítill.
í stórsvigi stúlkna 15-16 ára sigr-
aði Guðrún J. Magnúsdóttir nokk-
uð örugglega eftir glæsilega keyrslu
í síðari umferð. Önnur varð Ánna
M. Malmquist og þriðja Guðrún
H. Kristjánsdóttir. Skammt á eftir
henni kom síðan Signý Viðarsdótt-
ir. Þessar stúlkur eru allar frá Ak-
ureyri.
Síðari dag mótsins var keppt í
svigi í öllum flokkum.
Iflokki stúlkna 13-14 ára sigraði
Kristín Ólafsdóttir, Reykjavík,
stutt á eftir henni kom Arna ívars-
dóttir en hún hafði bestan tíma í
síðari ferðinni. Þriðja varð Kristín
Jóhannsdóttir frá Akureyri.
í eldri flokki stúlkna sigraði
Guðrún H. Kristjánsdóttir, en
keppnin hjá þessum flokki, í svig-
inu, var mjög jöfn og spennandi.
Önnur varð Guðrún J. og þriðja
Anna María, fjórða varð síðan
Signý Viðarsdóttir. Tímamismun-
ur milli þessara stúlkna var ekki
nema rétt rúm sekúnda.
í flokki 15-16 ára drengja sigraði
Árni G. Árnason örugglega, hann
vann því tvöfalt þessa helgi. Annar
varð Átli G. Einarsson, ísafirði, og
þriðji varð Guðjón B. Ólafsson.
Björn Brynjar Gíslason sigraði
einnig í svigi drengja 13-14 ára,
annar varð Brynjar Bragason.
Þessir drengir höfðu nokkra yfir-
burði yfir jafnaldra sína. í þriðja
sæti var Sigurður Bjarnason frá
Húsavík.
Hafi Dalvíkingar þökk fyrir vel-
heppnað mót.