Þjóðviljinn - 17.03.1983, Page 12
DWDVIUINN
Fimmtudagur 17. mars 1983
Aöalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tíma er hægt aö ná í blaðamenn og aöra starfsmenn blaðsins í þessum símum: Ritstjórn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími
81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 -12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins I síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663
Grásleppan:
Hrognin
hækka
Mér virðist af samtölum við
menn, að meira iíf verði í grá-
sleppuveiðunum hér við land í ár en
var í fyrra, enda ailar forsendur
nokkuð breyttar, sagði Þórður
Eyþórsson í sjávarútvegsráðuneyt-
inu þegar hann var spurður um
leyfisveitingar til grásleppuveiða í
ár, en vertíðin norðanlands mátti
hefjast 10. mars sl. en 18. aprfl hér
syðra.
Hann sagði að ástæðan fyrir því
hve lítið menn stunduðu veiðarnar
í fyrra hafi verið sú að mikið var þá
til af óseldum grásleppuhrognum í
landinu og verðið lágt, eftir met-
veiði ársins á undan. Árið 1981
voru framleiddar 20 þúsund tunnur
af hrognum en í fyrra aðeins 6 þús-
und tunnur.
Nú hefur tekist að selja öll þessi
hrogn og útlitið á markaðnum því
gott í ár. Verðið hefur líka hækkað
og verður 330 dollarar fyrir tunn-
una, sem kemur fyrst og fremst til
af því að veiðimenn héldu að sér
höndum í fyrra. -S.dór
Netaveiðin:_______
Sjö daga
páskastopp
Menn hafa velt því fyrir sér að
undanförnu hvort hið svonefnda
-páskastopp- á netaveiðum á ver-
tíðinni yrði stytt eða aflagt í ár
vegna gæftaleysis og lítils afla það
sem af er vertíð. Nú hefur verið
ákveðið sjö daga stopp, frá kl. 22
þann 29. mars, en þá verða bátar
að vera búnir að taka upp öll net og
mega svo leggja aftur um hádegi
þann 5. apríl.
Þórður Eyþórsson í sjávarút-
vegsráðuneytinu benti á í gær, þeg-
ar Þjóðviljinn leitaði frétta af þessu
máli, að nú þegar ekki er hægt að
verka í skreið, kæmi netaveiði um
páska ekki til greina þar sem hugs-
anlegt væri að fiskur yrði allt að 5
nátta í netum. Því hefur sjávarút-
vegsráðuneytið ákveðið viku
stöðvun á netaveiðum um páska.
-S.dór
Nýr sölusamningur
við Portúgali:
Verð-
lækkun á
saltfiski
Því miður er um nokkra
verðlækkun að ræða, en ég get ekki
gefið upp hvað hún er mikil, en
held þó að mér sé óhætt að fullyrða
að hún sé ekkert áfall, sagði Val-
garður J. Ólafsson hjá Sölusam-
bandi isl. fískframleiðenda um ný-
gerða salflsksölu samninga við
Portúgali.
Samið var um að Portúgalir
kaupi af okkur 27 þús. tonn af salt-
fiski til ársloka og 7 þúsund lestir á
fyrstu mánuðum næsta árs. Það er
ríkisfyrirtækið Reguladora sem
annast samningagerðina fyrir Port-
úgali. Það magn sem samið var um
nú, er minna en selt hefur verið til
Portúgal sl. 2 ár, en þá keyptu Port-
úgalir 37 þúsund lestir hvort ár.
Sagði Valgarður J. Ólafsson að
þessi magnminnkun skipti litlu
máli enda mjög hæpið að takist að
framleiða jafn mikið magn af salt-
fiski í ár og gert var á síðustu
tveimur árum.
Portúgalir hafa sýnt áhuga á að
fá að veiða innan íslenskrar land-
helgi, en tóku það fram að þeir
sæju enga ástæðu til að taka það
mál upp nú. Aftur á móti lögðu
þeir þunga áherslu á að íslendingar
héldu áfram að auka kaup frá
Portúgal á hvern þann hátt sem
mögulega fyndist. Því aðeins gætu
íslendingar vænst þess að halda
hlut sínum á portúgalska saltfisk-
markaðnum að það tækist. -S.dór
Niðurstöður arðsemisútreikninga fyrir trjákvoðuverksmiðju á Húsavík eru viðunandi, sagði Hjörleifur
Guttormsson iðnaðarráðherra á fundi í gær. Ljósm. Atli.
Trjákvoðuverksmiðja á íslandi
Enn of margir
óvissuþættir
sem rannsaka þarf betur áður en hægt er að mæla
með slíkri verksmiðju
Húsvíkingar komu á sínum tíma fram með þá hugmynd að reisa trjá-
kvoðuverksmiðju á Húsavík og var þeirri hugmynd vel tekið. A vegum
iðnaðarráðuneytisins hefur um tveggja ára skeið verið unnið að athugun-
um á hagkvæmni slíkrar verksmiðju hér á landi. Rannsóknina önnuðust
flnnska verkfræðifyrirtækið EKONO og Ráðgjöf og hönnun sf. undir
stjórn Edgars Guðmundssonar.
Á fréttamannafundi sem Hjör-
leifur Guttormsson iðnaðarráö-
herra boðaði til í gær um þetta mál
kom fram, að enn eru of margir
óvissuþættir, sem rannsaka þarf
betur áður en hægt er að mæla með
því að reist skuli trjákvoðuverk-
smiðja hér á landi. En með þeirri
rannsókn sem þegar hefur verið
framkvæmd er ákveðnum áfanga í
könnuninni náð.
Trjákvoða er sem kunnugt er
hráefni til pappírsgerðar og við
þessa rannsókn var miðað við verk-
smiðju sem framleiddi 150 þúsund
tonn á ári. Stofnkostnaður verk-
smiðjunnar yrði 99 miljónir dollara
eða um 2 miljarðar ísl. króna.
Miðað er við að frá hráefni til
framleiðslunnar frá Kanada og
selja trjákvoðuna til V-Evrópu að
mestu leyti eða 65%, 20% til N-
Ameríku og 15% til annarra
heimshluta. Niðurstöður arðsemis-
útreikninga EKONO eru viðun-
andi, en samt er talið að lækka
verði framleiðslukostnaðinn, til að
bæta arðsemi og samkeppnisað-
stöðuna. Gert er ráð fyrir að verk-
smiðjafi myndi kaupa raforkuna á
15-20 mills.
-S.dór
✓
Sýslumanns- og fógetaembættið á Isafirði:
Pétur Kr. Hafstein
skipaður sýslumaður
Gengið framhjá reyndum dómurum og fógetum
í gær skipaði Friðjón Þórðarson, dómsmálaráð-
herra Pétur Kr. Hafstein, fulltrúa í fjármálaráðu-
neytinu, í embætti sýslumanns og bæjarfógeta á
ísafirði. Athygli vekur að ráðherra gengur í þessari
skipun fram hjá mönnum með allt að 17 ára reynslu
í störfum fógetaembætta, en Pétur Kr. Hafstein
hefur aldrei á bæjarfógetaembætti eða dómstól
komið sem starfsmaður.
Snarræði flugstjórans barg Arnarflugsþotunni.
Herflugvél og Arnarflugsþota 1 blindflugi:
Lá við árekstri
Málið í rannsókn, segir flugmálastjóri
9 sóttu um embættið, auk Pét-
urs, þeir: Barði Þórhallsson,
bæjarfógeti, Finnbogi Axelsson,
fulltrúi, Freyr Ófeigsson, hér-
aðsdómari, Guðmundur Kristjáns-
son, aðalfulltrúi, Guðmundur Sig-
urjónsson, aðalfulltrúi, Hlöðver
Kjartansson, fulltrúi, Ingvar
Björnsson, héraðsdómslögmaður
og Már Pétursson, héraðsdómari.
Pétur Kr. Hafstein hefur unnið í 5
ár hjá fjármálaráðuneytinu og er
hann sá umsækjandi sem hefur
stystan starfsaldur og minnsta
starfsreynslu að baki. Hann hefur
ekki fengist við nein þau störf sem
bæjarfógetar annast, s.s. aldrei
kveðið upp dóm, aldrei gert fjár-
nám eða lögtak, aldrei þinglýst
skjali, skilið hjón eða skipt dán-
arbúi.
í hópi umsækjenda eru hins veg-
ar tveir dómarar skipaðir 1972, og
hafa báðir verið settir sýslumenn,
þ.á.m. annar á ísafirði um tíma.
Einn umsækjandi hefur 10 ára
starfsreynslu sem bæjarfógeti að
baki og þar er líka að finna 4 dóm-
arafulltrúa með 7-9 ára starfs-
reynslu við bæjarfógetaembætti.
Þjóðviljinn reyndi árangurslaust
að ná tali af Friðjóni Þórðarsyni
vegna þessa máls í gær, en mikil
ólga er vegna þessarar skipunar
meðal dómara og lögmanna. Pétur
er skipaður frá 1. maí n.k. og tekur
við af Þorvarði Kjærulf Þor-
steinssyni.
Það liggur ljóst fyrir að mistök
hafa einhversstaðar átt sér stað, en
orsökin liggur ekki Ijós fyrir enn og
við erum með málið í rannsókn,
sagði Pétur Einarsson flugmála-
stjóri um atburðinn í fyrradag,
þegar snarræði flugstjóra á þotu
Arnarflugs bjargaði því að ekki
varð árekstur milli þotunnar og
bandarískrar herflugvélar, sem
þarna var á flækingi.
Báðar voru vélarnar í blindflugi
og því á útgefnum flugheimildum,
en báðar á sömu slóðum, sem ekki
á að geta gerst ef allt er með felldu.
Pétur sagði að það tæki alltaf
svolítinn tíma að rannsaka svona
mál ofan í kjölinn, jafnvel þótt ljóst
væri að um mistök hefði verið að
ræða, þá lægi ekki alltaf ljóst fyrir
hver orsökin væri. Hann sagðist
vonast til að niðurstaða lægi fyrir
innan fárra daga.
-S.dór