Þjóðviljinn - 19.03.1983, Page 21
Helgin 19.-20. mars 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 21
Stjörnufœðing?
Það er langt síðan ég hef
farið á tónleika og enn
lengra síðan ég hef farið á
jafn skemmtilega tónleika
og voru á Borginni þann
tíunda þessa mánaðar. Þá
komu fram hljómsveitirnar
Hasl, Iss og Haugur. Ég
hafði aldrei heyrt í þessum
hljómsveitum áður og því
var ég örlítið spenntur
þegar ég gekk inn á Borgina
þetta fimmtudagskvöld.
Hasl byrjaði tónleikana, þeir
eru ættaðir héðan úr Reykjavík
og þungarokkskeimur af þeim.
Þeir voru með stutt og vel æft
prógram og kom það á óvart.
Því það virðist vera regla hjá vel-
flestum íslenskum hljómsveitum
að láta aldrei líða minna en fimm
mínútur milli laga. Þetta voru
frískir strákar og eiga vonandi
eftir að láta heyra í sér fljótlega.
Iss, ný hljómsveit Einars Arn-
ar fyrrum söngvara Purrks Pill-
nikks, tróð næst upp. Þeir
komu viðstöddum svo sannarlega
á óvart með léttri og áheyrilegri
tónlist sem flestir kunna vel að
meta. Hinn sérkennilegi „söng-
stíll“ Einsrs setur nokkuð mark
sitt á hljómsveitina en hann hefur
fengið til liðs við sig seiga kappa.
Skal þar fremstan telja Helga
trommara en hann var fyrsti
trommari Q4U. Þetta var nokk-
uð gott hjá strákunum og ég bíð
spenntur eftir næstu tónleikum.
Haugurinn var samt sú hljóm-
sveit sem mest kom á óvart og ég
held að ég geri ekki neinum rangt
til með því að segja að þeir séu
einhver athyglisverðasta hljóm-
sveit sem fram hefur komið hér á
landi í háa herrans tíð.
Haugurinn var reistur á rústum
Jonee Jonee. Fengu þeir Berg-
steinn og Héimir til liðs við sig
Einar, þann er var í fyrstu útgáfu
af Jonee Jonee og síðar í Spilafífl-
um. Þar lék hann á hljómborð en
í Haugnum leikur hann á gítar. Sá
fjórði í hljómsveitinni er að
fróðra manna sögn Húsvíkingur
og er það eina sem ég veit um
hann.
Mikill kraftur var í hljóm-
sveitinni og tónlistin borin uppi af
kröftugum trommuleik og þétt-
um bassaleik.
Ég var yfir mig hrifinn og spái
þessari hljómsveit mikilli framtíð
og er sannfærður um að þeir nái
langt endist hljómsveitinni aldur.
Aðalfundur
Aöalfundur Verzlunarmannafélags Reykja-
víkur veröur haldinn 22. mars 1983 kl. 20.30
aö Hótel Esju 2. hæð.
Dagskrá samkvæmt félagslögum.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur
AUKIN ÞJÓNUSTA
NÝTT ÚTIBÚ
Höfum opnað nýtt útibú að Engihjalla 8
Til að geta þjónað betur hagsmunum Kópavogsbúa höf-
um við opnað útibú í rúmgóðu húsnæði með næg bíla-
stæði í austurhluta Kópavogs.
Þetta ætti að tryggja viðskiptavinum Sparisjóðsins aukna
og betri þjónustu.
SPARISJÓÐUR
KÓPAVOGS
Digranesvagi 10 Simi 41000
Englhjalla 8
„HRESSINGARDVÖL"
Á Grand hótel Varna er hægt að tvinna saman orlof og
„hressingardvöl". . .
Þar eru heitar laugar frá náttúrunnar hendi, en auk þess fyrsta
flokks heilbrigðisþjónusta, með nýtisku tækjum og ágætis
læknum.
Alls konar nudd — nálastungumeðferð — Gerauital meðferð
- o. fí.
Nánari upplýsingar i skrifstofu okkar.
OpiO frá kl. 8—5 alla virka
daga og 8—12 alla laugar-
daga.
Símsvari alla aðra tima.
Ferðaskrifstofa
Kjartans
Helgasonar
Gnoðarvogur 44 Reykjavik
Simi86255.
| Aðalfundur
félagsins verður haldinn í Átthagasal Hótel Sögu
mánudaginn 28. mars kl. 20.30.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Tekin ákvörðun
um byrjunarframkvæmdir að félagsmiðstöð á Víðivöll-
um. Reikningar félagsins liggja frammi á skrifstofu
félagsins dagana 21 .-25. mars kl. 13-18. Félagar eru
minntir á að greiða árgjaldið fyrir aðalfundinn.
Árshátíð félagsins verður haldin föstudaginn 25. mars
að Hótel Sögu.
Hestamannafélagið Fákur
Fulltrúastaða
í utanríkisþjónustunni.
Staöa háskólamenntaös fulltrúa í utanríkis-
þjónustunni er laus til umsóknar. Laun
samkv. launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf sendist utanríkisráöuneytinu,
Hverfisgötu 115, 105 Reykjavík, fyrir 30.
mars 1983.
Utanríkisráðuneytið,
Reykjavík, 8. mars 1983
, r-7 Félag
^ y járniðnaðarmanna
^ Félagsfundur
veröur haldinn fimmtudaginn 24. mars 1983
kl. 8.30 e.h. aö Suðurlandsbraut 30. 4. hæö.
Dagskrá:
1. Félagsmál
2. Önnur mál
3. Erindi:
Málefni heyrnarskertra, flytjandi Vilhjálmur
Vilhjálmsson, fram.kv.stjóri.
Mætið vel og stundvíslega.
Stjórn Félags járniðnaðarmanna.