Þjóðviljinn - 29.03.1983, Síða 2

Þjóðviljinn - 29.03.1983, Síða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 29. mars 1983 Bridge Spil nr. 1... I leik Aðalsteins Jörgensen og Þórarins Sigþórss. i undanúrslitum Isl.m. sveita kom stærsta sveiflan i keppninni fyrir. Fyrsta spilið í síðari hálfleik. Gjafari N, AV/ S K8 H G83 T AD63 L KD83 S 1072 H D1065 T 875 L 942 N V A S S G543 H 73 T KG942 L G10 S Ad96 H AK94 T 10 L A765 I lokaða salnum renndu Þorgeir og Guð- mundur sér í 7 lauf og notuðu til þess „eðli- legt“ kerfi. Út kom tromp og Þorgeir valdi einfaldasta kostinn, að svína tígli og gera blindan góðan. I opna salnum áttu Ragnar Magnússon og Kristján Blöndal hægt um vik: Austur ' Vestur Ragnar Kristján 2—T 2-Gr. 4—L 4—T 5-L 7—L Opnunin var „Multi" og 4 lauf upplýsti 16-24 HP. og tigul einspil. 4-T var kontról spurning og svarið lofaði 7 kont. Kristján taldi sig nú vita nóg. Vikjum nú í suður. Þórarinn átti út og valdi tigul, svona til að fjarlægja valkost, ef... Ragnar neitaði sér um svininguna, drap áásog trompaði tigul. Inn á spaðakóng og enn var tígull trompaður. Tveir efstu í hjarta og enn enginn árangur, en góð spila- mennska. Nú á sagnhafi tveggja kosta völ; Spila háspöðum, kasta hjarfa úr borði og spila upp á hjörtun 3-3, eða kastþröng; tígui-K á sömu hendi og spaða 4-litur. Ragnarvaldi fyrri kostinn. 19 impartil Þór- arins. Skák Karpov að tafli - 118 Þaö átti eftir að koma æ betur i Ijós eftir þv/ sem á einvígið leið að Kortsnoj var mun lakar undirbúinn en mótstöðumaðurinn. Byrjanir Karpovs voru fágaðar og kerfið öruggt og yfirgripsmikið. Kortsnoj var tví- stígandi og þegar eftir sjöttu skákina var hann orðinn tveim vinningum undir. Karpov - Kortsnoj Þessi staða kom upp eftir 19. leik svarts sern hafði fórnað liði fyrir sóknarmögu- leika. Hann hafði sólundað tíma sínum, átti einungis 10 mínútur eftir á 21 leik og engin trygging fyrir þvi að sóknin gengi upp.. 20. Rg5! (Með hótuninni 21. Rf7+ o.s.frv.) 20. ... Hf8 21. Da3! Dd8 22. Bf4! h6 23. Rf3 He8 24. Bd3 He4! (Kortsnoj var alveg að falla á tima) 25. g3 Hf6 26. Dc5 g5 27. Rxg5! hxg5 28. Bxg5 Hee6 29. He1! Dg8 30. h4 Hg6 31. Hxe6 — og hér féll vísirinn á klukku Kortsnojs. Karpov hafði sett fyrir hann afar erfið vandamál í tímahrakinu og uppskar eftir því. Staða hvíts er auðvitað gjörunnin t.d. 31. - Hxe6 32. Bb5 Rd8 33. Dxc7 o.s.frv. Staðan: Karpov 2 - Kortsnoj 0. Hinn 1. okt. 1846 var þetta hús vígt og skóli settur þar í fyrsta sinn. Enn gegnir það sínu hlutverki, eftir 137 ár. Skólasetning fyrir 137 árum Vorið 1846 var hið nýja hús Latínuskólans fullgert og mátti segja að bygging þess hafi gengið vel. Sem fyrr scgir var Sveinbjörn Egilsson skipaður rektor, Hall- grímur Schcving var ráðinn yfir- kennari, Björn Gunnlaugsson fyrsti undirkennari og Konráð Gíslason annar undirkennari. Um haustið var svo Sigurður P. Melstcd ráðinn kennari um stundarsakir. Konráð Gíslason átti í vonum kennarastöðu í nor- rænum fræðum við háskólann í Kaupmannahöfn og afsalaði sér því kennslustarfi hér en í stað hans var Jens Sigurðsson cand. theol. ráðinn að skólanum. Hinn 1. okt. vársvo skólahúsið vígt og skólinn settur. Helgi biskup Thordarsen flutti vígslu- ræðu og ræddi um -hversu góður skóli væri þýðipgarmikill hverri þjóð og þá ekki síst íslendingum. Sveinbjörn rektor flutti og ræðu og benti á ástæður fyrir því að skólinn væri nú settur í Reykja- vík. Ræddi hann og um til hvers væri ætlast af kennurum og nem- endum og með hverjum hætti þeir gætu best orðið við þeim kröfum. Að endingu flutti sá nemandi sem skipaði efsta sætið í skólanum - en það var Helgi Hálfdanarson - skólabænina frá Bessastöðum. í skólanum voru 66 nemendur í þrem bekkjum. Af þeim höfðu 33 verið á Bessastöðum en 27 voru nýsveinar. Heimavist var í skóla- húsinu fyrir 40 pilta. Kennslu- greinar voru hinar sömu og á Bessastöðum að viðbættum söng tvisvar í viku og annaðist Pétur Guðjónsson, organleikari, söng- kennsluna. Um kvöldið efndi Hoppa stipt- amtmaður til veislu í „Konungs- garði“ og bauð þangað kennur- um skólans og embættismönnum bæjarins. - mhg- Eiöfaxi Febrúarhefti Eiðfaxa er komið út. Auk ritstjórnargreinar eftir Hjalta Jón Sveinsson er þar að finna eftirtalið efni m.a.: „Hestamennskan er einskonar listgrein", nefnist skemmtilegt viðtal við Jónas Jónsson, bún- aðarmálastjóra. Eyjólfur ísólfs- son skrifar um hlýðniæfingar. Sigurður Hansen, lögreglumaður á Sauðárkróki, segir frá reynslu sinni af löggæslu á hestum, sem hann, ásamt öðrum, annaðist á landsmótinu á Vindheimamelum á sl. sumri. Hinrik Gylfason segir frá heimsókn á Fuglesang á Jót- landi, en þar er stærsta ræktunar- stöð íslenskra hesta á Dana- grund. Eggert Gunnarsson ritar um hirðingu á hófum. Þá eru hugleiðingar hvar næsta lands- mót hestamanna verði haldið, en það á að verða sumarið 1986. Sig- rún Sigurðardóttir ræðir um þjálfun barna og unglinga fyrir keppni. Sigurður A Kristinsson segir á bráðskemmtilegan hátt frá vinamóti hestamanna úr Siglu- firði, Ólafsfirði og Fljótum, sem haldið var 24. júlí í sumar. Loks eru stuttar fréttir, myndir o.fl. smávegis. -mhg Ný fóður- pressa 1 fóðurblöndunarstöð Inn- flutningsdeildar SÍS, við hlið kornturnanna við Sundahöfn, er nýbúið að taka í notkun nýja fóðurpressu. Var hún keypt sl. haust ásamt tilheyrandi búnaði. Síðan hefur verið unnið að upp- setningu hennar og tengingu við annan búnað stöðvarinnar. Pressan á að geta tvöfaldað af- kastagetu stöðvarinnar miðað við framleiðslu á klst., orðið 12 tonn. Fóðurpressan er til þess gerð að köggla fóðrið, eftir að fóður- efnum hefur verið blandað saman og þau möluð. í henni er fóðurmjölið bleytt upp, síðan þjappað saman með gufuþrýst- ingi og breytt í lengjur,~sem vélin sker síðan niður í hæfilega búta. Úr pressunni fara kögglarnir síð- an í þar til gerðan kæliturn þar sem þeir eru kældir og þurrkaðir og úr honum ýmist í lausafóður- geyma, þaðan sem þeir eru af- greiddir í tankbíla, eða í sekkjun- arvélar og þá afgreiddir í 50 kg sekkjum. - mhg. Svíar panta sœði Sænskir bændur, sem ennþá hafa gamla, sænska, kollótta, hvíta kúakynið hafa áhuga á að fá sæði úr íslenskum nautum, að því er Upplýsingaþjónusta landbúnaðarins hermir. Fyrri sæðingar tókust mjög vel og þær íslensku blendingskýr, sem þegar eru komnar í gagnið í Svíþjóð, hafa reynst mjög vel. Nú hafa Svíar pantað 300 sæðisskammta úr þremur nautum en jafnframt verða kýr hér á landi sæddar með sæði úr þeim sömu nautum. Vcrður því unnt að gera saman- burð á hálfsystrunum hér og í Svíþjóð þeg- ar þær hafa borið fyrsta kálfi. Við erum að vísu búnir að snæða öll þessi naut en mikið er til af sæði úr þeim, sem geymt verður til síðari tíma,ef dætur þeirra reynast vel. Þau þrjú naut, sem þarna er um að ræða og rcynd verða samtími4: í Svíþjóð og hér eru: Hólmur frá Hólmi í Austur- Landeyjum, Krauni frá Kraunastöðum í Aðaldal og Örvar frá Hríshóli í Eyjafirði. Trúlegt er nú talið að þessi viðskipti leiði til þcss að jafnvægi skapist í útflutningi og innflutningi sæðis og að íslensku nautin muni ekki reynast neitt síðri en dönsku karlmcnnirnir, þannig að eftirspurnin muni verða síst minni erlendis frá cn héðan. ~ mhg Félagar! Sameinumst í brauðstritinu!

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.