Þjóðviljinn - 29.03.1983, Side 3

Þjóðviljinn - 29.03.1983, Side 3
Þriðjudagur 29. mars 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3 Stofnendur samtakanna Ný sjónarmið. Frá vinstri: Jón Ogmundsson efnaverkfræðingur, dr. Jón Geirsson efnafræðingur, dr. Höskuldur Þráinsson prófessor, Guðmundur Guðmundsson matvælafræðingur, Guðmundur Pétursson forstöðumaður Tilraunastöðvar Háskólans í meinafræði, Jón Oddsson hæstaréttarlögmaður, Kristján J. Alberts- Félagsskapurinn Ný sjónarmið: son jarðfræðingur, dr. Sigurður Helgason, dr. Þorvarður Helgason menntaskólakennari, Erlingur Gíslason leikari, Þórður Helgason verslunarskólakennari og Hörður Erlingsson framkvæmdastjóri. Á, Inyndina vantar Davíð Erlingsson handritafræðing og Helga Valdem- aAson prófessor. Ljósm.: eik. Söfnun handa Alusuísse Lágmarksframlag er 13 aurar en það er verðið sem Alusuisse greiðir fyrir hverja kílóvattstund Samtök allmargra cinstaklinga sem hingað til hafa lengstum staðið fyrir utan dægurþras pólitíkurinnar gengust í gær fyrir blaðamannafundi á Hótel Sögu þar sem kynnt voru áform um söfnun til stuðnings Alusuisse. Samtökin hafa valið sér nafnið Ný Sjónarmið og hafa þau í hyggju að benda öðru hverju á lciðir til lausnar brýnum vandamálum sem kunna að liggja til hliðar við troðnar slóðir stjórnmálaflokkanna, eins og það er orðað í yfirlýsingu samtakanna. Jafnframt senda samtökin frá sér ávarp og greinargerð til íslensku þjóðarinnar. Ávarpið hljóðar svo: „Svissneska álfélagið í Ziirich, móðurfyrirtæki fslenska álfélags- ins hefir undanfarið átt við mikla og vaxandi örðugleika að stríða. Við upphaf 9. áratugarins varð gíf- urleg niðursveifla í áliðnaði í heiminum, sem enn sér ekki fyrir endann á. Afkoma Alusuisse var orðin mjög slæm á árinu 1981, urn þverbak keyrði í fyrra, 1982, og enn eru horfur afleitar, þótt ein- stakir dagprísar á smáförmum áls sýnist stundum gefa fyrirheit um betri tíð. Það eru einkum skuldbindingar félagsins við dótturfyrirtæki sín, eins og íslenska álverið, sem gera því erfitt fyrir. „Eigendur fyrirtæk- isins, hinn erlendi aðili Alusuisse, hefir ekki farið vel út úr þessum rekstri... Reksturinn hefir barist í bökkum, stundum verið verulegt tap eða í besta falli staðið í járn- um”, sagði Ragnar S. Halldórsson forstjóri í Morgunblaðinu þegar ár- ið 1979. Síðan hefir enn sigið á ógæfu- hliðina. „Afkoma íslenska álfél- agsins í fyrra (1981) var hin lang- versta í sögu fyrirtækisins... Er tap- ið 28.7% af veltu”, eins og fram kom í samtali við forstjórann í Mbl. 7. mars 1982. Þá hefir Svissnéska álfélagið af óviðráðanlegum ástæðum þrásinn- is orðið fyrir tapi í hafi við flutning á súráli alla leið frá Ástralíu, eins og fram kemur í bréfi félagsins til Gunnars Thoroddsens forsætisráð- herra 16. febrúar 1981. Þar að auki hefir Svissneska álfélagið beinlínis þurft að styrkja álverið hér með niðurgreiðslum. Loks hefir álverið nýskeð orðið fyrir óvæntum kostnaðarauka, þar sem rafskautin frá verksmiðju Alu- suisse í Hollandi hafa reynst vera í blautara lagi. En eins og kunnugt er, þurfa skautin að vera skraufþurr og tandurhrein til að valda hlutverki sínu. Svissneska álfélagið verður að sjálfsögðu á engan hátt dregið til ábyrgðar fyrir þessi blautu skaut, heldur stafar bleytan af óviðráðanlegum veður- farsástæðum (force majeure). íslendingar hafa á hinn bóginn frá upphafi haft mikinn og margvís- legan hagnað af skiptum sínum við Alusuisse, eins og ítarlega er rakið í meðfylgjandi greinargerð. T.d. hafa raforkukaupin frá Landsvirkj- un að meðaltali numið 7.1% af heildarveltu ísals á síðasta áratug. Samt sem áður hefir Alusuisse margoft boðist til þess að stækka Æ skulýðsf ylking Alþýðubandalagsins: álverið, svo að íslendingar gætu selt enn meira rafmagn á þessu hagstæða verði. Þar sem þessir velgerðarmenn vorir eiga nú í tímabundnum fjár- hagserfiðleikunt, teljum vér það skyldu vora að gefa íslensku þjóðinni kost á því að sýna hug sinn í verki með því að hefja almenna fjársöfnun til handa Alusuisse. Hefir þegar verið opnaður póst- gíróreikningur, nr. 78300-5, sem menn geta greitt framlög sín inn á. Það skal þó tekið fram að lág- marksframlag, sem tekið ert við er 13 aurar, en það er sú upphæð sem álverið í Straumsvík þarf að greiða fyrir hverja kílóvattstund til Landsvirkjunar. Ekki ætti samt að vera nein ofætlun, þótt sumir ein- staklingar greiddu í söfnunina and- virði 10, 100 eða jafnvel 1000 kíló- vattstunda. Minnumst þess þó, að einnig hin smáu framlög konta sér vel, því að kornið fyllir mælinn.” Reykjavík 28.3.1983. Samtök Ný sjónarmið „Áfall fyrfr friðarbaráttuna” segir Arni Hjartarson, formaður miðnefndar Samtaka herstöðvaandstæðinga „Víða um lönd hefur friðarbar- áttan verið borin uppi af konum - konur hafa talið vígbúnaðarmál og vopnakapphlaup til þeirra helstu mála, sem berjast þarf gegn til að gera þennan heim lífvænlegan. Með þá staðreynd í huga er þessi nýja afstaða kvenna hér á landi mjög einkennileg og ég er satt að segja undrandi á henni.” Þetta sagði Árni Hjartarson, for- maður miðnefndar Samtaka her- stöðvaandstæðinga, í samtali í gær vegna þeirrar ákvörðunar Kvenn- alistans í Reykjavík að ákveða að Þórhildur Þorleifsdóttir skyldi ekki tala á útifundi samtakanna á morg- un, cn Þórhildur hafði áður gefið vilyrði sitt. „Mér finnst þetta satt að segja áfall fyrir friðarbaráttuna í landinu,” sagði Árni Hjartarson ennfremur. „Þetta þýðir, að sá andblær sem stafar af Kvenna- listanum í garð friðarsinna er nú andblær tortryggninnar. Þessi af- staða kemur okkur mjög í opna skjöldu.” ast Herstöðvamálið „Ykkar einkamál til þessa segir fulltrúi Kvennalista „Við ákváðum á fundi okkar að taka ekki þessu boði Samtaka her- stöðvaandstæðinga vegna þess að þetta hefur verið bitbein Álþýðu- bandalagsins og Sjálfstæðisflokks- ins og þeir hafa gert þetta að sínu einkamáli. Við viljum ekki að þeir ráði þcssari umræðu heldur viljum við ráða hcnni sjálfar og finna nýj- ar leiðir í þcssu máli,“ sagði Þór- hildur Þorleifsdóttir um þá afstöðu Kvennalistans að ákveða að fulltrúi þeirra talaði ekki á útifundi Sam- taka herstöðvaandstæðinga við Alþingishúsið á morgun. Kvennalistinn verður með blaðafólksfund í dag þar sem stefn- uskrá listans verður kynnt og gefst þá væntanlega tækifæri til að kynn- ast afstöðu þeirra til þessa máls sem annarra. ast Stuðnlngur vlð baráttu verka- manna í Stjórn Æskulýðsfylkingar Al- þýðubandalagsins samþykkti á fundi þann 27. mars, að lýsa yfír fullum stuðningi við baráttu verka- manna í Straumsvík við Svissneska álfurstana og deildarstjóra þeirra á Islandi. Jafnframt fordæmir stjórn Æsk- ulýðsfylkingarinnar ómanneskju- leg vinnubrögð stjórnenda Álvers- ins og hvetur verkamenn til að standa saman í yfirstandandi bar- áttu. Áskorendaeinvígin: Kortsnoj vann fyrstu skákina Viktor Kortsnoj vann Ungverj- ann Lajos Portisch í 1. einvígisskák þcirra sem lauk á sunnudag eftir að hafa farið í bið. Kortsnoj hefur ver- ið í mikilli lægð að undanförnu og því kemur sterk byrjun hans nú á óvart. Þcir félagar heyja einvígi sitt í Bad Kissingent í Vestur- Þýskalandi. Tveim skákum er lokið í einvígi Roberts Húbners og Vasily Smysl- ov. Þeir tefla í Velden í Austurríki og lauk báðum fyrstu skákunum með jafntefli. Einvígi Torre frá Filippseyjum og Ribli Ungverjalandi hefst þann 5. apríl á Spáni. Þá fara nú fram nokkur einvígi í áskorendakeppni kvenna. Sovéska skákkonan loselani hefur forystu í einvígi sínu við Liu frá Kína,2'/2:l'/2. Levitina frá Sovétríkjunum hefur yfir gegn fyrrum heimsmeistara kvenna, Nonu Gaprindhasvili, 3:2. Þátttaka kínversku stúlkunnar Liu vekur mikla athygli en mjög er stutt síðan Kínverjar hófu að tefla á alþjóðlegum vettvangi. Þeir voru fyrst með á Olympíumóti árið 1978. -hól. K völdvorrósarolían: Ekkert lækningagildi segir landlæknir og Lyfjaeftirlitið Lyljaeftirlit ríkisins hefur vegna umræðan um lækningamátt svo- kallaðrar kvöldvorrósarolía sent frá sér fréttatilkynningu þar sem segir að niðurstöður af rannsóknum á lækningagildi olíunnar hafí leitt í ljós að hún sé áhrifalaus sem slík. í frétt Lyfjaeftirlitsins segir ma: „Kvöldvorrósarolía inniheldur nokkrar ómettaðar fitusýrur og nefnist ein þeirra gamma- linolensýra. Sýrur þessar hafa tals- vert verið rannsakaðar undanfar- in 20 ár og þekking okkar á þýð- ingu þeirra fyrir líkamann hefur aukist smám saman. Niðurstöður þeirra rannsókna, sem gerðar hafa verið, hafa leitt í ljós lækningagildi þessara fitusýra. Fullyrðingar, sem birst hafa í fjölmiðlum um lækning- amátt kvöldvorrósarolíu, eru því ekki á rökum reistar”. UTIFUNDUR VIÐ ALÞINGI30. MARS A morgun kl. 17.30 Samtök herstöðvaandstæðinga

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.