Þjóðviljinn - 29.03.1983, Síða 12

Þjóðviljinn - 29.03.1983, Síða 12
16 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 29. mars 1983 ALÞYÐUBANDALAGIÐ Alþýðubandalagið Reykjaneskjördæmi Aðalkosningaskrifstofa í Hafnarfirði Alþýðubandalagið í Reykjaneskjördæmi hefur opnað aðalkosningaskrif- stofu sína í kjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar í Skálanum, Strand- götu 41, Hafnarfirði. Par er opiö alla daga nema föstudaginn langa og páskadag frá kl 14- 21.00. Síminn er 52020 Kösningastjóri er Sigríður Þorsteinsdóttir. Félagar og stuðningsmenn, lítið við á skrifstofunni. Ávallt heitt á könnunni. Alþýðubandaiagið Alþýðubandalagið Norðurlandskjördæmi eystra Alþýðubandalagið í Norðurlandskjördæmi eystra hefur opnað kosninga- skrifstofu að Eiðsvallagötu 18, Akureyri og verður hún opin fyrst um sinn frá kl. 13.00 og frameftir kvöldi. Kosningastjóri er Heimir Ingimarsson og starfsmenn Geirlaug Sigurjónsdóttir og Helgi Haraldsson. Allt stuðnings- fólk Alþýðubandalagsins er hvatt til að hafa samband við skrifstofuna og helst að líta inn. Starfið er komið í fullan gang og alltaf er heitt á könnunni. Símar skrifstofunnar eru 96-21875 og 25875. Kosningastjórnin Alþýðubandalagið í Reykjavík Kosningaskrifstofa Alþýðubandalagsins í Reykjavík er að Hverfisgötu 105. Hún er opin frá 9-22 mánudaga til föstudaga. en 10—19 á laueardögum og 13-19 á sunnu- dögum. Símarnir eru: Kristján Valdimarsson: 17604 og 17500, Arthúr Mort hens: 18977 og 17500 og Hafsteinn Eggertsson: 17500. Sjálfboðaliðar Sjálfboðaliðar til ýmissa starfa fram að kjördegi, með bíla eða án, - látið skrá ykkur til starfa sem fyrst í síma 17500. Fram með kokkabækurnar! Sendið okkur kleinur, lummur og pönnukökur í kosningamiðstöðina handa sístarfandi sjálfboðaliðum. Þið sem heima sitjið á morgnana! Stuðningsmenn, þið sem hafið frían tíma að morgni, svo ekki sé nú talað um ef þið hafið bíl til umráða, látið skrá ykkur til morgunverka í síma 17500 strax. Kosningasjóður Þótt kostnaði við kosningarnar verði haldið í lágmarki kosta þær þó sitt. Kosningasjóð þarf því að efla strax. Tekið er á móti framlögum í sjóðinn að Hverfisgötu 105. Ertu á kjörskrá? Kosningastjórn Alþýðubandalagsins í Reykjavík vekur athygli kjósenda á því að kjörskrá liggur frammi á Manntaísskrifstofu Reykjavíkurborgar, Skúlatúni 2. Allir stuðningsmenn flokksins eru hvattir til að kanna hvort þeir eru á kjörskrá og athuga jafnframt hvort vinir eða ættingjar, sem styðja flokkinn séu þar líka. Þeir sem ekki eru á kjörskrá eru hvattir til að láta kosningaskrifstofuna að Hverfisgötu 105 símar 11432 og 19792 vita, þannig að kæra megi viðkomandi inn á kjörskrá. Kærufrestur rennur út 8. apríl n.k. Kosningastjórn. Utankjörfundarkosning hafín Utankjörfundarkosning hefst laugardaginn 26. mars nk. í Reykjavík verður kosið í Miðbæjarskólanum þann dag kl. 14-18. Stuðningsmenn G-listans, sem ekki verða heima á kjördag eru hvattir til að kjósa sem fyrst. Þeir sem vita af kunningjum sínum, sem verða að heiman á kjördag, ættu að hvetja þá til að kjósa fyrr en seinna. Sá sem kýs utan kjörfundar á að rita bókstaf þess lista sem hann kýs og skrifa/stimpla G skýrt og greinilega. Skrifstofa Alþýðubandalagsins vegna utankjörfundaratkvæðagreiðslu er að Hverfisgötu 105. Starfsmenn hennar munu veita aðstoð við kjörskrárk- ærur og annast milligöngu við atkvæðasendingar. Forstöðumaður skrif- stofunnar er Gunnar Gunnarsson. Símar 11432 og 19792. Alþýðubanda- lagið - utankjörfundarskrifstofa. Alþýðubandalagsfélögin Suðurnesjum Kosningaskrifstofan í Keflavík Kosningaskrifstofa Alþýðubandalagsfélaganna á Suðurnesjum verður að Hafnargötu 17 Keflavík. Síminn er 1827 Starfsmaður skrifstofunnar er Brynjólfur Sigurðsson. Kjörskrá liggur frammi og öll aðstoð veitt við kjörskrárkærur og utan- kj örfundaatkvæðagreiðslu. Félagar og stuðningsmenn lítið við á skrifstofunni. Hafnfírðingar-Reyknesingar Opið hús vérður á hverju þriðju- dagskvöldi fram að kosningum að Strandgötu 41 Hafnarfirði. Kaffi á könnunni. Komið og hittið ýmsa af frambjóðendum G-listans og rabb- ið um starfið fram að kosningum. Þriðjudaginn 29. mars bjóðum við velkomna þá Ólaf Ragnar Grímsson alþingismann, sem flytur stutt ávarp og Arna Bergmann rit- stjóra, sem les úr bók sinni Geir- Á rni Bergmann fuglarnir. Stjórn ABH. Ólafur Ragnar Alþýðubandalagsfélagar Greiðið félagsgjöidin Stjórn Alþýðubandalagsins í Reykjavík minnir þá sem enn skulda gjald- fallin félagsgjöld á útsenda gíróseðla. Stöndum ískilum með félagsgjöldin og eflum þannig starf félagsins. - Stjórn ABR Námsstefna Landssamtökin Þroskahjálp gangast fyrir námsstefnu í umboði Norrænu samtakanna NFPU (Nor- diska Förbundet Psykisk Utvec- klingshámning) um efnið „en skola för alla“ dagana 18.-22. apríl n.k. að Hótel Loftleiðum. Sérfræðingar í kennslumálum þroskaheftra á öllum Norðurlönd- unum munu sækja þessa náms- stefnu, en þar verður fjallað um samhæfingu á námrþroskaheftra í hinum almenna skóla og sam- ræmdar aðgerðir í þeim málum á Norðurlöndum. Fjöldi þátttakenda er takmark- aður við 40-50 manns. Þarf að sækja um þátttöku fyrir 7. apríl á skrifstofu Þroskahjálpar í Nóatúni 17, 105 Reykjavík, sími 29901. Fyrlrlestur um lax í kvöld, þriðjudaginn 29. mars mun dr. Dennis Scarnecchia halda fyrirlestur á vegum Líffræðifélags íslands um kynþroskaaldur ís- lenskra laxa, en það er nokkuð breytilegt eftir stofnum hversu lengi laxar dveljast í sjó áður en þeir ganga í árnar til hrygningar. Rannsóknir þær sem fyrirlestur- inn byggist á hafa verið unnar í sam- vinnu við Veiðimálastofnun. Fyrir- lesturinn, sem verður fluttur á ensku í stofu 103 í Lögbergi, er öll- um opinn. Hann hefst kl. 20.30. Landsliðsflokkur á Skákþingi Hílmar Gylfi, og Dan efstir Hilmar Karlsson, Gylfi Þórhalls- son og Dan Hansson eru efstir í landsliðsflokki á Skákþingi Islands þegar þrjár umferðir hafa verið tefldar, en 1. umferð mótsins var tefld á föstudaginn. Keppendur í landsliðsflokki eru 12 talsins, en í áskorendaflokki eru keppendur 26. Teflt er í þrem flokkum, landsliðs-, áskorenda- og opnunum flokki en keppni unglinga fer fram um hvíta- sunnuna. Úrslit í mótinu til þessa hafa orð- ið sem hér segir: 1. umferð: Hall- dór G. Einarsson vann Björn Sig- urjónsson, Elvar Guðmundsson vann Sigurð Daníelsson og Himar Karlsson vann Magnús Sólmund- arson. Jafntefli gerðu Dan Hans- son og Áskell Ö. Kárason, Ágúst Karlsson og Sævar Bjarnason og Hrafn Loftsson og Gylfi Þór- hallsson. 2. umferð: Hilmar Karlsson vann Hrafn Loftsson, Magnús Sól- mundarson vann Áskel O. Kára- son, Gylfi Þórhallsson vann Hall- dór G. Einarsson, Elvar Guð- mundsson vann Björn Sigurjóns- son, Dan Hansson vann Sævar Bjarnason og jafntefli gerðu Sig- urður Daníelsson og Ágúst Karlsson. 3. umferð: Sævar Bjarnason vann Áskel Ö. Kárason, Dan Hansson vann Sigurð Daníelsson, Ágúst Karlsson vann Björn Sigur- jónsson og Gylfi Þórhallsson vann Elvar Guðmundsson. Jafntefli gerðu Hilmar Karlsson og Halldór G. Einarsson og Magnús Sólmund- arson og Hrafn Loftsson. Staðan að loknum þrem um- ferðum: 1.-3. Hilmar Karlsson, Gylfi Þórhalsson og Dan Hansson 2Vi vinning hver. 4. - 5. Ágúst Karlsson og Elvar Guðmundsson 2 v. hvor. 6. - 8. Magnús Sólmundar- son, Halldór G. Einarsson og Sæ- var Bjarnason 1Í/2V. hver. 9. Hrafn Loftsson 1 v. 10. - 11. Áskell Ö. Kárason og Sigurður Daníelsson V2 v. hvor. 12. Björn Sigurjónsson 0 v. í gærkvöldi var 4. umferð tefld en úrslit ekki kunn fyrr en eftir miðnætti. Keppni í landsliðsflokki fer fram í húsakynnum Taflfélags Reykjvíkur að Grensásvegi. - hól. Æskulýðsfylking AB Skírnarhátíð Æskulýðsfylking AB boðar til skírnarhátíðar fimmtudaginn 31. mars, Hverfisgötu 105, 4. hæð, kl. 20.30. í tilefni nafnbreytingarinnar verður smágleðskapur hjá okkur á skírdag. Margháttuð dagskrá - fjölbreyttar veitingar. Allir ungir sósíalistar velkomnir. Æskulýðsfylking Alþýðubandalagsins. Alþýðubandalagið í Neskaupstað - Opið hús Miðvikudaginn 30. mars kl. 20.30 til kl. 22.30 ræðum við friðarmál í opnu húsi að Egilsbraut 11 (uppi). Kaffi og kökur. AB-Neskaupstað. Alþýðubandaiagið á Suðurlandi Kosningaskrifstofa Kosningaskrifstofa Alþýðubandalagsins í Suðurlandskjördæmi hefur ver- ið opnuð að Kirkjuvegi 7, Selfossi. Kosningastjóri er Sigurður Björgvins- son. Skrifstofan er opin frá 2-10 alla daga nema föstudaginn langa og páskadag. Símarnir eru 99-2327 og 99-1002. Félagar, lítið inn og leggið hönd á plóginn. Alþýðubandalagið. Alþýðubandalagið í Vestmannaeyjum Fyrst um sinn verður kosningaskrifstofan opin að Bárugötu 9 milli kl. 17 og 19. Sími 1570. Kaffi á könnunni. - Kosningastjórn. Bændafundur í Varmahlíð Almennur fundur verður haldinn í Miðgarði, Varmahlíð, 4. apríl n.k. (annan í páskum) og hefst kl. 15:30. Þorvaldur G. Jónsson, bóndi á Guðrúnarstöðum ræðir um stærstu vanda- málin í búskapnum í dag. Ingibjörg Hafstað kennari og húsfreyja í Vík ræðir um orkuverðið í dreifbýli. Steingrímur Sigfússon líffræðingur frá Gunnarsstöðum á Langanesi ræðir um íslenska atvinnustefnu. Úlfar Sveinsson, bóndi á Ingveldarstöðum, ræðir um nýjar búgreinar í landbúnaði. Þórarinn Magnússon, bóndi á Frostastöðum, ræðir um orku- og stór- iðjumál. Ragnar Arnalds fjármálaráðherra svarar fyrirspurnum um stjórnmála- viðhorf. Almennar umræður. Fundurinn er öllum opinn. ALÞÝÐUBANDALAGIÐ Bændafundur í Víðihlíð Almennur fundur verður haldinn í Víðihlíð fimmtudaginn 31. mars n.k. (skírdag) og hefst kl. 15:00. Þorvaldur G. Jónsson, bóndi á Guðrúnarstöðum ræðir um stærstu vanda- málin í búskapnum í dag. Jón Viðar Jónmundsson, kennari á Hvanneyri ræðir um skipulagningu framleiðslunnar og nýjar búgreinar. Þórður Skúlason, sveitarstjóri á Hvammstanga ræðir um raforkuverðið og landbúnaðinn. Ragnar Arnalds, fjármálaráðherra, svarar fyrirspurnum um stjórnmála- viðhorf. Almennar umræður. Fundurinn er öllum opinn. ALÞÝÐUBANDALAGIÐ. NÚ ER KOMIÐ AÐ DREGINN ÚT 6. APRIL Húseign að eigin vali fyrir einamilljón Langstærsti vinningur á einn miða hérlendis. Happdrætti Nú má enginn gleyma að endurnyja! SöluverÓ lausra mióa 480.- krónur. AÐALVINNINGI Arsins 1

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.