Þjóðviljinn - 31.03.1983, Qupperneq 11
Fimmtudagur 31. mars 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11
ári síðar að úrslit voru ráðin. Þá stóðu eftir
tveir af upphaflegum hópi níu listamanna.
Leifur var annar tveggj a og fór svo að hann
var kjörinn til að vinna verkið.
Listamennirnir átta sem til álita komu
ásamt honum eru allir í hópi þekktustu
steinglersgerðarmanna Evrópu. Fyrst má
nefna þá John Piper, einn mikilsmetnasta
listamann Bretlands og Patrick Reyntiens,
dómnefndarmann og kennara Leifs, en
saman unnu þessir menn að
gluggaskreytingum fyrir dómkirkjurnar í
Coventry á 6. áratugnum. Þá eru Wilhelm
Buxhulte,þekktur fyrir glugga sína í kirkju
heilagrar Ursúlu í Köln og Ludwig
Schaffrath, meistari glugganna í kirkju
heilagrar Angelu í Wipperfurth, stærstu
nöfn þessarar listgreinar í Þýskalandi.
Frakkinn Gabriel Loire sem eftir stóð
ásamt Leifi í lokin, hefur hlotið mikið lof
fyrir vinnu sína við gluggana í hinni
fornfrægu dómkirkju í Chartres.
Það er því ljóst að útnefning Leifs ber
vitni vaxandi áliti sem hann nýtur meðal
þjóða. Það ætti síst að koma okkur
Islendingum á óvart sem höfum fylgst með
hverju stórvirki hans á fætur öðru. Kapella
kvennadeildar Landspítalans sem hann
hannaði ásamt konu sinni Sigríði
Jóhannsdóttur vefara, gluggi
Fossvogskapellunnar og glerið í kórglugga
Bústaðakirkju, en uppsetningu hinna sex
glerja lýkur 1984, sýna ótvírætt hæfileika
hans og skipulagsgáfu.
IV
Strax og vali var lokið var Leifur kvaddur
á fund nefndarinnar í Edinborg til að gera
grein fyrir hugmyndum sínum. „Þeir vildu
tékka á mér og ítreka mikilvægi málsins“,
sagði Leifur og brosti í kampinn, þegar ég
innti hann eftir málavöxtum. En áður en
Jiann kom fyrir nefndina hélt hann til St.
Giles til að gera sér grein fyrir aðstæðum.
Þá fékk hann hugmyndina að glugganum.
Han'n gerði uppkast í skyndi og lagði fyrir
nefndina, sem samþykkti.
„Það var mikið happ að ég skyldi fara og
skoða kirkjunaþennan laugardagsmorgun,
svo ég gæti áttað mig á kringumstæðum í ró
og næði án áhrifa frá tillögum
nefndarinnar. Það kom nefnilega á daginn
að þessi fyrsta hugmynd var sú rétta, þótt
hún hafi breyst allnokkuð í úrvinnslunni,“
sagði Leifur þegar hann sýndi mér
uppkastið.
Glugginn er þrískiptur og þema hans er
náttúran, bræðrahugsjónin oglífsgleðin,
aðalinntakið í ljóðum Robert Burns. Efst
másjá nokkurs konar rósarglugga. Hann er
helgaður ástarsöngvum Burns sem
þrungnir eru lífskrafti. Miðhlutinn er
bræðralagið, en líkt og margir
framfarasinnaðir listamenn á ofanverðri
18. öld var Burns svarinn andstæðingur
ofríkis, grimmdar og yfirborðsmennsku.
Neðst er svo fólk við vinnu í náttúrunni,
tákn tengsla mannsins við náttúruna.
Öll þessi tákn þrædd inn í margslungna
myndbyggingu Leifs sem vaxin er úr ótal
uppdráttum, frumteikningum, mælingum á
stóru jafnt sem smáu. Allt verður að vera
skýrt og skipulegt svo hægt sé að skera
glerið eftir lokaútfærslunni. Reyndar má
sjá frummynd af glugganum á
kirkjulistarsýningunni að Kjarvalsstöðum
ásamt öðrum verkum Leifs sem hann hefur
unnið að hér heima.
V
Leifur þurfti að taka tillit til ótal atriða og
ýmsar kvaðir voru samfara þessu verki.
Framhlið gluggans snýr inn í kirkjuna og
verður hvert smáatriði að vera læsilegt
berum augum úr 15-20 metra fjarlægð. Þá
er athyglisvert hvernig Leifur hugsar fyrir
stóru jafnt sem smáu, því hönnunin gengur
langtút yfirramma gluggans. M.a. miðar
hann formin í eigin glugga við stærðirnar í
hliðargluggunum. Þanniger gætt samræmis
og heildarsvipur glerjanna þriggja raskast
ekki, þegar horft er í átt til aðaldyranna.
í öllum atriðum hefur Leifur haft náið
samband við yfirarkitekt kirkjunnar en
næsta sumar mun hann fara til Norwich á
Englandi til að kanna aðstæður og velja
glerin en þar mun svo glugginn endanlega
verðaunninn.
Nú er aðeins eftir að bíða uppsetningar
þessa mikla verks. Glugginn verður
afhjúpaður á 200 ára afmæli Kilmarnock-
ljóðasafnsins, en fyrstu ljóð Burns voru
gefin út í Edinborg árið 1786. Þá munu þeir
Leifur Breiðfjörð og Robert Burns heilsast
undir hamraveggjum Edinborgarkastala, í
minningu „þeirra gömlu kynna sem
gleymast ei“.
Aðalglugginn á vesturhlið St. Giles, séður að utan
Leifur fyrir framan St. Giles. í baksýn er aðalglugginn sem hann Gerð steindra glugga er mikið nákvæmnisverk. Ljosm.: Atli,
mun endurskapa.
Listamaðurinn
við úrtak
úr væntanlegum
aðalglugga. Úrtakið
er í fullri stærð.
fV Jr ' Ww If * f < jr/w 'i 11 m
mJt f 4 l '■
nw — iruiiTnfrv wt 8 r 1
t. V -1 9 A
r V v ~
V - \
«T/5i