Þjóðviljinn - 28.04.1983, Page 2

Þjóðviljinn - 28.04.1983, Page 2
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 28. apríl 1983 BLAÐAUKÞ Erindi Kristbjarnar Árnasonar trésmidsá ráöstefnu Sambands byggingarmanna um atvinnuhorfur í byggingar- iönaði. Kristbjörn Árnason trésmiður Hér er um að ræða nýjan vettvang í byggingariðnaði þar sem við verðum að standast erlenda samkeppni. „Islensku húsinverða að standast ströngustu kröfur um gæði og verð“ Hér ertilumræðu einingahús, innflutningurog framleiðsla þeirra, en ég ætla að fjalla um þetta málefni almennt og f rá sjónarhóli launþega í tréiðnaði. Þessi iðnaður hefur hingað til skipst í 2 megin greinar, framleiðslufyrirtæki og þjónustufyrirtæki. Framleiðslan hefur aðallega verið húsgögn og innréttingar og nú á síðustu árum, hefur timburhúsa- framleiðsla risið upp um allt land, en fyrir örfáum árum áttu slík hús erf itt uppdráttar. Þjónustan hefur einkum verið við byggingaiðnað og að nokkru blandast honum. Neysluvara háð tískusveiflum Hús eru að verða einskonar neysluvara, háð tískusveiflum. Neytendur eru að upplifa nýja tíma, nýja valkosti í uppbyggingu heimila sinna. Þessir nýju húsasal- ar kynna vöru sína með litfögrum bókum, sem í eru sýndar nýjar úr- lausnir, sýndar eru þær uppstill- ingar, sem fólk er búið að skoða í erlendum myndablöðum um ára- tugaskeið. Þessi nýju hús og sölutækni sú, sem þeim fylgir, höfðar mjög til almennings. Það er ljóst, ef að ekk- ert verður að gert til að hindra þennan mikla innflutning, mun ís- lenskur tréiðnaður sem iðnaður líða undir lok, eftir standa kannski örfá fyrirtæki, að öðru leyti færist vinnan inn í bílskúra. Það tekur mörg ár að þróa íslensk fyrirtæki til að mæta þessari samkeppni er- lendis frá. Innflutt hús hafa flætt inn í landið Nú á síðustu misserum hafa inn- flutt hús bókstaflega flætt inn í landið. Á síðustu 2 árum hefur inn- flutningur margfaldast í tonnum talið, en erfitt er að gera sér grein fyrir fjölda húsanna vegna þess, að enginn einn aðili hefur innsýn yfir innflutninginn. Þetta ástand verð- ur að teljast algjörlega óviðunandi, að innflutningur á þessum húsum sé eftirlitslaus. Við smiðir höfum haldið því Tangarhöfða 2 Ótrúlega Ódýrar Eldhús- innréttingar einnig baðinnrétt- ingar og klæðaskápar Sýningarsalurinn er opinn virka daga frá kl. 8 -18 INNBU HF Tangarhöfða 2. Sími 86590. fram, að allar úttektir á þessum húsum séu í ólestri. Þetta eftirlits- leysi er að okkar mati auðvitað ver- ulegt ábyrgðarleysi, þó að ekki sé hægt að kenna starfsmönnum sveitafélaganna um, þá eiga þeir að bera vissa ábyrgð, en virðist ekki vera gert kleift að sinna þessari skyldu sinni. Þarna verða rann- sóknarstofnanir atvinnuveganna að koma til og vera í forystuhlu- tverki. Þolandi þess, ef að illa fer, sem því miður virðist við bera, eru fjölskyldur sem kaupa þessi hús, eru með aleigu sína að veði og jafn- vel lífshamingjuna. Það verður að vernda hagsmuni fólks, koma í veg fyrir að kannski margra ára vinna fari í súginn, bara fyrir það eitt, að byggð eru hús, sem standast ekki íslenska veðráttu. Það er greinilegt nú, að þróunin á innflutningi húsa er öll á sama veg og með húsgögn og inn- réttingar. Ljóst er, að samkeppnin í hús- gagna- og innréttingasölu, sem er gríðarlega hörð, gerir innflutning á húsum mjög áhugaverðan, vegna þess hve samkeppnin hefur verið lítil í byggingaiðnaði. Það er skoðun okkar bygginga- manna, að það eigi að mestu að koma í veg fyrir innflutning á hús- um. Til þess verðum við að gera mjög strangar kröfur til þessara húsa, strangari en annarsstaðar gerist. Auðvitað verðum við að gera sömu kröfu til innlendra hús, jafnvel enn harðari. Ég tel alveg í lagi að vera með allnokkra sérvisku íþessum efnum. Varðandi íslensku húsin verða þau að standast ströng- ustu kröfur um gæði og verð. Lána- fyrirgreiðsla verður að vera aðlað- andi. Arkitektar komi fram úr felustöðum Eitt er það, sem án efa á eftir að skipta hvað mestu máli með þessi hús. Það er hönnunin. Arkitektúr verður að vera íslenskur í íslensk- um húsum og verður að vera góð- ur. Gera verður þær kröfur til arki- tekta, að þeir komi fram úr felu- stöðum sínum og kynni tréiðnaöin-

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.