Þjóðviljinn - 10.05.1983, Blaðsíða 5
Fréttaskýring:
Mikill einhugur ríkjandi hjá Sjálfstæðis/lokki
Þriðjudagur 10. maí 19831ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5
16 sjálfkjömir ráöherrar
„Eflum einn flokk til ábyrgðar“, sagði Sjálfstæðisflokkurinn fyrir
kosningar og hélt því fram að sá flokkur væri fær um að stjórna
landinu, þinginu, atvinnuvegunum, fólkinu og þjóðlífinu á íslandi.
Meirihluti kjósenda þakkaði kurteislega þessa ábendingu - og lagði
traust sitt á aðra. Hins vegar er gaman að velta því fyrir sér hvaða
þingmenn úr hinum samstæða þingflokki Sjálfstæðisflokksins gera
kröfu til þess að gegna ráðherradómi i næstu ríkisstjórn.
Við skulum byrja á Reykjavík.
í efsta sæti trónir Albert Guð-
mundsson. Hann er maður
viðskiptanna og gerir að sjálf-
sögðu kröfu til þess að verða við-
skiptaráðherra ellegar fjármála-
ráðherra. Hins vegar hafa sterku
öflin í flokknum allt á hornum sér
við Albert einsog alþjóð veit.
Mprgunblaðið er t.d. þeirrar
skoðunar að skynsamlegt sé að
leggja niður viðskiptaráðuneytið
og gera það að deild í utanríkis-
ráðuneytinu. Máski þessi skoðun
fái byr undir báða vængi til að
koma í veg fyrir frekari mann-
virðingar Alberts. Fjármálaráðu-
neytið segja andstöðumenn Al-
berts vera gjörsamlega útilokað
fyrir hann; hann sé jú banka-
ráðsformaður og fráleitt sé að
setja mann beint úr bankakerfinu
á ríkiskassann. Bankástjórar
Sjálfstæðisflokksins eru sagðir
mjög harðvítugir í þessari and-
stöðu sinni.
Friðrik Sophusson gerir kröfu
til að fá eitthvert ráðuneyti, t.d.
félags-, heilbrigðis-, trygginga-
mál ellegar þá menntamálaráðu-
neytið. Hann sé varaformaður
flokksins og ekki hægt að láta
hann standa öllu lengur í skugg-
anum af eldri mönnunum, sem
flestir hafa kynnst sætleika valds-
ins. Það er kominn tími til að
„ungu mennirnir" fái að spreyta
sig, segja Friðriksmenn í flokkn-
um. Hann sé líka útnefndur af
sjálfum flokknum á landsvísu til
forystu.
Birgir ísleifur Gunnarsson er
sagður benda á stól iðnaðarráð-
herra og segja: þetta er sætið
mitt. Benda hans menn á, að
hann hafi tekið virkan þátt í
mótun iðnaðarstefnu flokksins,
hann hafi starfað í sögu Lands-
virkjunar og víða komið frekar
við sögu iðnaðarmála á undan-
förnum árum. Þá hafi hann verið
borgarstjóri - og ekki megi ganga
framhjá slíkum mönnum.
Ragnhildur Helgadóttir vill
verða menntamálaráðherra. Hún
sé jú kona sem hafi langa þing-
sögu að baki, byrjaði fyrst á þingi
á sjötta áratugnum. Og hún hafi
of lengi beðið í skugganum. Hún
sé líka lögfræðingur einsog kall-
arnir.
Geir Hallgrímsson vill verða
forsætisráðherra af þrjósku ef
ekki vill betur. Aðrar ástæður
hafa verið raktar hér í blaðinu og
liggja í augum uppi.
Matthías A. Mathiesen gerir
kröfu til ráðherradóms af því
hann hefur einna mestu reynslu.
Hann var jú fjármálaráðherra í
ríkisstjórn Geirs og Framsóknar
1974-78. Hann er leiðtqgi
Reyknesinga og hefur verið á
þingi síðan 1959. Auðvitað á
hann að verða ráðherra.
Gunnar G. Schram er stjarnan
sem skaust upp á himininn. Hann
er þjóðréttarfræðingur, heims-
borgari að hugsjón og hefur verið
fulltrúi landsins útávið og forsæt-
isráðherra á köflum innávið. Þá
hefur hann verið valinn til að
gegna formennsku í launþega-
samtökum. Auðvitað vill hann
verða ráðherra - og hans menn
krefjast þess árangurs af upp-
skerunni úr prófkjöri og kosning-
um.
Ur Sunnlendingafjórðungi
heyrast kröfur um að Þorsteinn
Pálsson verði gerður að ráðherra.
Þorsteinn er sagður arftaki Ing-
ólfs Jónssonar sem var ráðherra
um árabil. Og það er kominn tími
til að Ingólfur verði endurvakinn
í Þorsteini. Sunnlenskan ráð-
herra, segja þeir, - og þykjast
muna eftir kornabarninu Þor-
steini í vöggu í Ölfusi. Þá þykir
ekki spilla fyrir að með Þorsteini
eru komin beinni tengsl milli
atvinnurekendavaldsins og
flokksins en nokkru sinni þótti
þorandi áður. Vinnuveitenda-
sambandið vill notfæra sér þetta
og krefst þess að Þorsteinn verði
gerður að ráðherra. Vinnu-
veitendasambandið í ráðherra-
Allir vilja þcssir verða ráðherrar - og enn fleiri til viðbótar!
stól, ekkert múður. Hann gæti
gert kröfu til þess að verða t.d.
félagsmálaráðherra, forsætisráð-
herra, fjármálaráðherra; eða þá
eitthvert hinna ráðuneytanna.
Ur Austfirðingafjórðungi sæk-
ir Sjálfstæðisflokkurinn hvorki
meira né minna en tvö ráðherra-
efni; Sverri Hermannsson með
víðtæka reynslu af stjórnunar-
störfum, einsog það er kallað.
Átt er við Framkvæmdastofnun
sem hann hefur stýrt af miklum
þrótti einsog fundum neðri
deildar alþingis. Það er kominn
tími til að Sverrir fái mýkri sæti,
segja hans menn. Og ekki má
gleyma Agli Jónssyni. Hann hef-
ur lengi stefnt á það að verða
landbúnaðarráðherra. Og hann
er ekki vanur að gefa sig fyrr en í
fulla hnefana maðurinn sá. Sjálf-
ur hefur hann verið talsmaður
heyköggla og töðumála í þing-
flokknum. Meir að segja mótað
sérstaka landbúnaðarstefnu fyrir
flokkinn, sem aðrir segja reyndar
að hann hafi fengið að láni frá
Pálma Jónssyni.
Úr Norðurlandi eystra kemur
svo enn eitt ráðherraefnið, Lárus
Jónsson. Hann gerir að sjálf-
sögðu kröfu um að verða
fjármálaráðherra, enda löngum
talinn einn helsti efnahagssér-
fræðingur flokksins. Þá hefur
hann og verið leiðtogi í efri deild
alþingis í öllum málum er varða
efnahag og fjármál.
Úr Norðurlandi vestra koma
svo tvö ráðherraefni. Pálmi Jóns-
son sem vill verða áfram landbún-
aðarráðherra. Vitnar hann til
reynslu sinnar í þeim efnum, sem
og í árangur sinn í kosningum
þrátt fyrir andstöðu flokksvélar-
innar.
Eyjólfur Konráð Jónsson er
ennfremur talinn líklegt
ráðherraefni. Hann er
hafréttarfræðingur - og dálítið af
hugmyndafræðingi er í honum
líka, en þeir þykja ekki alltof
margir sem hafa lesið Ádam
Smith í þingflokki Sjálfstæðis-
flokksins, hvað þá Hannes Hólm-
stein og Jönas Haralz. Til að bæta
úr þekkingarskortinum, þykir því
rétt að hafa einn lesinn með í
ríkisstjórninni. Þess vegna
Eykon. Þá þykir Eykons-
mönnum kominn tími til að Pálmi
fái meiri samkeppni í kjördæm-
inu - og að vegur hans fari minn-
kandi að sama skapi og Eykons
vaxi.
Úr Vestfirðingafjórðungi
koma ekki færri en tvö ráðherra-
efni. Matthías Bjarnason sem vís-
|ar til fyrri ráðherradóms síns og
þekkingar á málum einsog sjáv-
arútvegsmálum, heilbrigðis- og
tryggingamálum.
Þorvaldur Garðar Kristjáns-
son hefur lengi verið í startholun-
um, máske hálfa öld. Hann vildi
gjarnan verða félagsmálaráð-
herra (fóstureyðingafrumvarpið
o.fl.). Reyndar hefur hann verið
talsmaður flokksins á undanförn-
um þingum í öllum málum sem
hinir hafa ekkert vit á: félagsmál
hvers konar, kristindómur, hús-
næðismái, raforkumál, fjármál,
atvinnumál, landbúnaðarmál,
póst- og símamál, samgöngumál.
Og svona mætti lengi telja þá
málaflokka sem Þorvaldur
Garðar hefur barist fyrir af mik-
illi elju og ósérhlífni.
Af Vesturlandi er ekki nema
eitt ráðherraefni. Það er dóms-
málaráðherrann Friðjón Þórðar-
son. Vestlendingar hafa sjaldan
átt ráðherra - og árangur Frið-
jóns einsog Pálma góður þótt
flokksvélin væri honum andsnú-
in. Það verður erfitt að ganga
framhjá Friðjóni Þórðarsyni þeg-
ar velja á næsta dómsmálaráð-
herra.
Hér hafa verið talin upp ein
sextán ráðherraefni Sjálfstæðis-
flokksins. Allir þessir menn gera
kröfu um að verða ráðherrar- og
allir hafa þeir sterkar klíkur og
hópa sem vilja sko ekki láta vaða
yfir sig. Og nú er aö rifja upp
Ugluspegil í huganum - og púk-
ann á bitanum. „Eflum einn
flokk til ábyrgðar“, sagði Mogg-
inn fyrir kosningar.
-óg.
Skilorðsbundinn
dómur algengastur
vegna kynmaka við börn
Á árunum 1972-74 var
dæmt í 3 málum í
Reykjavík vegna kynmaka
við börn og í 2 málum utan
Reykjavíkur. Dómarnir,
sem viðkomandi hlutu,
<voru: 1 hlaut
skilorðsbundið fangelsi í 6
mánuði, 2 hlutu
skilorðsbundið fangelsi
lengra en 6 mánaða, hjá 1
var frestað refsingu og 1
hlaut óskilorðsbundinn
fangelsisdóm, 12-23
mánaða langan.
Skilorðsbundinn dómur þýðir,
að viðkomandi sætir ekki fangels-
isvist nema hann gerist brotlegur á
■ ný á þeim tíma, sem dómurinn nær
yfir. Þótt samkvæmt hegningarlög-
unum íslensku skuli nauðgarar
hljóta allt frá 1 til 16 ára fangelsis-
dóm og menn sem gerast brotlegir
gegn börnum vægari dóm að tiltölu
(hvernig í ósköpunum sem hægt er
nú að réttlæta það að verra sé að
nauðga en valda börnum skaða um
alla framtíð), þá sýnir praxísinn að
dómar í málum af þessu tagi eru
vægari en orðanna hljóðan.
Þær upplýsingar, sem að ofan
getur, er að finna í Dómsskýrslum
1972-74, sem Hagstofan gaf út
1978. Nýrri tölur er ekki að hafa.
Afskaplega treglega gengur að afla
upplýsinga um dómsmál á íslandi.
Ekki vegna þess að þeim sé ekki
haldið til haga, heldur vegna hins
að ekki er unnið úr þeim. Þannig
safnast saman skjöl hjá rannsókn-
arlögreglu, ríkissaksóknara, saka-
dómi ogfleiri embættum, sem inni-
halda viðamiklar upplýsingar um
Þórður Björnsson, ríkissaksóknarí:
Málið hefur verið
„Ég veit ekki betur en það sé verið að vinna í þessu
máli og ég vona, að rannsóknin taki fljótt enda“, sagði
Þórður Björnsson, ríkissaksóknari, í samtali í gær
varðandi mál það sem við sögðum frá sl. föstudag um
kynferðisafbrot tiltekins manns í Reykjavík gegn ung-
um telpum.
„Ég viðurkenni, að mál þetta sagði Þórður ennfremur. Hann
hefur verið of lengi hjá okkur“, kvað þetta umfangsmikið mál,
Stór saga úr réttarkerfinu:
Eru kynferðisafbrot gegn
börnum ekki hættuleg?
|KYU> mcnn ekk. Jilui
Fulllru. »i. «1 undunluA
IrMi nð h|. iiknuaksðkiuia.
k»að mil al þcvvu U(i »iðk»*m
o* þvi þvrlii aA laia að meé aHn
(al llann k»að»l ckki fela »»al-
komavl að þvi.
maður halði hali i
afbrot íslendinga - en við erum í til þess að flokka upplýsingarnar.
raun engu nær. Skjölin hrúgast Við verðum því að láta þessar
baraupp. Mannaflaskortiraðsögn gömlu tölur nægja að sinni. ast.
of lengi í kerfinu
eldri mál kæmu þarna inní og
spurningin væri hvar ætti að draga
mörkin. Því hefði þetta dregist
svona.
Þórður Björnsson kvaðst ekki
geta svarað því hversu langan tíma
mál af þessu tagi væru til meðferð-
ar í kerfinu. Það færi eftir svo
mörgu, m.a. umfangi málsins og
álagi á starfsmönnum saksóknara-
embættisins. Hann kvað gæslu-
varðhald heyra til undantekninga
hér á landi - því væri ekki beitt
nema í morðmálum.
„Það er semsé verið að vinna í
málinu og strax og rannsókn er lok-
ið mun það hafa hér forgang",.
sagði Þórður Bjömsson, ríkissak-
sóknari, að lokum.
ast.