Þjóðviljinn - 10.05.1983, Síða 16
UOWIUINN
Þriðjudagur 10. maí 1983
Aðalsfml ÞJóðvlljans er 81333 kl. 9 - 20 manudag til töstudags. Utan þess tíma er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum símum: Ritstjórn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími
81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 -12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins í slma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663
Frá undirritun samningsins í gær. Óiafur B. Thors, Nanna Hcrmannsson og Erlcndur Svcinsson. Fyrir aftan
standa þeir Cuðmundur Pétursson stjórnarformaður Almennra trygginga og Sigurður Sigurkarlsson
framkvæmdastjóri.
Almennar trygglngar leggja fram ijármagn
Reykjavíkurmynd
Lofts bjargaö frá
skemmdum
Tryggingarfélag greiðir endurgerð
myndarinnar í tilefni af 40 ára afmæli sínu
í gær var undirritaður samningur á milli Almennra
trygginga annars vegar og Kvikmyndasafns íslands og
Árbæjarsafns hins vegar um endurgerð á Reykjavíkur-
mynd Lofts Guðmundssonar frá 1943. Einsog kunnugt
er hefur þessi heimildarmynd úr Reykjavík 1943 Iegið
undir skemmdum og talið er að það sé mjög dýrt að gera
sýningarhæft eintak af myndinni. En nú hefur semsagt
ræst úr í því efni, því Almennar trygginar hf hafa í
tilefni 40 ára afmælis síns á morgun ákveðið að kosta
endurgerð myndarinnar.
Á blaðamannafundi í gær gerðu
þeir Guðmundur Pétursson,
Ólafur B. Thors og Sigurður Sig-
urkarlsson hjá Almennum trygg-
ingum grein fyrir 40 ára sögu fé-
lagsins og þau Erlendur Sveinsson
forstöðumaður Kvikmyndasafns
íslands og Nanna Hermannsson
borgarminjavörður sögðu frá kvik-
mynd Lofts Guðmundssonar.
Loftur Guðmundsson gerði
þessa mynd 1943 með stuðningi frá
Reykjavíkurborg í borgarstjóratíð
Bjarna Benediktssonar. Pykir
myndin hafa mikiö og gott heimild-
argildi um borgina og atvinnuhætti
í Reykjavík. Eftirtökur af þessari
mynd höfðu farið forgörðum á
leiðinni frá Bandaríkjunum til ís-
lands. Þannig fór ein í hafið með
Goðafossi og önnur með Detti-
fossi.
Almennar tryggingar eru einmitt
stofnaðar 1943, sama ár og kvik-
myndin er tekin. Lýsti forstjórinn
Ólafur B. Thors þeirri von sinni að
þetta framtak fyrirtækisins að
forða Reykjavíkurmyndinni frá
skemmdum yrði vonandi öðrum
fordæmi til sams konar verkefna.
í máli Nönnu Hermannsson kom
m.a. fram að Loftur hefði sagt frá
því í bréfum til vina að hann gæti
ekki alls staðar tekið myndir þar-
sem hann vildi, því svo mikið væri
um skúra og óhrjálegar byggingar í
borginni.
Samkvæmt samningum sem
undirritaður var í gær er reiknað
með að sýningarhæft eintak af
myndinni verði tilbúið 15. október
næstkomandi. Reykjavíkurborg er
rétthafi kvikmyndarinnar. Al-
þýðubandalagið lagði til við gerð
fjárhagsáætlunar Reykjavíkur sl.
vetur, að 250 þúsund krónum yrði
úthlutað til þessa verkefnis, en
meirihlutinn felldi þá tillögu. - óg.
Mánaðargamall samningur
um fræðslumálin:
Leyniplaggið
birt í dag
Ekki óskað álits frá kennurum!
30. mars s.l. voru undirrituð
drög að samningi um nýskipan
fræðslumála í Reykjavík af þrcmur
fulltrúum borgarráðs og þremur
starfsmönnum mcnntamálaráðu-
neytis. Samningnum hefur verið
leynt þar til í gær að hann barst inn
á borð fræðsluráðs fyrir atbeina
mcnntamálaráðuncytisins. Á þeim
fundi felldu fræðsluráðsfulltrúar
Sjálfstæðisflokks og krata tillögu
frá fulltrúa Alþýðubandalags um
að leita umsagnar Kennarafélags
Reykjavíkur og Skólastjórafélags-
ins um samninginn, sem felur m.a. í
sér, skv. heimildum Þjóðviljans, að
cmbætti fræðslustjóra verði lagt
niður 31. júlí n.k.
Þetta nýjasta leyniplagg borgar-
stjórans í Reykjavík hefur hvergi
verið kynnt fyrir kjörnum fulltrú-
um eða starfsmönnum skólanna.
Menntamálaráðuneytið óskaði
hins vegar eftir umsögn fræðslu-
stjóra um efni þess og því barst það
inn á fræðsluráðsfund í gær. I dag
verður það svo lagt fram í borgar-
ráði að kröfu Kristjáns Benedikts-
sonar frá síðasta fundi ráðsins.
Undir samninginn rita af hálfu
borgarinnar þeir Markús Örn Ant-
onsson, Ragnar Júlíusson og Bragi
Jósepsson. Peir voru kjörnir af
borgarráði til þess að semja um ný-
skipan fræðslumála í Reykjavík
eftir að menntamálaráðherra
skipað ekki Sigurjón Fjeldsted,
borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks-
ins, í stöðu fræðslustjóra s.l. haust.
Bragi er fulltrúi krata í fræðsluráði
og var hann kjörinn í nefndina á
hlutkesti af miðflokkabandalaginu
í borgarráði. Fulltrúi Alþýðu-
bandalagsins varð undir í hlut-
kestinu.
Frá menntamálaráðuneytinu
skrifa undir samninginn þeir Ör-
lygur Geirsson, Sigurður Helgason
og Hörður Lárusson.
-ÁI
Ólýöræðislegt pukur:
Engar skýringar
á leyndinni
segir Þorbjörn Broddason
um viðbrögð samningamanna
„Það er fáheyrt að fullkomin
drög að samningi um jafn mikils-
vert mál skuli falin í meira en mán-
uð fyrir kjörnum fulltrúum í
fræðsluráði og síðan fellt að leita
umsagnar þeirra sein málið helst
varðar, þ.c. skólamönnum í
Reykjavík. Það fer ekki hjá því að
það vakni grunsemdir um að menn
hafi ætlað sér að láta fullgilda
samninginn án nokkurrar um-
ræðu. Annað eins hefur gerst
undanfarna mánuði í Reykjavík og
nægir þar að minna á Keldnasamn-
inginn fræga“, sagði Þorbjörn
Broddason, fulltrúi Alþýðubanda-
lagsins í fræðsluráði, í gær.
Þorbjörn sagðist ekki hafa samn-
inginn undir höndum, enda hefði
honum ekki verið dreift tii
fræðsluráðsmanna. Hann yrði þó
opinbert plagg í dag eftir að hann
hefur verið lagður fram í borgar-
ráði.
,-,Hér er greinilega um að ræða
stærsta mál sem fræðsluráð snertir í
langan tíma“, sagði Porbjörn, „og
það er í fyllsta máta ólýðræðislegt
að slíkur samningur skuli ekki
kynntur á umræðustigi í fræðslu-
ráði ogmeðal skólamanna.Ég mót-
mælti þessum vinnubrögðum harð-
lega í bókun í fræðsluráði í gær og
þó þeir Ragnar Júlíusson og Bragi
Jósepsson hafi í annarri bókun vís-
að því sem þeir kalla dylgjur mínar
á bug, þá gátu þeir ekki gefið
nokkrar skýringar á þessu ólýð-
ræðislega pukri sínu og formanns
fræðsluráðs, Markúsar Arnar Ant-
onssonar“, sagði Þorbjörn Brodd-
ason. -Á1
Osvífni iðnrekenda að tala um
dökkar horfur og atvinnuleysi
„Það sárvantar fólk
til sumarstarfa”
„Ég á ekki orð yfír þá ósvífni forráðamanna iðnrekstrar í samtölum við
fjölmiðla að undanförnu að leyfa sér að blása út atvinnuleysi og slæma
stöðu í fataiðnaði hérlendis. Ég hef lengi starfað við saumaskap og fullyrði
að það hefur aldrei verið eins mikill skortur á saumakonum eins og einmitt
núna“, sagði starfandi saumakona i samtali við Þjóðviljann í gær og lagði á
borð blaðamanns fjölda úrklippna úr dagbiöðum, þar sem auglýst er eftir
fólki til saumastarfa.
Blöðin hafa verið uppfull síðustu
daga og vikur af atvinnuboðum
fyrir saumafólk. Hvert fyrirtækið
af öðru auglýsir í neyð eftir starfs-
fólki. Það sárvantar fólk mjög
víða. Þar sem ég starfa er búið að
margauglýsa eftir fólki, en gengur
illa að manna störfin. Ástandið er
þannig orðið, að það er beðið með
óþreyju eftir hverri sendingu sem
við getum látið frá okkur fara,
sagði þessi saumakona í samtali við
Þjóðviljann. ,
Hún sagðist eiga erfitt með að
kyngja þeim áróðri sem vinnu-
veitendur héldu nú á lofti um slæmt
atvinnuástand og dökkar horfur.
Slíkt ætti alls ekki við í fataiðnaði.
Rétt væri að hjá einu fyrirtæki í
borginni hefði öllu starfsfólki verið
sagt upp á dögunum. Þar væri
framleiðslustefnu eigenda um að
kenna, þeir hefðu ekki fylgst með
þróuninni. Að öðru leyti gengi
fataiðnaður vel eins og skýrast
dæmi væri um í auglýsingadálkum
dagblaðanna. -Ig.
Nokkrar af þeim auglýsingum sem
birst hafa í dagblöðum að undan-
förnu þar sem óskað er eftir
saumafólki til starfa.
^imastofu
Ht fólk kemur til greina.
\œða eftlrtalln störf:
Ysnlösla.
'jaumar.
- frágangur.
um á vlnnutíma kl
1 og þriójudag.
veittar í sima
TINNA hf.
.v'' * Auóbrekku 34. Kopavogr
- M»tnnr 8885-7340
vd' _ ó,>‘'
<,\» X
í'»,v
Saumastörf
(Onur ncLn,É ,ii
*™nna
*>®,° 9 <**
\y
L ______________________
Saumakonur óskaaf ni .
Aha, Z ol*r;;!nna ha"*n
PP 9“ nar 4 a'aDnum hjó v,rk,l|6ra.
Dúkur hf.,
Skelfunnl 13.
bcðnlr kðhali u
lilma 27022 eftlrk
Vöo •»um»k«o» hkul J /
h4ll»n daglnn. Uppl. I »lm» 1J470.
uuríiitúlka údtait
4 Vörubtlutöð K<
hata bílpröf. Uppl i
Saumtitorl P V’
Oakum *(tir aö r<
atarfa alrax. htilar
bönuavlnna. AlUi
alaönum. Dúkur h/