Þjóðviljinn - 03.06.1983, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 03.06.1983, Blaðsíða 7
Föstudagur 3. júní 1983. ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7 „Svínarí“, var orðið sem Hans Jiirgen Wischnewski sérlegur sendimaður Wiliy Brandts for- manns Alþjóðasambands jafnaðr- manna, hafði yfír pólitfk Banda- ríkjastjórnar gagnvart Nicaragua, en þar var Wishnewski á ferð á dög- unum. Alþjóðasamband jafnaðar- manna, sem hélt ráðstefnu í Port- úgal nýverið, fordæmdi harðlega stefnu Bandaríkjastjórnar í mál- efnum Suður-Ameríku. Hans Júrgen Wischnewski hefur longum verið í mikilvægum erindum fyrir þýska sósíaldemókrata á erlendum vettvangi - og varð heimsþekktur í slíkum erindum fyrir vestur-þýsku ríkisstjórnina í stjórnartíð sósíald- emókrata. { frásögn af ferðalagi þessu í Spiegel er sagt, að nú sjáist sú breyting glögglega á stjórnmála- mönnum vestur-þýskum úr röðum sósíaldemókrata, að þeir kunni betur að meta tilveruna í stjórnar- andstöðu, - njóta þess frelsis að tala á opinskáan hátt. f höfuðborginni Managua sagði Wischnewski á meðan heimsókn- M m ±l : ' "3. *y~TTYHHi ■iTf Jafnaðarmenn í Evrópu mótmæla stefnu Bandaríkjastjórnar í Nicaragua Ófögur orö um Banaarík j ast j órn gegni um efnahagsástandið. Eng- inn efast um að nýlega tilkynnt bann við útflutningi á sykri til Nic- aragua frá Bandaríkjunum, sé aðeins upphafið á mörgum og harkalegum þrýstingsaðgerðum Bandaríkjastjórnar í viðskipta- stríði gegn Nicaragua. „Við kom- um til með að þurfa að svelta“, sagði Borge innanríkisráðherra við Wischnewski. Daniel Ortega fullvissaði gest sinn um að þrátt fyrir erfiðar að- stæður í landinu, muni kosningar fara fram á áætluðum tíma, 1985. Stjórnvöld séu staðráðin í að við- halda fjölflokka-, þáttakerfi (plur- alisma) í landinu. En hvort að það geti verið til frambúðar veldur á því hvort stuðningur á alþjóðavett- vangi verði áfram frá allra flokka mönnum og þjóðum eður ei. Ann- ars verðum við að framkvæma bylt- inguna, með öðrum hætti, segir Ortega. Wischnewski sagði að þessar skýringar væru alveg ljósar og lof- aði að tala máli Nicaragua og biðja um frekari aðstoð við stjórnvöld þar hjá Kohl kanslara Vestur- Þýskalands, Evrópuþinginu og „hjá vinum okkar í bandaríska þinginu". Enn fremur lýsti hann yfir þeim vilja sínum, að tækist að leysa vandamálin eftir pólitískum leiðum, án þess að íhlutun erlendis frá kæmi til. Frá því Wischnewski talsmaður vestur-þýskra Sósíaldemókrata kom úr ferð sinni til Nicaragua hafa sífellt borist ítarlegri fregnir af gegndarlausum stuðningi CIA og Bandaríkjastjórnar við upp- reisnarmenn í Hondúras, sem að stofni til eru úr hersveitum ógnar- stjórnar Somoza einræðisherra. (Byggt á Spiegel) -óg inni stóð um markmið Bandaríkja- stjórnar: „Með viðskiptalegum þrýstingi og hernaðarafskiptum ætlar stjórnin að koma sínu fram: hruni í Nigaragua". Þess vegna sé engin ástæða lengur fyrir þýska sósíaldemókrataflokkinn (SPD), „að reyna yfirleitt að tala við Reag- an stjórnina um málefni Nicar- agua“. Wischnewski var tekið einsog þjóðhöfðingja í Nicaragua og menn einsog bræðurnir Daniel Or- tega og Humberto Ortega, forsætis- og varnarmálaráðherra, áttu drjúgar viðræður við þennan áhrifamikla talsmann utanríkis- stefnu þýskra sósíaldemókrata. Sandinistarnir brugðust einnig vel við gagnrýni gestsins, sem ásak- aði þá um hörku og óbilgirni; stjórnarandstaðan njóti ekki fullra réttinda, fjölmiðlar séu ritskoðaðir og herlög væru í gildi. Þá var spurt um fjóra kristilega demókrata sem sætu í fangelsi vegna „andbylting- arsinnaðs athæfis". í ljós kom að tveir þessara manna gátu þegar um frjálst höfuð strokið, en innanríkis- ráðherrann Borge lofaði að láta mál hinna tveggja til sín taka. Wischnewski gerði ýmsar aðrar athugasemdir. Hann vildi halda markaðskerfi og marxisma að- skildum, sagði hann, þegar hann sá bókaskáp hjá bankastjóra lands- bankans troðfullan af bæklingum og bókum eftir Lenin. „Þið verðið að átta ykkur á því að þangað kem- ur fólk sem Nicaragua þyrfti að fá lánað hjá“. „Hafðu engar áhyggj- ur, það les þetta hvort eð er ekki nokkur maður“, svaraði Daniel Ortega. Eftir tæplega fjögur ár frá því að einræðisherranum Somoza var steypt af stóli, eru Sandinistarnir komnir uppvið vegg. Tilraun þeirra til að hafa blandað hagkerfi með ríkis- og einkarekstri, með fjölflokkakerfi og reka utanríkisp- ólitík óháð stórveldunum, gæti far- ið útum þúfur. Harðsvíraðir and- kommúnistar einsog Ronald Reag- an sætta sig ámóta lítt við vinstri sinnað land á áhrifasvæði sínu - og það hentar bókstafstrúar Kreml- verjum illa að sætta sig við lýðræðislegar tilhneigingar á áhrif- asvæði sínu. Allt er gert til að einfalda og af- baka stefnu Nicaragua. Leiti Sand- inistarnir aðstoðar til Austur- Evrópu, þarsem aðstoðin frá Vest- urlöndum annað hvort nægir ekki eða er meinuð, þá er sagt að Nicar- agua bíði sömu örlög og Kúbu, meiraaðsegj a sé hætt við að þar eigi Hans Jiirger Wichnewski að koma upp sovéskum eld- flaugum. Um þetta segir Borge innanríkisráðherra: „Fj arstæða, við höfum ekki frelsað okkur frá bandarískri heimsvaldastefnu til þess að fela okkur í hendur hins stórveldisins". Þegar samvinnufélög yfirtaka fyrrverandi einkafyritæki kemur ásökun þegar um að nú sé verið að^ ganga á loforðið um blandað hag- kerfi. Staðreyndin er hins vegar sú að eigendur fyrirtækja yfirgefa eftir sem áður íandið, þarsem ný félagspólitík kemur í veg fyrir að þeir græði jafn mikið á fyrirtækja- rekstri og áður. Einna helst eiga ásakanir um skort á fjölflokka- og fjölþáttakerfi í landinu við rök að styðjast. En það er nokkuð sem á við flest ef ekki öll lönd í Suður- Ameríku. Wischnewski talaði við lands- menn sína sem vinna að þróunar- hjálp í Nicaragua og spurði þá um árangur Sandinista: „ótrúlegur ár- angur“, „það er ekki hægt að ímynda sér betri árangur". Á þenn- an veg hljóðuðu dómar þeirra um það sem byltingarstjórnin hefur verið að gera fyrir þann meirihluta þjóðarinnar, sem fram að valda- töku Sandinista hafði búið við sár- ustu örbirgð í öllum efnum. Enginn þessara manna vill fara frá Nicar- agua, þó svo einn þjóðverji hafi nýlega verið myrtur. Það var lækn- ir sem andstæðingar stjórnarinnar myrtu nýverið. Allt bendir til þess að tvísýnni tímar fari í hönd. Talið er að um 6000 málaliðar séu nú á landamær- um Honduras og Bandaríkjastjórn styður dyggilega. Ráðamenn í Managua segjast hafa í fullu tré við þessar hersveitir en öðru máli Frí og frjáls á Mallorka Serstakur 50% afsláttur fyrir börnin. Glœsilegir gististaðir-íbúðir og lúxusvillur- í SANTA PONSA og PUERTO DE ANDRAITX FERÐASKRIFSTOFAN fyrir ungt fólk á öllum aldri, sem vill njóta lífsins í sól og sumaryl við leik, glaðvœrð og afslöppun. Verið velkominn á skrif- stofu okkar og sjáið alla aðstöðu af myndbandi. ---------> Mallorka þar sem mannlífið er fjörugast og fjölbreytast 3. vikna ferð með SÖGU 15.júní K LAUGAVEGI 66 SIMI 28633

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.