Þjóðviljinn - 05.10.1983, Side 5

Þjóðviljinn - 05.10.1983, Side 5
Miðvikudagur 5. október 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5 Fyrirhugað verslunarrými Hagkaupa og verslunarmiðstöðvar í Kringlumýri: „Rúmlega nýr Laugavegur” segir Sigurður E. Haraldsson for- maður Kaupmannasamtakanna, sem hafa óskað eftir frestun fram- kvæmda og að kostnaðarreikningar verði opinberaðir „Það er okkur kaupmönnum áhyggjuefni hversu gífurlega hefur bæst við af verslunum, sérstaklega mat vöru verslunum nú á síðustu tímum og er enn að bætast við“, sagði Sigurður E. Haraldsson formaður Kaupmannasamtaka íslands í samtali við Þjóðviljann. eða um 2 ferm. á hvern íbúa. Borg- arskipulag þar reiknaði með þessu sama hlutfalli næsta áratuginn. Hér í Reykjavík væri þetta hlutfall hins vegar þegar í dag um tvöfalt meira eða um 3.6 ferm. á hvern íbúa borgarinnar. Á Stór-Kaupmanna- hafnarsvæðinu búa um 1.250 þús. manns og þar eru 16 stórmarkaðir samtals 76 þús. ferm. að stærð. Það þýðir að um 80 þús. íbúar eru á hvern stórmarkað. „ Vitleysis- kapphlaup“ „Ástandið hér er tvímælalaust komið út í eitthvert vitleysis kapp- hlaup. Hér virðast allir ætla að gera allt í einu. Það er ekki hægt að sjá að nokkur skipuleg stjórnun sé á þessum málum. Hér er um að ræða geysikostnaðarsamar framkvæmd- ir sem okkur kemur ekki síður við en öðrum sem borga skatta hér í Reykjavík. Við eigum kröfu á að vita hvað þetta kostar, því það eru Á fundi samtakanna í síðustu viku var samþykkt ályktun þar sem beint var þeim tilmælum til borg- arstjórnar að fresta úthlutun lóðar undir verslunarhúsnæði í Kringlu- mýri. Þar hyggst Hagkaup reisa stórmarkað á um 20 þús ferm. og húsnæði undir valvöruverslanir á um 10 þús. ferm. eða alls um 30 þús. ferm. sem áætlað er undir verslanir í Kringlumýri. Verslun- arrými stórmarkaðarins mun verða um 6.600 ferm. sem er um helm- ingsstækkun miðað við verslun Hagkaupa í Skeifunni. í fyrirhug- uðu valvöruverslunarhúsnæði er áætlað að um 6.800 ferm. fari undir verslunarrými. „Ef við miðum við að á Lauga- vegi frá Bankastræti að Snorra- braut séu um 90 hús sem rekin er verslun í og meðalrými hverrar verslunar þar er áætlað um 60 ferm. þá er verslunarrýmið alls um 5400 ferm. á Laugaveginum. Þetta hverfi smávöruverslana í Kringlu- mýri er því rúmlega nýr Laugaveg- ur“, sagði Sigurður E. Haraldsson. Hann sagði ennfremur að þetta viðbótaverslunarrými sem fyrir- hugað væri í Kringlumýri væru um 10% viðbót að gólfflatarmáli við allt verslunarrými í Reykjavík árið 1980. „En það er ekki einungis þessi verslunarsamstæða í Kringlumýri sem kemur til viðbótar við allt verslunarrými, heldur er hver stór- markaðurinn á fætur öðrum að rísa upp eða á döfinni. í Holtagörðum opnar Sambandið og KRON nú bráðlega um 5000 ferm. stórmark- að, Vörumarkaðurinn opnaði á bæjarmörkum Reykjavíkur og Seltjarnarness 2000 ferm. stór- markað á dögunum, Víðir hyggst byggja í Mjóddinni 3000 ferm. stórmarkað og í Kringlumýri er eins og áður sagði Hagkaup með áætlaðan stórmarkað uppá 6.600 ferm. Samtals gerir þetta um 16.600 ferm. Ef þetta nær allt að ganga fram þá er ekki annað fram- undan en að taka upp skrapdaga- kerfi í verslun líkt og í sjávarútvegi" sagði Sigurður. Til samanburðar við stöðu þess- ara mála í nágrannalöndum sagði Sigurður að í Álaborg byggju 155 þús. manns og gólfflatarmál versl- ana þar væri tæplega 300þús. ferm. ,Þetta hverfi smávöruverslunar í Kringlumýri er því rúmlega nýr Laugavegur“, segir formaður Kaupmann asamtakanna, Sigurður E. Haraldsson, í viðtali við Þjóðviljann. Ljósm. eik. m .'lífir m ÍMhHksÍÍHBiw.' —„.JPSWf r* . . o Æ . ÆMlíÆBlœ i .» . / * wXSSSSS Sinfóníuhljómsveitin annað kvöld: Erling Blöndal Bengtsson einleikari Fyrstu áskriftartónleikar Sinfóníuhljómsveitar íslands á starfsárinu 1983-1984 verða í Háskólabíói á morgun og hefjast kl. 20.30. Efnisskrá tónleikanna verður þessi: Oliver Messiaen: Les Offrandes Oubliées. Jón Nordal: Sellókonsert, frumflutningur. Gustav Mahler: Sinfónía nr. 1 í D-dúr. Stjórnandi tónleikanna er að- alstjórnandi Sinfóníuhljóm- sveitarinnar Jean-Pierre Jacquil- lat. Hann er fæddur í Versölum 1935. Að loknu námi við Tónlist- arháskólann í París, þar sem hann vann til ýmissa verðlauna, var hann ráðinn hljómsveitar- stjóri Orchestre de Paris. Stjóm- aði hann þeirri hljómsveit á mörgum tónleikum í Frakklandi, Sovétríkjunum, Kanada, Banda- ríkjunum og Mexíkó. Síðar varð hann fastur stjórnandi óperunnar og Rohne-Alpes sinfóníuhljóm- sveitarinnar í Lyon. Hann hefur stjórnað hljómsveitum í flestum álfum heims, óperusýningum víða um lönd m.a. í Metrópolitan-óperunni í New York. Erling Blöndal Bengtsson, ein- leikari kvöldsins, er af íslensku og dönsku bergi brotinn. Höf barnungur að leika á selló, kom oft fram í Reykjavík á unglingsár- unum. Stundaði síðar nám við Curtis Institute of Music í Fíla- delfíu, hefur starfað þar sem kennari svo og við Konunglega Tónlistarskólann í Kaupmanna- höfn, tónlistarskóla í Svíþjóð og Þýskalandi. Hann nýtur nú meiri frægðar en flestir norrænir tón- listarmenn. Um sellókonsert sinn segir Jón Nordal: „Ég samdi konsertinn fyrir selló og hljómsveit að ósk Érlings Blöndals, lauk honum í ágústbyrjun. Verkinu er ekki skipt í þætti heldur áfanga, sem taka hver við af öðrum án hlés. Hér er um einskonar tilbrigði að ræða og er efniviðurinn sóttur í stef það sem sellóið leikur í upp- hafi verksins. Hlutur hjóm- sveitarinnar er harður og óvæg- inn á köflum en það er sellóið sem er leiðandi allan tímann og á fyrsta og síðasta orðið.“ - mhg Sigurður E. Haraldsson: Hræddur um að það stefni í algert óefni með svo mikilli fjárfestingu í verslun. fyrirsjáanlegar gífurlegar fram- kvæmdir við breikkun Miklu- brautar og vegatengingar ef af þessum verslunaráformum í Kringlumýri verður. Ég er hræddur um að það stefni í algert óefni með svo mikilli fjár- festingu í verslun. Ef þessi verslun- armiðstöð byggist og lifir þá deyr önnur verslun við Laugaveginn. Það er mín skoðun. Það er engan veginn grundvöllur fyrir svona stóru verslunarkerfi hér, og vissu- Iega höfum við áhyggjur af okkar félagsmönnum. Það eru þegar þrjár verslunarmiðstöðvar á þrjá vegu í kringum Kringlumýri. Suðurver að vestanverðu, Austur- ver að sunnanverðu og Miðbær að austanverðu. Varað borgar- yfirvöld við Við höfum varað borgaryfirvöld við þessum framkvæmdum í Kringlumýri með ályktun okkar, varað þau við þessu glapræði, og nú er það skylda þeirra að taka skynsamlega ákvörðun og ekki síð- ur að kynna fyrir borgarbúum þýð- ingu og kostnað við þessar fram- kvæmdir", sagði Sigurður E. Har- aldsson formaður Kaupmanna- samtaka íslands. -*g- Gísli Blöndal hjá Hagkaupum: „Þörf fyrir þetta rými” „Ég álít að það sé þörf fyrir þetta verslunarrými. Það er þegar inikill áhugi hjá kaupmönnum fyrir þessu. Við verðum áþreifanlega varir við það“, sagði Gísli Blöndal hjá Hagkaupum í samtali við Þjóð- viljann. Gísli sagði að stór hluti verslunar byggi nú við þröngar aðstæður í erfiðu, dýru og ófullnægjandi hús- næði. „Það er hægt að koma við mikilli hagræðingu með því að byggja nýja verslunarmiðstöð og ég tel yfirgnæfandi líkur á að þetta verði byggt. Laugavegurinn fær vissulega samkeppni af þessum verslunarmarkaði í Kringlumýri en ég er sannfærður um að það verði Laugavegi til góðs. Strikið í Kaup- mannahöfn deyr ekki þótt þar í borg rísi verslunarsamstæður", sagði Gísli. Hánn sagði eftirtektarvert hversu dræm þátttaka hefði verið í atkvæðagreiðslunni á fundi Kaupmannasamtakanna en það væri í takt við þann áhuga sem komið hefði fram hjá kaup- mönnum fyrir nýbyggingunum í Kringlumýri. - >g-

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.