Þjóðviljinn - 05.10.1983, Page 6

Þjóðviljinn - 05.10.1983, Page 6
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN< Miðvikudagur; 5. ok(óber 1983 Pólitískar furður Singapore: Viska mæta Eyríkiö Singapore viö suðurodda Malasíu, hefur um skeið verið mjög lofað sem fyrirmynd þeim sem trúa á ágæti markaðs- lögmála, enda hefur þar verið um verulegan og jafnan hagvöxt að ræða. En nú harðnarádalnum þar sem annarsstaðar, og þá grípur hinn ráðandi flokkur „Framkvæmdaflokkur fólksins“, PAP, sem hefur farið með völd í Singapore allar götur frá því að landið hlautsjálfstæði 1959, til þess að gera visku Konfúsíusar um hlýðni og undirgefni að einskonar ríkisheimspeki og er þetta eitt af mörgu sem gert er til að kveða niður pólitíska andstöðu í eyríkinu. Einn flokkur Á pappírnum býr Singapore við stjórnarskrá sem er skrifuð upp eft- ir stjórnarskrám lýðræðisríkja. En í reynd fer PAP með allt pólitískt vald og ræður 74 af 75 þingmönn- um, sem allir eru kosnir í ein- menningskjördæmum. Singapore líkist því um margt einsflokksríki - blöðin sæta ritskoðun, verkalýðs- samtök og önnur félög eru undir ströngu eftirliti - enda þótt einatt sé erfitt að greina á milli beinnar þvingunar og „aga“. Pólitískir and- stæðingar PAP og leiðtoga hans, Lee Kuan Yew, hafa oft verið handteknir á vægast sagt mjög hæpnum forsendum. Sjálfur reynir Lee Kuan Yew forsætisráðherra að verja þessa stjórn sína („óttastjórn" segja and- stæðingar hans) með skírskotun til þess, að ef að Singaporebúar lúti ekki allir sama aga og haldi saman, þá sé úti um þá. Til dæmis er blöð- um bannað að birta fréttir sem gætu hugsanlega kynnt undir mis- klíð milli hins kínverska meirihluta fbúanna og minnihluta Indverja og Malaja. Lee Kuan Yew óttast ekki eingöngu þjóðernisleg átök heldur hefur hann það fyrst og fremst í huga, að Singapore hefur reynst aðlaðandi til fjárfestingar erlend- um auðhringum og bönkum. Með því að þeim er tryggt ódýrt og mjög agað vinnuafl og skattfríðindi hafa erlend fyrirtæki tekið allan til- kostnað sinn heim á örfáum árum og grætt ómælt eftir það. Ef hins- vegar verklýðshreyfingin eða póli- tískir andstæðingar trufla þennan sælureit kapítalismans, þá óttast hinn ráðandi flokkur að fyrirtækin muni leita annað með umsvif sín. Byrjaði til vinstri Stjórnmálafræðingur einn í Sing- apore hefur skilgreint Lee Kuan Yew á þann hátt, að hann sé áreið- anlega eini maðurinn sem hafi byrjað sem róttækur sósíalisti og notað síðan lenínskar aðferðir til að byggja upp hreinræktaðan kap- ítalísma. Hvað sem um slíkar skilgreiningar má segja er hitt víst, að PAP var á þeim tíma þegar Sing- apore var enn bresk nýlenda, tal- Konfusíusar á að efnahagskreppunni Mikill hagvöxtur hefur orðið í Singapore, en meðal annars á kostnað þess að íbúðarhúsnæði hefur verið iátið sitja á hakanum. Það voru húsnæðis- vandræði sem komu að einum þingmanni utan hins ríkjandi flokks. um 6% í fyrra en var tæplega 10% árið 1981. En skakkaföllin í efna- hagslífinu hefðu orðið sýnu meiri ef í fyrra hefðu enn ekki verið í gangi mikil umsvif í byggingaiðn- aði, sem ekki er víst um framhald á. Undirgefni En eins og fyrr var getið hefur PAP nú tekið upp á því að leggja í skólum og uppeldisstarfi yfirleitt sérstaka áherslu á visku kínverska heimspekingsins Konfúsíusar. Sú ástæða fyrir þessu er upp gefin, að siðfræði Konfúsíusar sé vel fallin til að „draga úr siðferðilegri hnignun og efnishyggju" sem fylgt hafi framförum síðari ára. En þeir sem gagnrýnni eru telja, að áherslan á Konfúsíus sé fyrst og fremst tilraun til að móta ríkisheimspeki sem eigi að réttlæta það valdakerfi sem komið hefur verið upp í Singapore. Með Konfúsíusarsiðferði er verið að leggja áherslu á fornar dyggðir eins og undirgefni undir vilja og yfirboðara, hlýðni sonar við föður, eiginkonu við vilja 1 eiginmanns osfrv. - og er talið að þetta geti fallið í nokkuð góðan jarðveg hjá fjölmörgum Kínverjum, en þeir eru 3A hinna 2,5 miljóna íbúa Sing- apore. Kínverjar hafa sterkar hefð- ir fyrir fjölskyldutengslum og aga, Fiskveiðisamstarf Fundir sovéskra og íslenskra sérfræðinga inn róttækur sósíaldemókrata- flokkur og sóttist eftir frændskap við Verkamannaflokkinn breska. Lee skipulagði verkföll og mótmælaaðgerðir og bjó þar með í haginn fyrir sjálfstæði undan Bret- um. Þegar það fékkst 1959 lét Lee það verða sitt fyrsta verk að snúast gegn kommúnistum, sem höfðu verið bandamenn hans í sjálfstæðisbaráttunni, sem og öll- um öðrum sem líklegir voru til and- stöðu. Þá þegar fékk PAP öll 75 sætin á þingi og hefur haldið þeirri einokun síðan, nema hvað árið 1981 tókst „Verkamannaflokkn- um“ að sigra í einu kjördæmi, þar sem íbúarnir voru sérlega óánægðir með að rífa átti niður íbúðarhús- næði til að rýma fyrir skrifstofum og iðngörðum. „Framkvæmdaflokki fólksins“, PÁP, hefur tekist að halda völdum bæði með valdaeinokun og svo vegna þess að Singapore hefur í raun vegnað betur en nágrannaríkjum. En nú er hag- vöxtur að byrja að dragast saman. Hann er að vísu enn allmikill - fór í Fyrir skömmu lauk í Sovétríkjunum sjöttu fundalotu sovésk-íslenskrar nefndar sem fjallar um vísinda- og tæknilegt samstarf á sviði fiskveiða. Fundir nefndarinnar fóru fram í Moskvu og í tveimur öðrum sovéskum borgum: Súhúmi og Batúmi. Fiskimenn ausa úr einum brunni, hvort sem þeir eru íslenskir eða sovéskir. Velgengni þeirra er að mörgu leyti komin undir sam- eiginlegu átaki við varðveislu lif- andi auðlinaa Norður-Atlantshafs- ins. Þetta þema var einmitt eitt helsta viðfangsefni sovésk-íslensku nefndarinnar. Fundalotur sem þessi eru haldn- ar árlega, í samræmi við sam- þykkt sem gerð var árið 1977. So- véskir og íslenskir sérfræðingar skiptast á niðurstöðum vísinda- legra rannsókna á Norður-Atlants- hafi og segja frá gangi veiða á þessu svæði. í þeirri fundalotu sem nú er nýafstaðin gengu báðir aðilar þó lengra. Sem dæmi má nefna, að ís- lenska sendinefndin flutti þeirri so- vésku skýrslu um ástand fiskistofn- anna í íslenskri fiskveiðilögsögu og horfurnar um veiðar til ársloka. Auk þess fengu sovésku sérfræðingarnir frá íslenskum starfsbræðrum sínum upplýsingar um tækni og vélvæðingu í fiskiðnaðinum.Þessar staðreyndir og nútíma konfúsíamsmi yhrfærir þær á sambandið milli verkamanna og kapítalista, ríkis og þegns, „til að menn eigi betra með að standast freistingar frjálslyndrar vestrænnar hugsunar" segir Goh Heng Swee varaforsætisráðherra. Það er reyndar ekki einsdæmi í kínversku samfélagi að æfafornir höfundar séu fram dregnir sem vopn í samtímabaráttu. í Kína sjálfu kom Konfúsíus allmikið við sögu þegar tekist var á um örlög menningarbyltingarinnar svo- nefndu. Og það var reyndar í hinu kapítalíska ríki fyrrum sósíalista, Singapore, að upp var fundin sú aðferð, sem nú er beitt í Kína til að hafa hemil á barneignum. Þá að- ferð má kalla „öfluga félagslega þjónustu" sem þýðir, að foreldrar fá ýmsa fyrirgreiðslu og aðstoð vegna fæðingar fyrsta barns; þegar annað barn kemur missa þau öll fríðindi og af þriðja barni verða þau að greiða sektir. AB tók saman. Konfúsíus nútímans, forsætisráð- herra Singapore, Lee Kuan Yew á forsíðu fréttaritsins Far Eastern Economic Review. báðar eru dæmi um aukið samstarf Sovétmanna og íslendinga innan ramma sameiginlegu nefndarinn- ar. Þótt slíkt samstarf sé afar mikil- vægt er það þó aðeins ein hlið á viðskiptum milli Sovétríkjanna og íslands. í þessu sambandi nægir að benda á staðreynd einsog þá, að íslensk fiskiskip ganga að verulegu leyti fyrir sqvésku eldsneyti. Fyrir sitt leyti eru Sovétmenn stærsti kaupandi íslenskrar fram- leiðslu. Svo við snúum okkur aftur að fiskimálunum getum við vitnað í eftirfarandi ummæli sem birtust í Morgunblaðinu 22. maí 1982: „Á árinu 1982 tókst íslendingum, þrátt fyrir ýmsa erfiðleika, að selja meira magn af saltsfld en öllum keppinautum þeirra samanlagt. Þessi árangur náðist fyrst cg fremst vegna viðskiptasamningsins við Sovétríkin, sem eru stærsti kaupandi saltsíldar frá íslandi". (APN) Wilfred Burchett látinn: Sendi fyrstur fregnir frá Hiroshima 1945 Nýlega léstíBúlgaríu sérstœðurog heimskunnur ástralskur blaðamaður, WilfredBurchett. Hann hlaut heimsfrœgð árið 1945þegar hann varfyrstur vestrœnna fréttamanna á vettvang í Hiroishima eftirað kjarnnorkusprengja hafði eytt borginni. Burchett var vinstrisinnaður og kaus sér hlut með Sovétríkjun- um og bandamönnum þeirra í þeirri kaldastríðsstöðu sem stillti mönnum upp við vegg eftir form- úlunni: ef þú ert ekki með mér ertu á móti mér. Hann sætti mikl- um árásum á Vesturlöndum fyrir skrif sín um Kóreustríðið, en þá var hann norðanmegin - hann var meira að segja ákærður fyrir að hafa tekið þátt í yfirheyrslum yfir bandarískum stríðsföngum í Norður-Kóreu. Upp úr því var hann sviptur áströlsku vegabréfi og fékk það' ekki aftur fyrr en 1973. Burchett hafði lengst af aðset- ur í Moskvu og Sofiu en skrifaði fyrir mörg blöð á Vesturlöndum. Hann vissi fleira um styrjöldina í Vietnam en flestir aðrir, vár reyndar góðvinur Ho Chi Minh og Sihanouks prins og fleiri á- hrifamanna og fór um allt bæði með skæruherjum og svo síðar hermönnum Norður-Víetnam. í átökum milli stjórnar Pol Pots í Kampútseu og Víetnama, sem leiddi til innrásar Víetnamshers, stóð Burchett í einu og öllu með- Víetnömum - en þar með var og lokið gamalli vináttu hans bæði við Sihanouk prins og svo ýmsa kínverska ráðamenn. áb. Wilfred Burchett

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.