Þjóðviljinn - 05.10.1983, Page 12

Þjóðviljinn - 05.10.1983, Page 12
12 SffiA — ÞJÓÐVILJINNÍ-Miðvikudagur 5. október 1983 ALÞÝÐUBANDALAGIÐ Norðurland eystra Kjördæmisraðsfundur Alþýðubandalagsins í Norðurlandskjördæmi eystra verður haldinn á Húsavik 8. og 9. okt. Helstu atriði dagskrár: Laugardagur 8. október. Kl. 11.00: Þingið sett, skýrsla formanns og reikningar. kl. 13.30: Uppgjör kosninga og kosningasjóðs. kl. 14.30: Atvinnumál og stjórnmálaviðhorfið. kl. 16.00: Starfið í kjördæminu og útgáfumál. kl. 17.00: Starfshópar starfa. Sunnudagur 9. október Kl. 10.00: Álit starfshópa. kl. 13.00: Laga- og skipulagsmál og framhald umræðna um stjórnmálaástandið með gest- um þingsins, þeim Helga Seljan og Ólafi R. Grímssyni. Þingslit áætluð kl. 14.30. - Stjórn kjördæmaráðsins. Alþýðubandalagið Hafnarfirði Aðalfundur Aðalfundur Alþýðubandalagsins í Hafnarfirði verður haldinn jóriðjudaginn 11. október kl. 20.30 í Skálanum, Strandgötu 41. Dagskrá: 1) Venjuleg aðalfundarstörf. 2) Kosning fulltrúa á landsfund AB. 3) Kosning fulltrúa í kjördæmisráð. 4) Geir Gunnarsson alþm. hefur framsögu um stjórnmálaástandið Félagar fjölmennið. - Stjórnin. Geir Stofnfundur Alþýðubandalagsins á Blönduósi og nágrenni. Unnið er að endurskipulagn- ingu Alþýðubandalagsins í A- Húnavatnssýslu og stefnt að því að koma upp nýju félagi sem næði yfir Blönduós og framhérað sýslunnar innan við Blönduós. Stofnfundur verður haldinn í Snorrabúð á Hótel Blönduósi nk. fimmtudag 6. október og hefst kl. 20.30. Alþingismennirnir Ragnar Arn- Ragnar Arnalds Steingrímur J. Sig- alds og Steingrímur J. Sigfússon fússon mæta á fundinn. Fulltrúaráð ABR Fundi hefur verið frestað um óákveðinn tíma. Nánar auglýst síðar. Stjórnin Ráðstefna Borgarmálaráðs ABR Borgarmálaráð Alþýðubandalagsins í Reykja- vík boðar til ráðstefnu um borgarmál laugar- daginn8.októberkl. 10:00 að Hverfisgötu 105. Dagskrá verður sem hér segir: kl.10.00 Ráðstefnan sett: Sigurjón Pétursson. kl.10.05 Svavar Gestsson: Stefna Alþýðu- bandalagsins í minnihluta - hvernig ber að haga áróðri - samvinna við þingmenn okkar í Reykjavík. kl.10.30 Álfheiður Ingadóttir: Hvernig komum við okkar sjónarmiðum á framfæri - samstarfið við hina minnihlutaflokk- ana - ber að leggja áherslu á ein- hverja sérstaka málaflokka? kl.10.50 Starfshópar skipaðir kl.12.00 Matur kl.13.15 Vinna í starfshópum heldur áfram. Kaffi kl. 15.45. kl.16.00 Niðurstöður starfshópa. Umræður. kl. 18.00 Ráðstefnunni slitið. Til ráðstefnunnar eru sérstaklega boðaðir full- trúar í borgarmálaráði, fulltrúar ABR í nefndum og ráðum borgarinnar, þingmenn flokksins í Reykjavík, stjórnarmenn ABR og aðrir þeir flokksmenn sem starfa að borgarmálum m.a. í baknefndum og ekki eru taldir upp hér að ofan. Borgarmálaráð ABR. Félagsbréf ABR Fyrsta félagsbréf vetrarins hefur verið sent til félagsmanna ABR. Þeir félagsmenn sem ekki hafa fengið bréfið eru hvattir til að snúa sér til skrifstofu ABR. - Stjórn ABR. Starfshópur um menntamál Annar fundur hópsins verður miðvikudaginn 12. okt. kl. 20:30 að Hverfisgötu 1Ó5. Nánar auglýst síðar. - Hópurinn. Alþýðubandalagið í Reykjavík Skuldar þú árgjaldið? Stjóm ABR hvetur alla þá sem enn skulda gjaldfallin árgjöld að geiða þau núna um mánaðamótin. Stöndum í skilum og eflum starf ABR. Álfheiður Geimdvergurinn kominn á bók Bókin „ET - geimdvergurinn góði“ er kominn út hjá Setbergi. Hún er gerð eftir samnefndri kvik- mynd Steven Spielbergs, sem sýnd var hér á landi við mikla vinsældir mánuðum saman. Lýsingin á samskiptum geimbú- ans ET og drengsins Elliot greip hugi og hjörtu barna hér á landi sem annarsstaðar. Vissulega var ET jafngamall stjörnunum og gáfaðri en jarðar- búi, en hann var hjálparvana á jörðu niðri, fullur heimþrár og dauðskefldur. Flest var ET and- snúið, lögreglan á hælum hans og enginn til bjargar - þangað til hann hitti börnin - og þessum vinum sín- um átti hann aldrei eftir að gleyma. Og nú er „ET - geimdvergurinn góði“ kominn á bók. Þýðandi er Óskar Ingimarsson, en bókin er skreytt 50 stórum litmyndum. Komin er út hjá Setberg sjötta bókin í teiknimyndaflokknum um Steina sterka. Höfundur er Peyo, en Hörður Haraldsson kennari ís- lenskaði. Þessi nýja bók heitir Rauðu leigubílarnair og er 64 blaðsíður. Fyrsta íslenska skáld- sagan Bókaklúbbur Almenna bókafé- lagsins hefur sent frá sér nýja út- gáfu af Pilti og stúlku eftir Jón Thoroddsen, með formálsorðum Steingríms heitins Þorsteinssonar, prófessors, sem hann ritaði fyrir út- gáfu bókarinnar 1948. Piltur og stúlka er eins og kunn- ugt er eitt þeirra verka sem sígild hafa orðið í íslenskum bók- menntum. Hún er fyrsta íslenska skáldsagan sem komið hefur fyrir almennings sjónir, var fyrst prent- uð 1850, og er útgáfa bókaklúbbs- ins sjöunda útgáfa bókarinnar. Sagan er í senn skemmtileg ást- arsaga og óviðjafnanleg þjóðfé- lagslýsing. Ástvinirnir ungu sem fullorðnafólkið vill vera að ráðsk- ast með og stía í sundur eru þau Sigríður Bjarnadóttir og Indriði á Hóli. Og svo eru hinar persónurnar ekki síður ógleymanlegar, svo sem Gróa á Leiti, Bárður á Búrfelli, Guðmundur Hölluson, Þorsteinn matgoggur og fleiri. Hefur sumt af þessu fólki þrengt sér svo inn í vit- und íslendinga að það hefur orðið allsherjar tákn fyrir ákveðna eigin- leika, t.d. Bárður á Búrfelli fyrir svíðingshátt og af náfninu Gróu á Leiti hefur verið myndað orðið gróusaga. ALÞYÐUBANDALAGIÐ Alþýðubandalagið í Kópavogi Aðalfundur Aðalfundur Alþýðubandalagsins í Kópavogi veröur hald- inn í Þinghóli miðvikudaginn 5. október n.k. kl. 20.30. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Tillögur laga- og skipulagsnefndar Alþýðubanda lagsins. Frummælandi: Einar Karl Haraldsson formaður nefndarinnar 3. Önnur mál Fjölmennum Stjórn Alþýðubandalagsins í Kópavogi Kjördæmisráð AB í Reykjanesi, Æskulýðsfylking AB og Alþýðubandalagið í Reykjavík Ráðstefna um laga- og skipulagsmál Kjördæmisráð Alþýðubandalagsins í Reykjanesi, Æskulýðsfylking Al- þýðubandalagsins og Alþýðubandalagið í Reykjavík boða til ráðstefnu um flokksstarf og laga- og skipulagsmál um helgina 15.-16. október. Ráðstefnan verður nánar auglýst siðar. Félagsfundur Stjórn Alþýðubandalagsins í Reykjavík boðar til félagsfundar miðviku- daginn 19. október kl. 20:30 að Hverfisgötu 105. Nánar auglýst síðar. - Stjórn ABR. Borgarmálaráð ABR Fundir í borgarmálaráð Alþýðubandalagsins í Reykjavík eru alla mið- vikudaga kl. 17:00. - Formaður. ARÍÐANDI ORÐSENDING til styrktarmanna Alþýðubandalagsins Þeir styrktarmanna sem fengið hafa senda gíróseðla eru vinsam- legast beðnir að gera skil sem allra fyrst. Alþýðubandalagið Selfossi og nágrenni Aðalfundur Alþýðubandalagið á Selfossi og nágrenni heldur aðalfund laugardag- inn 8. október n.k. að Kirkjuvegi 7. Fundurinn hefst kl. 14.00. Dagskrá venjuleg aðalfundarstörf. Önnur mál. Félagarfjölmennið. - Stjórnin. Blikkiðjan Iðnbúð 3, Garðabæ Onnumst þakrennusmiði og uppsetningu — ennfremur hverskonar blikksmíði. Gerum föst verðtilboð SIMI 46711 Styrkir til náms í Sambandslýðveldinu Þýskalandi Þýska sendiráðið í Reykjavík hefur tilkynnt íslenskum stjórnvöldum að boðnir séu fram eftirtaldir styrkir handa íslendingum til náms og rannsóknarstarfa í Sambandslýðveldinu Þýskalandi á námsárinu 1984-85: 1. Fjórir styrkir til háskólanáms. Umsækjendur skulu hafa lokið a.m.k. tveggja ára háskólanámi. 2. Nokkrir styrkir til að sækja þýskunámskeið sumarið 1984. Um- sækjendur skulu hafa lokið eins árs háskólanámi og hafa góða undirstöðukunnáttu í þýskri tungu. 3. Nokkrir styrkir til vísindamanna til námsdvalar og rannsókna- starfa um allt að fjögurra mánaða skeið. Umsóknir um styrki þessa skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, fyrir 1. nóvember n.k. Sérstök um- sóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást í ráðuneytinu. Menntamálaráðuneytið, 3. október 1983. Hólmfríður Helgadóttir Grundarstíg 10 er látin. Systkin hennar látnu. Auglýsið í Þjóðviljanum

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.