Þjóðviljinn - 05.10.1983, Qupperneq 16
DWDVIUINN
Miðvikudagur 5. október 1983
A&alsiml Þjó&viljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tíma er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum símum: Ritstjórn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími
81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 -12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins [ síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur sima 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663
Forkastanleg vinnubrögð í fræðslukvikmynd
„Þetta er algjört hneyksli”
segir Jóhann J. E. Kúld um atriði
þar sem fiskurinn er kviðskorinn og
slægður áður en hann er blóðgaður
F r æðslukvikmy nd
sjávarútvegsráðuneytisins
sýnir óhæf vinnubrögð á skipi
sem veiðir í ís, þar sem
fiskurinn er kviðskorinn og
slægður um leið og hann er
blóðgaður, segir Jóhann J.E.
Kúld um hina nýju kvikmynd
um meðferð afla á skipum.
Þetta er „algjört hneyksli“,
segir Jóhann enn fremur.
Fræðslumynd þessi hefur verið
sett á um 100 myndbönd til
dreifingar á
fiskiskipaflotanum. Hún tekur
sjálf fimmtán mínútur.
„1 myndinni er fiskurinn kvið-
skorinn og slægður samtímis því
sem hann er blóðgaður. Þetta eru
forkastanleg vinnubrögð og algjört
hneyksli að slíkt sem þetta skuli
vera sýnt til eftirbreytni í fræðslu-
mynd“, segir Jóhann J. E. Kúld í
Fiskimálaþætti sínum sem birtist í
Þjóðviljanum á morgun. „Allt frá
fyrstu dögum fiskmats á íslandi
hefur reynslan kennt mönnum að
til þess að fá vel hvítan fiskvöðva,
þá þarf fiskur að liggja eftir blóðg-
un, áður en kviðskurður og slæg-
ing er framkvæmd".
Þjóðviljinn ætlaði að leita um-
sagnar Jónasar Bjarnasonar for-
stjóra Framleiðslueftirlits sjávaraf-
urða og eins höfunda handritsins,
en hann var ekki í borginni.
Björn Vignir Sigurpálsson hjá
ísmynd, sem framleiðir myndina
fyrir ráðuneytið, sagði við Þjóðvilj-
ann í gær að fræðslumyndin væri
fimmtán mínútna löng, en hún færi
á 90 mínútna spólu. Þar væri einnig
annars konar fræðsluefni, t.d.
fræðslumynd Sölumiðstöðvar
Hraðfrystihúsanna, erlendar
fræðslumyndir og skemmtiefni,
tónlist og auglýsingar.
-óg
Úr hinni umdeildu fræðslumynd sjávarútvegsráðuneytisins: fiskurinn er kviðskorinn og slægður samtimis
því sem hann er blóðgaður. Ljósm. Magnús.
„Lífið er þess virði”:_
500 lista-
menn stofna
friðarsamtök
Tryggingaráð um vasapeningana:
Mótmæiir á
heilbrigðisráðuneytis
Tryggingaráð hefur einróma mótmælt því sem „tveir valinkunnir for-
stöðumenn“ heilbrigðisráðuneytisins saka ráðið um, þ.e. að sniðganga
lögmætar reglugerðir. Á sérstökum aukafundi ráðsins sl. mánudag var
fjallað um vasapeningamálið og er ályktun ráðsins birt í heild á bls. 3.
500 listamenn hafa þegar skráð
sig í Friðarsamtök listamanna sem
stofnuð voru fyrir troðfullu húsi í
Kvosinni í fyrrakvöld. Markinið
samtakanna er að virkja listamenn
í þágu friðar og afvopnunar undir
kjörorðinu: „Lífið er þess virði“.
í stofnsamþykktinni segir m.a.
að alheimsútbreiðsla kjarnorku-
vopna ógni öllu lífi á jörðinni. „í
nafni ógnarjafnvægis, - friðar í
krafti hernaðaryfirburða - höfum
við átt kjarnorkustríð yfir höfðum
okkar síðastliðin þrjátíu ár. Þessi
stefna sem beint er gegn íbúum
jarðarinnar, grefur sífellt undan lífi
okkar, vonum og framtíð. Við
stöndum frammi fyrir veröld, sem
býr sig undir ragnarök."
Síðar í samþykktinni segir:
„Með list okkar, - Ijóðum og leik,
sýningum og sögum, orðum,
myndum og tónum, - viljum við
hvetja til athafna og sameinast í
stöðugri og virkri baráttu fyrir friði
og afvopnun."
Egill Ólafsson söng við eigin undir-
leik á stofnfundi Friðarsamtaka
listamanna. Ljósm. Magnús.
Á fundinum var kjörin fimm
manna nefnd til að skipuleggja
starfsemi samtakanna og tengja
saman starfshópa, sem myndaðir
hafa verið. 1 henni eru: Þorkell Sig-
urbjörnsson tónskáld, Ágúst Guð-
mundsson kvikmyndagerðarmað-
ur, Helga Bachmann leikari, Sig-
rún Guðjónsdóttir myndlistarmað-
ur og Viðar Eggertsson leikari.
Þó ekkert komi fram í ályktun-
inni um það hvers vegna áfanga-
hækkunin kom ekki til fram-
kvæmda, er af henni ljóst að ráðið
telur það ekki sína sök. Þvert á
móti kemur þar fram að Trygging-
aráði var ekki kunnugt um annað
1. júní sl. en áfangahækkunin
hefði komið til greiðslu í maímán-
uði eins og til hafði staðið, en gild-
istímanum hafði verið breytt að
ósk Tryggingastofnunar vegna
tæknilegs undirbúnings.
Deilan um bráðabirgðalögin
virðist samkvæmt ályktuninni hafa
staðið um það hvort greiða ætti
8%, 10% eða fullar verðbætur á
vasapeningana, en þar sem túlkun
ráðuneytisins var sú að það skyldu
vera 8%, varð það niðurstaða
fundarins 1. júní. Hins vegar fól
ráðið tveimur lögfræðingum
Tryggingastofnunar að kanna það
mál betur og skyldi síðan greiða
viðbót á 8%, eftir því sem efni
stæðu til. „Sú athugun dróst þó úr
hömlu“, segir í ályktuninni.
-ÁI
Sjá bls. 3
Ekkert útboð fér fram á Blazer Steingríms 1979_
Neitað að uppíýsa
kaupverð og kjör
Ráðuneyti vísa hvert á annað
þegar Þjóðviljinn hefur beðið um
upplýsingarvarðandi kaup
Steingríms Hermannssonar á
Blazer-jeppa 1979 og þá
greiðsluskilmála sem hann fékk.
Eina sem tekist hefur að upplýsa
er að ekkert útboð fór fram, eins
og allar„venjulegarvinnureglur
um sölu á ríkisbifreiðum frá
Innkaupa^tofnun gera ráð fyrir",
svo notað sé orðalag Höskuldar
Jónssonar ráðuneytisstjóra í fjár-
málaráðuneytinu.
Upplýst hefur verið af forsætis-
ráðuneytinu að Blazer-jeppi af
stærri gerð hafi verið keyptur sem
ríkisrekinn ráðherrabíll 1979
handa Steingrími Hermannssyni
þáverandi landbúnaðar- og sam-
gönguráðherra. Þegar ríkisstjórn
Ólafs Jóhannessonar var sprengd
haustið 1979 óskaði Steingrímur
Hórmannsson eftir því að fá bif-
reiðina keypta af ríkinu. Bíllinn
var metinn af véla- og tækjanefnd
ríkisins og afsal gefið úf af
Innkaupastofnun ríkisins. Spurn-
ingum Þjóðviljans um matsverð
bílsins, þ.e. kaupverð ráðherr-
ans, og greiðsluskilmála hefur
hinsvegar ekki verið svarað.
Þjóðviljinn leitaði upplýsinga
hjá ríkisbókara, og stóð ekki á
upplýsingum þaðan ef því forms-
atriði væri fullnægt að fyrir-
skipun kæmi frá ráðuneyti um að
þær skyldu Iátnar í té. Undan-
farna daga háfa ráðamenn í for-
sætisráðuneyti og fjárntálaráðu-
neyti velt boltanum á miili sín, og
neita að leggja fram beiðni til
ríkisbókara um að upplýsingar
verði látnar f té.
„Heyra undir
fj‘ármálaráðuneytið“
„Það eru alveg hreinar línur að
Forsætis- og fjár-
málaráðuneyti vísa
hvort á annað og
á meðan verður
ríkisbókari 'að þegja
heimild til þess að blaðið fái þess-
ar upplýsingar þarf að fara í gegn-
um fjárinálaráðuneytið, enda
sitja þar æðstu yfirmenn
Innkaupastofnunar ríkisins sem
gengu frá þessum kaupum á sín-
um tíma, gáfu út afsal og sáu um
þessi kaup. Ég get ekki gefið
neinum heimild til þess að láta
blaðið fá þessar upplýsingar",
sagði Gísii Árnasoh sicrifstofu-
stjóri í forsætisráðuneytinu í gær
eftir ítrekuð samtöl.
)
„Alfarið hjá for-
sætisráðuneytinu“
„Ölí viðskipti á bílum til handa
ráðherra eru á herðurti forsætis-
ráðuneytisins. Það er alveg klárt
mál og ég mun því ekki ýta á eftir
því að ríkisbókhald láti þessar
upplýsingar í té. Slíkt er í verka-
hring forsætisráðuneytisins",
sagði Höskuldur Jónsson ráöu-
neytisstjóri forsætisráðuneytis-
ins, þegar Þjóðviljinn kom með
„boltann“ til hans frá forsætisráð-
uneytinu í annað sinn. Þess skal
getið að bæði Innkaupastofnun
og ríkisbókhald virðast telja for-
sætisráðuneytið leitt ábyrgt fyrir
bflakaupum ráðherra.
Svara krafíst
Þjóðviljinn hefur óskað eftir
svörum við þeirri spurnmgu hvert
hafi verið kaupverð Blazer-
bifreiðar til Steingríms’ Her-
mannssonar'1979 og með hvaða
kjörum hann hafi fengið hana.
Ráðherrann hefur sjálfur sagt aé
hér sé engu að leyna, og blaðið
ekki haldið því fram að eitthvað
sé athugavert við kaupin. Hins-
vegar á það rétt á svörurn og
krefst þeirra.
' -ekh/hól