Þjóðviljinn - 22.11.1983, Síða 5
Þríðjudagur 22.' nóveAibfer'1983 'ÞJÖHÖVILjÍnW — SÍÐA 5
Svavar Gestsson formaður Alþýðubandalagsins óskar Margréti til ham-
ingju með kosninguna í gjaldkerastarfið. Mynd-eik.
Margrét Frímannsdóttir nýkjörinn
gjaldkeri Alþýðubandalagsins
Staða kvenna mjög
góð ínnan flokksins
„Mér fannst áberandi á þessum
landsfundi, hversu ungt fólk tók
mikinn þátt í störfum fundarins,
talaði í umræðum og lét til sín taka í
fundarstörfum. Þetta var almenn-
ari þátttaka en ég hef áður orðið
vör við“, sagði Margrét Frímanns-
dóttir oddviti á Stokkseyri, sem
kjörin var gjaldkeri Alþýðu-
bandalagsins á landsfundinum um
síðustu helgi.
Hvernig lýst þér á að taka sæti í
stjórn flokksins?
„Mér lýst ágætlega á það“.
Konur mættu vel undirbúnar til
þessa landsfundar. Hvernig finnst
þér staða kvenna innan flokksins
vera að loknum þessum fundi?
„Mér finnst hún mjög góð. Ég
held að það fari ekki hjá því að
ýmsar breytingar verið á starfi
flokksins í þá veru sem konur hafa
verið að tala fyrir. Bæði varðandi
fundarform, fundartíma, starfsað-
ferðir og það að gera flokkinn
meira aðlaðandi fyrir konur og
gefa þeim þannig frekara tækifæri
til að taka þátt í pólitísku starfi
innan flokksins. Breytingar í þessa
veru hljóta að verða, ég trúi ekki
öðru“, sagði Margrét Frímanns-
dóttir. -Ig.
Breið samstaða
er brýn nauðsyn
segir nýkjörinn
ritari Alþýðu-
bandalagsins,
Helgi Guðmundsson
„Á þessum fundi fannst mér koma
mjög greinilega fram vilji fundar-
manna fyrir því að Alþýðubanda-
lagið og verkalýðshreyfingin stæðu
þétt saman f þeim átökum sem fra-
mundan eru í fslensku þjóðfélagi og
að mynduð verði eins breið sam-
staða og hugsanlegt er“, sagði ný-
kjörinn ritari Alþýðubandalagsins
Helgi Guðmundsson trésmiður á
Akureyri í spjalli eftir að lands-
fundinum lauk.
„Ég tel afskaplega brýnt að verka-
lýðshreyfingunni takist með aðstoð
allra þeirra sem vilja leggja henni
lið, að snúa vörn í sókn á allra
næstu mánuðum. Þar er verkefnið
ekki einasta að endurheimta
mannsæmandi lífskjör heldur og að
koma í veg fyrir að verkafólk sætti
sig við hin lágu laun gegn lækkandi
verðbólgu. Vissulega er verkafólki
brýnt hagsmunamál að ná verð-
bólgunni niður en sá litli árangur
sem nú hefur náðst hefur verið allt
of dýru verði keyptur. Það er óþo-
landi að horfa upp á að laun fólks
eru gerð óverðtryggð á sama tíma
sem ekki er hreyft við vísitölubind-
ingu fjármagnsskuldbindinga, sem
eru að sliga húsbyggjendur og
aðra“ sagði Helgi ennfremur.
„Hvað sjálfan landsfundinn varð-
ar þá tel ég hann hafa verið starfs-
saman og árangursríkan. Þar ber
auðvitað hæst skipulagsbreyting-
arnar og mér sýnist að þær geti,
ásamt með öðru, skapað skilyrði
fyrir samfylkingu vinstri manna
þótt þeir nálgist sína pólitík út frá
mismunandi forsendum að ein-
hverju leyti".
„Það vill stundum gleymast í sókn
okkar til bættra efnahagslegra lífs-
kjara að þau menningarlegu þarf
einnig að bæta. Alþýðubandalagið
og önnur stjórnmálasamtök vinstri
manna þurfa ásamt verkalýðs-
hreyfingunni að gera sér til dæmis
grein fyrir mikilvægi umfangsmik-
illar fullorðinsfræðslu í landinu og
þar þarf ekki aðeins að spanna
endurmenntunina og starfs-
menntunina heldur allt áhugasvið
fólks. Við þurfum að' hafa sýn á
þessum markmiðum ekkert síður
en þeim efnahagslegu þótt syrti í
álinn um stundarsakir", sagði
Helgi Guðmundsson ritari Al-
þýðubandalagsins að lokum.
—v.
Helgi Guðmundsson: f sókn okkar til bættra lífskjara þarf ekkert sfður að
leggja áherslu á þau menningarlegu en þau efnahagslegu. Ljósm. eik.
Einvígi Kortsnojs og Kasparovs hófstí gær:
Ovæntur sigur Kortsnojs
Hinn 53 ára gamli Vlktor Korts-
noj sannaðl í gærkveld svo ekkl
verður um villst að fálr eru honum
fremri þegar virkilega á reynir. Al-
gerlega á óvart tókst honum að
stýra svörtu mönnunum til sigurs í
1. einvlgisskák slnni gegn undra-
verkinu Harry Kasparovs sem
flestlr þeirra sem vel þekkja tll bar-
áttunnar á reitunum sextluogfjór-
um telja fremsta skákmann heims
um þessar mundir; fremrl sjálfum
Karpov og sumir ganga meira að
segja svo langt að telja hann jafn-
oka hins óvlðjafnanlega Bobbys
Flscher sem skákllstinni tll óbæt-
anlegs tjóns hefur dreglð slg út úr
baráttunni. Á The Great Easton
Hotel I London hófst barátta þess-
ara tveggja skákrisa, barátta sem
margur taldl að ekki færl fram
vegna atvika sem rakin hafa verlð
en málln björguðust.
Kortsnoj dró fram úr pússi sfnu
leikaðferð sem lítið hefur verið I
sviðsljósinu undanfarið, tókst að af-
hjúpa veikleika i byrjunaruppbygg-
ingu andstæðingsins og vinna sigur.
Skákin fór afar hægt af stað, mestan
part fyrir þá sök hversu geysilega
miklum tíma Kasparov eyddi á byrj-
unarleikina. Þegar fram [ sótti náði
Kortsnoj frumkvæðinu, tókst að
skipta upp ( endatafl og smátt og
smátt bæta aðstöðu sina þannig að
þegar Kasparov átti eftir að leika 8
leiki til að ná tlmamörkunum við 40
leiki var staða hans ekki einasta veru-
lega slæm, heldur einnig farið að
saxast meira á tima hans en góðu
hófi gegndi. Hann missti peð í 34. leik
og frábtar tækni Kortsnojs I hróks-
endatafli með peði yfir nægði til sig-
urs. 153. leik með algerlega vonlausa
stöðu lagði Kasparov niður vopnin.
Skákskýrendur um allan heim, sem
talið hafa sigur Kasparovs fyrir ein-
vígið vísan, keppast nú við að endur-
skoða afstöðu sina. Þetta er í annað
sinn sem þeir Kortsnoj og Kasparov
mætast yfir skákborðinu; i hið fyrra
skipti tefldu þeir f Olympíumótinu í
Luzern í fyrrahaust og þá sigraði so-
vóski snillingurinn í einhverri magn-
þrungnustu viðureign sem skáksag-
an kann frá að greina.
Samkvæmt fréttum frá London var
allt með kyrrum kjörum, bæði fyrir
skákina og eftir hana, þrátt fyrir all-
mikinn taugatitring svo sem venja er
þegar slíkar orustur skæðar eru háð-
ar. Áhugamönnum um Iþróttamanns-
lega hegðun til mikils léttis tókust
keppendur í hendur bæði fyrir
skákina og eftir að henni lauk, en
slíka yfirborðskurteisi létu þeir lönd
og leið er þeir mættust (Luzern í fyrra.
Eftir argaþrasið i sambandi við einvlgi
þetta kom Kortsnoj fram sem sannur
heiðursmaður og bjargaði mikiivæg-
um skákviðburði. Þykir margt benda
til þess að illdeilur Kortsnojs við so-
vésk yfirvöld heyri nú að mestu leyti
sögunni til.
Skákin (gærkveld fylgir hér á eftir.
Hún bendir eindrógið til þess að
Kasparov fyrirhitti andstæðing sinn (
góðu formi og því verði einvígið ekki
sá leikur kattarins að músinni sem
margir hafa búist við.
í dag byrja þeir svo að tefla Vasily
Smyslov og Zoltan Ribli. Einvigin fara
fram á sama stað.
Hvftt: Harry Kasparov
Svart: Viktor Kortsnoj
Drottningarlndversk vörn
1. d4
(Kortsnoj er búinn að hafa meir en
hálft ár til að undirbúa sig undir þenn-
an leik og rannsóknir hafa sannfært
hann um að besta leiðin sé að tefla
upp eftirlætisbyrjun Kasparovsl)
1. .. Rf6 4. Rc3 Bb7
2. c4 e6 5. a3
3. Rf3 b6
(Petrosjan - afbrigðið í drottningar-
indverskri vörn hefur næstum þv(
fleytt Kasparov þangað sem hann er
nú staddur; á tindi skáklistarinnar.
Ósjaldan hefur hann leikið sterkustu
skákmenn veraldar grátt með þessu
framlagi hins hógværa fótgöngulða á
a-línunni. Það er einnig eftirtektarvert
að ( einustu skákinni sem Kasparov
hefur tapað með hvítu í þessu afbrigði
mætti hann upphafsmanninum
Petrosjan. Það var á Aljékín - skák-
mótinu ( Moskvu árið 1981.)
5. .. d5
6. cxd5 Rxd5
7. e3
(Einnig hefur verið leikið hór 7. Dc2.
Það kom mönnum óneitanlega dálítið
spánskt fyrir sjónir að Kortsnoj skyldi
gefa Kasparov tækifæri á að tefla á
þennan hátt. En Kortsnoj trúir á mátt
sinn og meginn, en grýlur ei og lætur
ekki hrakfarir kollega sinna villa sér
sýn. Næsti leikur hans, sem er lang-
tífrá nýr af nálinni er runninn undan
rifjum hollenska skákmeistarans
Gennadi Sosonko.)
7. .. g6
(Byrjendum er kennt að forðast hol-
umyndanir i kringum kónginn f6 og h6
- reitirnir eru veikir, en Kortsnoj veit
sem er að I þessari stöðu komu
veikleikarnir ekki að sök.)
8. Bb5+ c6 11. bxc3 c5
9. Bd3 Bg7 12. Bg5
10. e4 Rxc3
(Nærtækasti leikurinn en hann kost-
aði líka drjúgan tima. Kortsnoj hafði
teflt byrjunina hratt og áreynslulaust,
en á meðan bogaði svitinn af hinum
unga andstæðingi sem reyndi í stöðu
sem var honum alls ókunn að finna
heppilegustu áætlunina.)
12. .. Dd6
(Annar möguleiki var 12. - Dc7, en
Kortsnoj óttaðist greinilega ekki fram-
rás e-peðsins.)
13. e5 Dd7
(Staðan hefur fengið yfirbragð Grun-
feldsvarnar sem Kortsnoj þekkir út og
inn.)
14. dxc5 0-0
(Að sjálfsögðu kærir Kortsnoj sig koll-
óttan þó eitt peð fjúki um stundarsak-
ir. Það er ekki nokkur hætta á að hví-
tum haldist á þeim liðsvinningi vegna
hinnar veiku peðstöðu sinnar.)
15. cxb6 axb6
16. 0-0 Dc7
(Tímanotkunin segir sfna sögu.
Kasparov hafði notað 1 klst. og 59
mínútur en Kortsnoj aðeins fimm mín-
útur.)
17. Bb5 Bxe5
(Þessi leikur kom mörgum þeirra sem
fylgdust með skákinni (húsakynnum
Skáksambands íslands á óvart.
Flestir áttu von á 17. - Rc6 sem er
lang eðlilegasti leikur. Þá dugar t.d.
18. Dd6 ekki vegna 18. - Bxe5 Hins-
vegar á hvítur möguleikann 18. Bf6
og eftir 18. - Rxe5 19. Rxe5 Bxf6 20.
Rd7 á svartur úr vöndu að ráða. f
fljótu bragði sýnist 20. - Df4 halda vel
I horfinu en hvltur á hinn geysisterka
leik 21. Dg4l! sem tryggir honum liðs-
yfirburði.)
18. Bh6
(Að sjálfsögðu ekki 18. Rxe5 Dxe5 og
báðir biskupar hvíts eru í uppnámi.)
18. .. Bg7
19. Bxg7 Kxg7
20. Dd4+ Kg8
(Það er Ijóst að byrjunartaflmennska
hvíts hefur ekki gefið góða raun en þó
áttu fæstir von á því að Kasparov tap-
aði þessari stöðu jafnvel þó svo hann
sitji uppi með veikleikana á a3 og c3.
Hann var orðinn mjög tímanaumur og
sú áætlun sem hann valdi ekki sú
besta.)
21. Rg5?
(22. Re5! var betri leikur. Eftir 22. -
Hd8 23. Df4 hefur hvítur ýmsar hót-
anir í frammi byggða á möguleikan-
um - Rxg6!)
21. .. h6!
22. Re4 Bxe4!
23. Dxe4 Ra6!
(En ekki 23. - Rd7? 24. Bxd7 Dxd7
24. De3 og hvítur jafnar taflið. Korts-
noj veit sem er að betri tækifæri fær
hann vart i einvígi og þar af leiðandi
gefur hann Kasparov engin færi á að
rétta sinn hlut. Dómurinn yfir peða-
ræflunum á c3 og a3 skal falla! Veldi
Kortsnojs skal rísa!)
24. De3 Dc5!
(Þvingar fram, frá herfræðilegu sjón-
arhorni séð, allt að því unnið endatafl.
A.m.k. er það vart bjóðandi nokkrum
hvítum manni, svo notaður só gam-
alkunnur skákfrasi, að sitja í þeirri
stöðu sem nú kemur upp.)
25. Dxc5
(Engu betra var 25. Bxa6 Dxe3 26.
fxe3 Hxa6 27. Hfb1 Hd8! og svartur
^"^Rxci 28‘ Hb4 K18
26. HfblHfdB »-«4H-5!
27. Bf1 Hd6
(Fyrirbyggir möguleikann 30. a5
bxa5 31. Hb5 o.s.frv. Kortsnoj teflir
endataflið allt af gífurlegri ná-
kvæmni.)
30. g3 Ke7
31. Kg2f5
32. Bb5
(Þegar Kasparov lók þessum leik
sýndi vísirinn á klukku hans að ekki
væru meira en tvær mínútur eftir.
Tímahrak og vond staða andstæð-
ingsins. Margur hefur leikið slíku nið-
ur- en ekki Kortsnoj. Áratuga reynsla
hefur kennt honum að fara að engu
óðslega þegar heggur nærri tíma-
mörkunum.)
32. .. Hd2
33. Hd4 Hxd4
34. cxd4
34. .. Rxa4!
(Kortsnoj sem átti kappnógan tíma
tók sér góða stund til að leika þessum
leik. Hann vildi fullvissa sig um að
hróksendataflið sem upp kemur væri
áreiðanlega unnið.)
35. Hxa4
(35. Bxa4 b5 er algerlega vonlaust.)
35. .. Hxb5 38. Hg7 Hd5
36. Ha7+ Kd6 39. Hxg6 b5!
37. Hh7h5 40. Kf3
(Þegar Kasparov lék þessum leik
hékk vísirinn enn uppi en ekki meira
en svo. Þeir tefla með rafeindaklukku
og nákvæm tímataka sýndi að Kasp-
arov átti 28 sekúndur eftir.)
40. .. b4
41. Ke3 b3!
42. Kd2
(Eða 42. Kd3 Hxd4+143. Kxd4 b2 og
vinnur.)
42. .. Hxd4+ 44. Kxb2 Hd2+
43. Kc3 b2! 45. Kc3
(Það er alveg eftir Kasparov að tefla
skákina til enda og setja hana ekki (
bið, eins og Karpov er vanur að gera
með tapaðar stöður. Hann vill fá
þessa skák úr myndinni sem allra
fyrst, líkt og kappsfullur knattspyrnu-
leikari sem kemur á harðahlaupum til
að ná knöttin í netið og koma honum
strax fram á miðjan völl til að hefja
leikinn að nýju!)
45. .. Hxf2
46. h4f4
47. Hg5 Hf3+
48. Kd4 Hxg3
49. Hxh5 He3!
50. Hh6 Ke7
51. h5 e5+
52. Kd5f3
-og hór lagði Kasparov niðurvopnin.
Glæsileg skák hjá Kortsnoj en tafl-
mennska Kasparovs er óneitanlega
með þeim hætti að undrun vekur.
bjóst má þó vera af þessari snörpu og
skemmtilegu viðureign að skákunn-
endur mega eiga von á spennandi
einvígi. - hól