Þjóðviljinn - 06.12.1983, Page 1
uóÐviuiNN
Aðdáendur "X
Arsenal krefjast m
þess að fá „Sup-
ermac“ sem A ^
framkvæmda- W, j'jc
stjóra.
1 w *
Sjá 9. "!’X
desember
þriðjudagur
279. tölublað
48. árgangur
Húsnœðisfrumvarpið sér dagsins Ijós
að
ít>úöa-
kerfi
launa-
fólks
Húsnæðisfrumvarp ríkisstjórnarinnar var lagt fram
á Alþingi í gær. Þar er gerð stórfelld atlaga að bygging-
arkerfi launafólksins í landinu. Fjölskylda sem fær út-
hlutað í Verkamannabústöðum verður nú að greiða 220
þúsundum meira í útborgun til að fá íbúðina þar eð
lánahlutfallið er lækkað úr 90% í 80%. Fjárframlög
ríkisins til Byggingarsjóðs verkamanna er skorið veru-
lega niður.
Með frumvarpinu kemur í ljós að hinar svokölluðu
„úrbætur“ sem ríkisstjórnin hefur lofað mánuðum sam-
an í húsnæðismálum eru allar gerðar á þann hátt að
skerða hlut hinna lægst launuðu í landinu. Hlutur Bygg-
ingarsjóðs ríkisins er aukinn með því að skera niður
framlög til Byggingarsjóðs verkamanna. Hlutur hins
félagslega húsnæðiskerfis er enn fremur skertur með
því að auka verkefni Byggingarsjóðs verkamanna á
sama tíma og fjármagn til sjóðsins er skorið niður.
í frumvarpinu er ekki að finna neinar tillögur um
hvernig á að afla þeirra 220 milljóna króna sem frum-
varpið gerir ráð fyrir að verði varið í lán til viðbótar
þeirri 200 milljóna upphæð sem tilgreind er í fjárlögum.
Benedikt Davíðsson formaður
Sambands almennra lífeyrissjóða
um húsnæðisfrumvarpið:
Verður mætt
af fúllri hörku
„Sé þetta satt verður verkalýðshreyfingin að snúast
gegn þessu af fullri hörku“, sagði Benedikt Davíðsson
formaður Sambands almennra Iífeyrissjóða í gær, þeg-
ar fréttir bárust af húsnæðisfrumvarpi Alexanders Stef-
ánssonar. „Þarna er verið að skera niður hjá fólkinu
sem allra minnst hefur og á enga möguleika. Það er ekki
hægt, það er bara alls ekki hægt.“
„Ég trúi því að þetta verði hitamál á formanna- og
sambandsstjórnarfundí ASÍ um helgina. Félagsmála-
ráðherra hefur ekki látið svo lítið að bera hugmyndir
sínar undir okkur í verkalýðshreyfingunni, en hinsveg-
ar gekk hann ekki að því gruflandi, og hafði fengið að
vita það, að ef hnífurinn yrði settur á verkamanna-
bústaðakerfið væri verkalýðshreyfingunni að mæta.“
- ekh.
220 þúsund MEIRA í utborgun
Niðurskurður hjá verkamannabústöðum
Lánin LÆKKA úr 90% í 80%
Miklar og harðar
sviptingar urðu í ásk-
orendaeinvígjunum í
London í gær. Garrí
Kasparov vann Korts-
noj og jafnaði þar með
metin í ein víginu og
Vasily Smyslov stend-
ur til vinnings í bið-
skák sinni gegn Ribli.
17% breyting á raungengi síðustu mánuði
Rýmingarsala á gjaldeyri
Á Alþingi í gær kynnti Svavar
Gestsson nýjar tölur frá Seðla-
bankanum um breytingar á raun-
gengi íslensku krónunnar síðustu
mánuði. Þessar tölur sýna að geng-
isstefna ríkisstjórnarinnar er að
springa. Mismunurinn á raungengi
krónunnar núna 5. desember og 1.
júní sl., þegar ríkisstjórnin hóf að
framkvæma stefnu sína, er orðin
17%. Mæling á ráunhæfni gengis-
stefnunnar í nóvember-mánuði
samanborið við allt árið 1982 skilar
mun óhagstæðari útkomu fyrir
nóvember.
í ræðu sinni rakti Svavar Gests-
son að sé miðað við árið 1978 sem
grunn þá var fyrrgreindur gengis-
mælikvarði 81.3 þegar ríkisstjórnin
tók við völdum en er nú 95.5. Þessi
breyting hefur í för með sér að ís-
lenska krónan er nú komin á
hreinan útsölutaxta í samanburði
við það sem raunhæft getur talist út
frá markmiðum heilbrigðrar efna-
hagsstefnu.
Breytingar á ársfjórðungum
þessa árs hafa verið:
Fyrsti ársfjórðungur: 87.8
Annar ársfjórðungur: 88.1
Þriðji ársfjórðungur: 89.6
Fjórði ársfjórðungur: 95.2
Það var yfirlýst stefna ríkis-
stjórnarinnar að óbreytt gengi væri
meginforsenda árangurs í verð-
bólgubaráttunni. Þessi þróun raun-
gengisins sýnir að sú megin-
forsenda er að bresta. Miðað við
yfirlýsingar forystumanna
Sjálfstæðisflokksins fyrr á þessu ári
og árið 1982 hlýtur breyting á gengi
íslensku krónunnar því að vera yf-
irvofandi.
Umræðunni var síðan frestað
þar til á miðvikudag.
ólg.