Þjóðviljinn - 07.12.1983, Page 1

Þjóðviljinn - 07.12.1983, Page 1
mmi/m Hinn ungi Kasparov rúllaði Kortsnoj upp á KÝS'X'i í 'i? skákborðinu í London í gær og fátt virðist nú geta stöðvað unga f , W 1 manninn að dómi gsr ,Þm skákskýrenda Þjóð- viljans. g 1 Sjá 7 \M mm desember miðvikudagur 280. tölublað 48. árgangur Framsóknar- flokkur Eysteins annar en Steingríms Hermannssonar Húsnœðisvandi gamla fólksins: Fjöldi fer á vergang „Neyð þessa fólks nístir mann“, segir ellimála- fulltrúi Reykjavíkur- borgar „Hluti þess fjölda sem bíður er heimilislaus nú þegar en það er búið að segja þrefalt fleirum upp húsnæðinu. Þetta fók verður á vergangi næstu mánuðina og maður getur ekkert gert“, sagði Þórir Guðbergsson, ellimála- fulltrúi hjá Reykjavíkurborg í gær. „Mér finnst það nánast óhugsandi og get ekki hugsað þá hugsun til enda ef ekkert verður að gert fyrr en 1986. Það þarf að grípa til skjótra ráðstafana og meðal tillagna sem ég legg fyrir félagsmálaráð n.k. fimmtudag er að kannað verði nú þegar hvort ekki má fá eitthvert húsnæði og breyta því fyrir þá sem eru í algjörri neyð.“ Þórir sagði að tölur eins og 1165 manns á biðlista snertu auðvitað allt fólk. „Það sem brennur hins vegar mest á starfsfólki hér eru ekki aðeins tölurnar, heldur þessi per- sónulegu dæmi um neyðina, sem nísta mann.“ Sem dæmi nefndi Þórir tvær konur. Önnur er 92ja ára og var flutt heim nýlega eftir þriggja vikna dvöl á sjúkrahúsi. Hún býr ein á annarri hæð og kemst ekki hjálparlaust upp og niður stiga. Hin er 86 ára og býr ein uppi í kvisti. Hún hefur þrisvar sinnum í sumar og haust fengið áfall og liðið yfir hana. Enn er hún alein á sama stað. Sjá ennfremur viðtal á 2. síðu. Á nœsta ári: Við borgum hærri skatta! • Ráðherrar reyna að fela veruleikann í nýja skattafr um varpinu. • Ríkisfjölmiðlarnir hafa fallið fyrir blekking- unum. • Skattbyrði eykst úr 12.9% í 14% af tekjum. • Kaupið á að hækka um 15% en skattarnir um 20%. • Innheimtur skattur 2.78 % í ár en verður 3.04% af þjóðarframleiðslunni á næsta ári. - Það er rangt að um sé að ræða skattalækkun í því frum- varpi sem ríkisstjórnin hefur látið frá sér fara og ríkisfjöl- miðlarnir hafa etið upp eftir ráðherrunum, sagði Svavar Gestsson formaður Alþýðu- bandalagsins í viðtali við Þjóð- viljann í gær: - Sjálf miðar ríkisstjórnin við að heildarskattbyrði verði nokkurn veginn óbreytt hlutfall af tekjum landsmanna. Síðustu árin hafa skattar numið frá 12.5% til 12.9% af tekjum greiðsluársins sam- kvæmt upplýsingum Þjóðhags- stofnunar. Skattabyrðin á næsta ári mun hins vegar verða allt að 14.4% að mati Þjóðhagsstofnunar og fjár- málaráðuneytisins. - Meginforsenda fjárlagafrum- varpsins er 14-15% kauphækkun en skattbreytingin á milli ára er 20%, og er því augljóslega íþyngj- Albert Guðmundsson fjármálaráðherra og aðstoðarmaður hans Geir Haarde formaður Sambands ungra Sjálfstæðismanna hafa samið frumvarp um verulegar skattahækkanir á almenningi á næsta ári. Þeim tókst í fyrradag að telja fulltrúum ríkisfjölmiðlanna trú um að í frumvarpinu væru skattalækkanir. andi fyrir launamenn, ef stefna árinu sem er að líða er innheimtur framleiðslu í 3.04%, sem er gífur- ríkisstjórnarinnar gengur ettir. skatturtalinnnema2.78% afþjóð- leg aukning skattbyrði í landinu,'" - Innheimtur skattur á næsta ári arframleiðslu en samkvæmt áform- sagði Svavar Gestsson formaður hækkar mun meira en álagður um ríkisstjórnarinnar hækkar hlut- Alþýðubandalagsins. skattur sem hlutfall af tekjum. Á fall innheimtra skatta af þjóðar- -óg Asmundur, Þorsteinn og Steingrímur á sérstökum fundi í Stjórnarráðinu í gær SJÁ 16

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.