Þjóðviljinn - 08.12.1983, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 08.12.1983, Blaðsíða 15
Fimmtudagur 8. desember 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15 RUV 1 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Á virkum degi. 7.25 Leikfimi 8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veðurfregnir. Morgunorð - Róbert Sigurðsson talar. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: „Tritlað við tjörnina“ eftir Rúnu Gfsladóttur Höfundur les (3). 9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar. Tónleikar. 9.45 Þingfréttir. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.). 10.45iÉg man þá tíð“ Lög frá liðnum árum. Umsjón: Hermann Ragnar Stefánsson. 11.15 Á jólaföstu Umsjón: Ágústa Björns- dóttir. 11.45Tónleikar. 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynn- ingar. Tónleikar. 14.00 Á bókamarkaðinum Andrés Björns- son sér um lestur úr nýjum bókum. Kynnir: Dóra Ingvadóttir. 14.30 Á frívaktinni Margrét Guðmunds- dóttir kynnir óskalög sjómanna. 15.30 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Síðdegistónleikar Leonid Kogan og Elisabeth Giles leika Sónötu nr. 1 í C-dúr fyrir tvær fiðlur eftir Eugéne Ysaye / James Galway og Martha Argerich leika Flautusónötu i D-dúr op. 94 eftir Sergej Prokofjeff. 17.10 Síðdegisvakan 18.00 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. Daglegt mál. Erlingur Sigurðarson flytur þáttinn. 20.00 Leikrit: „Nautið og meyjan“ eftir Knut Faldbakken Leikgerð: Anne-Karen Hytten. Pýðandi: OlgaGuðrúnÁrnadóttir. Leikstjóri: Haukur Gunnarsson. Leikend- ur: Kristján Franklín Magnús, Sigurjóna Sverrisdóttir og Arnór Benónýsson. 20.55. Einsöngur í útvarpssal Hrönn Haf liðadóttir syngur sex þýsk þjóðlög í útsetningu Jóhannesar Brahms og fimm iög eftir Karl O. Runólfsson. Ólafur Vignir Albertsson leikur á píanó. 21.15 „Hver er náungi minn?“ Þáttur um hjálparstarf kirkjunnar. Umsjón Gunn- laugur Sefánsson. 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morg- undagsins. Orð kvöldsins. 22.35 Ljóð og mannlff. Umsjón: Einar Arn- alds og Einar Kristjánsson. Lesari með umsjónarmönnum: Sigríður Eyþórsdótt- ir. 23.00 Sfðkvöld með Gylfa Baldurssyni. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok. RUV 2 Rás 2 er útvarpað á FM-bylgju, 99,9 mhz, mánudaga-föstudaga kl. 10-12 og 14-18 fyrst um sinn. Meðan dagskráin er á tilraunastigi verður hún ekki gefin út fyrirfram. Sú stóra stund er runnin upp „Þegar Óli Jó kom fóru hjólin að snúast“. Fyrri hluti þessa bréfs frá Hall- dóri Pjeturssyni birtist hér í blað- inu í gær. Hér kemur síðari hlutinn: Stærsta hlutverk okkar er að losna úr klóm Bandaríkjanna.. Bandaríkjamenn eru snillingar í samningagerð, geta fært hina verstu glæpi í mcssuskrúða, svo hvergi sést móta fyrir öðru en vel- vild og samhjálp. Allir vita hvernig fyrstu samn- ingar okkar við þá urðu til. Sumir, sem þar skrifuðu undir, mundu gefa helft af Iífi sínu til þess að má nafn sitt þar út. Amer- íkumenn eru klókir, fara sér í fyrstu hægt. Við hefðum á þess- um árum getað veikt suma hlekki í þessum samningum en slíkt var ekki reynt. Þó fóru utanríkisráð- herrar okkar sér hægt í því að styrkja samninginn. Menn hlógu að Gröndal og Einar skildi bara eftir stóra örk með ?-merki. Þess- ari örk skulum við ekki gleyma. Það var ekki fyrr en Óli Jó kom við sögu að hjólin fóru að snúast á þann hátt, sem í upphafi var til ætlast. Ólafur, sem sumir segja að „hrakið hafi frá hæsta tak- markinu", hefur vilj að sýna á ein- hvern hátt að hann væri ekki getulaus. Ólaf vantar ekki vitið og hann rétti ameríkönum ráðn- ingu draumsins upp í hendurnar. Ráðningin var nóg olía, ný bygg- ing á flugvellinum. Allt þar sund- ur skilið svo að íslendingar væru ekki að glenna glyrnurnar á það, sem þeim kom ekki við í guðs eigin landi. Það síðasta var her- skipahöfn til frelsunar mannkyn- inu. Sem sagt gott, allt komið í farsæla höfn. Þarna fór kannski okkar síðasta sjálfstilvera. En hver stjarna Ólafs verður í lok- auppgjöri veit maður ei. En samt má ekki gefast upp. Við megum ekki sleppa hendinni af fósturjörðinni, okkar einustu eign. Þetta íhald, sem nú ríkir, svífst einskis, á enga fósturjörð, bara peninga. Kögur-grímur hót- aði ýtrustu hörku ef mótstaða yrði veitt. Sumir okkar forfeður hlógu við dauðanum, enda er margt verra en hann. Okkur vantar forystu. í hinu gamla íhaldi brá stundum fyrir leiftri, sem nú er dautt. Ólafur Thors sagði: Ykkur vantar menn með forystuhæfileika. Einnig stendur á prenti eftir hann: Þegar Ameríkumenn eru búnir að koma peningum sínum fyrir hér á landi, verður hér engin þjóð. Bjarni Ben. sagði í umræðum um álverið: Ef allt um þrýtur tökum við það eignarnámi. Vill nokkur íhaldsmaður herma þessi orð nú? Hér ætti enginn að þurfa á brýnslu að halda þegar uppvíst er um hundruð skýrslna, sem amer- íkaninn hefur látið á þrykk út ganga um skipulagningu lands okkar til hernaðar. Ekki hafa þó utanríkisráðherrar okkar neitt heyrt um þetta. Sjálfsagt talið að þeim komi slíkt ekkert við. Nema að Óli Jó geti kannski enn hvíslað að Geir. skák Karpov aó tafli — 247 Baraftan um efsta sætiö á Aljékin-mót- inu varö ekki eins hörð og vænta heföi mátt. Enn einu sinni sigldi Karpov fram úr keppinautum sínum. Kasparov heit í viö hann lengi vel en á afar þýöingar- miklu augnabliki í skákinni tapaði hann fyrir Tigran Petrosjan ettir aö hafa misst af raktinni vinningsleiö. I sömu umferð mætti Karpov Hollendingnum Jan Tim- man: bridge Guðmundur Páll og Þórarinn uröu yfir- buröasigurvegarar í nýafstöðnu Reykja- víkurmóti í tvímenning. Eins og gefur að skilja, áttu þeir flest af „spilum" mótsins. Eitt þaö fallegasta aö mati umsjónar- manns er þetta: ÁD8xx xxx ÁDx D10 G10xx xx KDxxxx 10x xxx Gxx ---- Gxxxxx Kx ÁG K10xx ÁK9xx Guömundur og Þórarinn renndu sér í 7 grönd á eftirfarandi hátt: Suöur Vestur Norður Austur 1 lauf 1 hj. 1 sp. pass 1 gr.' pass 2 hj.2 pass 2 sp.3 pass 3 hj.4 pass 4 lauf5 pass 4 hj.6 pass 4 gr.7 pass 5 hj.e pass 6 tígl.9 pass 7 hj.'° pass 7 gr. pass pass pass Nú, úrspilið var svo sem engin þraut tyrir Þórarin, út kom hjartakóngur, tekiö á ás, tígulinn tekinn fjórum sinnum og lauf tekiö fjórum sinnum og Vestur varð aö tinna níunda afkastið, sem vitanlega var ekki fyrir hendi. Sjö grönd sögö og unnin gáfu þeim félögum hreinan topp. Skýr- ingar á sögnum þeirra eru: 1) spurning um kontról, 2) fjögur kontr., 3) sp. um spaðann, 4) tveir efstu (af þremur) fimmtu, 5) sp. um fyrirstöðu í laufi, 6) 2. fyrirstaöa, 7) Hvaða?, 8) Daman, 9) sp. um tígulinn, 10) tveir efstu (af þremur). Auövelt, ha? Hrönn Hafllöadóttlr syngur 6 þýsk þjóölög í útsetningu Jó- hannesar Brahms og 5 lög eftir Karl O. Runólfsson við undirleik Ólafs Vignis Albertssonar kl. 20.55. Gunnlaugur Stefánsson ann- ast þátt um hjálparstarf kirkjunn- ar kl. 21.15. Útvarp kl. 20.00 Haukur J. Gunnarsson. Nautið og meyjan í kvöld flytur Útvarpið leikritið Nautið og meyjan, eftir Knut Faldbakken, í þýðingu Olgu Guðrúnar Arnadóttur. Og kem- ur manni nú í hug Gyðjan og ux- inn eftir Kristmann. í leikritinu er á ferð ung stúlka. Hún er á flótta undan sambýlis- manni sínum, sem trúlega er þá meiri háttar gallagripur. Stúlkan tekur það til bragðs að leita ásjár hjá ungum stúdent og skýtur hann yfir hana skjólshúsi. Ungi stúdentinn er hommi og hefur af þeim sökum lifað fremur einangruðu lífi. Óvenjuleg kynni hans af ungu stúlkunni rjúfa þessa einangrun. Verður sambúð þeirra býsna viðburðarík en jafn- framt stormasöm, sem rekja má til þess, að lífsviðhorf þeirra eru ærið ólík. Aðalhlutverkin eru í höndum tveggja ungra leikara: Kristjáns Franklíns Magnúsar og Sigur- jónu Sverrisdóttur. Er þetta frumraun þeirra í útvarpi en þau luku bæði námi frá Leiklistar- skóla Islands s.l. vor. Aðrir leikendur eru: Helgi Skúlason og Arnór Benónýsson. Leikstjóri er Haukur J. Gunnarsson. -mhg abcdefah Karpov — Timman 28, d5l (Laglegt gegnumbrot sem Timman ræður ekki við. Ef nú 28. - exd5 þá 29. Rd7+! og 30. Dh8 mát. 28. - Rxd5 strandar auövitað á 29. Hxd5! exd5 30. Rd7 meö sömu hugmynd.) 28. .. Dc7 29. dxe6! Hxd1 30. Rg6+! - Laglegur lokahnykkur. Framhaldiö er þvingað: 30. - fxg6 31. e7+! Ke8 32. Dg8+ Kd7 33. De6+ Ke8 34. Df7+ Kd7 35. e8 (D)+ o.s.frv. Timman kaus því aö gefast upp án þess aö halda baráttunni áfram. Tikkanen Eldflaugar fljúga best í hægri- vindi. Gœtum tungunnar Sagt var: Hjónin litu á hvort ann- að. Rétt væri: Hjónin litu hvort á annað.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.