Þjóðviljinn - 09.12.1983, Blaðsíða 1
DlOOVIlllNN
Skúli Alexand-
ersson alþrn.
segir frá at-
hafnalífi og
starfí sínu undir
Jökli í bókinni
„Við klettótta
strönd“.
Sjáló-17.
desember
föstudagur
282. tölublað
48. árgangur
Starfsmenn RARIK um uppsagnahótun Sverris:
99
Jólagjöfin okkar!66
Fjöldi
starfsmanna
þorir ekki að
rœða málið af
ótta við að
lenda á upp-
sagnaskránni
„Auðvitað óa mönnum þessi
tíðindi. Ummæli ráðherra
hafa komið mörgum spánskt
fyrir sjónir. Þessi skýrsla um
RARIK á að heita trúnaðar-
mál. Við vitum ekki hvað
stendur í henni. Það sem
vitnað er til hennar getur
engan veginn staðist. Það má
vera að þeir geti fundið einn
og einn mann sem sé ofaukið.
En 100 manns og annað eins
af bílum! - slíkt gengur ekki
upp. Nema þeir ætli að leggja
RARIK niður“, sögðu
starfsmenn á rafmagnsverk-
stæði Rafmagnsveitna ríkis-
ins í samtali við Þjóðviljann í
gær.
Yfirlýsingar iðnaðarráðherra
Sverris Hermannssonar um fyrir-
hugaðar fjöldauppsagnir starfs-
manna Rafmagnsveitna ríkisins,
sem hann segir byggðar á úttekt
ráðgjafarfyrirtækisins Hagvangs á
rekstri RARIK, hafa að vonum
vakið athygli og undrun jafnt
stjórnarmanna fyrirtækisins sem
starfsmanna. Fjöldi starfsmanna
sem Þjóðviljinn ræddi við í gær
vildi ekki ræða þessi mál opinber-
lega þar sem þeir óttuðust að það
kæmi þeim í koll þegar til uppsagna
kæmi. Öllum bar saman um að
gríðarleg spenna ríkti meðal starfs-
fólks vegna yfirlýsinga iðnaðarráð-
herra, sem menn nefndu „jólagjöf-
ina okkar“.
„Annars hef ég enga trú á þess-
um fjöldauppsögnum. Menn eru
að miða við upplýsingar frá þessu
hagræðingarfyrirtæki. Það talar
um að selja 150 bíla þegai RARIK
á ekki nema 115 bíla! Ég get ekki
séð hvernig þetta dæmi á að ganga
upp. Nema þeir ætli að selja okkar
einkabfla. í það minnsta þorði ég
ekki að koma á bflnum mínum í
vinnu í morgun“, sagði einn starfs-
manna í gær. - Ig.
Sjá 2.
Hinfræga
tyrkneska kvik-
myndYOL
verður sýnd í
sjónvarpinu í
kvöld, en þarer
frelsinu sungið
lof með eftir-
minnilegum
hætti.
8-9
Starfsmenn RARIK voru áhyggjufullir í kaffístofu fyrirtækisins í gær. Á borðum voru aðventuljós en , jólagjöf“ ráðherrans hvíldi þungt á hugum
manna. Mynd. -Magnús.
Ásgeir Friðjónsson dómari um fíkniefnamálin:
Þeir .,fjársterku“ ekki fúndnir
„Því er ekki að neita að okkur
hafa borist til eyrna sögusagnir um
að umsvifamiklir bissnessmenn
standi að baki innflutningi og dreif-
ingu á fíkniefnum hér á landi. Einn-
ig hefur verið sagt að aðilar er-
lendis frá standi fyrir slíku. Við
rannsökum hvert mál út af fyrir
sig. Enn sem komið er höfum við
ekki haft hendur í hári eða getað
lagt fram kæru á þessa svokölluðu
fjársterku aðila,“ sagði Ásgeir
Friðjónsson dómari í ávana- og
fíkniefnamálum þegar Þjóðviljinn
hafði samband við hann í gær.
Ásgeir sagði að einhver aukning
hefði orðið á framboði í fíkniefnum
á sl. árum en ekki nándar nærri eins
mikil og margir vilja vera láta.
Hann sagði að sú viðmiðun sem
lögreglan hefði væri hið háa mark-
aðsverð á fíkniefnum. „Verðlagið
er margfalt hærra en það sem gerist
erlendis. Það gefur til kynna að
framboðið sé ekki ýkja mikið og er
auðvitað ekki nema gott um það að
segja. Neikvæði þátturinn er
auðvitað sá að menn geta freistast
til að flytja þetta inn í hagnaðar-
skyni. Við höfum sem sagt ekki
fundið þessa gífurlegu fjölgun, sem
margir tala um þó vissulega halli
undan fæti,“ sagði Ásgeir.
Ný fíkniefni á markaðnum
Ásgeir sagði að það sem af væri
þessu ári hefði verið lagt hald á 20
kíló af fíkniefnum af margvíslegum
tegundum. Þetta er nokkur
aukning frá því sem var á síðasta ári
en þá voru 8 kg af kannabisefnum
gerð upptæk. Kemur það helst til af
því hversu „skipamálin“ margum-
ræddu vega þar þungt á metunum.
„Hassið er vinsælast, en ný efni
virðast vera að koma til skjalanna.
Við höfum lagt hald á 400 gr. af
amfetamíni og eitthvað af kókaíni
sem að því er best verður vitað hef-
ur ekki verið hér í umferð. Senni-
lega kemur þetta til vegna skrifa í
víðlesnustu tímaritunum banda-
rísku „Newsweek“ og „Time“ þess
efnis að kókaínið sé nú orðið ein-
hverskonar heldra manna dóp.“
Um önnur efni hefur það komið
fram að LSD, sem hér á árum áður
var mjög vinsælt, hefur algerlega
horfið af markaðnum óg tíæmi þess
að menn noti morfín og heróín eru
sárafá.
Um ársneyslu íslendinga sagði
Ásgeir að margar tölur heyrðust,
sú hæsta upp á þrjú og hálft tonn.
Það kvað Ásgeir að hlyti að vera
fjarri öllum sanni. _ hól.
Albert Guðmundsson
á Alþingi í fyrrakvöld
„Það verður engin
skattahœkkun — en það
getur verið að menn
verði á nœsta ári
lengur að vinna fyrir
sköttunum sínum“
Sjá leiðara og Klippt