Þjóðviljinn - 10.12.1983, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 10.12.1983, Blaðsíða 3
Helgin 10.-11. desember 1983 ÞJÓÐYILJINN - SÍÐA 3t GEFUM % GÓÐARRÆKUR Mál H og menning K. M. Peyton Flambardssetrið Kristína Parsons er tólf ára þegar hún flytu'r til Russells móðurbróður síns á ættarsetrið Flambards. Síðan hún varð munaðarlaus á barnsaldri hefur hún búið hjá frænkum sínum og henni finnst kvíðvænlegt að flytja, því frænkur hennar telja fullvíst að Russell ætli að gifta hana eldri syni sínum, Mark, til að komast yfir auðinn sem hún á i vændum. Sagan gerist í byrjun aldarinnar og er hörkuskemmtileg eins og allar bækur K.M. Peyton. Silja Aðalsteinsdóttir þýddi. Astrid Lindgren Dagur barnanna í Ólátagarði segir frá þvi þegar allir krakkarnir ætla að skemmta Stínu, litlu systur Óla. Hún á að skemmta sér virkilega vel - én það gengur dálítið brösótt. Henni finnst stundum ekkert gaman að því sem henni á að þykja gaman! Myndir gerði llon Wikland. Þuríður Baxter þýddi. Andrés Indriðason Fjórtán... bráðum fimmtán Skemmtileg saga um unglinga í Reykjavík-og raunar víðar, því söguhetjan, Elías, kynnist stelpu frá Akranesi. Það er ekki tómt grín að vera fjórtán ára strákur... bráðum fimmtán, þurfa að passa fyrir Lása bróður og kærustuna hans eins og maður væri stelpa en standa sig svo eins og karlmaður þegar öðruvísi reynir á ... Fjórtán ... bráðum fimmtán er sjálfstætt framhald af bókinni Viltu byrja með mér? Lygia Bojunga Nunes Dóttir línudansaranna María hefur átt heima í fjölleikahúsi mestalla ævina, en í sögubyrjun fer skeggjaða konan með hana heim til ömmu í stóra, fína húsið. Þar á María að búa framvegis vegna þess að í fjölleikahúsinu hafa gerst hræðilegir atburðir sem María vill ekki hugsa um. Sagan um Maríu er bæði óvenjuleg og afar falleg, enda fékk höfundurinn H.C. Andersen-verðlaunin fyrir hana. Guðbergur Bergsson þýddi. Bjarne Reuter Kysstu stjörnurnar Það var nærri því einber tilviljun að Buster skyldi vera með í skólaleikritinu. Þannig var að leikritið hét bara Bjúgsverð furstans en Buster bætti við á veggspjaldið: „og þrjár allsberar skvísur." Það fréttist og Buster var skipað að mæta á fyrsta fundinn. Svoleiðis byrjaði þetta allt saman. Kysstu stjörnurnar er framhaldið á Veröld Busters sem kom út í fyrra og þýðandinn, Ólafur Haukur Símonarson, fékk viðurkenningu Fræðslu- ráðs Reykjavíkur fyrir. Astrid Lindgren Karl Blómkvist í hættu staddur Alveg ný þók um Kalla Blómkvist, hinn snjalla leynilögreglumann. í fyrra var fyrsta bókin um Kalla endurútgefin, en þessi hefur aldrei komið út áður á íslensku. Það finnst vinum Kalla sjálfsagt ekki verra. í miðju Rósastríði úti á Gresjunni gerast hræðilegir atburðir. Eva Lotta finnur mann í runnunum - og hann er dauður... Þorleifur Hauksson þýddi. Njörður P. Njarðvík Sigrún fer á sjúkrahús í þessari skemmtilegu sögu segir frá lítilli stúlku sem þarf að láta taka úr sér hálskirtlana. Bókin er samin i samráði við barnadeild Landakotsspít- ala og ætlað kynningar- hlutverk, því börn sem eru vel undirbúin og vita hvað er í vændum eiga auðveldara með að mæta Áslaug Ólafsdóttir Litla rauða rúmið Ásavillekki sofaírúminu sínu, það er miklu betra að sofa á milli pabba og mömmu. En svo kemur Pési og vill endilega fá að sofa í litla rauða rúminu ... Myndirnar gerði Ragnhildur Ragnarsdóttir. Handa yngstu hlustendunum. Gunilla Bergström Hvað varð um Einar ærslabelg? Þið þekkið öll hann Einar Áskel, það er alveg rétt, en hérna kemur ný bók um hann. Er hann kannski alveg hættur að láta illa? Sigrún Árnadóttir þýddi. Vésteinn Lúðvíksson Guðmundur Hreinn með gull í nögl Ævintýrið um hann Hrein sem fæddist undir Dimmubjörgum í Ljósalandi. Eins og í öllum ævintýrum bíða hans margvíslegar hættur, hið góða þarf að berjast við hið illa, Ijósið við myrkrið. En ævintýri enda ævinlega vel. Frábærar myndir eftir Robert Guillemette. þeirri nýju og stundum erfiðu lífsreynslu að fara á sjúkrahús. Sigrún Eldjárn gerði myndirnar í bókinni. Endurútgáfa á þessari sívinsælu og þörfu bók. « Sigríður Eyþórsdóttir Lena-Sól Lena-Sól er nýflutt í bæinn með mömmu sinni og í dag á hún að byrja í skóla. Hún hlakkar afskaplega mikið til, en dagurinn verður óþægilega afdrifaríkur... Cynthia Leplar teiknaði myndirnar. Bók handa þeim sem eru að byrja að lesa sjálfir.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.