Þjóðviljinn - 20.12.1983, Blaðsíða 10
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þrigjudagur 20. desember 1983
Skóla-
heimilið
á Egilsá
Egilsá heitir bær í Norðurárdal
íSkagafirði. Þar bjuggu til
margra ára Guðmundur L.
Friðfinnsson, bóndi og rithöf-
undur og kona hans, Anna
Gunnarsdóttirfrá Keflavík í
Hegranesi, nú látin. Allmörg
hin síðari búskaparár sín ráku
þau fjölmennt sumdardvalar-
heimili fyrir börn úr þéttbýlinu.
Skiptu þau börn, sem þarna
dvöldu stundum sumarlangt,
mörgumtugum. Hiðfjöl-
menna heimili á Egilsá ein-
kenndist af reglusemi, um-
hyggju og hlýju. Börnunum
þótti vænt um þau Egilsárhjón
og blaðamanni er kunnugt um
að mörg þeirra.-eflaust öll-
eiga góðar minningar frá dvöl-
inni þarna á bökkum Norður-
ár.
En nú eru þessi ár að baki og
Egilsárheimilið fengið nýtt hlut-
verk. Þar hefur nú verið stofnað
skólaheimili fyrir fötluð börn.
Hingað á blaðið komu fyrir
nokkru starfsmenn skólaheimil-
isins. Þeir eru fimm og heita:
Sveinn Allan Mortens, Samúel
Leferver. Þór Björk Jónsdóttir,
Anna Hlín Bjarnadóttir og Sal-
óme Þórisdóttir. Við báðum gest-
ina að norðan að segja okkur
eitthvað frá EgilsárheimiJinu og
voru þeir fúsir til þess.
Stofnað í haust
- Hverskonar starfsemi er
þetta, sem rekin er á Egilsá?
- Við viljum kalla þetta
skólaheimili. Það er sérdeild úr
Varmahlíðarskóla og tók til
starfa í október í haust.
- Hvað dveljast þarna mörg
börn?
- Núna eru þau fimm en það
sjötta kemur eftir áramótin.
- Á hvaða aldri eru þessi börn?
- Það er miðað við að þau séu á
grunnskólaaldri og allt upp í 18
ára, en þau, sem dveljast þarna
núna, eru frá 10-15 ára. Upp-
eidisfræðilegar ástæður liggja til
þess að börnin eru ekki höfð fleiri
en þetta þótt þörf væri annars á
því.
- Þörfin er meiri, segið þið, en
eftir hverju fer þá valið?
- Til valsins lágu eftirfarandi
fjórar forsendur:
1. Að foreldrarnir séu jákvæðir
gagnvart vistuninni og fúsir til
samvinnu.
2. Nemendur mega ekki vera
það Iíkamlega eða andlega heftir
að þeir þarfnist hjúkrunar allan
sólarhringinn. Hið sama gildir
um börn, sem eru með „kronisk
psykótiske“ eða á annan hátt ver-
ið of þung byrði fyrir heildina.
3. Reynt er að hafa hópinn
þannig samsettan að hægt sé að
taka tillit til einstaklinganna
þannig að ekki séu of mörg börn í
hinum „þunga enda“ ef svo má að
orði komast og ekki of mörg þar
sem orsaka til fötlunar er að leita
í félagslegu umhverfi eða í fjöl-
skyldunni.
4. Tekið er tillit til fjölskyldu-
aðstæðna hjá hverjum og einum
og hvernig aðstæður eru innan
þess skóla, sem barnið gengur í.
Þekktumst öll áður
- Er skólaheimilinu ætlað að
ná til alls fræðsluumdæmisins?
- Já, það nær til alls Norðvest-
urlands. Þetta svæði er stórt og á
köflum nokkuð strjábýlt og það
hefur að þessu verið illa sett með
þjónustu við börn með sérþarfir.
Egilsárheimilið bætir þar strax
nokkuð úr. Þroskahjálp á Norð-
urlandi vestra beitti sér mjög fyrir
því að þetta heimili kæmist á fót,
Þóra Björk og Steinar Þór.
Sigríður Þóra og Ágúst. Halidóra í
bakgrunni.
og þeir okkur. Það getur jafnvel
verið nauðsynlegt að vinna um
hríð með foreldunum eða fjöl-
skyldunni í heild, til þess að vinna
bug á tímabundnum vandamál-
um.
Góð aðstaða á Egilsá
- Hvernig aðstaða er á Egilsá
hvað húsakynni áhrærir?
- Hún er góð. Þegar þau Guð-
mundur og Anna ráku sumar-
dvalarheimilið byggðu þau stórt
og gott hús fyrir krakkana. í því
er skólaheimilið en Guðmundur
býr sjálfur í gamla húsinu. Hann
studdi mjög að því að þessi starf-
semi kæmist hér upp og reyndar
er það honum ekki hvað síst að
þakka að svo varð. Auk þess hef-
ur svo verið mjög góð samvinna
við fræðsluskrifstofu umdæmis-
ins, foreldra og aðra, sem hlut
eiga að máli.
Daglega í Varma-
hlíðarskóla
- Þið sögðuð að þetta væri sér-
deild í Varmahlíðarskóla. Eru
börnin kannski að einhverju leyti
í námi þar?
- Já, þau fara daglega í Varm-
ahlíðarskólann. En kennarar úr
okkar hópi fylgja þeim eftir.
Þarna er um að ræða svokallað
tveggja kennara kerfi. Eitt af
okkur kemur í bekkinn sem við-
bótarkennari og fer kennslan
fram í samvinnu þessara tveggja
kennara. Báðir eru kennararnir
ábyrgir fyrir nemendahópnum í
heild. Við Varmahlíðarskóla
starfa tveir sérkennarar og er
annar þeirra talkennari.
Sumir eru andvígir því að
blanda þessum krökkum saman
við aðra nemendur en við
reynum að auðvelda þau sam-
skipti og við megum ekki gleyma
því á hversu miklu það ríður að
þessi börn einangrist ekki. En
tengslin við Varmahlíðarskólann
eru mjög góð.
Við getum svo að endingu sagt,
að aðalmarkmiðið með skóla-
heimilinu á Egilsá sé endurhæf-
ing. Að nemendur fari, að lok-
inni dvölinni þar aftur til heimila
sinna hæfari en áður til þess að
takast á við raunveruleikann, lifa
eðlilegu lífi. Sumir munu trúlega
fara í sambýli, sem vonandi verða
stofnuð í nánustu framtíð.
-mhg
Starfsmenn skólaheimilisins frá v.: Samúel Leferver, Sveinn Allan Morthens, Anna Hlín Bjarnadóttir, Þóra
Björk Jónsdóttir, Saióme Þórisdóttir. Mynd: Mynd: - eik.
Andri, Sigríður, Hrafnhildur,
Samúel, Sóley og Steinar Þór.
komum í Egilsá og teljum okkur
bæði hafa menntun og reynslu til
að sinna svona störfum.
Hin daglegu störf
- Viljið þið kannski lýsa fyrir
lesendum blaðsins hvernig hin
daglegu störf fara fram?
- Já, þetta skólaheimili er að
því leyti ólíkt öðrum sérdeildum,
að við búum alveg með nem-
endunum. Allt er sameiginlegt.
Þetta er ein stór fjölskylda. Við
teljum þetta form vera mjög
heppilegt, því svona heimili gerir
ar, sem fylgja vaktaskipulaginu.
Starfið nýtist betur bæði hvað
varðar tíma og árangur. Á þetta
jafnt við um andlega þroskaheft
börn og hin, sem af félagslegum
og uppeldislegum ástæðum hafa
stöðvast í námi.
En það sem gerir þetta starfs-
fyrirkomulag í raun og veru
mögulegt er að ábyrgðin dreifist
jafnt á alla og vinna, heimilslíf og
nám verður smám saman samof-
ið. Hin faglega vinna fer ekki
nema að nokkru leyti fram innan
ramma skóladagsins. Það, sem
þessa heimilis sé stigið stórt skref
fram á við en það er ekkert loka-
skref. Takmarkið er að börnin
geti verið heima hjá sér, og
stundað nám í sínum skóla, en
það á nokkuð í land með það.
- Hvað er meingingin að börn-
in dvelji þarna lengi?
- Það er gert ráð fyrir að há-
marksdvöld sé tvö ár.
- Fara börnin öðru hvoru heim
til sín?
- Já, þau fara heim til sín um
aðra hverja helgi. Og við
heimsækjum foreldra barnanna
enda þörfin mikil og fólk var
beinlínis að flytja úr fræðsluum-
dæminu af því að þar var enga
hjálp að fá.
- Hvað eru starfsmenn heimil-
isins margir?
- Starfsliðið er 5 manns, tvær
fjölskyldur með eitt barn hvor og
svo einn eínstaklingur að auki.
Við þekktumst öll áður en við
okkur mögulegt að vinna á allan
hátt með börnunum, sinna með
þeim öllum athöfnum hins dag-
lega lífs. Þessi stöðugu samskipti
skapa náinn trúnað og tengsl milli
okkar og krakkanna og er það
mjög mikilvægt. Samskipti okkar
og barnanna verða áþekkt því,
sem gerist á venjulegum heimil-
um og úr sögunni eru ýmsir gall-
unnið er eftir að honum lýkur, er
ekki síður mikilvægt en sjálfar
kennslustundirnar. Hjá okkur er
engin yfirstétt, enginn forstöðu-
maður, allir bera sameiginlega og
jafna ábyrgð. Og vinnutíminn er í
raun og veru ótakmarkaður. En
það er mikill kostur að vera í
svona lítilli einingu.
Við teljum að með stofnun
- mhg rœðir
við starfsmenn
heimilisins
Aðalmarkmiðið
er endurhæfing