Þjóðviljinn - 20.12.1983, Blaðsíða 11
Þegar pabbi dó
Hasla h.f. hefur gefið út bókina:
Þegar pabbi dó, eftir Guðrúnu
Öldu Harðardóttur.
Þetta er fyrsta bók Guðrúnar
Öldu. Hún er 28 ára Reykvíkingur
og stundar nú nám við Fósturskóla
íslands.
Sagan, Þegar pabbi dó, lýsir á
raunsæjan hátt hvað hrærist í huga
sex ára drengs, sem missir pabba
sinn í bílslysi. Efni bókarinnar vek-
ur okkur til umhugsunar um hvaða
augum við lítum á dauða náinna
ástvina.
Efni bókarinnar er nokkuð sér-
stætt eins og nafnið ber með sér. í
henni er tekið fyrir málefni, sem
ekki almennt er rætt um manna í
millum, heldur er eins konar
feimnismál, þegar það ber á góma.
Tryggvi Tryggvason mynd-
skreytti bókina og teiknaði kápu.
Viðtöl við
Stranda-
menn
Út er komm bókin Á gömlum
merg- Strandamannaþættir, skráð
af Þorsteini Matthíassyni. í bók-
inni eru viðtöl við fólk sem alist
hefur upp í hinni harðbýlu Stranda-
sýslu. Bókin veitir góða innsýn í
hagi fólks fyrr á öldinni og fram á
þennan dag. í bókinni eru viðtöl
við eftirtalið fólk, sem segir söguna
hvert frá sínu sjónarhorni: Agúst
Benediktsson frá Hvalsá, Guð-
mund Pétursson frá Ófeigsfirði,
Halldór Hjartarson frá Sunndal,
Ingvar Agnarsson frá Hrauni,
Kristínu Tómasdóttur frá Hólma-
vík, Kristján Jónsson á Hólmavík,
Þorsteinn Matthíasson
Ólaf Sigvaldason á Sandnesi og
Torfa Guðmundsson á Drangs-
nesi.
Bókin er 192 bls. og ríkulega
myndskreytt. Útgefandi er Ingólfs-
prent hf.
KennethBlanchaid
SpencerJohnson
Mínútu stjórnun
Bókaútgáfan Vaka hefur gefið
út bókina Minútu stjórnun eftir
Kenneth Balanchard og Spencer
Johnson í þýðingu Grétars Odds-
sonar. Bókin kennir á einkar að-
gengilegan hátt nýja stjórnunarað-
ferð, sem nefnd hefur verið Mínútu
stjórnun. Hún byggist á rannsókn-
um sem gerðar hafa verið á því,
hvernig árangursríkast er að haga
mannlegum samskiptum á vinnu-
stöðum eða í öðru samstarfi fólks.
í kynningu á bókarkápu segir:
„Þessi stjórnunarbók er þegar orð-
in margföld metsölubók víða um
lönd. Ástæðan ereinfaldlega sú, að
hún hefur ekki brugðist. Hér er
kennt hvernig á að stjórna sam-
starfsmönnum með markvissum
hætti; hvernig á að virkja áhuga
þeirra og hvetja þá til dáða. Allir
verða ánægðari og árangurinn
ótrúlegur."
Metsöhihöfundurínn
HeinzG.Konsalik
Yfír hverju býr Laila?
EYÐIMERKURLÆKNIRINN eftir þýska metsöluhöfundinn
Heinz G. Konsalik, höfund bókarinnar Hjartalœknir Mafíunnar.
EYÐIMERKURLÆKNIRINN gefur henni ekkert eftir. — Lœknirinn
Ralf Vandura er í miklu uppáhaldi hjá kvenþjóðinni. Dag nokk-
um er ung kona borin í yfirliði inn á stofu hans, og áður en varir
er hann grunaður um morð. Hann flýr til Mið-A usturlanda ogger-
ist lceknir hjá arabískum skœruliðasi>eiturn. Þar hittir hann hitia
fögru en grimmlyndu Lailu...
Kr. 548.35
AUK hf. Auglýsingastofa Kristinar 83.81
Sími 12923-19156
Þriðjudagur 20. desember 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15
ER
BJARCVÆTTINUH
VHt BJARCANDI ?
Sagan íjallar á óvœginn hátt um
öígar kynþroskaskeiðsins.
Vel geíinn piltur stingur aí írá skóla
og foreldrum og ráfar út í myrkvið
New York borgar.
Bjargvœtturinn var mjög umdeild
saga í fyrstu en er nú
löngu viðurkennd í hópi merkustu
skáldsagna á þessari öld.
Þýðing Flosa Ólafssonar
er bráðsnjöll.
Áætlað er að starfrækja vélgæslubraut til 1.
stigs atvinnuréttinda fyrir vélstjóra með
undanþágu á vorönn 1984 ef næg þátttaka
fæst. Námið hefst 16. janúar og því lýkur með
prófi um miðjan maí.
Inntökuskilyrði: 25 ára aldur og lágmarks-
skráningartími sem vélstjóri á skipi 2 ár. Um-
sóknir sendist til Vélskóla íslands, pósthólf
5134, 105 Reykjavík, fyrir 1. janúar 1984.
Með umsókn fylgi vottorð um minnst tveggja
ára skráningartíma sem vélstjóri á skipi.
Skólastjóri