Þjóðviljinn - 20.12.1983, Side 13
Þriðjudagur 20. desember 1983 ÞJOÐYILJINN - SIÐA
Afmæliskveðja
• •
Magðalena Ossurardóttir
frá Þingeyri
Þann 14. desember síðastliðinn
varð Magðalena Össurardóttir,
fyrrum húsfreyja í Neðri-
Hjarðardal í Dýrafirði, 90 ára.
Hún býr nú á Þingeyri og hrósum
við undirrituð því mikla happi að
hafa kynnst henni er við fluttum
þangað fyrir rúmum tveim árum.
Þau eru ófá börnin á Þingeyri sem
klæðast fallegu ullarsokkunum og
vettlingunum frá henni Lenu. Og
ekki bara börnin, heldur líka þeir
fullorðnu. Þær eru orðnar margar
hlýlegu sendingarnar frá henni til
okkar hjónanna og barna okkar
síðan við komum hingað til Þing-
eyrar. Og þegar langt er til afa og
ömmu erekki amalegt að eiga svo-
lítinn part í henni Magðalenu, sem
er amma svo margra. Á þessum
merku tímamótum streyma til
hennar hlýjar þakklætiskveðjur og
hamingjuóskir frá mörgum sem
eiga þessari sístarfandi góðu konu
gott að gjalda.
Á fyrsta tug þessarar aldar var
ung stúlka að alast upp í Kollsvík í
Rauðasandshreppi í Vestur-
Barðarstrandsýslu. Hún var elst
tólf alsystkina, aðeins Hildur, hálf-
systir hennar, var eldri. Því þurfti
hún snemma að taka til hendi og
fjórtán ára gömul var hún farin að
róa með föður sínum úr Kollsvík
upp á hálfan hlut á móti bróður
sínum, Valdimar, tólf ára gömlum.
Þessi stúlka var Magðalena Össur-
ardóttir. Á þessum árum var marg-
mennt í Víkinni, um áttatíu manns,
og á annað hundrað manns stund-
aði útræði þaðan. Þarna reri
Magðalena í fimm sumur eða uns
hún fer í vist út í Breiðafjarðar-
eyjar, Hergilsey og Flatey. I Herg-
ilsey gekk hún að öllum störfum,
sló og rakaði, og reri út í eyjar til
heyfanga á sexæring með bónd-
anum, Hafliða Snæbjarnarsyni.
Eftir það fór hún að Skálmarnesi
með Hergilseyjarhjónum og þaðan
á Bæ á Rauðasandi. Síðan er hún
heima við urn tíma, móður sinni til
aðstoðar. Foreldrar Magðalenu,
þau Össur Guðbjartsson af Kolls-
víkurætt og Anna Guðrún Jóns-
dóttir frá Hnjóti í sama hreppi,
voru nú tekin að lýjast og árið 1927
kemur boð frá Valdimar bróður
Magðalenu, sem þá var kennari á
Núpi í Dýrafirði. Segist hann hafa
hug á því að taka helming jarðar-
innar Mýrar þar í sveit á leigu og
hvort þau vilji ekki koma norður
þangað.
Það varð úr, að öll fjölskyldan,
nema þau sem voru gift í burtu,
fluttist búferlum að Mýrum og var
þar í tvö ár. Og forlögin höfðu víst
ætlað Magðalenu að setjast að í
Dýrafirði, því að 27. apríl 1929 gift-
Lending
á Jörðu
Áttabækur
um ævin-
týri Smára
komnar
frá Vöku
Bókaútgáfan Vaka hefur gefið
út fyrstu átta bækurnar í nýjum
bókaflokki fyrir börn, Smárabæk-
urnar.
Bækurnar eru upprunnar í Bret-
landi, sögurnar eftir Denis Bond
og myndirnar eftir Ken Morton, en
barnabókahöfundurinn vinsæli
Guðni Kolbeinsson hefur þýtt
bækurnar á íslensku.
Smári er ekki nema einn senti-
metri á hæð. Hann er frá plánetu
sem heitir Krílus. Dag nokkurn bil-
aði geimfarið hans og hann hraktist
til Jarðarinnar og lenti þar í stórum
H M t~ Zxzz ■ ' \ .^3** Hlomasan Uorghihiur - .Wf. : ...
Gcfuuist ekki upp
ÞTogið rnílli garðit
Druugur i saíatiuu
i Vihu scrða i>oinM.t jama?
G*»ðír graunar
Alh wrðið < re»B
garði, fullum af illgresi. Smári
vingaðist brátt við skordýrin, sem
áttu heima í garðinum og ákvað að
dvelja hjá þeim um tíma. Þannig er
Smári geimstrákur kynntur í Smár-
abókunum nýju frá Vöku, en sögu-
rnar eru síðan um ævintýri hans hér
á Jörðinni með vinum sínum,
flugum og öðrum skemmtilegum
smádýrum í garðinum, sem áður
var nefndur.
Litli
jóln-
pokkinn
STAFA-
SPILIÐ
Þroskandi
Spennandi
ódýrt
ii:Syliu5c
Sími 91-73411
Móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma,
Sveinborg Björnsdóttir,
Austurbrún 4,
er látin.
Jónsteinn Haraldsson
Borgar Jónsteinsson
Halldóra Kristjánsdóttir
Hafdís Jónsteinsdóttir
Halldóra Ólafsdó>tir
ist hún Kristjáni Davíðssyni í
Neðri-Hjarðardal og fluttist þang-
að. Þar bjuggu þau í 41 ár, fyrst
með bróður Kristjáns, Jóhannesi,
og síðar auk þess með syni sínum,
Bjarna, og hans fjölskyldu. Krist-
ján lést 21. október 1970. Þau
Kristján og Magðalena eignuðust
fjögur börn sem upp komust: Da-
víð, flugvallarstjóra á Þingeyri, f.
20.3. 1930, Valgerði, húsfreyju á
Blönduósi, f. 19.6. 1931, Kristínu,
húsfreyju á Þingeyri, f. 4.12. 1932,
og Guðmund Bjarna, fyrrverandi
bónda í Neðri-Hjarðardal, nú
birgðavörð á Þingeyri, f. 19.11.
1934. Barnabörn Magðalenu eru
19 og barnabarnabörnin orðin 14.
Magðalena bjó hjá syni sínum í
Neðri-Hjarðardal til ársins 1980,
en þá fluttist hún á öldrunardeild
sjúkraskýlisins á Þingeyri og býr
þar nú.
Kynni okkar af Magðalenu hóf-
ust sem fyrr segir fyrir rúmum
tveim árum í byrjun vetrar, að okk-
ur barst vænn poki fullur af yndis-
lega failegum sokkum og vettlinum
á börnin okkar og það leyndi sér
ekki að sú er prjónað hafði vissi
gjörla aldur og stærð þeirra er
njóta skyldu. Við komumst brátt
að því frá hverjum sendingin var og
að við værum ekki þau einu sem
nytu þeirra forréttinda að vera
tekin undir verndarvæng hennar
Magðalenu á „skýlinu". Og þótt af-
mælisbarnið standi nú á níræðu er
það enn að gleðja umhverfi sitt
með sínum góðu og fallegu gjöfum,
sem við erum svo lánsöm að fá að
njóta en getum í fáu endurgoldið
sem skyldi. Magðalena er fulltrúi
þeirrar kynslóðar sem vann þjóð-’
ina upp úr aldagömlum vinnu-
brögðum og lífskjörum til nútíma-
samfélags vélvæðingar og neyslu.
En hún heldur tryggð við hugsun-
arhátt þann er hún ólst upp við og
mótáði allt hennar líf, en það var
vinnusemin, nýtnin og ósérhlífnin.
Við sem yngri erum mættum sann-
arlega læra margt af henni og henn-
ar líkum.
Við biðjum Guð að blessa
Magðalenu Össurardóttur er hún
nú heldur ótrauð á tíunda áratug-
inn með prjónana sína og heilla-
óskir ættingja og vina í farangr-
inum. Dýrfirðingum öllum og ætt-
ingjum og vinum Magðlenu annars
staðar óskum við til hamingju með
sæmdarkonuna Magðalenu Össur-
ardóttur á þessum tímamótum á
ævi hennar. Henni sjálfri sendum
við okkar inniiegustu þakkir og
hamingjuóskir í tilefni afmælisins
og vonumst til að mega njóta sam-
vista við hana enn um langt sinn.
Kristín og Torfi,
Þingeyri.
íslensk bókamenning er verómæti
Franz
Kafka
Réttarhöldin
Ein frægasta skáldsaga heimsbókmenntanna
í þýöingu Ástráös Eysteinssonar og Eysteins Þorvaldssonar
gefin út í tilefni af aldarafmæli höfundar.
Fá skáldrit hafa haft eins mikil áhrif
á skáldsagnagerð Vesturlanda og RÉTTARHÖLDIN.
Verk þetta geymir ótæmandi sannleika
um líf nútímamannsins og samfélag okkar daga.
MENNINGARSJOÐUR
SKÁLHOLTSSTlG 7— REYKJAVlK — SlMI 13652