Þjóðviljinn - 08.03.1984, Blaðsíða 5
»f zzt.n .‘J ".rrr2'*rj v - ; 1 1't \ # t «. »»• •,
Fimmtudagur 8. mars 1984 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5
Vinnustaðafund-
ir SFR:
Launamismunun hjá Raf-
magnsveitum ríkisins fyrir
sömu störf er í sumum tilfell-
um 20-35%, allt eftir því hvort
viðkomandi starfsmenn eru í
Bandalagi háskólamanna,
Starfsmannafélagi ríkis-
stofnana eða vinna eftir
samningum Rafiðnaðar-
sambandsins. Þetta kom
fram á starfsmannafundi hjá
Rarik í Reykjavík en fundur-
inn var haldinn til þess að
kynna félögum SFR niður-
stöður kjarasamnings BSRB
við fjármálaráðuneytið.
Einar Ólafsson formaður SFR
sagði á fundinum að hann mælti
s
Einar Ólafsson talar við starfsmenn RARIK í Reykjavík.
Oánægja
með launamisrétti og uppsagnir hjá RARIK
með samþykkt kjarasamningsins,
ekki vegna þess hve góður hann
væri, heldur vegna þess að hann
fyndi ekki þann þrýsting sem þyrfti
til þess að fara út í harðar aðgerðir,
auk þess sem vorið og sumarið væri
óheppilegur tími fyrir ríkisstarfs-
menn til verkfalla.
A fundinum kom fram mikil óá-
nægja með það iaunamisrétti sem
ríkti innan Rarik, auk þess sem
menn höfðu miklar áhyggjur af
þeim uppsögnum sem átt hefðu sér
stað hjá fyrirtækinu.
Þá kom einnig fram óánægja
með ýmis ákvæði þessa samnings,
sem fundarmenn töldu ekki eiga
heima í kjarasamningi. Var nefnt
sem dæmi ákvæði um hækkuð
meðlög, þar sem um er að ræða
millifærslur fjármuna á milli
launþega.
Einar Ólafsson taldi að gat það
sem fjármálaráðherra væri nú að
búa til á fjárlögin væri pólitískt
bragð til þess að búa almenningsá-
litið undir gengisfellingu og aukna
kjaraskerðingu og sagðist hafa
heimildir fyrir því, að til sjóðþurrð-
ar mundi koma hjá ríkissjóði í vor.
Einar Ólafsson lýsti þeirri skoðun
sinni að æskilegt væri að ASÍ og
BSRB næðu að samræma kröfur
sínar og samningagerð þannig að
þessi stóru heildarsamtök
launþega í landinu gætu beitt sam-
eiginlegunt þrýstingi. Aðrir
fundarmenn bentu á að meðan
launamisrétti væri jafn mikið og
raun ber vitni innan fyrirtækisins
gæti félagsmönnunt SFR eins orðið
akkur í að ganga úr félaginu og í
Rafiðnaðarsambandið, sem hefði
mun hagstæðari samninga.
A fundinum var einnig rætt um
lagalega stöðu starfsmanna Rarik
gagnvart þeim mörgu uppsögnum
sem áttu hefðu sér stað. Var það
álit manna að uppsagnirnar væru
pólitískur sýndarleikur iðnaðar-
ráðherra sem ekki myndi skila sér í
hagkvæmari rekstri, allrasíst þegar
tekið sé tillit til þess að launakostn-
aður Rarik nemur aðeins 6% af
heildarútgjöldum.
Fundurinn hjá Rarik í gær var
fyrsti fundurinn í fundaröð SFR til
kynningar á kjarasantningunum,
en kosning urn þá fer fram 19.-20.
þessa mánaðar. ólg.
Nýtt tímarit:
Verktækni
Það er ekki á hverjum degi sem
tímarit eru stofnuð hér á landi en
nýlega ákváðu Verkfræðingafélag
Islands og Tæknifræðingafélag Is-
lands að sameinast um útgáfu á
nýju fréttablaði, Verktækni. Er
ætlunin að gefa blaðið út á tveggja
vikna fresti og hafa tvö tölublöð
þegar komið út.
í frétt frá félögunum segir að
Verktækni sé ætlað að vera vett-
vangur umræðu um atvinnu- og
tæknimál á breiðum grundvelli.
Auk þess að fjalla um tækninýj-
ungar er blaðinu ætlað að þjóna
sem upplýsingamiðill félaganna
sem að því standa og raunar allra
sem telja sig eiga erindi við tækni-
menn á íslandi.
Upplag Verktækni er 2500 ein-
tök og er það opið auglýsendum.
Útgáfustjóri hins nýja fréttablaðs
er Páll Magnússon en auk hans
sitja í ritnefnd þeir Guðmundur
Hjálmarsson og Jón Erlendsson.
-v.
Skipulagsnefnd:
Ný tillaga
um Skóla-
vörðustíg
í gær var lögð fram í skipulags-
nefnd ný tillaga að neðri hluta
Skólavörðustígs og gerir hún ráð
fyrir miklum nýbyggingum vestan
við götuna, þar sem nú standa
gömul og lágreist hús.
Það er Hilmar Ólafsson arkitekt
sem gert hefur tillöguna fyrir lóðar-
eigendur við Skólavörðustíg 4-10.
Nýtingin fer upp í 1,5 og er um að
ræða stölluð hús með íbúðum og
verslunum á neðstu hæð. Engin af-
staða var tekin til tillögunnar í gær,
en fyrir liggur einnig tillaga frá Að-
alsteini Richter sem gerð var fyrir
rúmu ári síðan. Sú tillaga gerði líka
ráð fyrir niðurrifi gömlu húsanna
við Skólavörðustíg.
Stúdentaráð Háskóla Islands:
Fullur stuðningur
við Dagsbrúnarmenn
Stjórn Stúdentaráðs hefur fordæmt samninga ASÍ og VSÍ og lýst
fyllsta stuðningi við kröfur Verkamannafélagsins Dagsbrúnar.
Á fundi stjórnarinnar 2. mars s.I. var samþykkt svofelld ályktun:
í nýjasta tölublaði Verktækni er m.a.
j fjallað um iðnróbóta.
„Stjórn Stúdentaráðs Háskóla
íslands lýsir yfir fullum stuðningi
við kröfur Verkamannafélagsins
Dagsbrúnar, sem og annarra
verkalýðsfélaga sem fellt hafa ný-
gerða kjarasamninga ASÍ og VSÍ.
Þeir samningar bæta verkafólki
ekki þá kjaraskerðingu, sem það
varð fyrir á síðasta ári, heldur þvert
á móti staðfesta samningarnir kjar-
askerðinguna og þá stefnu ríkis-
stjórnarinnar að láta láglaunafólk
greiða niður verðbólguna. Við það
verður ekki unað. Krafan hlýtur að
verða sú að verkafólk geti lifað af
dagvinnutekjum sínum. Stjórn
Stúdentaráðs Háskóla íslands
hvetur verkafólk til að standa sam-
an í baráttunni fyrir mannsæmandi
kjörum.
Með baráttukveðjum,
Stjórn SHÍ.“
Kjördœmamálið komið aftur inná alþingi
Sj álfstæðisflokkurinn
gengið á bak orða sinna
„Sjálfstæðisflokkurinn hcfur
bersýnilega gengið á bak orða sinna
frá síðasta þingi“, sagði Svavar
Gestsson formaður Alþýðubanda-
lagsins í umræðum á alþingi í fyrra-
dag, þar sem hann vitnaði í ræðu
fyrrverandi formanns Sjálfstæðis-
flokksins, þegar frumvarp til
breytinga á lögum um kosningar til
alþingis var til umræðu.
Svavar vitnaði til ræðu Geirs
Hallgrímssonar þegar stjórnar-
skrárfrumvarpið var til umræðu á
síðasta þingi. Það frumvarp sem nú
er til umræðu um breytingar á
lögum um kosningar til alþingis er
viðhengi stjórnarskrárfrumvarps-
ins og eru flutningsmenn formenn
fjögurra stærstu stjórnmálaflokk-
anna. Geir Hallgrímsson hafði
áskilið flokki sínum rétt til að flytja
eða styðja ákvæði um að gengið
yrði til kosninga að stjórnarskrár-
frumvarpinu samþykktu, en slíkt
ákvæði hefur ævinlega verið í hlið-
stæðum frumvörpum um stjórnar-
skrárbreytingar. Svavar kvað því
ástæðu til að spyrja núverandi for-
mann Sjálfstæðisflokksins hvort
um það hafi verið samið milli
stjórnarflokkanna að ríkisstjórnin
sitji út kjörtímabilið þrátt fyrir
kjördæmamálið.
Svavar vitnaði einnig til ræðu
Steingríms Hermannssonar frá síð-
asta þingi um stjórnarskrármálið,
þar sem Steingrímur kvað Fram-
sóknarmenn ekkert vera því til
fyrirstöðu að efna til nýrra kosn-
inga um rnálið, ef sterkur meiri-
hluti hefði skapast og drægi úr
verðbólgu. Spurði Svavar Stein-
grím hvort hann væri reiðubúinn
að tryggja að efnt verði til kosninga
samkvæmt hinum nýju kosninga-
lögum Umræðunni var frestað að
loknu máli Svavars, svo formenn
stjórnarflokkanna fá umhugsunar-
frest áður en þeir svara spurning-
unum.
-óg
Engin ástœða að
kvíða lóðaskorti:
44 lóðum
Á þriðjudag var úthlutað 44 lóð-
um í borgarráði, flestum í Grafar-
vogi, þar af 25 til einingahússfram-
leiðenda, Húsasmiðjunnar og
Byggingaíðjunnar. Þessir aðilar
hafa auglýst húsin fokheld fyrir
sama verð og þriggja herbergja
íbúðir ganga á í borginni með hag-
stæðum kjörum.
Á síðasta borgarstjórnarfundi
kvartaði borgarstjóri undan því að
Þjóðviljinn tæki ekki eftir því
hvernig lóðir „rynnu nú út“ í Graf-
arvogi. Hann spurði hvað orðið
hefði um kortið góða, sem einu
sinni var birt á baksíðu blaðsins og
taldi nauðsynlegt að birta það í nýj-
an leik.
Sigurjón Pétursson sagði það
úthlutað
rangt að borgarfulltrúar og Þjóð-
viljinn hefði ekki tekið eftir úthlut-
unum og skýrt frá þeim. Hins vegar
benti hann á að engin ástæða væri
til að kvíða lóðaskorti í Grafarvogi,
- það væri talsvert langt í land með
það, ennþá.
21. febrúar s.l. var búið að út-
hluta samtals 142 lóðum í Grafar-
vogi 1. áfanga, eða um helmingi
Einingahús í
Grafarvogi boðin á
rúmar 2 miljónir.
þeirra lóða sem þar verða en þær
eru 282. „Ég fagna því að lóðirnar
ganga út“, sagði Sigurjón, „og
auðvitað verður þeim öllum úthlut-
að fyrr eða síðar. Það hefur hins
vegar engin áhrif á þá staðreynd að
skipulagið var athugavert og at-
hugasemdir mínar og annarra við
það standa óhaggaðar."