Þjóðviljinn - 21.03.1984, Page 5
Migvikudagur 21. mars 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5
A Alþingi í gær var m.a. rætt um ráðstöfun vaxta af gengismunarfé til öryggismála sjómanna og til þess að jafna
lífeyrisrétt þeirra. Þingsályktun frá Alþýðubandalagsmönnum um hið síðarnefnda hefur ekki fengist afgreidd
frá nefnd ennþá.
Nefnd til að gera úttekt á
öryggismálum sjómanna
Umræður um ráðstöfun vaxta af gengismunarfé
í umræöum á Alþingi í síöustu
viku vakti Svavar Gestsson máls
á nauðsyn þess að þingið og ríkis-
stjórn tækju sérstaklega á örygg-
ismálum sjómanna í ljósi þeirra
sjóslysa sem orðið hafa í vetur og
upplýsinga sem fram hafa komiö
um að þar sé víða pottur brotinn.
Lagði hann til að Alþingi fæli
ríkisstjórninni að skipa sérstaka
nefnd til þess að gera úttekt á
öryggismálunum og gera tillögur
um úrbætur og fjárútvegun til
þeirra. svo og eftirlit með frarn-
kvæmd ráðstafana á þessu sviði.
í umræðum er snertu ráðstöfun
gengismunar, þar sem m.a. var
rætt um að ráðstafa vöxtum af
gengismunarfé til öryggismála,
kom fram að í gærmorgun tók
ríkisstjórnin ákvörðun um að
skipa sérstaka 9 manna úttektar-
nefnd til þess að sinna þeim verk-
efnum sem Svavar Gestsson
hafði gert að umræðuefni á Al-
þingi.
- ekh
Á þessu línuriti Hjörleifs Kvaran, skrifstofustjóra hjá borgarverkfræöingi, má sjá hversu stórt hlutfall erfarið út
af lóðum í Grafarvogi og hvernig lóðirnar hafa gengið út frá áramótum.
Mikil eftirspurn eftir lóðum:
Einíngahús slá í gegn
Allar lóðir búnar í Seljahverfi og saxast hratt á Grafarvog
í gær úthlutaði borgarráð síð-
ustu 4 lóðunum sem cftir voru við
Jakasel og cru lóðir í Seljahverfi þá
uppurnar. Þá saxast hratt á lóðir í
fyrsta áfanga í Grafarvogi og áber-
andi er hversu margir hyggjast
reisa þar einingahús, bæði bygg-
ingarfyrirtæki og einstaklingar. í
Grafarvogi eru nú eftir 42 einbýlis-
húsalóðir og 4 raðhúsalóðir í fyrsta
áfanga og 17 einbýli og 20 raðhús í
2. áfanga. I Selási eru hins vegar
tilbúnar lóðir undir 51 einbýlishús
og 38 raðhús og ganga þær hægt út.
Að sögn Hjörleifs Kvaran, skrif-
stofustjóra borgarverkfræðings,
munu ýmis einingahúsafyrirtæki
reisa um 70 einingahús í Grafar-
vogi í sumar og hefur sala þeirra
gengið vel. „Menn eru farnir að
koma hingað aftur frá þessum
fyrirtækjum", sagði Hjörleifur,
„þvísalan hefurgengið mjög greið-
lega. Auk þess munu margir ein-
staklingar sem fengið hafa lóðir,
reisa sér einingahús, enda eru þau
ekki eins dýr miðað við aðrar ný-
byggingar og ótvírætt hagræði að
stuttum byggingatíma“.
í fyrsta áfanga Grafarvogs voru
til úthlutunar samtals 281 lóð í
fyrra og fram í fyrstu viku febrúar
varlítil hreyfing á þeim, en þá voru
farnar þar út innan við 100 lóðir. Á
síðustu vikum hefur hins vegar
komið mikill fjörkippur í lóðaút-
hlutun þar og nú hefur samtals 239
lóðum verið úthiutað í þeim
áfanga. Þær eru allar byggingar-
hæfar en í sumar bætast við 82 lóðir
í öðrum áfanga og verða þær bygg-
ingarhæfar í júlí. 45 þeirra hefur
þegar verið úthlutað.
Flest einingahúsin reisir Ösp, 24
taisins, þá Húsasmiðjan 20, Bygg-
ingaiðjan 16, Trésmiðja Fljótsdals-
héraðs 8 og Húseiningar, Sigluf-
irði, 3 hús. _ ái
Ráðstafað til
öryggismála
fjöldi sjómanna notið þessara rétt-
arbóta.
og til jöfnunar
á lífeyrisrétti
sjómanna
í umræðum um ráðstöfun
gengismunar á Alþingi í gær komu
fram ábendingar uni að verja vöxt-
um af gengismun til öryggismála
sjómanna og til þess að bæta stöðu
sjómanna hjá almennum lífeyris-
sjóðum. Kinnig kom fram að tillaga
til þingsályktunar um lífeyrismál
sjómanna sem Svavar Gestsson
lagði fram í haust ásamt fleiri þing-
mönnum Alþýðubandalagsins hef-
ur ekki fengist afgreidd frá allsherj-
arnefnd sameinaðs þings.
Lagst á málið í nefnd
í svari við fyrirspurn Péturs Sig-
urðssonar um ráðstöfun gengis-
munar eftir gengisfellinguna 27.
maí 1983 upplýsti Halldór Ás-
grímsson að áætlað væri að geng-
ismunarféð yrði samtals um 600
miljónir króna. Þar af er áætlað að
um 30 miljónir króna renni til líf-
eyrissjóða sjómanna, og hafa 15
miljónir króna ekki verið greiddar,
en verið er að ræða um endanlegar
reglur um skiptingu þess fjár við
Farmannasambandið og Sjómann-
asambandið. Einnig kemur fram
að vextir námu 17.8 miljónum á sl.
ári af gengismunarfé, en ekki hafa
verið reiknaðir vextir frá 1. jan.
1984, þó áætlað óinnkomið fé sé
149.5 miljónir króna. Ábendingu
frá Pétri Sigurðssyni um að verja
vaxtatekjum til öryggismála sjó-
manna var vel tekið af þing-
mönnum. Þá benti Svavar Gests-
son á að nauðsynlegt væri að laga
stöðu sjómanna gagnvart almennu
lífeyrissjóðunum og minnti á þings-
ályíctun um lífeyrismál sjómanna í
því sambandi. Guðrún Helgadótt-
ir, sem sæti á í allsherjarnefnd
Sameinaðs þings, upplýsti að þrátt
fyrir ítrekaðan eftirrekstur hefði
ekki tekist að fá þessa tillögu af-
greidda frá nefndinni, sem Ólafur
Þórðarson stýrir.
Tillaga
Alþýðubandalagsmanna
f umræddri tillögu er gert ráð
fyrir að ríkisstjórnin skipi nefnd til
að athuga lífeyriskjör sjómanna og
gera tillögu um samræmingu líf-
eyrisréttinda þeirra. Til skýringar
skal þess getið að í tíð síðustu ríkis-
stjórnar var tekin ákvörðun um að
sjómenn gætu átt rétt til ellilífeyris
við 60 ára aldur. í þessu skyni var
lögum um almannatryggingar
breytt. Sama árið var tekin sú
ákvörðun að þessi regla - um 60 ára
aldur - tæki einnig gildi fyrir þá
sjómenn sem eiga rétt til lífeyris
innan Lífeyrissjóðs sjómanna. Síð-
an þessum lögum var breytt hefur
Akvörðun um
viðbótargreiðslur
f greinargerð með þingsályktun-
artillögunni segir: „Nú hafa um-
ræðurnar um lífeyrismál sjómanna
ekki aðeins snúist um misræmi í
lífeyrisrétti innan Lífeyrissjóðs sjó-
manna. Þar hefur fleira komið til
og þá einkum það sent fyrst var
nefnt, að eftir að tryggður var líf-
eyrir við 60 ára aldur í Lífeyrissjóði
sjómanna og innan almannatrygg-
inganna, hefur komið fram að
fjöldi sjómanna, sem er.innan al-
mennu lífeyrissjóðanna, gerir
auðvitað kröfur til sömu réttinda.
Hér er því unt vandasamt mál að
ræða og flókið sem þarfnast úr-
lausnar. Allir, sem hafa tekið til
ntáls, eru sammála urn nauðsyn
þess að sjómenn fái rétt til lífeyris
við 60 ára aldur hvar sem þeir eru í
lífeyrissjóði. Spurningin er þá um
það hvernig greiða á þann umfram-
kostnað sem hlýst af 60 ára lífeyris-
aldri sjómanna. í almannatrygg-
ingum er þessi kostnaður greiddur
með beinum skattgreiðslum í gegn-
um ríkissjóð. í Lífeyrissjóði sjó-
manna og öðrum lífeyrissjóðum er
hinsvegar um að ræða venjulegar
iðgjaldagreiðslur - ekki hærri en
annarsstaðar. Ef 60 ára lífeyrisald-
ur á að verða almennur fyrir sjó-
menn verður því annað tveggja að
gerast: Að sjómenn greiði iðgjald
af stærri hluta tekna sinna en verið
hefur, eða að gengið verði frá því
að ríkissjóður greiði hluta af þess-
um kostnaði lífeyrissjóðanna við
lægri lífeyrisaldur sjómanna."
Um þetta verður að semja á veg-
um stjórnvalda og hagsmunasam-
taka og tillagan var flutt til þess að
ýta á eftir því að þetta sanngirnis-
mál næði fram að ganga. _ ekh
Einstefna
vestast á
Vesturgötu
í gær samþykkti borgarráð
tillögu umferðarnefndar um að
beina gegnumakstri frá Vestur-
götu með því að taka upp ein-
stefnuakstur í vestur á vestast-
ahluta hennar frá Framnesvegi
að Ánanaustum. Ekki verður
því lengur leyft að aka þann
kafla í austurátt og verða öku-
menn sem koma utanaf Granda
eða Seltjarnarnesi að fara
Hringbraut eða Mýrar-
götu/Tryggvagötu í staðinn.
Borgarráð frestaði hins vegar
afgreiðslu á tveimur öðrum til-
lögum umferðarnefndar um
umferðarmál í Vesturbæ: að
setja upp hraðahindranir á
Vesturgötu og Bræðraborgar-
stíg.
Opinn fundur í MH:
Framtíð Old-
ungadeilda
í kvöld, miðvikudaginn 21.
mars kl. 20.30 gcngst Oldunga-
ráð Menntaskólans við Hamra-
hlíð fyrir opnum fundi um stöðu
öldungadeilda innan skólakerfis-
ins og hvernig þær munu tengjast
lögum um framhaldsskóla og full-
orðinsfræðslu. Fundurinn verð-
ur haldinn í samkomusal MH.
' Gestir fundarins eru Ragnhild-
ur Helgadóttir, menntamálaráð-
herra, Guðmundur Magnússon,
háskólarektor, Guðmundur Arn-
laugsson, fyrrverandi rektor MH
og núverandi rektor skólans,
Örnólfur Thorlacíus.
í frétt frá Öldungaráði er bent
á að á s.l. 10 árum hafa verið lögð
fram á alþingi sex frumvörp til
laga um framhaldsskóla og' fjögur
um fullorðinsfræðslu. Ekkert
þessara frumvarpa hefur hlotið
afgreiðslu.
Nemendur ölduijgadeildar
MH hvetja alla sem áhuga hafa á
stöðu og framtíð öldunga-
deildanna að fjölmenna á fund-
inn. '