Þjóðviljinn - 21.03.1984, Qupperneq 6
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 21. mars 1984
Leynistöðin í Fœreyjum
Þjónar bandarísku
njósnaþjónustunni NSA
Radarlnn á Sornfelli: árum saman hafa menn rifist um þessa stöð í Færeyjum - en vissu ekkert um „stöðlna
innan stöðvarinnar".
Myndin sýnir fertuga konu, sem misst hefur hægra brjóst og fengið nýtt með góðum árangri hjá lýtalæknum við
Karolínska sjúkrahúsið í Stokkhóimi.
Nýjungar í lœknisfrœði:
Smásjáraðgerðir auka
möguleika lýtalækninga
Framfarir í lýtalækningum á síðasta áratug hafa stór-
bætt batavonir margra þeirra sem vegna vansköpunar,
slysa eða sjúkdóma hefðu að öðrum kosti mátt þola varan-
leg líkamslýti.
Helsta nýjungin á þessu sviði er að læknar eru nú farnir
að framkvæma aðgerðir undir smásjá með svo fíngerðum
nálum og þráðum að þeir eru vart sjáanlegir með berum
augum. Þannig hefur læknum tekist að sauma saman
æðar sem eru um einn millimetri í þvermál, og hefur þessi
tækni gert það mögulegt að flytja stóra bita af vöðva- eða
húðvef á milli líkamshluta.
Eins og skýrt var frá í frétt
hér í blaðinu í gær hefur um
aldarfjórðungs skeið verið
rekin fyrir bandaríska herinn
fjarskiptastöð á Færeyjum,
sem gengur þvert á yfirlýsta
stefnu Dana og Færeyinga í
herstöðvamálum.
Bandaríska tímaritið
„Varnarmál" segirfrá þessu í
nýlegri grein. Mannvirkið er í
eigu bandaríska flughersins
segir þar og er rekið sem
hluti af NARS (North Atlantic
Radio System) sem er svo
partur af DCS, fjarskiptakerfi
hersins, sem spannar allan
hnöttinn.
NARS er utan viö þau fjarskipt-
akerfi sem Bandaríkjamenn reka í
samvinnu við önnur Natóríki og
hefur því ávallt gegnt sérbanda-
rískum þörfum. Danir hafa því
enga hugmynd um það hverskonar
upplýsingar fara um kerfi þetta.
Mikið kerfi
f um það bil 20 ár hefur NARS
verið kjarninn í neti sem miðlar
upplýsingum sem hleraðar hafa
verið um allan hnöttinn til aðal-
bækistöðva NSA, National Secur-
ity Agency í Fort Meade í Banda-
ríkjunum. Hér er um að ræða
njósnaþjónustu sem er ekki aðeins
beitt gegn löndum austurblakkar-
innar. Fyrrgreint tímarit, sem fjall-
ar um hermál á gagnrýninn hátt,
heldur því fram að á Vesturlöndum
hafi NSA ríflegan aðgang að því að
hlera símakerfi og þ.á m. símtöl
sem fara um neðansjávarstrengi
jafnt sem gervihnetti. Auk þess
þjónar NARS kjarnorkuvopnaliði
Bandaríkjanna í Evrópu
NSA er öflugasta bandaríska
leyniþjónustan. Henni var komið á
fót áríð 1952 með það fyrir augum
að samræma störf njósnaþjónustu
hers, flughers og flota.
Stöðin innan stöðvar
Sú stöð, sem hér um ræðir, er í
eign flughersins. Henni var komið
upp á Sornfelli skammt frá Þors-
höfn í sambandi við radarstöð Nató
í Færeyjum á árunum 1959-1962.
Stöðin miðlar leynilegum upplýs-
ingum fyrir NSA sem fara um á
dulmáli þannig að öngvir aðrir en
þeir sem eru á endastöðvum NSA
skilja hvað er á seyði. Á Sornfelli!
eru bandarískir starfsmenn, sem
annast viðhald og fleira þesslegt,!
en þeir vita ekki hvað um tæki
þeirra fer.
Það er ekkert óvenjulegt við
það, að NARS-stöðin í Færeyjum
deilir fjallstindi með radarstöð á'
vegum Nató. í öðrum löndum, þar
sem erfitt er að koma við ódulbú-
inni nærveru bandarísks herliðs
eða hernaðarmannvirkja, er málið
gjarna leyst með því að koma slík-
um mannvirkjum fyrir innan
stöðva sem tilheyra viðkomandi
landi (hér danska hernum). Slíkar
„stöðvar innan stöðva" eru algengt
fyrirbæri hjá bandamönnum
Bandaríkjanna um heim allan.
NARS-kerfið
Fyrrgreint NARS kerfi er keðja
fimmtán svonefndra troposferískra
stöðva, sem er dreift um Bandarík-
in, Kanada, Grænland, ísland,
Færeyjar og Skotland og síðan er
það tengt við önnur bandarísk fjar-
skiptanet á Englandi og á megin-
landi Evrópu. Stöðvarnar virka
þannig að UHF eða SHF merki er
sent af mjög öflugri sendistöð upp í
troposferuna, sem er eitt af efri
lögum andrúmsloftsins. Þaðan
endurkastast boðið í allar áttir, en
loftnet sem er hliðstæða við það
Sænska blaðið Dagens Nyhet-
er hefur það eftir sérfræðingum
við Karolinska sjúkrahúsið í
Stokkhólmi að með slíkum að-
gerðum - sem geta tekið allt upp í
18 klukkustundir - hafi læknum
tekist að græða afhöggna fingur á
menn, endurnýja brunninn húð-
vef og byggja upp nýjan andlit-
svef eða holur sem myndast hafa
eftir æxli sem hafa verið fjarlægð.
Áður en þessi tækni kom til sög-
unnar urðu margir þessara sjúkl-
inga að búa við ævilöng líkams-
lýti.
Húðftutningur
Ein þeirra nýjunga sem lýta-
læknar hafa tekið upp er að flytja
þunnt húðlag frá heilbrigðum lík-
amshluta, venjulega á baki, yfir á
svæði þar sem húð hefur eyði-
lagst. Er heilbrigðu húðinni flett
af í þunnri sneið með tæki sem
virkar líkt og ostahnífur. Þessi
þunna húð grær auðveldlega á
hinu skaðaða svæði, og sárið á
bakinu læknast eins og hvert ann-
að svöðusár. Læknarnir segja að í
rauninni sé hægt að taka þannig
húð af sama svæðinu allt að 6
sinnum.
Vandinn verður meiri þegar
flytja þarf dýpri stykki af líkam-
anum með húð, fitulagi og vöðva-
vef. Yfirleitt eru slíkar tilfærslur
gerðar þannig að vefur sá sem
flytja á er ekki losaður að fullu frá
sínum upprunalega stað, heldur
nýtur þaðan blóðgjafar og nær-
ingar á meðan hann er að festa
rætur og gróa á sínum nýja stað.
Aðferð þessi byggist á því að lík-
amshluti sem hinn yfirflutti vefur
er tekinn frá sé þannig staðsettur
að hægt sé að leggja hann upp að
hinum skemmda líkamshluta á
meðan vefurinn er að gróa fastur.
Síðan er skorið endanlega á milli.
Þannig verður sjúklingurinn að
liggja með krosslagða fætur í
heilan mánuð sé um flutninga að
ræða frá einum fæti til annars, en
slíkt er hættulegt fyrir eldra fólk
og nánast ógerlegt með ungbörn.
Það er í þeim tilfellum sem hin
nýja smásjártækni við vefjaflutn-
ing hefur komið til hjálpar, því
hún hefur gert það kleift að losa
jafnvel stærri vefjarhluta frá
heilbrigða staðnum og tengja síð-
an æðarnar við æðar í sárinu sem
á að græða þannig að ágræðsla
verði möguleg.
Algengustu tilfelli lýtalækni-
nga eru holgómsaðgerðir, sem
gerðar eru á börnum sem fædd
eru með klofna efrivör og klofinn
góm. Aðgerð þessi er yfirleitt
gerð snemma til þess að börnin
geti lært að tala með eðlilegum
hætti.
sem haft var til sendinga grípur
hluta geislans og magnar hann og
sendir áfram. Þessi tækni hefur
síðan á sjötta áratugnum þótt ódýr-
ari og ekki eins viðkvæm og önnur
langdræg fjarskiptakerfi. Með
tengingu við Alaska og Thule á
Grænlandi varð kerfið um 1960
hluti af BMEWS,Viðvörunarkerfi
við eldflaugum, og er þetta kerfi
enn notað til að fylgjast með til-
raunum Sovétmanna með eld-
flaugar. Þá er NARS og tengt við
upplýsingasöfnun flotans um það
hvar sovésk skip eru niðurkomin á
hverjum tíma.
Vita allt
En NARS-kerfið er ekki aðeins
haft il að miðla upplýsingunt sem
hafðar eru til viðvörunar. Það
flytur einnig upplýsingar sem hler-
aðar hafa verið í símakerfum ann-
arra. Á friðartímum getur NSA
notað kerfi sitt m.a. til að grípa
upplýsingar um erlend fyrirtæki
sem Bandaríkjamenn hafa áhuga
á, um efnahagsleg vandræði ýmis-
konar, markaðsvandamál, málm-
fundi og margt fleira.
„Það eru engar ýkjur að halda
því fram, segir tímaritið Varnarm-
ál, að ef Bandaríkin geta í þeim
mæli sem raun ber vitni haft eftirlit
með heiminum, þá er það ekki í
krafti hótunar um að beita kjarn-
orkuvopnum eða senda sjóðliðana
á vettvang, heldur vegna þess að
Bandaríkjamenn vita næstum því
allt sem þörf getur verið á að vita
að gerist í heiminum“.
áb tók saman eftir Information.
Lýti á andlistbeinum, t.d. höku
eða nefi, er hægt að laga með því
að færa hluta úr rifbeinum sjúkl-
ingsins í skarðið.
Að endurskapa
konubrjóst
Önnur algeng lýti eru þau sem
verða þegar konur missa brjóst
vegna krabbameins. Hér á landi
eru árlega skráð um 80 tilfelli
brjóstakrabba hjá konum, og er
algengasta lækningaraðferðin sú
að fjarlægja brjóstið eða hluta
þess. Síðastliðin 10 ár hafa sæn-
skir lýtalæknar stundað það að
endurskapa brjóst á konur sem
misst hafa brjóstið. Hefur þeirri
aðferð verið beitt að græða púða
úr kísilgúmmíi á brjóstið samfara
húðtilfærslu. Segja læknarnir að
einungis 5% þeirra kvenna sem
misst hafi brjóst hafi gengið undir
þess konar aðgerð síðastliðin 10
ár, en um helmingur þeirra
kvenna sem þannig hafa fengið
ný brjóst hefur að sögn sænskra
lækna fundið mikinn mun á sál-
rænni og félagslegri líðan, jafnvel
þótt hið nýja brjóst verði aldrei
nákvæmlega eins lagað og það
sem fyrir er, og ekki verði komist
hjá því að nokkur ör myndist eftir
aðgerðina.
Annar sjúkdómur sem komið
hefur til eftirmeðferðar hjá lýta-
læknum er illkynja sortuæxli í
húð, sem myndast út frá litarf-
rumum húðarinnar. Slíkum
krabbameinstilfellum hefur fjöl-
gað mjög í Svíþjóð á síðari árum.
Ástæðan er fyrst og fremst talin
vera aukin sólböð í sólarlöndum
Miðjarðarhafsins og víðar, þar
sem sólarhæðin er önnur en á
norðurslóðum. Samanburðarat-
huganir sýna að innfluttir
Norðurlandabúar í Ástralíu eru
mun næmari fyrir þessum sjúk-
dómi þar en Evrópubúar sem
koma frá Miðjarðarhafslöndun-
um. Nái þetta æxliaðgrafasig inn
og komast inn í sogæðakerfið er
það lífshættulegt, en sé gripið til
aðgerða í tæka tíð er hægt að fjar-
lægja það og nálægasta hluta um-
lykjandi húðvefs, sem síðan er
hægt að græða á ný með húðflutn-
ingi frá öðrum stað á líkamanum.
ólg./DN