Þjóðviljinn - 21.03.1984, Qupperneq 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 21. mars 1984
Núverandi heilbrigðisráðherra
gaf á sínum tíma vissum umsvifa-
mönnum í kaupsýslu og ýmiskonar
braski nafngiftina „gróðapungar".
Meðal þeirra mun núverandi fjár-
málaráðherra hafa verið ofarlega á
blaði.
í þá daga vissi Matthías Bjarna-
son hvar fjármuni var að finna, en
nú hefur ráðherra tekið þessi dek-
urbörn á sína arma, eins og sak-
lausa hvítvoðunga sem veita beri
aukna umönnun, svo þau megi sem
best dafna og eflast.
Nýja „gróðapunga" hefur ráð-
herra uppgötvað meðal sjúklinga á
sjúkrahúsum en slíka uppgötvun
hefur enginn áður gjört hér mér
vitanlega.
Sýnir þessi uppgötvun ráðherra
að víða leynist fólgið fé.
Pyngjur „gróðapunga“, hverra
þanþol er þó mikið, eru að springa
af ofþenslu, verða því brátt aflagð-
ar og gámar teknir í notkun í þeirra
stað. Á gáma þessa verður letrað
gullnum stöfum: „Lok, lok og læs
og allt úr stáli“, enda ginnhelgir
gagnvart skattheimtu hins opin-
bera.
Skattheima öll skal framkvæmd í
öfugu hlutfalli við efni og ástæður
að sið hirðgæðinga Mammons, sem
nú sitja á trón hér á landi með
„Frjálshyggju-hugsjónina“ að
leiðarljósi. Hókus-pókusfræði
Friedmanns og lærisveina er sá
helgi boðskapur sem dæla skal í
heilabú lýðsins, svo honum skiljist
hverjir eru gjafarar allra gæða.
„Bananalýðvelda“-hugsjónin
svífur hér yfir vötnum, enda hefur
„Guðs eigin stjórn" í „Guðs eigin
landi“ stutt og eflt slíkt stjórnar-
form enda mjög hugleikið að koma
slíku stjórnarformi á meðal ann-
arra þjóða svo sem kunnugt er,
enda í anda sannrar Frjálshyggju.
Alþjóðlegir auðhringar eru að
sjálfsögðu burðarásar í efnahags-
legri og andlegri velferð „banan-
ísks“ þjóðlífs, enda flestir upp-
runnir í „Guðs eigin landi“ þar sem
mannréttindi og lýðfrelsi eru víst í
hávegum höfð, svo sem indjánar
og negrar hafa góða reynslu af og
sagan vottar.
Auðhringar í öðrum ríkjum hafa
að sjálfsögðu sótt þangað fyrir-
myndir, nema hvað? Engan þarf
því að undra, þótt iðnaðarráðherra
vor bregðist hart við þegar vinnu-
lýðurinn í Álverinu í Straumsvík
setur fram ósvífnar kröfur á hendur
hinu guðdómlega fyrirtæki, sent
ekki vill vamm sitt vita og þekkt er
að heiðarlegum sarhskiptum við
ríki og þjóð. Meðal annars með
hóflausum greiðslum fyrir orku og
ýmiskonar annan fjáraustur til
okkar fátæku og fámennu þjóðar,
bæði nú og fyrr. Iðnaðarráðherra
hefur sem sé tjáð oss að launakjör
starfsmanna séu þegar svo há, að
hann og hans líkar lepji dauðann úr
krákuskel miðað við þá. Hafa þó
flestir haldið að ráðherrann ætti vel
fyrir grjónagraut, hvað sem hæft er
nú í því.
Hátekjulýðinn í Straumsvík ku
ráðherrann ætla að taka til sér-
stakrar meðhöndlunar fyrir ósvífn-
ar kröfur og hortugheit og láta
hann vita í eitt skipti fyrir öll, hver
valdið hefur, svo lýður þessi raski
ekki ró hans í framtíðinni, þegar
hann vill slappa af, eftir erfið og illa
launuð störf, við laxveiðar í Hrúta-
fjarðará.
Utanríkisráðherra höfum við
með afbrigðum þjóðhollan. Hann
telur þjóðfrelsi okkar og sjálffor-
ræði tryggt með því að fela stjórn-
endum „Guðs eigin þjóðar“ í
„Guðs eigin landi“ alla forsjá slíkra
málafolkka undir kjörorðunum:
„sjálfstæði smáþjóðar er best
tryggt með því að fórna því“. Hefur
ráðherrann unnið ötullega að
framgangi þessara hugðarmála
sinna og orðið vel ágengt. !
Heimsfriðinn telur ráðherran
best tryggðan með aukinni fram-
leiðslu kjarnavopna. Því fleiri
helsprengjur, því meiri friður. Pað
gefur auga leið að friður hér á landi
er best tryggður með sem flestum
helsprengjum í landinu sjálfu. Má
því vænta þess að ráðherrann hefji
nú innflutning á þessum friða-
rtáknum sínum.
Fjármálaráðherra eigum við svo
frægan, að sj álf heimspressan fylgir
hverju hans fótspori og má vart
vatni halda sökum fórnarlundar
ráðherra í þágu hunda og hundalífs
í Reykjavík og víðar.
Hið opinbera „kerfi“ telur ráð-
herra af hinu illa. Einn angi þeirrar
ófreskju lætur sig hundalíf í
Reykjavík máli skipta og vill banna
hundalíf í höfuðborginni. Gegn
þessu hefur ráðherrann snúist af
myndarskap, svo sem áður er geúð
og frægt er orðið. í framhaldi af
þessu hefur ráðherrann orðið þess
vís, að fleira lifa hundalífi í Reykja-
vík en hundar og hefur nú leitast
við að bæta úr því að nokkru.
En þessar aðgjörðir ráðherrans,
sem bæta munu réttindi og að
nokkru laun ýmissa láglaunahópa í
þjóðfélaginu, voru hreint brot á
stjórnarstefnunni. Var þá ekki að
sökum að spyrja. Leiftursóknarlið-
ið með formann Sjálfstæðisflokks-
ins og sjúkraskattshöfundinn í
broddi fylkingar hóf grimmilegar
Skjöldur
Eiríksson
skrifar
árásir á fjármálaráðherrann fyrir
afglöp og heimsku og hafði í hótun-
um. Ástæðan er ljós. „gróðapung-
arnir“ sáu að ef til vill þyrftu þeir að
opna smárifu á gámunum sínum,
en það var nú aldeilis ekki meining-
in. Sýnilegt er að Albert hefur ekki
gert sér Ijóst, hver í raun og veru
eru stefnumarkmið þessarar
stjórnar, þ. e. Bananalýðræðishug-
sjónin, að gera þá ríku ríkari, en þá
fátæku fátækari. Því fór sem fór.
Yfir öllu þessu trónar forsætis-
ráðherrann með sína grautarskál
og hrærir og hrærir. Að lokinni
máltíð reigsar hann á skíðum upp á
fjallatinda hérlendis og erlendis.
Þar uppi á hátindum fær hann að
eigin sögn yfirsýn yfir erfiðleika ís-
lensks efnahagslífs og sér hinar
einu sönnu lausnir. Útsynnings-
bólstrarnir færa fonum „banan-
fska“ hugljómun frá „Guðs eigin
landi“. Efnahagsstefnan er mörk-
uð, sú eina rétta.
Hvernig væri nú ef ráðherra
héldi sig nær mannabyggðum og
skyggndist þar um í ró og næði,
gengi um jökulruðninga borg-
arstjórans í Reykjavík á gangstétt-
unum, en sleppti einni hugljóm-
unarferð eða svo upp á fjallatinda
og íhugaði það líf sem fjöldinn
lifir? kannski birtist honum þá
önnur sýn en sú er hann hlaut fjarri
öllum raunveruleika. Kannski og
kannski ekki?
Kannski gildir hér margrætt
kvótakerfi, þ. e. að þegar minna er
til skipta skuli þeir mest fá er mest
fengu áður?
Faðmlög SÍS, Moggans, Davíðs
borgarstjóra og fleiri í Isfilm er tím-
anna tákn, enda breyttir tímar.
Hugsjónabreytingin í forystu Sam-
vinnuhreyfingarinnar er alkunn
staðreynd.
I sjónvarpsþætti fyrir alllöngu
síðan, þar sem komu fram Eyjólfur
Konráð Jónsson, Erlendur Einars-
son forstjóri SIS og þriðji aðili sem
ég man ekki nafn á, var rætt um
ýmis viðskiptaform. Þar lýsti for-
stjóri SÍS því yfir, að hann væri
algjörlega á móti ríkisrekstri, en
væri mjög hlynntur frjálsri sam-
keppni og fleiru í þeim dúr. Eyjólf-
ur Konráð sagðist geta tekið undir
allt sem Erlendur sagði og hafði
þar litlu við að bæta.
„Frjálshyggja “ Eyjólfs og sam-
vinnuhugsjón Erlends féllust í
faðma og voru þau faðmlög heitari
en orð fá lýst. Að vísu kom ein-
kennileg yfirlýsing frá Erlendi í lok
þáttarins, þegar stjórnandi spurði
hann um hver væri lífsskoðun hans.
Því svaraði Erlendur á þann veg að
hann væri socialdemokrat.
Eitthvað bögglaðist þessi yfirlýs-
ing fyrir brjósti ýmissa hlustenda
og má hver lá þeirn sem vill. Þarna
birtast sem sé samvinnuhugsjónin
og sósíalisminn alveg í nýju gervi.
Það fer því ekki illa á því að Davíð
borgarstjóri þjóni hinum nývígðu
elskendum, Mogganum og SÍS,
bæði til borðs og sængur og fylgist
með ástaratlotum elskendanna í
hjónasænginni, færandi þeim brúð-
argjöf frá borgarsjóði. Á vegg yfir
hjónabeðnum mun upphengd
mynd af dýrlingnum Svarthöfða í
gullnum ramma. Guðdóminn í
ásýnd hans sjá víst fáir nema Davíð
og hinir ástsjúku elskendur, enda
annaðist dýrlingur þessi vígslu hjú-
anna og lagði hendur yfir með
blessunarorð Mammons á vörum.
Ljósfælnar rökkurvofur svífa yfir
sænginni enda gluggar byrgðir og
ljós deyfð. Hókus-pókus-fræði
Friedmanns eru lesin við rekkju-
stokk svo að elskendur megi fá
góðar hvíldir eftir nautnasjúkar
bólfarir. „Nýi Tíminn" er í garð
genginn.
Skjöldur Eiríksson
Tímaritið
s
„Islenskt mál“
Nýr
árgangur
kominn
út
Út er kominn 5. árgangur af
tímariti íslenska málfræðifé-
lagsins, „íslenskt mál og al-
menn málfræði“.
Að vanda er margt fróðlegra
greina í tímaritinu. Meðal ann-
ars má nefna grein Eiríks
Rögnvaldssonar um sagnalið-
inn í íslensku. Ingólfur Pálma-
son skrifar um framburð nokk-
urra Öræfinga, Suðursveitunga
og Hornfirðinga, Kristján
Arnason skrifar um áherslu á
hrynjandi í íslenskum orðum,
og ásamt Höskuldi Þráinssyni
skrifar Kristján um málfar
Vestur-Skaftfellinga. Randa
Mulford skrifar um viðskeytið
-ari, og Þórlindur Þórlindsson
skrifar um málfar og samfélag.
Ymislegt annað fróðlegt efni
um íslenska málfræði er að
finna í tímaritinu auk ritdóma
um nýlegar málfræðibækur.
->g-
Nýr og endurbættur blár
Ópal er nú kominn á markað
eftir nokkurt hlé á framleiðslu
þessa sælgætis. Nú eru því, eins
og áður, á boðstólum fjórar
tegundir af Ópal
Framleiðslu á bláum Ópal
var hætt í bili fyrir hálfu öðru
ári. Ástæðan var sú. að fyrir-
tækið ákvað að breyta þeirri
uppskrift, sem notuð var við
framleiðsluna, einkum til þess
að draga úr bragðefnainni-
haldi, sem æskilegt þykir að
hafa í lágmarki. Síðan hafa
staðið yfir tilraunir með sam-
setningu bláa Ópalsins í sam-
vinnu við svissneska fyrirtækið
Givaudan í Zurich. Nú inni-
heldur blár Ópal aðeins 1,4
prósent af aðalbragðefninu
chloroform. Leyfilegt magn,
samkvæmt nýrri reglugerð, er
hins vegar tvö prósent.
Rauður og blár Ópal hafa
verið uppistaðan í framleiðslu
Sælgætisgerðarinnar Ópal, frá
því að fyrirtækið var stofnað
1945.
Starfsmenn Sælgætisgerðar-
innar Ópals eru 30 til 35.
Þær hafa nóg að gera í pökkuninni núna þegar blái ópallinn er komið aftur á
markað
Nýr blár ópal
Sævar Ástráðsson bakarameistari við nýju brauðasamstæðuna í hinu nýja
húsnæði Brauðgerðarinnar KÁ á Selfossi. Mynd - Sigurður S.
Brauðgerð KÁ
í nýtt húsnæði
Fyrir skömmu var Brauðgerð
Kaupfélags Árnesinga flutt úr fyrri
húsakynnum við Eyrarveg 3 á Sel-
fossi í endurgert fyrrv. húsnæði
pantanadeildar kaupfélagsins við
Austurveg. Þá var og allur véla-
kostur bakarísins endurnýjaður við
flutninginn.
Keyptar voru brauðasamstæðu-
vélar frá Bretlandi og ofnar frá Sví-
þjóð. Mun afkastageta brauðgerð-
arinnar aukast um helming með til-
komu hinna nýju tækja og öll að-
staða starfsfólks batna til muna, en
sl. ár hefur brauðgerðin verið rekin
við mjög ófullnægjandi aðstæður.
Endurbætur og breytingar í hinu
nýja húsnæði brauðgerðarinnar
voru að mestu framkvæmdar af
smiðum KÁ, Sigfúsi Kristinssyni
byggingarmeistara, Selfossi og
Vigfúsi Sigvaldasyni múrarameist-
ara, Hveragerði.
Yfirmaður og bakarameistari
Brauðgerðar KA er Sævar Ást-
ráðsson en starfsmaður brauðgerð-
arinnar eru 9.
-Ig-