Þjóðviljinn - 29.03.1984, Side 1

Þjóðviljinn - 29.03.1984, Side 1
uoanum Breskar baráttukonur hafa vakið athygli um heim allan fyrir tveggja ára mótmælastöðu við Greenham Common her- stöðina. Tvær þeirra eru í viðtali við Þjóðviljann í dag. Opna mars fimmtudagur 75. tbl. 49. árgangur Samningur við sérfræðinga í læknastéttinni liggur fyrir Nýr sjúklingaskattur! • Tilvísunarkerfið lagt niður • Greiðslur sjúklinga fyrir sérfrœðiaðstoð margfaldast • Leggjast þyngst á aldraða • Launahækkanir til heim- ilislœkna allt að 60% Gengið hefur verið frá samningi við læknasérfræðinga í Reykjavík, sem hefur í för með sér stórhækkun útgjalda hjá þeim sjúkiingum sem þurfa að leita sérfræðiaðstoðar utan sjúkrahúsa. Þá er í burðarliðnum samningur við heimilislækna sem á að gilda fram til næstu áramóta og kveður á um talsverðar hækkanir á launum lækna eftir fjölda viðskiptavina þeirra. Meginbreytingin á samningnum við sérfræðingana er fólgin í því að hið svokallaða tilvísunarkerfi er lagt niður, þ.e. ekki þarf lengur tilvísun frá heimilislækni til að komast til sérfræðings. Til að þessi breyting nái fram að ganga þarf lagabreytingu og mun heilbrigðisráðherra tilbúinn að mæla fyrir henni á alþingi. Læknafélag Reykjavíkur hefur samninginn til athug- unar og Tryggingaráð Tryggingarstofnunar ríkisins fjallar um hann innan tíðar. í dag greiðir sjúklingur 100 krónur í hvert sinn sem hann leitar læknis- þjónustu sérfræðings en ellilífeyrisþegar og öryrkjar 50 krónur. Sam- kvæmt heimildum Þj óðvilj ans felst breytingin nú m. a. í því að sj úklingur greiðir 1/4 hluta kostnaðarins sem yrði frá 250 krónum og þaðan af meira fyrir hverja heimsókn. Mun samningurinn við sérfræðingana vera með öllu útgj aldalaus fyrir T ryggingastofnun ríkisins en kj arabætur sérf ræð- inganna koma úr vasa sjúklinganna. Samningurinn er til bráðabirgðaeins og það hefur verið orðað og í tilraunaskyni. Búist er við því að samningur við heimilislækna verði afgreiddur innan viku. Á hann að gilda fram til næstu áramóta, en þá er búist við því að heilsugæslukerfi komist áf Reykjavík. Kjarabætur læknannaeru afar mismunandi eða allt frá því að vera litlar sem engar upp í það að vera um 60%. Hið nýja kerfi á að stuðla að því að heimilislæknar hafi um 1750 númer, þ.e. viðskiptavini. Samningurinn nær til um það bil 20 heimilis- lækna í Reykjavík svo og nokkurra kollega þeirra í Hafnarfirði, Keflavík ogAkureyri. Formaður Stéttarsambands bænda: Ríkisstjórnin dregur úr niðurgreiðslum Ingi Tryggvason formaður Stéttarsambands bænda tilkynnti á bændafundi í Aðaldal sl. mánu- dag að ríkisstjórnin hefði ákveðið að draga úr niðurgreiðslum á bú- vöru til að afla fjár i félags- málapakka. Kvað Ingi Stéttar- sambandið hafa mótmælt þessari ákvörðun. Ingi Tryggvason kvaðst fá að ráða einhverju um hvernig niðurgreiðslurnar skipt- ust á cinstaka vöruflokka. Þor- grímur Starri greinir frá bænda- fundinum á bls. 2. - óg. k myndirm sest vel hvar girðingin ofan við Íbjarnargryfjuna hefur failið niður 'á storum kafla. annig hefur þetta vérið frá þvi um sl. aramót. iðrii gryfjýrvniuna þjmirnir gláðirviðsitt. Mynd:-eik i sm Afleiðing frjálsrar álagningar: Kindakjöt hækkar um rúm 10% Nokkrar verslanir hafa ekki hœkkað kjötið ennþá Sem kunnugt er var álagning á matvöru gefin frjáls um síðustu mánaðamót og er þess nú farið að gæta í mjög hækkuðu vöruverði. Sem dæmi má nefna að margar matvöruverslanir hafa hækkað álagningu á kindakjöti og hefur verð á kjötinu hækkað um 6- 10,3% vegna hækkaðrar álagn- ingar. Enn hafa nokkrar verslanir ekki hækkað kjötið, svo sem Hagkaup og Vörumarkaðurinn, JL og SS-verslanirnar, aftur á móti hefur Mikligarður hækkað verðið um 10,3%. Má sem dæmi nefna að eitt kíló af hrygg kostar nú í Miklagarði 158,05 kr. en kostaði 145,50 kr. 1. marssl. Kfló af lærissneiðum kostar 192,20 kr. en kostaði 1. mars 169,45 kr. Ekki er um sömu prósentuhækk- un að ræða á allan kjötskrokkinn, þeir hlutar hans sem mest er keypt af hækka mest, en jafnað- arhækkunin hjá Miklagarði nem- ur 10,31%. Af þeim verslunum, sem Þjóðviljinn hefur haft sam- band við og hafa hækkað álagn- inguna á kindakjötið er hækkun- in minnst í KRON við Snorra- braut 5,65%. Verðlagseftirlitið mun fylgjast með þessum hækkunum og því fara verslanir hægt í sakirnar til að byrja með, en ætlunin mun að smá hækka álagninguna svo að sem minnst beri á henni en þar sem hækkunin er misjöfn milli verslana, þarf fólk að kynna sér verð betur en áður. Ljóst er þó að veruleg hækkun verður á mat- vöru á næstunni vegna frjálsar álagningar. - S.dór. KRON f Kópavogi hef- ur á fundi sínum sam- þykkt ályktun varð- and aðild Sambands islenskra samvinnufé- laga að fjölmiðlunar- risanum ísfilm.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.