Þjóðviljinn - 03.04.1984, Qupperneq 4
4 SÍÐA - ÞJÓÐyiLJINN Þrigjudagur 3. aprfl 1984
MOÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýðs-
hreyfingar og þjóðfrelsis
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Framkvœmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Ritstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson.
Umsjónarmaður Sunnudagsblaðs: Guðjón Friðriksson.
Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson.
Augiýsingastjóri: ólafur Þ. Jónsson.
Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir.
Blaöamenn: Auður Stvrkársdóttir, Álfheiður Ingadóttir Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gísla-
son, ólafur Gíslason, Oskar Guðmundsson, Sigurdór Sigurdórsson, Valþór Hlöðversson.
íþróttafróttaritari: Víðir Sigurðsson.
Utllt og hönnun: Haukur Már Haraldsson, Þröstur Haraldsson.
Ljósmyndir: Atli Arason, Einar Karlsson.
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Auglýsingar: Sigríður Þorsteinsdóttir.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir.
Símavarsla: Margrét Guðmundsdóttir, Sigriður Kristjánsdóttir.
Húsmóðir: Bergljót Guðjónsdóttir.
Bílstjóri: ólöf Sigurðardóttir.
Innheimtum.: Brynjólfur Vilhjálmsson
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir.
Útkeyrsla, afgreiðsla og auglýsingar:
Síðumúla 6, Reykjavík, sími 81333.
Umbrot og setning: Prent.
Prentun: Blaðaprent hf.
Upplýsingar um
störf Alþingis
og borgarstjórnar
Forsenda þess að lýðræðið verði meira en kosninga-
form á nokkurra ára fresti er að almenningur fái ítar-
legar fréttir um stefnumótun og umræður. Alþingi og
borgarstjórn Reykjavíkur eru sá vettvangur þar sem
mikilvægustu málefnin koma til umræðu og fjölmiðlar
geta fylgst með málflutningi. í mörgum öðrum stofnun-
um fer ákvarðanatakan fram fyrir luktum dyrum.
Starfshættir Alþingis og borgarstjórnar hafa veruleg
áhrif á möguleika fjölmiðla til að flytja fréttir. Það er
rétt sem Morgunblaðið vakti athygli á í leiðara um
helgina að fundartíminn setur fréttaflutningi verulegar
skorður. Fundartími Alþingis og borgarstjórnar hvílir á
mjög gamalli hefð. Þegar hann var fyrst ákveðinn var
fjölmiðlakerfi landsmanna mun fábreyttara og tíminn
flaug ekki eins hratt í dómum um fréttagildi.
Morgunblaðið bendir réttilega á það að þegar fundir
borgarstjórnarinnar í Reykjavík eru haldnir síðdegis á
fimmtudegi og standa oft langt fram á kvöld er útilokað
að gera fjölmörgu fréttaefni skil í föstudagsblöðum.
Næsta dag knýja aðrir atburðir á um rúm í blöðum og
krafan um sífellt nýjar fréttir setur frásagnir af
fimmtudagsfundum borgarstjórnar til hliðar. Hið
breytta eðli helgarblaðanna setur einnig þröngar
skorður.
Þess vegna er það skynsamleg ábending í leiðara
Morgunblaðsins að borgarfulltrúar athugi möguleika á
að breyta fundartíma borgarstjórnar svo að fjölmiðlum
sé auðveldað að flytja borgarbúum nýjar fréttir um
störf borgarfulltrúann. Efalaust munu ýmsir segja að
fjölmiðlarnir eigi að laga sig að borgarstjórninni en
ekki öfugt. Það sjónarmið er einfaldlega ekki raunhæft.
Borgarstjórnin verður að taka mið af megineinkennum
fjölmiðlakerfisins.
Sama gildir um Alþingi. Sú hefð að hefja ekki opna
fundi fyrr en síðdegis og halda þeim svo áfram allt til
miðnættis dregur mjög úr fréttaflutningi frá Alþingi.
Þingfundir sem hæfust að morgni og lyki síðdegis
fengju mun betri umfjöllun í fjölmiðlun. Þingið í Kan-
ada breytti fundartíma sínum á þennan hátt fyrir nokkr-
um árum og hefur sú breyting gefist vel. Nefndarfundir
eru þar haldnir síðla dags og á kvöldin. Fjölmiðlar fá
góðan tíma til að gera þingefninu ítarleg skil í blöðum
næsta dags.
Þjóðviljinn tekur undir ábendingar Morgunblaðsins
um nauðsyn þess að breyta fundartíma Alþingis og
borgarstjórnar. Sú breyting myndi hafa í för með sér
ítarlegri fréttaflutning og stuðla að sterkari lýðræðisvit-
und almennings.
Flugleiðir og
fólkið í landinu
Þegar Flugleiðir glímdu við mikla erfiðleika í rekstri
var ákveðið að fólkið í landinu kæmi fyrirtækinu til
aðstoðar. Alþingi og ríkisstjórn samþykktu nauðsyn-
legar ábyrgðir í þessu skyni og fyrirtækinu voru veittir
fjárhagslegir styrkir.
Nú er komið í ljós að Flugleiðir skiluðu verulegum
hagnaði á liðnu ári. Þá er eðlilegt að fram komi tilmæli
um að fyrirtækið endurgreiði hluta styrksins í stað þess
að láta almenning borga. Yfirlýsing forstjóra fyrirtæk-
isins um að þeir ætli alls ekki að borga stríðir gegn
siðgæðisvitund landsmanna. Breytir þar engu þótt for-
stjórarnir vísi í formlegan bókstaf til að réttlæta afstöðu
sína.
Aður en gróði Flugleiða verður notaður til hagnaðar
fyrir eigendur fyrirtækisins er rétt að endurgreiða fólk-
inu í landinu þá fjármuni sem það lagði fram.
klippt
AJbert setti fram kröfu á hendur Flugleiðum: , * — v
Fulltrúi ríkis verði1 stjórnarformaður Vildi ráða vali forstjóra er þeirri kröfu var hafnaö iLBERT Guðmundsson, fjármála- Þessi afstaða fjármálaráðherra tækjum, sem ríkið á aðild að. Hini -áðherra, gerði kröfu tii þess, hefur vakið athygli, ekki sízt inn- vegar þykir óhrifamönnum innaj aokkru fjrrir aðalfund Fluglciða, að an Sjálfstœðisflokksins. Fyrir því Sjálfstæöisflokksins miður, a< mn»r fulltrúi ríkisins ístjórn félaga- eru tvær ástæðun annars vegar fjármálaráðherra úr röðun íns yrði kjörinn formaður stjóraar hefur fjármálaráðherra lýst því sjálfstæðismanna setji fram slíkt ttess. Fjármálaráðberra setii fram yfir/aðmnn vilji selja hlut rikis- kröfu á hendur fyrirtækVMi-tf bessa kröfu er Ijóat var orðið, að , ins í Ehjgleiðum og öðrum fyrir- miklum meirihlutaer í eiijlfli^ylj :Dp~ jgmm
llissa íslensku skipafé4o»n nutninga tynr nennn r ; „Set jum var narliðii 1 skilyrði sem við i —segir Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra AÍbort Guömundason tekur á mótl fjárframlögum í fata Sunnudaginn 1. apríl:
Ríkis-stór- bingó í Sigt
Gott grín
Það er sama hvernig maður
reynir að vara sig á 1. apríl, alltaf
lætur maður gabbast, mismikið
þó og áraskipti eru á því hvort
fjölmiðlunum tekst að hafa af
manni æruna. Ríkisfjölmiðlarnir
fóru á kostum að þessu sinni. í
hljóðvarpi var sviðsett heljarlöng
rulla um útflutning Álafoss á
grönnum lopa til Suðurríkja
Bandaríkjanna með aðstoð Pa-
melu og Bobbys úr Dallas, sem í
tilefni af hinum mikla auglýsing-
asamningi voru komin til landsins
ásamt fríðu föruneyti. Menn frá
Flugleiðum og Álafoss tóku þátt í
gríninu og voru trúverðugir
mjög, og ekki þurfti að spyrja að
áreiðanlegum fréttum frá Stefáni
J. Hafstein í New. York. Eina sem
vantaði á að um klassískt útvarps-
gabb yrði að ræða í stíl við þau
bestu frá liðinni tíð, eins og Van-
adísina og ísbirnina á jakanum,
voru sviðsett viðtöl við Pamelu
og Bobby. Það hefði kórónað
góða skemmtun.
Sjónvarpið brá á leik með Lucy
fjármálaráðherra og fékk Rafn
Jónsson fréttamann, sem kærði
Albert fyrir hundahald, til þess
að skila henni til ráðherrans. En
enda þótt Albert bæri sig vel var
ljóst að meiri dáleikar voru með
honum og tíkinni heldur en hon-
um og fréttamanninum.
„Setjum skilyrði“
Blöðin voru hófsamari en oft
áður í sínu gabbi. Þjóðviljinn var
með yfirlætislausa frétt á innsíðu
um Ríkis-stór-bingó í Sigtúni
undir stjórn Alberts Guðmunds-
sonar til þess að fylla upp í fjár-
Iagagatið. Það var allt í heldur
grínaktugum tón í garð ríkis-
stjórnarinnar og munu víst fáir
aðrir en allra bestu húmoristar
hafa látið blekkjast.
í Tímanum sunnudaginn 1.
apríl var fátt þess eðlis að ætla
mætti að um aprílgabb væri að
ræða. Hinsvegar var frétt í
laugardagsblaðinu sem áreiðan-
lega hefur verið forskot þeirra
Tímamanna á 1. aprfl. Þar segir
skýrum stöfum á forsíðu: „Setj-
um varnarliðinu þau skilyrði sem
við viljum“, segir Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra.
Þetta var svo ótrúleg frétt að
flestir munu hafa áttað sig á því
undireins að hér var Tíminn að
bregða á leik og láta auðtrúa fólk
í pólitík hlaupa 1. apríl 31. mars.
Besta gabbið
Húmor DV er svo háþróaður
að ekkert aprflgabb fannst á þeim
bænum, enda helgarblað þess
einungis merkt laugardeginum.
Hins vegar var besta gabbið í
Morgunblaðinu. Þar segir frá því
að Albert Guðmundsson hafi
gert kröfu til þess að annar full-
trúi ríkisins í stjórn Flugleiða yrði
kjörinn stjórnarformaður félags-
ins. Ráðherrann hafði tekið það
óstinnt upp er þessari kröfu var
hafnað, og gert þá gagnkröfu að
skipaðir yrðu tveir forstjórar og
yrði annar þeirra frá ríkinu.
Mogginn segir síðan frá því að
þetta komi þvert á fyrri yfirlýs-
ingarAlbertys um sölu á hluta-
bréfum ríkisins í Flugleiðum, og
hafi ýmsum innan Sjálfstæðis-
flokksins þótt nýjasta vending
fjármálaráðherra af hinu illa.
Þessi frétt er napurt háð um stöðu
mála á stjórnarheimilinu um
þessar mundir. Þar gerist svo
margt ótrúlegt að allur landslýð-
ur les þessa frétt og dettur ekki í
hug að um aprílgabb sé að ræða.
Enginn Albert
Albert er aðalefni í 1. apríl
gamni íslenskra fjölmiðla og Dal-
las fær að fljóta með. Annars-
staðar þar sem siður er að bregða
á leik 1. apríl eru kynferðismál
ofarlega á blaði, eins og í Bret-
landi, þar sem sérstök klám-
myndarás í sjónvarpi og mynda-
vél sem flettir fólk klæðum voru
notaðar til þess að kitla ímynd-
unarafl iesenda. Ýmiskonar
tækniundur, svo sem bílar er þvo
sig sjálfir og ökumannslausir
strætisvagnar, voru einnig í há-
vegum höfð. En Bretar virðast
ekki eiga neinn Albert.
, -ekh
og skorið
Upplýsingastöð
Morgunblaðsins og
KGB
Leyniþjónustur stórveldanna
standa í umfangsmiklu áróðurs-
stríði hvor við aðra og allmikill
hluti af því er að dreifa röngum
upplýsingum, sem kunna að
koma sér illa fyrir andstæðinginn.
CIA hefur þannig löngum staðið í
fjáraustri í blöð og tímarit Vest-
urálfu, sem notuð hafa verið í
slíkum tilgangi, og skammt er síð-
an upp komst að áróðursdeildir
suðurafrísku leyniþjónustunnar
höfðu um alllanga hríð haldið úti
fjölmiðlum í Evrópu í þeim til-
gangi einum að fegra kynþáttaað-
skilnaðarstefnu suðurafrískra
stjórnvalda.
Morgunblaðið gagnrýnir rétti-
lega þennan ósóma fyrir helgi, en
ber heldur illa niður. Blaðið
greinir frá því, að meðan kosn-
ingabarátta stóð sem hæst í Bret-
landi á síðasta sumri, þá hafi
skyndilega skotið upp kolli segul-
band sem hafði að geyma miður
þokkalegt „samtal“ Ronnie Re-
agans og Margrétar Thatcher.
Samtalið var raunar heldur
óhrjáleg fölsun sem fræg varð í
Evrópu á síðasta ári og ekkert
blað með snefil af metnaði birti. I
því tilkynnir rödd Margrétar
Tatcher að hún hafi rétt í þessu
gefi liðsforingja sínum skipun um
að sökkva argentínska her-
skipinu Belgranó, til að tryggja
að friðarumleitanir, sem þá voru í
gangi, næðu ekki fram að ganga,
svo Bretar lentu nú ábyggilega í
stríði við Argentínumenn. Til að
krydda betur er svo félagi Reag-
an látinn svara að ekki muni
Bandaríkjamenn hika við að
leysa vandamál sín „með
sprengjuregni".
Ýmsir kynnu nú að vera því
hjartanlega sammála að Reagan
forseti myndi ekki skirrast við
slíkt, þætti honum þannig við
liggja. Samtalið var þó augljós
fölsun, einsog fyrr segir, og
Morgunblaðið á ekki í miklum
erfiðleikum með að benda á hinn
seka: „Og hver ætti svo sem að
hafa áhuga á að gera slíkan grikk.
Jú, hver annar en rússneski
björninn, í líki KGB“.
Nú má hins vegar upplýsa
Morgunblaðið og aðra áhuga-
menn um fölsuð fræði um það, að
þeir sem bjuggu til bandið voru
meðlimir í breskri rokkhljóm-
sveit, sem aðhyllast stjórnleysis-
stefnu, og eru nú undir rannsókn
lögreglu fyrir vikið. En það er
ugglaust mesti óþarfi hjá Morg-
unlbaðinu að leiðrétta þennan
misskilning, því einsog segir í
sömu grein blaðsins“...svo illur
getur misskilningurinn orðið þeg-
ar lygasögum er lævíslega stráð,
að sögurnar öðlast eilíft líf“.