Þjóðviljinn - 03.04.1984, Síða 10
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 3. apríl 1984
Aðalfundur
Sjúkral iðafélags íslands
verður haldinn að Grettisgötu 89, IV hæð laugardag-
inn 28. apríl kl. 14.
Fundarefni:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Lagabreytingar.
Stjórnin
Sóknarfélagar -
Sóknarfélagar
Fundur verður í Borgartúni 6, þriðjudaginn 3. apríl og
hefst kl. 20.30.
Fundarefni:
1. Kjarasamningarnir.
2. Önnur mál.
Félagar sýnið skírteini.
Stjórnin
9
Húsvörður V
Óskað er eftir að ráða húsvörð í Hofsstaðaskóla og
Safnaðarheimilið Kirkjuhvol, Garðabæ. Æskilegt er
að viðkomandi hafi iðnréttindi eða sambærilega
menntun eða reynslu.
Umsóknarfrestur er til og með 9. apríl n.k. og skal
umsóknum skilað á Bæjarskrifstofur Garðabæjar.
Allar nánari upplýsingar veitir bæjarritarinn í Garðabæ
í síma 42311.
Bæjarritarinn í Garðabæ
|p ÚTBOÐ
Tilboð óskast í tæki fyrir hjartarannsóknarstofu (ang-
iographic work) Landspítalans í Reykjavík. Útboðs-
gögn eru afhent á skrifstofu vorri Borgartúni 7. Tilboð
verða opnuð á sama stað 3. maí 1984, kl. 11.00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
Tilboð óskast í að ganga frá lóð við dagheimili, leik-
skóla og skóladagheimili við Hraunberg fyrir Bygging-
adeild Borgarverkfræðings.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Fríkirkjuvegi
3, Reykjavík, gegn 1500 kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 11.
apríl n.k. kl. 11 fyrir hádegi.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800
Betra blað
Sprunguþéttingar
Þéttum sprungur í steinveggjum, þéttum bárujárnsþök
sem farin eru að ryðga. Látið fagmenn sjá um viðgerð-
irnar. 10 ára reynsla á þéttiefnum á íslandi. Upplýsing-
ar í síma 66709 og 24579.
Keflavík.
Á víð og dreif
Hér á eftir verður vikið að fram-
kvæmdum í Keflavík á sl. ári, Dval-
arheimilinu Höfða og Hjálparsveit
skáta á Akranesi, félagsmiðstöð á
Dalvík, sjóðstofnun og niðurlagn-
ingu síldar á Húsavík, rækjuskipi á
Isafírði, sundlaugarbyggingu Sól-
borgar og samkomusal í Grenivík.
Framkvœmdir í
Keflavík
Verulegar gatnagerðarfram-
kvæmdir voru í Keflavík á sl. ári.
Hefur nú verið lokið við að leggja
varanlegt slitlag á 90% af gatna-
kerfi kaupstaðarins. Að þessu sinni
var bundið slitlag lagt á 3 þús.
ferm. Þá var og keyptur olíumalar-
bingur sem mun a.m.k. hartnær
endast til þess að þekja það, sem
eftir er af gatnakerfinu. Steyptar
voru gangstéttir, fast að 1,5 km að
lengd. Lagðir voru samtals 600 m
langir göngustígar, olíumalarborn-
ir. Allvíða í bænum voru endurbæt-
ur gerðar á hellulögðum gangstétt-
um. Er þá heildarlengd gangstétta
og frágenginna göngustíga um 19
km. Lagðir voru 330 m af nýjum
malargötum og 525 m af holræsa-
og vatnsveitulögnum.
Á síðasta ári var og undirbúið
framtíðarfyrirkomulag nýs vatns-
veitusvæðis ofan við Eyjabyggð. -
Miklar umbætur voru gerðar á
íþróttasvæði bæjarins. Er eindreg-
ið að því stefnt að þeim umbótum
verði lokið þegar Landsmót UMFÍ
fer fram í Keflavík og Njarðvík 13.-
15. júlí nk.
Nokkuð var unnið á skólalóðum
bæjarins og Fjölbrautaskólans, á
barnaleikvöllum og nýr völlur
gerður í Heiðarbyggð. Komið var
upp nýju dagheimili í hinu gamla
húsi kvenfélagsins við Tjarnargötu
og unnið við leikvöll í Eyjabyggð.
Lóð bæjarskrifstofunnar var lögð
bundnu slitlagi.
Leiguíbúðir aldraðra eru í smíð-
um við Suðurgötu og er húsið orðið
fokhelt. Byrjað var á viðbyggingu
við Slökkvistöðina. - Haldið var
áfram að leggja reiðveg ofan við
bæinn í samvinnu við hesta-
mannafélagið Mána. Loks má
nefna að töluvert var unnið að fegr-
un bæjarins.
Höfða berast gjafir
Á sl. ári áskotnuðust Dvalar-
heimilinu Höfða á Akranesi ýmsar
góðar gjafir frá vinum og velunnur-
um, sem oft áður. Er þess þá fyrst
að geta að í júnímánuði barst
Ferða- og skemmtisjóði vistmanna
peningagjöf að upphæð 10.865 kr.
frá Kvennadeild Slysavarnafélags-
ins á Akranesi. Nokkru síðar kom
svo stólbekkur frá Stefaníu S.
Þórðardóttur, ekkju Guðmundar
heitins Árnasonar læknis, en bekk-
urinn kemur í góðar þarfir við
endurhæfingu. Hjónin Salvör
Jörundardóttir og Magnús Egg-
ertsson frá Melaleiti gáfu heimilinu
íslenska fánann. Frá Lofti Lofts-
syni fyrrverandi kennara, kom
verðmæt bókagjöf og málverk frá
Þingvöllum frá Guðrúnu Gunnars-
dóttur frá Krossfelli. Bergur Arn-
björnsson, fyrrverandi bifreiðaeft-
irlitsmaður, gaf heimilinu æfinga-
hjól, þrekhjól og endurhæfingar-
tæki.
Auk þess eru svo Ferða- og
skemmtisjóði öðru hvoru að berast
peningagjafir frá börnum og ung-
lingum, sem iðin eru við að halda
hlutaveltur til ágóða fyrir sjóðinn.
Skátar kaupa bíl
Hjálparsveit skáta á Akranesi
hefur nú keypt sér bíl til þess að
auðvelda starfsemina. Er það
frambyggður Rússajeppi, myndar-
gripur. Landssamband hjálpar-
sveita skáta veitti sveitinni styrk til
kaupanna. Styrkur barst einnig frá
Skátafélagi Akraness og Kiwanis-
klúbbnum en að öðru leyti var fjár
aflað með sölu á neyðarflugeldum
til skipa og báta.
Sveitin mun standa að sölu á
skyndihjálparbæklingi. Hún mun
og, í samvinnu við aðra, sjá um
rekstur skíðatogbrautarinnar, sem
sett hefur verið upp hjá Ferstiklu.
Ýmsir fleiri en þeir sem hér hafa
verið nefndir, hafa stutt við bakið á
Hjálparsveitinni svo sem Sjúkra-
hús Akraness sem aðstoðað hefur
sveitina með ýmiss konar hjálpar-
búnað.
Félagsmiðstöð
á Dalvík
Unnið er nú að því að innrétta
hús fyrir félagsmiðstöð á Dalvík.
Er það gamli læknisbústaðurinn.
Að því er stefnt að innréttingunni
verði lokið fyrir næsta haust. Fyrir
er nú í húsinu Tónlistarskóli Dal-
víkur, sem með breytingunni fær
aukið húsnæði. Fyrir daga Heilsu-
gæslustöðvarinnar voru læknamið-
stöð og lyfjabúð einnig til húsa í
læknisbústaðnum. í tilvonandi fé-
lagsmiðstöð verður einnig skrif-
stofa æskulýðsfulltrúa.
Æskulýðsheimili hefur verið
rekið í húsinu Bergþórshvoll. Með
opnum félagsmiðstöðvarinnar
verður rekstri þess hætt.
Framkvœmdalána-
sjóður á Húsavík
Það gerðist á 500-asta fundi
bæjarstjórnar Húsavíkur að sam-
þykkt var tillaga um að stofna
Framkvæmdalánasjóð til þess að
efla atvinnustarfsemi í kaupstaðn-
um. Fer tillagan hér á eftir:
„Bæjarstjórn Húsavíkur sam-
þykkir að stofna Framkvæmda-
lánasjóð og leggja fram sem stofn-
framlag 100 þús. kr. Hlutverk
Framkvæmdalánasjóðsins verði að
örva atvinnustarfsemi á Húsavík
með því m.a. að veita þeim aðilum,
sem hyggjast reisa atvinnuhúsnæði
lán til greiðslu á gatnagerðargjöld-
um og heimtaugargjöldum hita-
veitu og rafveitu. Bæjarstjórn felur
bæjarráði að semja nánari reglur
fyrir framkvæmdasjóðinn".
Síldariðja á Húsavík
Fyrir nokkru keypti Fiskiðju-
samlag Húsavíkur fyrirtækið ís-
lenskir sjávarréttir, en það var rek-
ið í Kópavogi. í framhaldi af því
hóf Fiskiðjusamlagið niðurlagn-
ingu sfldar, sem unnin er í neyt-
endapakkningar fyrir innanlands-
markað. Til að byrja með er verið
með fjórar framleiðslugreinar:
kryddsfld, marineraða síld, síld-
arsalöt og fjórar tegundir af síld í
sósum. Ekki er talið ólíklegt að
áður en langt um líður verði kví-
arnar færðar frekar út. Við þessa
framleiðslu starfa 8-10 manns.
Hafþór skiptir
um hlutverk
Hafrannsóknarskipið Hafþór
hefur nú skipt um hlutverk. Þrjár
rækjuverksmiðjur á ísafirði hafa
tekið það á leigu og hyggjast gera
út á rækjuveiðar, og frysta rækjuna
um borð. Eru það Rækjuverks-
miðjan í Hnífsdal, Niðursuðu-
verksmiðja O.N. Olsen og Rækju-
stöðin. Skipstjóri hefur verið ráð-
inn Aðalbjörn Jóakimsson frá
Hnífsdal. Hafþór, (hét áður Bald-
ur), er eitt af okkar frægu orrustu-
skipum úr þorskastríðinu. Hann
var smíðaður í Póllandi 1974, 793
brúttórúmlestir.
Töluverðar breytingar þarf að
gera á skipinu og verður að þeim
unnið á ísafirði. Eru þær einkum í
því fólgnar að breyta þarf kælilest í
frystilest.
Hér fara ísfirðingar inn á nýja
braut hvað áhrærir rækjuveiðar en
vel ér hún þekkt annarsstaðar svo
sem hjá Grænlendingum og Rúss-
um.
Sólborgarsundlaug
Á síðasta ári var hafin fjársöfnun
fyrir sundlaugarbyggingu við Sól-
borgarheimilið á Akureyri. Gekk
hún mjög vel. Er þess að vænta að
fyrir söfnunarféð, að viðbættu
framlagi frá því opinbera, verði
hægt að gera bygginguna fokhelda
fyrr en seinna. En meira þarf til svo
að ljúka megi verkinu. Frá ríkinu
fæst ekki meira fjármagn í ár. Er
því trúlega sá einn kostur fyrir
hendi, að efna til frekari fjársöfnu-
nar.
Nýr samkomusalur
Fyrir nokkru vígðu Grýtbekk-
ingar nýjan samkomusal. Er hann í
kjallara hins nýja grunnskólahúss á
Grenivík. Áður var samkomusalur
í kjallara gamla skólahússins. Hinn
nýi salur er þrisvar sinnum stærri
en gamlinginn eða um 250 ferm.
Salurinn var vígður með því að
halda þar þorrablót, sem var svo
fjölmennt, að einn blótsgestur kom
á ferm. Það er því sennilegt að
þröngt hefði orðið um þorrablóts-
gesti ef notast hefði þurft við gamla
salinn.
-mhg
Gegn framvísun
essa miða færð
þú 12 %
kynningar-
afslátt
á plötum
í nýrni og
endurreistri
STUE-búð.
Laugavegi 20 Simi27670