Þjóðviljinn - 04.04.1984, Blaðsíða 9
Miðvíkudagur 4. aprfl 1984 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9
Lárus Skúlason er tallnn
fyrsti kennari við samfellda
barnakennslu f Neshreppi
utan Ennis en hann flutti tll
Hellissands vorift 1883.
Tímamót í Neshreppi utan Ennis
\
Hið inýja skólahús var tekið í notkun haustið 1981. Þar eru 6 kennslustofur auk þess sem 6 ára börnum er kennt í
ófullgerðum hluta skólans. 11 kennarar starfa við skolann í vetur og kenna 102 börnum.
SamfeUd barna-
fræðsla í 100 ár
Öld er liðin síðan barnafræðsla
í skóla byrjaði á Hellissandi.
Hreppsbúar minntust þessara
merku tímamóta vikuna 19. -
25. mars og var það gert á ým-
islegan hátt. Alls konar uppá-
komur voru alla vikuna í skólan-
um. Aðaldagskráin var á
iaugardaginn 24. og sunnu-
daginn 25. Á laugardagskvöld-
ið var sýnt leikrit eftir einn kenn-
araskólans, Kristinn Kristjáns-
son í félagsheimilinu Röst.
Aldarafmæli
samfelldrar barnafrœösln í
Neshreppi utan Ennis
Á hlnu merku tímamótum í Neshreppi
utan Ennls hefur verið ráðist í útgáfu
á glæsilegu afmælisriti sem fullt er
fróðleiks um aidar barnafræðslu
vestra. í Reykjavík fæst ritið fi Versl-
uninni Nóatúni.
Húsfyllir var á sýningunni og
ríkti mikil stemmning og
ánægja meðal leikhúsgesta.
Sérlega skemmtilegt var að
nokkur börn léku þarna með
fullorðnafólkinu og stóðu þau
sig með mjög miklum ágætum
ásamtöðrum leikendum.
Dagskráin hófst kl. tvö á sunnu-
dag í hinu nýja grunnskólahúsi. Þar >
var fjöldi gesta ásamt flestu
heimafólki. Þarna voru uppi sýn-
ingar þriggjá listamanna, Lúðvíks
Albertssonar, Jónasar Guðmunds-
sonar og Guðna Ómars Svavars-
sonar, ásamt handavinnusýningu
barnanna. Börnin seldu heima-
gerða veggskildi úr leir með mynd
af grunnskólanum og fleiru og var
þetta brennt í ofni skólans og búið
til af börnunum sjálfum.
Sjómenn og útgerðarmenn í
hreppnum gáfu skólanum brjóst-
mynd af Lárusi Skúlasyni stofn-
anda skólans. Var myndin til sýnis í
skólanum steypt í gifs en verður
steypt í kopar, og komið fyrir á lóð
skólans. Tvö börn Lárusar Skúla-
sonar voru þarna viðstödd og
færðu þau skólanum peningaupp-
hæð að gjöf.
Átthagafélag Sandara gaf tvo
mannhæðarháa glerskápa og voru
náttúrugripir á þeim, nokkrir upp-
stoppaðir fuglar, m.a. snæugla, og
mjög fallegt steinasafn. Þessir nátt-
úrugripir voru gefnir af heima-
mönnum í tilefni afmælisins. Vand-
að og yfirgripsmikið afmælisrit var
gefið út af þessu tilefni og var það
selt þarna. Dagskrá hófst með
ræðu oddvita byggðarinnar, Gunn-
ars Más Kristóferssonar og kom
hann víða við. Kynntu börn dag-
skrárliði. Blandaður kór kirkju-
kórs og tónkórs Hellissands undir
stjórn Kay Wiggs söng nokkur lög.
Snorri Þorsteinsson námsstjóri
flutti ræðu. Barnakór söng undir
stjórn Guðrúnar Birnu Hannes-
dóttur og einnig lék bjöllukór
skólans nokkur lög. Nokkur börn
léku einleik á ýmis hljóðfæri, fleiri
ræður voru fluttar og börnin sýndu
hluta af kvöldvöku sem haldin
hafði verið fyrr í vikunni. Dagskrá-
in var löng og vönduð. Margar
gjafir bárust skólanum af þessu til-
efni og er of langt upp að telja. Að
loknum sleit skólastjóri Haukur
Matthíasson dagskránni og bauð
öllum til kaffidrykkju í Röst í nafni
foreldrafélags skólans. Samkomu-
gestir skoðuðu sýningarnar og að-
komugestir hinn glæsilega skóla.
Þá var haldið út í Röst og sest að
mjög myndarlegu kaffiborði sem
bókstaflega svignaði undan hinum
góðu og miklu veitingum. Allir
þingmenn kjördæmisins voru
þarna til að samgleðjast hreppsbú-
um og tóku til máls meðan setið var
að veitingum, Friðjón Þórðarson,
Skúli Alexandersson og Eiður
Guðnason. Þeir báru fram árnað-
aróskir og þökkuðu fyrir ánægju-
lega helgi.
Hrefna Magnúsdóttir
Nokkrir krakkar t tíma hjá Unu Jóhannesdóttur.
Á myndinni eru allir nemendur og kennarar fyrir framan gamla barnaskólann á Hellissandi árið 1935. Vinstra megin
við hópinn eru Skúli Guómundsson kennari og Bogi Sigurðsson kennari. Hægra megin eru Friðrik skólastjóri og
Bjöm kennari.