Þjóðviljinn - 04.04.1984, Blaðsíða 11
Miðvikudagur 4. aprfl 1984 jÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
íþróttir , Víðir Sigurðsson
Undirbúningur Ólympíuleika:
Viðmiðunar-
tölurnar eru
of seint á ferð
„Við fengum uppgefnar þessar
svokölluðu viðmiðunartökur frá
Oiympíunefnd þremur vikum fyrir
innanhússmeistaramótið þó svo ein
tvö ár séu liðin síðan við fórum
fyrst fram á að fá einhverja vitn-
eskju um hvaða árangri okkar fólk
þyrfti að ná til að komast á Ólym-
píuleikana í Los Angeles í sumar,“
sagði Guðmundur Arnason hjá
Sundsambandi íslands í samtaii við
Þjóðviljann.
„Það er margra ára vinna að
byggja upp sundmann þannig að
hann geti náð árangri á alþjóð-
legum vettvangi svo í raun ættum
við ekki að vera að hugsa um
leikana í sumar, heldur stefna beint
á Ólympíuleikana árið 1988“, sagði
Guðmundur.
Uppgangurinn í sundíþróttinni
hérlendis er geysimikill um þessar
mundir. Um það ber vitni góð
frammistaða íslensks sundfólks,
hér heima og erlendis, undanfarna
mánuði, og ekki síst metahamur-
inn sem það var í á sundmeistaram-
ótinu um síðustu helgi. Sennilega
hafa sjaldan orðið jafnmiklar fram-
farir í neinni íþróttagrein hérlendis
og átt hefur sér stað í sundinu að
undanförnu og ekki er ólíklegt að
okkar efnilega sundfólk fari í vax-
andi mæli að þoka sér uppávið á
alþjóðlegum mælikvarða. Þeir sem
skipa Ólympíunefnd íslands í hvert
skipti þurfa að hafa vakandi auga
með þeirri þóun sem á sér stað í
hverri íþróttagrein fyrir sig og sýna
skilning á mismunandi þörfum og
þjálfunarskipulagi íþróttafólks í
hinum ýmsu greinum. Það hefur
sýnt sig að undanförnu, ekki bara í
sundinu, heldur t.d, í sambandi við
frjálsar íþróttir, að fólkið sem sett
hefur stefnuna á æðsta íþróttamót
veraldar, sjálfa Ólymípuleikana,
hefur ekki fengið að vita hverju
það þurfi að áorka til að vinna sér
keppnisrétt á þeim nægilega
snemma. Sama hver keppnisgrein-
in er, krafan hlýtur að vera sú að
íþróttafólkinu sé kunnugt um í
tæka tíð hversu hratt það þurfi að
hlaupa, hve langt það verði að
kasta, hvaða tíma það þurfi að ná
til að öðlast rétt tii að ganga inná
Ólymípuleikvang undir fána og
merki íslands og etja kappi við þá
bestu í heiminum.
- VS
Tryggvl Helgason, efri mynd, og Guðrún Fema Ágústsdóttir, neðri mynd, eru örskammt frá viðmiðunartölum
Ólympíunefndar í sínum greinum. Fyrir Tryggva eru þessir Ólympiuleikar að öllum líkindum þeir síðustu sem
hann á möguleika á, hann hefur stefnt markvisst á þá í fjögur ár, en Guðrún Fema er aðeins 16 ára gömul og
aldurinn ætti ekki að hindra hana í að stefna á leikana 1988. Myndir: - eik.
Guðmundur og Gísli Rún-
ar fjórfaldir meistarar
Guðmundur Símonarson, Ármanni,
og Gísli Rúnar Gíslason, ÍR, hlutu flest
gullverðlaun á Reykjavíkurmeistara-
mótinu í frjálsum íþróttum, 16 ára og
yngri, sem haldið var um síðustu helgi.
Guðmundur sigraði í öllum fjórum
greinunum í piltaflokki og Gísli Rúnar í
fjórum af fimm í sveinaflokki.
Fanney Sigurðardóttir, Ármanni,
sigraði í 50 m hlaupi, langstökki og
langstökki án atrennu í stelpnaflokki en
beið lægri hiut fyrir Guðrúnu Valdim-
arsdóttur, ÍR, í hástökki.
Hjördís Backman, Ármanni, og
Kristín Pétursdóttir, IR, skiptu á milii
sín sigurlaununum í telpnaflokki. Hjör-
dís sigraði í 50 m hiaupi og langstökki
án atrennu en Kristín í langstökki og 50
m grindahlaupi í meyjafiokki, Eva Sif
Heimisdóttir, IR, í 50 rn hlaupi, Bryndís
Guðmundsdóttir, Ármanni, í lang-
stökki og Ingibjörg Pétursdóttir, Ár-
manni, í langstökki án atrennu.
Magnús Þórðarson, ÍR, vann þrjár
greinar af fjórum í strákaflokki, 50 in
hlaup, iangstökk og langstökk án at-
rennu. Árni Þór Jónsson, ÍR bar hins
Fundurá
vegum ÍKFÍ
í kvöld, miðvikudagskvöld, kl. 20
hefst að Hótel Esju kynningarfundur á
vegum íþróttakennarafélags íslands.
Fundarefnið verður „Framhalds-
menntun íþróttakennara við erlenda
skóla“.
Frummælendur verða kennarar sem
stundað hafa nám erlendis í lengri eða
skemmri tíma. Ætla þeir að kynna þá
skóla sem þeir stunduðu nám við, upp-
byggingu þeirra og aðstæður. Einnig
munu liggja frammi gögn um aðra skóla
sem greininni tengjast. Annað sem máli
skiptir, svo sem umsóknir, kostnaður,
aðsetur og fleira, verður reynt að grafa
upp og hafa tiltækt á fundinum.
Helstu lönd sem fjallað verður um
eru: Þýskaland, Kanada, USA, Noreg-
ur, Danmörk, Svíþjóð og Bretland, og
einnig verða kynnt hin ýmsu námskeið
sem haldin verða erlendis í sumar.
íþróttakennarar og nemar, sem
áhuga hafa á viðbótarmenntun, eru
hvattir til að mæta á fundinn.
vegar sigurorð af honum í hástökki.
Guðmundur Símonarson var eins og
áður sagði sigurvegari í öllum fjórum
greinunum í piltaflokki, 50 m hlaupi,
langstökki, langstökki án atrennu og
hástökki.
Gísli Rúnar sigraði í 50 m hlaupi, 50
m grindahlaupi, langstökki og langs-
tökki án atrennu í sveinaflokki en þar
sigraði Steinn Jóhannsson, ÍR, í há-
stökki.
Ross er
Ian Ross, enski þjáífarinn hjá
1. deildarliði Vals í knattspyrnu,
kom til landsins fyrir rúmri viku
og hóf störf samstundis. Stjórnar-
menn Vals hafa lýsl yfir mikilli
ánægju með að ná í þennan geð-
þekka Skota sem þeir hafa ráðið
til tveggja ára. „Ég reikna alls
ekki með því að leika með Vals-
liðinu sjálfur, mér sýnist þess
ekki þurfa með,“ sagði hinn 37
ára Ross skömmu eftir komuna.
Það hefur hins vegar heyrst á
„eldri“ Völsurum að þeir vonist
til þess að Ross muni leika með
þeim í eldri flokknum á íslands-
mótinu í sumar. - VS
lan Ross
Valur fær myndar-
legan fjárstuðning
Knattspyrnudeild Vals hefur
fengið myndarlegan fjárstuðning
frá Sjóvátryggingarfélagi íslands
hf. 300 þúsund krónur, með samn-
ingi um auglýsingar á búningum
allra flokka nema meistaraflokks
kvenna.
Samningurinn giidir í eitt ár og f
honum er innifalið að Valsmenn fá
bónus frá Sjóvá ef liðið skilar viss-
um árangri, t.d. meistaratitli, í
haust. Þá eru leikmenn Vals slysa-
tryggðir hjá Sjóvá og nær trygging-
in yfir meiðsli og óhöpp sem eiga
sér stað í leik, á æfingu eða í kepp-
nisferðum. Samningurinn var
undirritaður 27. mars sl. af Einari
Sveinssyni, framkvæmdastjóra
Sjóvá og dyggum stuðningsmanni
Vals, og Grétari Haraldssyni, for-
manni knattspyrnudeildar Vals.
- VS
stuttar fréttir. . . stuttar fréttir. . . stuttar fréttir. . .
Örninn sigraði
A-lið Arnarins varð bikarmeistari í
borðtennis 1984 en bikarkeppnin var
haldin í Fossvogsskóla sl. laugardag. í
úrslitaleik mættust Örninn-A og
Víkingur-A og vann Örninn 4:3 í hörku-
spennandi viðureign. Úrslit réðust ekki
fyrr en í síðasta leik, staðan var 3:3 fyrir
viðureign Gunnars Finnbjörnssonar,
Erninum, og Kristjáns Jónassonar,
Víkingi, Gunnar vann leikinn af öryggi,
2:0.
Sex lið tóku þátt í mótinu, auk úrslit-
aliðanna voru það KR, Víkingur-B,
Örninn-B og Örninn-C. Mótið var hald-
ið í annað skipti en Örninn vann einnig í
fyrra.
Þór-FH kvöld
Svartaþoka kom í veg fyrir fyrirhug-
aða ferð FH-inga til Vestmannaeyja í
gær en þá átti að fara fram bikarleikur
milli efstu liðanna í 1. og 2. deild í hand-
boltans. Reynt verður aftur í kvöld og
hefst leikur Þórs og FH kl. 20.00 ef
veðurguðir lofa.
Leikið á
Egilsstöðum
Úrslitakeppni 2. deildar karla í
körfuknattleik fer fram á Egilsstöðum
um næstu helgi og leika þar þrjú lið um
eitt sæti í 1. deild, ÍME, Snæfell úr
Stykkishólmi og Reynir Sandgerði.
Keppni hefst á föstudagskvöidið með
leik IME og Snæfells. Snæfell mætir
Reyni á laugardaginn og Reynir leikur
við ÍME á sunnudaginn. Leikirnir fara
fram í hinu nýja íþróttahúsi á Egilsstöð-
um og í hverjum þeirra útnefna áhorf-
endur mann leiksins.
Höttur með tvo
Höttur á Egilsstöðum hefur ráðið tvo
knattspyrnuþálfara fyrir sumarið. Emil
Björnsson tekur við meistaraflokki
karla sem leikur í 4. deild en Jón Þór
Brandsson, fyrrum FH-ingur, stýrir 1.
deildarliði kvenna og þjálfar einnig
yngri flokka félagsins.
Hringlað með bikarúrslit
Úrslitaleikur bikarkeppni kvenna í
blaki fer ekki fram í Hagaskóla laugar-
daginn kemur og er allsendis óvíst hve-
nær af honum verður. Stjórn Blaks-
ambandsins komst að þeirri undarlegu
niðurstöðu að leikurinn skyldi settur á
heimavöll annars liðsins og á að leika
hann á heimavelli Breiðabliks, í Digra-
nesi í Kópavogi. Þetta er einstaklega
óvanalegt þegar um úrslitaleik í bikar-
keppni er að ræða, ekki síst þegar í
mótabók BLI stendur skýrum stöfum
að úrslitaleikurinn skuli fara fram ■
Hagaskóla laugardaginn 7. aprfl.
Enska liðið valið
Bobby Robson landsliðseinvaldur
Englands í knattspyrnu tilkynnti í gær
byrjunarlið sitt gegn Norður-írum á
Wembiey í kvöld. Það er skipað eftir-
töldum leikmönnum: Peter Shilton, Viv
Anderson, Terry Butcher, Graham Ro-
berts, Alan Kennedy, Sammy Lee, Ray
Wilkins, Bryan Robson, Trevor Fra-
ncis, Graham Rix, Tony Woodcock.
Forystan minnkar
Forysta Aberdeen í skosku úrvals-
deildinni í knattspyrnu minnkaði í 3 stig
í fyrrakvöld. Aberdeen og Hearts gerðu
þá jafntefli, 1:1, Celtic vann Rangers,
3:0, og Dundee United vann Dundee.
5:2.
stuttar fréttir. . . stuttar fréttir. . . stuttar fréttir. . .