Þjóðviljinn - 11.04.1984, Blaðsíða 9
Miðvikudagur 11. aprfl 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9
Áin Aura sem gaf Abo líf, segja Finnar.
Opinber
heimsókn
forseta
íslands
til
Finnlands
Eins og áður hefur verið skýrt frá
hefur forseti íslands Vigdís Finn-
bogadóttir. þegið boð um að koma í
opinbera heimsókn til Finnlands
daganna 11.-14. apríl nk.
Dagskrá heimsóknannnar cr í aðal-
atriðum á þessa leið:
Miðvikudaginn 11. apríl heldur
forseti íslands ásamt fylgdarliði
með Flugleiðavél til Helsinkiborg-
ar. Forseti Finnlands Mauno Koi-
visto og frú Tcllervo Koivisto taka á
móti forseta íslands á flugvellinum,
en síðan er haldið til forsetahallar-
innar í Helsinki. Eftir stutta mót-
tökuathöfn í höllinni heldur forseti
íslands til Sandudd og leggur þar
blómsveig að minnisvarða um
Finna sem féllu í seinni heimsstyrj-
öldinni og ennfremur á gröf Mann-
erheims marskálks. Síðdegis þenn-
an sama dag tckur forseti ámóti for-
stöðumönnum sendiráða í forseta-
höllinni í Helsinki. Um kvöldið
heldur svo forseti Finnlands kvöld-
verðarboð í höllinni til heiðurs fors-
eta íslands. Þennan sama dag ræð-
ast við utanríkisráðherrar fslands
og Finnlands.
Fimmtudaginn 12. apríl cr fors-
eta fslands boðið að skoða þinghús-
ið í Helsinki, Tempelplatskirkjuna
þar sem hinn þekkti Tapiola-
barnakór syngur og síðan ftnnska
þjóðminiasafnið. Þá heimsækir
forseti fslands Finlandiahúsið og
situr síðan hádcgisverðarboð Hels-
inkiborgar. Síðdegis opnar forseti
íslands sýninguna „FORM ÍS-
LAND“ í Listiðnaðarsafninu í
Helsinki. Þá verður móttaka fyrir
íslendinga búsctta í Finnlandi á
heimili aðalræðismanns íslands í
Helsinki og sömuleiðis móttaka á
vegum íslenskra útflutnings- og
ferðamála fyrirtækja á Hótel Int-
ercontinental. Um kvöldið bjóða
finnsku forsetahjónin til sýningar í
Svenska Teatern á ieikrítinu „Háx-
skogen“ eftir Johan Bargurn.
Köstuduginn 13. apríl verður
haldið flugleiðis til Ábo (Turku) og
Álandsdseyja. f Ábo heimsækir
forseti íslands dömkirkjuna og síð-
an er snæddur hádegisverður í boði
borgarstjórnarinnar í Ábo. A Ál-
andseyjum skoðar forseti nt.a.
sjóminjasafn og safn um sögu Ál-
andseyja. Komið verður aftur til
Helsinki síðdegis sama dag. Um
kvöldið held.ur forseti Islands
kvöldverðarboð til heiðurs finnsku
forsetahjónunum á Hótel Fiskart-
orpet, en á því hóteli dvelst forseti
og fylgdarlið meðan á hinni opin-
beru heimsókn stendur.
Árdegis laugardaginn 14. aprtl
heimsækir forseti fsiands listamið-
stöðina Svcaborg en Kalevi Sorsa
forsætisráðherra Finnlands býður
svo til hádegisverðar. Kl. )3:00
þennan dag heldur forseti fslands
síðan frá Finnlandi áleiðis til
Kaupmannahafnar og lýkur þar
með hinni opinberu heimsókn. f
fylgdarliði forseta verða Geir Hall-
grímsson utanríkisráðherra og frú
Ema Finnsdóttir, lngvi S. Ingvars-
son ráðuneytisstjóri utanríkisráðu-
neytisins og frú Hólmfríður Jóns-
dóttir, og Halldór Reynisson forset-
aritari
Þessar veggskreytingar komu í Ijós við hreinsun hallarinnar.
Einn turninn á „Hölllnni" í Abo.
Úr Finnlands-heimsókn:
töfrandi borg
Meöal þess, sem forseti ís-
lands, Vigdís Finnbogadóttir
mun skoöa í opinberri heim-
sókn sinni til Finnlands er „Höll-
in“ íTurku, eðaÁboeinsog
borgin er kölluð á sænsku.
borgin er 3ja stærsta borg Finn-
lands, með um 160 þúsund
íbúa og er jafnframt elsta borg
landsins, enginn veit í raun
hversu gömul borgin er. Hún
mun hafa byggst uþp sem sigl-
ingaog verslunarstaður, enda
liggur ekki önnur borg í landinu
beturvið til slíkrar síslan. En
það er „Höllin" sem við ætlum
að fjalla lítið eitt um hér. ís-
lenskum fréttamönnum sem
voru á ferð í Finnlandi í síðustu
viku var boðið að skoða þessa
gömlu og merkilegu höll.
Að byggja
iipp fornminjar
Sá mæti maður Vilhjálmur
Hjálmarsson frá Brekku sagði eitt
sinn að hann væri andvígur því að
byggja upp fornminjar. Ég var
sammála honum þá, en ég er það
ekki núna. Margt hefur orðið til að
breyta þeirri skoðun minni, en
„Höllin" í Ábo staðfesti hana.
Þessi höll, sem hafist var handa um
að byggja árið 1280 hefur oftar en
einu sinni orðið fyrir alvarlegum
skemmdum af bruna, eins og
reyndar borgin Ábo. Hefðu menn
ekki endurbyggt höllina, væru
Finnar fátækari hvað snertir forn-
minjaren þeirerunú. Segjamáaðí
þeim bruna, sem orðið hefur íÁbo
og skaðaði höllina brann allt nema
útveggir og annað sem er úr steini.
gólfin öll eru úr timbri, þannig að
þau eru nýleg.
f þessari merku höll, eða virki,
sem væri ef til vill réttara orð hafa
verið íverustaðir mikils fjölda
fólks, matsalir eða veislusalir,
kirkja, fangelsi og raunar flest það
sem fólk þarf á að halda, án þess að
þurfa leita þess annarsstaðar.
Sá sem skoðað hefur hallir og
kastala í Suður Evrópu, honum
mun þykja þessi Norræna höll
kuldaleg og skrautlítil. En hún býr
samt yfir ákveðnum töfrum. Hún
er stflhrein og skrautlítil.
Sögufrœgð
íbúar Ábo segja „Höllina" sögu-
frægasta hús Finnlands og hafa þeir
vissulega mikið til síns máls. Allt
frá 13. öld og fram á 18. öld var
„Höllin" bústaður konunga og
keisara. Hún var, sem fyrr segir,
virki sem barist var um, hún var um
tíma á 15. öld miðstöð verslunar og
viðskipta. Og alltaf voru menn að
bæta byggingum við þann hluta
hallarinnar sem byrjað var að
byggja á 13. öld. Og nú segja íbúar
Ábo „Höllina" merkilegustu forn-
minjar landsins. „Höllin“ stendur
við ósa árinnar Aura og einmitt
vegna þessarar merkilegu elvu
segja Finnar að náttúran og hafið
hafi gefið Ábo líf sem verslunar-
staður fyrir svo löngu síðan að eng-
inn veit hvenær menn settust fyrst
að við árósana og lögðu grunn að
borginni.
o
Abo töfrandi borg
Borgin Ábo stendur sitt hvoru
megin árinnar Aura. Öðru megin
er kallaður sænski hlutinn en hinu
megin sá finnski. Hvergi eru sænsk
áhrif meiri í Finnlandi en í Ábo.
Samt er borgin finnsk í útliti. Hinn
stórkostlegi arkitektúr Finna nýtur
sín vel í Ábo. Fáir ef nokkrir standa
Finnum á sporði þegar um
arkitektúr er að ræða. Þótt ég hafi
aðeins átt þess kost að skoða borg-
ina einn dag, þá hafði hún þau áhrif
á mig að mér þótti hún töfrandi,
kannski meira töfrandi en aðrar
borgir sem ég hef séð í Finnlandi.
Borgin er fyrst og fremst verslunar
og iðnaðarborg og að sjálfsögðu
hafnarborg. Sá sem ætlar til Finn-
lands ætti ekki að láta hjá líða, sé
þess nokkur kostur að heimsækja
Ábo, henni gleymir enginn.
-S.dór.