Þjóðviljinn - 12.04.1984, Blaðsíða 12
XpioðviuiniA Aðalsimi Þjoðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tíma er hægt aö ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum símum: Ritstjórn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími
Fimmtudagur 12. apríl 1984 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt aö ná í afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur sima 81348 og eru blaöamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663
Stefnt að 50 miljón króna sparnaði á rekstri spítalanna
Bitnar á einhverri þjónustu
segir
Davíð Á.
Gunnarsson
forstjóri
ríkis-
spítalanna
„Það er óskaplega erfitt að sjá
nokkurn áþreifanlegan árangur
ennþá, en við eigum von á því
eftir sumarið að sjá einhvern ár-
angur“, sagði Davíð Á. Gunnars-
son forstjóri ríkisspítalanna að-
spurður um sparnaðaraðgerðir
sem stjórnvöld hafa fyrirskipað í
rekstri og mannhaldi ríkisspítal-
anna.
Eins og komið hefur fram í
fréttum verður einhverjum
deildum sjúkrahúsanna lokað í
sumar, en að sögn Davíðs er ætl-
unin að spara um 4Í/2 miljón með
þeim aðgerðum. Fyrirskipunin
sem stjórnarnefnd ríkisspítal-
anna fékk frá stjórnvöldum í des-
ember sl. var hins vegar að spara
2'/2% í launakostnaði og 5% í
rekstrarkostnaði sem samanlagt
gerir um 50 miljónir.
„Við höfum unnið upp mjög
ítarlegar tillögur til sparnaðar á
nánast öllum sviðum. Þar er talað
um sparnað á starfsmannahaldi,
ætlum að halda því í algjöru lág-
marki, draga úr yfirvinnu, loka
sumum deildum í sumar og draga
úr ráðningu sumarafleysinga-
fólks eins og unnt er, spara á inn-
kaupum og reyna að bjóða út
meira af vörum“, sagði Davíð.
Slíkar aðhaldsaðgerðir hafa
meira og minna verið í fram-
kvæmd frá því árið 1977, en ár-
angur nú því kannski ekki eins
mikill og annars hefði verið.
Davíð benti á að viss takmörk
væru fyrir því hve langt menn
kæmust í sparnaði. Akveðinn
sparnaður gæti kallað á vissa fjár-
festingu sem ekki væru til neinir
peningar í að framkvæma.
Aðspurður um hvort þessi
sparnaður myndi ekki bitna á
þjónustu við sjúklinga sagði Da-
víð að ákveðið hefði verið að
reyna að spara með sem víðtæk-
ustum aðgerðum á sem flestum
sviðum og það væri því ljóst að
einhvers staðar myndi slíkt bitna
á einhverri þjónustu, en reynt
yrði að komast hjá því eftir
mætti.
-lg-
Dalvíkingar á þingi. Svanfríöur Jónasdóttir og Kristín Tryggvadóttir sem einnig mun hafa tyllt tánni á Dalvík eru
nú sessunautar á þingi. Svanfríður situr fyrir Alþýðubandalagið á Norðurlandi eystra en Kristín fyrir Alþýðu-
flokkinn í Reykjaneskjördæmi. (Ljósm.: eik).
Nýtt átak
í samskiptum við fátœkari lönd
Lissabon-
ráðstefnunni
lauk í gær
Ályktun Norður/Suður ráðstefn-
unnar í Lissabon var samþykkt við
lok ráðstefnunnar í gær með afger-
andi hætti. Ályktunin þykir marka
tímamót í afstöðu Evrópuþjóða til
Norður/Suður málanna, en þar er
kveðið á um átak gegn hungri í
heiminum, stuðning við tillögur
samtaka fátækra ríkja um ger-
breytingu á efnahagsskipan í
heiminum, gagnrýni á Bandaríkin
fyrir að hafa skorið niður framlög
tii þróunarsjóðs Alþjóðabankans
og tillögur um hvernig færa skuli
ijárinagn frá vígbúnaðarkapp-
hlaupinu til þróunaraðstoðar.
Dumas Evrópuráðherra Frakk-
lands kom með samþykkt frönsku
ríkisstjornarinnar á ráðstefnuna í
gær um afdráttarlausan stuðning
hennar við ályktunina og fyrirheit
um að fylgja henni fast eftir, en
forseti Frakklands fer með for-
mennsku í Efnahagsbandalaginu
um þessar mundir. Portúgalska
ríkisstjórnin, sem er gestgjafi ráð-
stefnunnar, hefur einnig gefið
fyrirheit um hið sama og þykja við-
brögð benda eindregið til þess að
hér hafi markið verið sett á upphaf
nýrrar sóknar í skiptingu heimsins
gæða.
Pórtúgalski utanríkisráðherrann
Gama og Ólafur Ragnar Grímsson
sem hefur haft formennsku með
höndum í undirbúningi ráðstefn-
unnar, halda fund í dag þar sem
framhaldið verður reifað. -óg
Verkföll yfirvofandi á miðnætti
Miðar hægt
segir sáttasemjari sem heldur
stöðuga fundi með deiluaðilum
„Það miðar hægt á öllum stöð-
um“, sagði Guðlaugur Þorvaldsson
ríkissáttasemjari í samtali við Þjóð-
viljann í gær. Fjórir launþegahóp-
ar og einn einstaklingur eiga nú í
kjaradeilum og hafa allir nema
starfsmenn ríkisverksmiðjanna
boðað til verkfalls.
Skipstjórar sátu á fundi hjá sátta-
semjara frá því í gærmorgun og
fram á kvöld án árangurs en boðað
verkfall þeirra kemur til fram-
kvæmda á miðnætti n.k. sunnudag.
Sama er að segja um Mjólkurfræð-
inga. Þeir koma til sáttafundar í
dag kl. 15. Flugfreyjur sátu á fundi
í allan gærdag og fram á kvöld en
þær hafa boðað verkfall frá mið-
nætti í kvöld, náist ekki samkomu-
lag um fjölgun flugfreyja í DC-8
þotum Flugleiða úr 5 í 6.
Skipstjórinn á þörungarpramma
vinnslunnar á Reykhólum er kom-
inn í verkfall en í fyrradag slitnaði
upp úr fundum í deilu hans. Nýr
fundur hefur ekki verið boðaður en
mál skipstjórans er rekið sem
sérmál þar sem meginkrafan er að
launakjör hans falli undir ákvæði
samninga skipstjórafélagsins en
verði ekki bundið sérsamningum
eins og hingað til. - lg.
Svangir
innbrots-
þjófar
„Það var öllum mat nema
smábrauðbita stolið og um 1700
krónum sem nemendasjóður
átti“, sagði Jóhanna Einars-
dóttir ritari í Vesturbæjarskól-
anum við Þjóðviljann í gær.
Brotist var inn í skólann í fyrri-
nótt.
„ Auðséð var að innbrotsþjóf-
arnir hafa'verið svangir og pen-
ingaþurfi því allt var á rúi og stúi
í kennarastofunni og á skrifstof-
unni-þegar við komum hingað í
morgun. Ekkert var eyðilagt og
verðmætum eins og segul-
bandstæki var ekki hrpyft við“.
- jp-
Dómur kveðinn upp í Skaftamálinu:
Lögregluþjón-
arnir sýknaðir
„Skafti gœti eins hafa hlotið áverkana
fyrir eigin verknað“ segir í niðurstöðum
dómsins
Lögregluþjónarnir Guðmundur
Baldursson, Jóhann Valbjörn Ól-
afsson og Sigurgeir Arnþórsson
voru í gær sýknaðir af ákæru ríkis-
saksóknara um ólöglega handtöku,
brot á opinberu starfi, harðræði og
líkamsmeiðingar í svonefndu
Skaftamáli. Dóminn kvað upp
Sverrir Einarsson sakadómari.
í niðurstöðum dómsins segir
m.a. að telja verði sannað með
framburði vitna að Skafti Jónsson
hafi átt upptökin að átökunum í
Þjóðleikhúskjallaranum sem urðu
til þess að lögreglan var kvödd á
staðinn. Skafta hafi borið skylda að
hlýða fyrirmælum ákærðu að koma
með þeim og er hann neitaði, hafi
það verið rétt af ákærðu að hand-
taka Skafta. „Á það ber þó að líta
að ákærðu virðast ekki hafa kynnt
sér alveg nægjanlega ástæðurnar,
sem lágu að baki útkallsins, þegar
þeir hófu handtökuaðgerðir sínar
en það hefðu þeir átt að gera frek-
ar“. Viðbrögð Skafta hafi hins veg-
ar verið slfk að lögreglumennirnir
hafi ekki átt annars úrkosta en
handtaka hann og þeir því sýknaðir
af ákæru um ólöglega handtöku.
Varðandi áverka þá sem Skafti
hlaut við handtökuna segir að
ákærðu hafi allir mótmælt því að
eiga sök á þeim og ekki liggi fylli-
lega ljóst fyrir í málinu með hverj-
um hætti Skafti hlaut áverkana.
Lögreglumennirnir fullyrða að
hann hafi dottið á gólfið í lögreglu-
bílnum og engin lögfull sönnun
fyrir því að lögregluþjónarnir hafi
veitt honum áverkana. „Gæti
Skafti eins hafa hlotið þá fyrir eigin
tilverknað", stendur orðrétt í nið-
urstöðum dómsins.
í dómsorði eru lögregluþjónarn-
ir sýknaðir af öllum ákærum máls-
ins og allur sakarkostnaður dæmd-
ur á ríkissjóð. -Ig.
Skafti Jónsson um niðurstöðu Sakadóms
, ,Hlægilegtk 4
„Ég er alveg orðlaus. Þetta er
alveg ótrúleg niðurstaða, hreint
ótrúleg. Maður dregur sinn lær-
dóm af þessari niðurstöðu og
þetta segir manni það eitt að það
er ekki hægt að fara í mál gegn
lögreglunni. Ég veit ekki hvað
hefur vakað fyrir dómaranum, en
þessi dómur er í engu samræmi
við þá mynd sem rannsóknir
þessa máls hafa gefið, og ekki
heldur í neinu samræmi við ákær-
una sem ríkissaksóknari gaf út“,
sagði Skafti Jónsson m dóm saka-
dóms í samtali við Þjóðviljann í
gær.
I dómnum segir að þú hafir átt
upptökin að þessu öllu saman og
gætir alit eins hafa hlotið áverk-
ana fyrir eigin tilverknað. Hvert
er þitt álit á þessum úrskurði?
„Mér finnst þetta hlægilegt. Ég
skil ekki hvernig nokkrum manni
getur dottið í hug að handjárnað-
ur maður eins og ég var þarna geti
veitt sér alla þá áverka sem ég
hlaut. Það er ekki hægt. Hvernig
átti ég að fara að því að hárreita
mig í hnakkann?
Þess má líka geta að frá upphafi
þessa máls þá höfum við farið
fram á það að vissir aðilar yrðu
yfirheyrðir sem gætu varpað ljósi
á málið, en því hefur verið hafn-
að. Þrátt fyrir að viðkomandi hafi
sent bréf inn í réttarhaldið og
óskað eftir því að fá að bera vitni
og tilgreint ástæður fyrir því, var
því hafnað. Það vekur grun-
semdir um að menn hafi viljað fá
ákveðna mynd af málinu og dreg-
ið hana upp.“
Hvert verður framhald þessa
máls. Verður því áfrýjað?
„Þetta er opinbert mál sem
ríkissaksóknari höfðaði og er því
ekki í mínu valdi að ákveða fram-
haldið og ég veit ekki hvernig það
verður. Mér finnst þessi dómur
vera áfall fyrir réttarstöðu borg-
arans og ég segi fyrir mig að fyrst
þessi var niðurstaðan þá hefði
verið mun skárra að svæfa málið í
fæðingu eins og iðulega er þegar
mál sem þetta hefur komið upp.
Þetta er eins og köld vatnsgusa
framan í mann“, sagði Skafti
Jónsson að lokum. -lg.