Þjóðviljinn - 14.04.1984, Side 18
18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINNHelgin 14- ~ ls- aPrfl 1984
NÁMSGAGNASTOFNUN
Pðsthólf 5192 • 125 Reykjavík
Samkeppni um létt lesefni
í samræmi við niðurstöður nefndar um út-
/ gáfu námsgagna fyrir nemendur með sér-
þarfir hyggst Námsgagnastofnun gefa út
flokk bóka á léttu máli. Efnið er ætlað ne-
mendum sem náð hafa nokkru valdi á lestri
en skortir þjálfun. Það þarf að vera auðskilið
og æskilegt er að það tengist á einhvern hátt
reynslu og umhverfi barna. Fræðandi efni
sem og sögur og ævintýri kemur jafnt til
greina. Áætlað er að hver bók verði 16 til 48
bls. með skýru letri og myndum.
Ákveðið hefur verið að efna til samkeppni um
ritun efnis af þessu tagi. Dómnefnd skipuð af
Námsgagnastofnun mun meta innsent efni.
Handritum merktum „Létt lesefni" skal skila
vélrituðum fyrir 1. ágúst 1984 og er æskilegt
að með fylgi tillögur um myndefni.
Höfundar skulu nota dulnefni, en nafn og
heimilisfang fylgi í lokuðu umslagi.
Veitt verða þrenn verðlaun
1. verðlaun kr. 18.000
2. verðlaun kr. 14.000
3. verðlaun kr. 10.000
Ritlaun verða greidd fyrir það efni sem út
verður gefið og áskilur Námsgagnastofnun
sér rétt til að gefa út öll innsend handrit.
Námsgagnastofnun
IIAUSAR STÖÐUR HJÁ
J REYKJAVÍKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráöa starfsfólk til eftirtalinna
starfa. Starfskjör samkvæmt kjarasamningum.
HJÚKRUNARFRÆÐINGA viö Heilsuverndarstöö
Reykjavíkur við heimahjúkrun, vaktavinna kemur til
greina.
Barnadeild, heilsugæslunám æskilegt.
FJÖLSKYLDURÁÐGJAFA (tvær stöður) við áfeng-
isvarnardeild Heilsuverndarstöðvar.
Æskilegt háskólanám í félags- og heilbrigðisfræðum.
Einnig eru lausar stöður hjúkrunarfræðinga, Ijós-
mæðra og sjúkraliða til afleysinga við hinar ýmsu
deildir.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma 22400.
FORSTÖÐUMENN á eftirtalin dagheimili:
Sunnuborg, Sólheimum 19,
Hraunborg, nýtt dagheimili í Breiðholti.
Upplýsingar veitir framkvæmdastjóri eða umsjónar-
fóstrur á skrifstofu dagvistar barna, Fornhaga 8, í síma
27277.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykja-
víkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð á sérstökum
umsóknareyðublöðum sem þar fást fyrir kl. 16.00
föstudaginn 27. apríl 1984.
Tilkynning frá Byggðasjóði
( lögum nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhætti og
öryggi á vinnustöðum er gert ráð fyrir útvegun fjár-
magns til lánveitinga til fyrirtækja, sem þurfa að bæta
aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustað.
Samkomulag hefir verið gert milli Framkvæmdastofn-
unar ríkisins og félagsmálaráðuneytisins um að lán
þessi verði veitt úr Byggðasjóði af sérstöku fé sem
aflað verður í þessu skyni.
Umsóknir um lán þessi skulu því sendar Byggðasjóði,
Rauðarárstíg 25, Reykjavík á umsóknareyðublöðum
Byggðasjóðs, þar sem sérstaklega sé tekið fram að
um sé að ræða lán vegna bætts aðbúnaðar, hollustu-
hátta og öryggis á vinnustað.
Umsóknarfrestur er til 7. maí n.k.. Endurnýja þarf
umsóknir, er áður hafa verið sendar en ekki hlotið
afgreiðslu.
Bergshús vlð Skólavörðustíg.
Húsalestur
með Guðjóni
Við röltum þá enn af stað,
Guðjón. En mér þykir leitt að ég
skyldi hafa hrekkt þig með spurn-
ingu minni um það hvort hugsast
gæti að „viðhaldshugsjón" sumra
manna gæti átt rót í því, að þeir
sömu hefðu gefist upp við vanda-
mál framvindunnar. Þú hefur
misskilið mig, þetta var spurning
mín en ekki staðhæfing. Manni
verður oft að spyrja þegar maður
er úti á göngu. Það gengur svo á
ýmsu með svörin. Stundum verða
samferðamennirnir önugir; en
hversvegna? Vonandi fór þó orð-
ið „vitsmunavera" ekki eins illa í
þig og orðið „mannvitsbrekka" í
V.L.-menn á sínum tíma.
Ég er þér sammála, að ganga
okkar geti orðið stefnulaus ef við
lítum ekki yfir farinn veg. En þar
virðast skilja leiðir. Skoðun mín á
fortíðinni er til þess að læra af
henni og reyna að gera betur, en
ekki til þess að lifa áfram í sýni-
legum minjum hennar.
Þú hvetur mig til lestrar á Of-
vitanum. Hann hefi ég löngu les-
ið og raunar oft. Kaflinn sem þú
vitnar í heitir „Baðstofan". Jú,
Þórbergur kunni vel við sig á loft-
inu í Bergshúsi, og gaf hugarflugi
sínu lausan tauminn. Ég er sam-
mála Þórbergi um að hús er hugs-
un sem fær hæð, lengd og breidd,
eða þrívídd, og þar sem mér skilst
þú hafa þennan sama skilning, þá
bið ég þig, að þú kappkostir að
afflytja ekki þær hugsanir sem
tóku sér form hússins. Því aðeins
eru húsin saga kynslóðanna að
þeim sé ekki brenglað, annars
verða þau enn ein lygin um líf
kynslóðanna.
Spurningu þinni endurtekinni
um hvort ég kunni að les hús get
ég svarað með því, að mér er
ávallt mjög auðsætt þegar þau
hafa verið neydd til að taka þátt í
iygasögunum.
Þetta með arkitektana og „stíl-
afbrigðin“ er svo sem tilefni til
langs spjalls, en vegna þess að ég
á svo skolli annríkt núna við nú-
tíðina, þá verð ég að láta nægja
að benda þér á, að góður arki-
tektúr er ávöxtur lífsviðhorfa en
ekki lesturs tískublaða,og ef lffs-
viðhorfin brenglast þá má bygg-
ingarlistin fara að vara sig. Þú
skalt kafa dýpra í þetta vanda-
mál.
Ég ætlaði hinsvegar ekki að
labba langt núna, en halda mig
við húsalesturinn.
Þú vilt að við skoðum Grjóta-
þorpið og þangað ætlar þú með
börn þín og útlendingana og
segja: „Hér byrjaði þetta allt“,
„Hér stóð bær fyrsta landnáms-
mannsins og hér byrjaði nútíma-
saga íslands". Ég ætla ekki að
fara með þér þegar þú ferð í þessa
leiðangra, vegna þess að mér
leiðist þegar fólk er að skrökva,
einkum að börnum og öðrum
óvitum. Ef þú ætlar að benda mér
á bæjarstæði Ingólfs Arnarsonar
þá verð ég að biðja þig að hafa
mig afsakaðan.
Um fræðileg hugtök eins og
upphaf nútímasögu Islendinga og
byrjun þéttbýlis skal ég ekki
deila. Þó býður mér í grun að fyrr
á öldum hafi umtalsverðir byggð-
akjarnar verið til staðar á
landinu, t.d. í Skálholti. Prent-
iðnaður og bókagerð er nú
kannske partur af nútímasög-
unni. Ekki veit ég hvort fleiri
voru í kringum bókagerð í Viðey,
Hrappsey, Hólum, Skálholti og
Leirárgörðum en við spuna í Að-
alstræti.
En ég vil fara upp á Spítalastíg
þar sem þú ert að eigin sögn
önnum kafinn við að laga lítið
stef í fortíðarsögunni að þínum
. þörfum.
Það eru ýmsar leiðir til að út-
rýma fortíðinni. Kunningi þinn
vestra lokaði augunum fyrir
henni svo hún væri ekki að flækj-
ast fyrir honum, en þú tekur hana
og breytir henni svo hún valdi þér
ekki óþægindum. Þegar þú verð-
ur fluttur inn í húsið þitt með þinn
nútíðarlífsmáta og þitt baðker þá
verður aumingja húsið eins og
fangi í misþyrmingarbúðum sem
búið er að heilaþvo og þvinga til
að segja ósatt um fortíðina.
Þú leitar þér trúlega afsökunar
í þeirri með-höndlun húsa sem
hefur viðgengist á Bernhöftstorf-
unni, og þú mærir í grein þinni.
Það segir mér þá sögu að þú
heyrir ekki kveinstafi húsanna
yfir meðferðinni, en horfir aðeins
á bros fólksins sem borðar vel
fram borinn mat og drekkur góð
vín innan veggja þeirra.
Því það vil ég segja þér að lok-
um að hafi þau hús fyrr verið
sannleikur þá er nú búið að kæfa
það vætti þeirra og neyða þau til
annarrar frásagnar og þar með að
falsa heimildir úr byggingarsögu
okkar. Grimm eru örlög þeirra
sem kafna í faðmi „vina“ sinna;
þetta á einnig við um hús. Bergs-
hús það sem Þórbergur heitinn
veit um, hafði á þeim tíma ekki
hlotið þau örlög. En hefur síðar
margt mátt þola í því hlutverki að
verða þjónn verslunarinnar.
Ég kveð þig svo að sinni í von
um að þú verðir raunverulegur
húsavinur þegar fram líður.
Hannes Kr. Davíðsson.