Þjóðviljinn - 14.04.1984, Blaðsíða 21
Helgíri 14. - 15. aprfl 1984 ÞJÓÐVILJlNN - SÍÐA 21
aíbuiða
íinstöViu
SaraöYg^
íslenska hljómsveitin
,4 Dymbihiku“
Lokatónleikar annars starfsárs
íslenska hljómsveitin heldur
tónleika í Bústaðakirkju miðvik-
udaginn 18. apríl kl. 20.30.
Þetta eru lokatónleikar annars
starfsárs og bera yfirskriftina „í
Dymbilviku“.
Ást og dauði hafa ætíð verið ein-
hver áleitnustu íhugunarefni
heimslistarinnar. Þau fléttast inn í
söguna á margvíslegan hátt.
Nokkrir atburðir rísa þó hæst, sem
eilíf minnismerki um átök þeirra.
Og sú saga, sem tengist Dymbilvik-
unni, er mest þeirra allra.
Sérstakur gestur hljómsveitar-
innar er bandaríski baritonsöngv-
arinn William H. Sharp. Hann
frumflytur verk Mistar Þorkels-
dóttur, Davíð 116, sem samið er sl.
haust að tilhlutan hljómsveitarinn-
ar, en söngtextinn er sóttur í 116.
sálm Davíðs, eins og nafn verksins
Anna Guðný Guðmundsdóttir:
Undirleikari Sharps í Brahms-
söngvum.
Baritonsöngvarinn William H. Sharp
er sérstakur gestúr hljómsveitarinn-
ar.
gefur til kynna: „Þér færi ég þakk-
arfórn og ákalla nafn Drottins".
Mist Þorkelsdóttir (f. 1960) nam
píanó- og sembalíeik við Tónlistar-
skólann í Reykjavík. Hóf, að loknu
stúdentsprófi, 1980 framhaldsnám
í Hamline University í Minnesota
og lauk þaðan BA.-prófi. Er nú við
tónsmíða- og tónfræðinám við
State University of New York í
Buffalo og eru kennarar hennar
þar m.a. Lejaren Hiller og Morton
Feldman.
William H. Sharp hlaut menntun
m.a. í Eastman tónlistarskólanum í
New York. Hefur sungið margs-
konar tónlist, gamla og nýja, á tón-
leikum og á óperusviði. Arið 1982
vann hann söngkeppnina Young
Artists International Audition í
New York og hlaut einnig verðlaun
Kathleen Ferrier, sjóðsins. Veitti
þetta honum tækifæri til tónleika-
halds í New York, Boston, Was-
hington og víðar um Bandaríkin.
Tvo vetur söng hann með hinum
virta Waverly Consort músíkhópi,
vítt um heim. Hann vann sigur í
alþjóðlegu söngkeppninni í Genf í
sept. sl.
Sharp mun einnig flytja Vier
ernste Gesange eftir J. Brahms við
undirleik Önnu Guðnýjar Guð-
mundsdóttur, en Brahams samdi
þessa söngva skömmu fyrir and-
látið. Margir telja þá einhverjar
skærustu perlur söngbók-
menntanna. I þessum söngvum
tekst tónskáldinu á einstæðan hátt
að túlka tilfinningar dauðlegrar
veru frammi fyrir sláttumanninum
mikla.
Richard Wagner var einhver
umdeildasti persónuleiki tónlistar:
heimsins á síðarihluta 19. aldar. í
aldarlok hafði hann náð miklum
vinsældum og víðtækum áhrifum
bæði vegna framsækins tónmáls og
magnaðra hugmynda. Á Jressum
lokatónleikum flytur Islenska
hljómsveitin tónaljóðið Siegfried
Idyll, sem þykir með því fegursta,
sem Wagner samdi. Þar ríkir feg-
urð einfaldleikans ólíkt hinum
Guðmundur Emílsson stjórnandi.
mikilfengu tilfinningastríðum óp-
eranna. Innihald verksins er tær ást
og þakklæti til Cosimu konu hans,
en verkið var tileinkað henni og
syni þeirra Siegfried á afmælisdegi
hennar og frumflutt á heimili
þeirra.
Auk ofangreindra verka flytur
Mist Þorkelsdöttir: Frumflutt verður
verk hennar: Davíð 116.
hljómsveitin Berceuse élégiaque
eftir Ferrucio Busoni. Einnig munu
félagar úr hljómsveitinni flytja
Sextett fyrir klarinett og strengi
eftir Heinrich J. Bármann.
Stjórnandi á hljómleikunum
verður Guðmundur Emilsson.
- mhg