Þjóðviljinn - 14.04.1984, Blaðsíða 22
22 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 14. - 15. apríl 1984
✓
Samsýning í Listasafni ASI:
Valgerður og Malcolm
Valgerður Hauksdóttlr vlft nokkrar myndir sínar. Ljósm.: Atll.
Malcolm Christhilf ásamt nokkrum mynda sinna. Ljósm.: Atll.
Þau Valgerður Hauksdóttir og
Malcolm Christhilf opna í dag,
laugardag, samsýningu í Listasafni
ASI og sýna þar grafík, teikningar
og myndir unnar með blandaðri
tækni.
Valgerður lauk BA-prófi frá
háskólanum í Nýju Mexíkó og
MFA-prófi frá háskólanum í Illi-
nois. Malcolm Christhilf er með
BA-gráðu í myndlist frá ríkishá-
skólanum Towson í Maryland og
einnig farið í gegnum Tamarind
stofnunina í Nýju Mexíkó sem sér-
hæfir sig í lithografíu. Þau hafa
tekið þátt í fjölda samsýninga í
Bandaríkjunum og Valgerður tók
þátt í haustsýningu íslenska grafík-
félagsins 1983.
Sýningin er opin alla virka daga
nema mánudaga kl. 16-22 og um
helgar ki. 14-22.
- GFr.
leiklist
Leikfólag Akureyrar:
Kardimommubærinn eftir Thorbjörn
Egner verður sýndur kl. 17 á laugardag,
kl. 15 á sunnudag, kl. 18 á þriðjudag, kl.
15 á skírdag og kl. 17 á annan í páskum.
Leikstjóri erTheodór Júliusson en um 28
leikarar og börn koma fram i sýningunni
auk 11 manna hljómsveitar Tónlistar-
skólans á Akureyri.
Tjarnarbíó
Leiklúbburinn á Grundarfirði sýnir Tog-
streitu eftir Inga Hans Jónsson i Tjarnar-
bíói kl. 21. Höfundur er leikstjóri.
Akranes
Leikklúbburinn á Grundarfirði sýnir Tog-
steitu eftir Inga Hans Jónsson í sal Fjöl-
brautarskólans kl. 21 á sunnudag
Alþýðuleikhúsið:
Vorkonur Alþýðuleikhússins sýna leikrit
Nínu Bjarkar Árnadóttur, „Undir teppinu
hennar ömmu" að Hótel Loftleiðum f
kvöld laugardag. Miðasala er á Hótel
Loftleiðum kl. 17 - 21 og sfminn er
22322.
Iðnó
Guð gaf mér eyra á laugardag og Gísl á
sunnudag.
tónlist
Bústaðakirkja:
Á sunnudag heldur Sinnhoffer strengja-
kvartettinn frá Múnchen tónleika í Bú-
staðakirkju, en kvartettinn er hér á landi f
þriðja sinn á vegum Kammermúsfk-
klúbbsins. Á efnisskrá eru verk eftir
Bach, Morzarl, Beethoven og Smetana.
Básúnuleikur:
I dag, laugardag kl. 18 halda Cristian
Lindberg básúnuleikari og Þorsteinn
Gauti Sigurðsson píanóleikari básúnut-
ónleika að Kjarvalsstöðum.
Vortónieikar:
Árlegir Vortónleikar Tónlistarskóla FlH
verða nú um helaina. Tónleikar Jazz-
deildar fara fram í Átthagasal Hótel Sögu
á laugardag kl. 14 og er kynnir Jón Múli
Árnason. Tónleikar Almennu deildarinn-
ar verða í sal skólans á Pálmasunnudag.
Ikl. 14.
Norræna húsið:
Á sunnudag kl. 15 halda dönsku tónlistar-
mennirnir Marianne Granvig fiðluleikari og
Gunhild Donslund pianóleikari tónleika i
Norræna húsinu. Á efnisskrá eru verk eftir
Carl Nielsen, Edvard Grieg og Niels
Rosing-Schow.
Vortónar skólanna:
Kl. 17 á sunnudag hefjast vortónar
skólanna að Kjarvalsstöðum og koma
þar fram Kór Fjölbrautaskólans í
Breiðholti og Hagaskóla, Blásarasveit
framhaldsskólanna og Kór Fjölbrautar-
skólans við Ármúla. Stjórnendur eru
Jónas Þórir Þórisson, Þórir Þórisson,
Sigvaldi Snær Kaldalóns. Við píanóið
hjá Ármúlaskólanum er Áslaug Jóns-
dóttir og gestur kórsins á tónleikunum er
Július Vífill Ingvarsson, 'Þetta eru fyrstu
tónleikarnir í röð tónleika sem hlotið hafa
heitið „ Vorlónar skólanna" en mikið tón-
listarstarf fer fram í skólum borgarinnar.
íslenska óperan:
Rakarinn í Sevilla verður sýndur á
laugardags- og sunnudagskvöld kl. 20.
Þar sem sýningar féllu niður um siöustu
helgi vegna veikinda gilda aðgöngumið-
ar stimplaðir 6.4. á sunnnudagssýningu
og miðar stimplaðir 7.4. á laugar-
dagssýningu.
Gerðuberg
I dag, laugardag, kl. 3 síðdegis heldur
hljómsveitin Hrím tónleika í Menning-
armiðstöðinni Gerðubergi. Eru þeir sér-
staklega ætlaðir fyrir börn en hljóm-
sveitin hefur nýlega gefið út 16 barnalög
á snældu.
Frfkirkjan
I dag, laugardag, kl. 16 heldur Simon
Ivarsson gítartónleika í Fríkirkjunni og
leikur eingöngu tónlist frá Spáni. Þá
verða á sunnudag kl. 15 aðrir tónleikar í
Frikirkjunni. Hjónin Sigríður Sigurðar-
dóttir og Friðrik Guöni Þórleifsson koma
meö hóp af tónlistarfólki úr Tónlistar-
skóla Rangæinga. Barnakór syngur,
kammerhljómsveit leikur og Friðrik
Guðni les úr óprentaðri Ijóðabók sinni.
íþróttaskemman Akureyri
Á sunnudag kl. 18 verða haldnir tón-
leikar í Iþróttaskemmunni á Akureyri á
vegum Tónlistarfélagsins þar. Sinfóníu-
hljómsveit skólans kemur fram undir
stjórn Michaels J. Clarke og Ásgeir H.
Steingrímsson trompetleikari leikur ein-
leik í trompetkonsert eftir Haydn. Einnig
verða flutt verk eftir Bach, Offenbach og
Sibelius.
Kjarvalsstaðir
Bandaríski sellóleikarinn Thomas Austin
heldur einleiksstónleika á Kjarvalsstöð-
um á mánudag kl. 20.30. Á efnisskrá eru
verk eftir Crumb, Hindemith og Kodály.
Kjarvalsstaðir:
Á sunnudag kl. 15 verður endurtekin list-
dansasýning, sem flutt var við opnun á
höggmyndasýningu Ragnhildar Stef-
ánsdóttur um síðustu helgi. Þrir listdans-
arar túlka höggmyndir Ragnhildar í frum-
sömdum dansi en þeir eru: Ásta Henr-
iksdóttir, Sigrún Guðmundsdóttir og
Lára Stefánsdóttir sem samdi dansinn.
Ásgeir Bragason blandaði tónlistina.
Vlvaldi-tónleikar:
Á sunnudag gengst Kór Menntaskólans
í Kópavogi fyrir tónleikum í Kópavogs-
kirkju og hefjast þeir kl. 20.30. Á dagskrá
er tónlist eftir Antoníu Vivaldi. Flytjendur
ásamt kórnum eru einleikarar, einsöng-
varar og strengjasveit. Stjórnandi er
Martial Nardeau.
myndlist
Iðnskólinn Akureyri
Á sunnudag opnar Gunnar Dúi Júl-
íusson myndverkasýningu í Iðnskólan-
um á Akureyri sem ber nafnið EXpó 4.
Auk náms hér heima hefur Gunnar Dúi
lært á Spáni, í Hollandi, Frakklandi og
víðar. Sýningin er opin kl 14-22 daglega
til 22. apríl. Ókeypis aðgangur.
Listmunahúsið
Leir og lín nefnist myndlistarsýning sem
opnuð verður í Listmunahúsinu við
Lækjargötu iaugardag kl. 14. Þar sýna
11 myndlistarkonur leirmuni og textíl.
Opið virka daga kl. 10-22 og um helgar
kl. 14-22.
Gamli stúdentakjallarinn
i Félaasstofnun stúdenta við Hringbraut
hefur heldur betur tekið stakkaskiptum.
Þar sem áður voru þunalamalegir
og lítt aðlaðandi básar meo múrsteinum
og strigapúðum er nú einn ferskasti
veitingasalur borgarinnar.
Það er allt nýtt:
Eldhúsið, gólfið, inngangurinn,
leirtauið, ölið, stólarnir, matseðillinn,
borðin, vínseðillinn, Ijósin, allt.
Nafnið er líka nýtt,
sótt í fræga revíu, þar sem sungið
var um griðastaðinn góða,
Skalkaskjól tvö.
Þangað voru allir hjartanlega velkomnir,
svo er einnig um Skálkaskjol tvö hið nýja.
Skálkaskjól tvö
er opið frá kl. 11.30-23.30 alla daga.
Allir velkomnir.
smiiimsitiii
FÉLAGSSTOFNUN STÚDENTA VIÐ HRINGBRAUT. SlMI 14789.