Þjóðviljinn - 14.04.1984, Síða 29
Helgfrí 15. apríl 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 29»
útvarp
7.00 Veðurfregnir. Fréftir. Bæn Tónleikar.
Þulur velur og kynnir. 7.25 Leikfimi.
Tónleikar.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veðurfregnir
Morgunorð - Arnþrúður Guðmundsdóttir
talar.
8.30 Forustugr. dagbl. (útdr.) Tónleikar.
9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar.
9.30 Óskalög sjúklinga Helga Þ. Step-
hensen kynnir. (10.00 Fréttir. 10.10
Veðurfregnir). Óskalög sjúklinga, frh.
11.20 Hrímgrund. Útvarp barnanna. Stjórn-
andi: Vernharður Linnet.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.40 Listalíf Umsjón: Sigmar B. Hauks-
son.
14.40 Úrslitakeppni 1. deildar karla í
handknattleik Hermann Gunnarsson
lýsir frá Iþróttahúsinu í Hafnarfirði.
15.10 Listapopp - Gunnar Salvarsson.
(Þátturinn endurlekinn kl. 24.00).
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir.
16.20 íslenskt mál Jón Aðalsteinn Jónsson
sér um þáttinn.
16.30 Úrslitakeppni 1. deildar karla i
handknattleik Hermann Gunnarsson
lýsir frá íþróttahúsinu í Hafnarfirði.
17.00 Frá tónleikum Sintóníuhljómsveit-
ar íslands i Háskólabíói 12. þ.m.; fyrri
hluti Stjórnandi: Jean-Pierre Jacquillat.
a. „Parade" eftir Eric Satie. b. „La Mer"
eftir Claude Debussy. - Kynnir: Jón Múli
Árnason. Barnalög
18.00 Ungir pennar Stjórnandi: Dómhildur
Sigurðardóttir (RÚVAK)
18.10 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvðldsins
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.35 Heimaslóð. Ábendingar um ferða-
leiðir. Umsjón: Ari Trausti Guðmunds-
son.
20.00 Sinfóniuhljómsveitin í Vinarborg
leikur Slavneska dansa op. 46 eftir
Antonín Dvorák; Karel Ancerl stj.
20.20 Útvarpssaga barnanna; „Veslings
Krummi“ eftir Thöger Birkeland Þýð-
andi: Skúli Jensson. Einar M. Guð-
mundsson les (2).
20.40 Norrænir nútímahöfundar 7.
þáttur: Theodor Kalllfatides Njörður P.
Njarðvík sér um þáttinn og ræðir við
höfundinn. Kallifatides les kafla úr bók
sinni, „Bönder och herrar”, og Heimir
Pálsson les þýðingu sína á kafla úr sögu
hans, „Fallinn engill”.
21.15 Á sveitalinunni Þáttur Hildu Torfa-
dóttur, Laugum i Reykjadal (RÚVAK).
22.00 „Hallæriskorn", smásaga eftir
Guðmund Halldórsson frá Bergs-
stöðum Höfundur les.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins
22.35 Harmonikuþáttur Umsjón: Högni
Jónsson
23.05 Létt sígild tónlist
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
24.00 Næturútvarp frá RÁS 2 til kl. 03.00
sunnudagur
Pálmasunnudagur
8.00 Morgunandakt Séra Fjalarr Sigur-
jónsson prófessor á Kálfafellsstað flytur
ritningarorð og bæn
8.10 Fréttir
8.15 Veðurfregnir. Forustugr. dagbl.
(útdr.).
8.35 Létt morgunlög Boston Pops hljóm-
sveitin leikur; Arthur Fiedler stj.
9.00 Fréttir
9.05 Morguntónleikar a. „Hjarta, þankar,
hugur, sinni". kantatanr. 147 eftirJohann
Sebastian Bach. Ursula Buckel, Hertha
Töpper, John van Kestern, Kieth Engen
og Bach-kórinn í Munchen syngja með
Bach-hljómsveitinni I Ansbach; Karl
Richter stj. b. Serenaða nr. 12 i c-moll K.
388 eftir Wolfgang Amadeus Mozart.
Blásarasveit Nýju fílharmóníusveitarinn-
ar í Lundúnum leikur.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
10.25 Út og suður Þáttur Friðriks Páls
Jónssonar.
11.00 Messa i kirkju Fíladelfíusafnaðar-
ins Ræðumaður: Einar J. Gíslason.
Organleikari: Árni Arinbjarnarson Há-
degistónleikar.
12.10 Dagskrá. Tónleikar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 Vikan sem var Umsjón: Rafn Jóns-
son
14.15 „Mér finnst gaman að stofna félög".
Þættir úr 85 ára sögu KFUM og K. Umsjón:
Guðni Gunnarsson og Málfriður Finnboga-
dóttir.
15.15 í dægurlandi Svavar Gests kynnir
tónlist fyrri ára. í þessum þætti: Trommu-
leikararnir Gene Krupa og Buddy Rich.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir.
16.20 Um visindi og fræði. „Hinar norsku
og dönsku lögbækur Kristjáns konungs
V. og áhrif þeirra hér á landi". Dr. Páll
Sigurðsson dósent flytur sunnudagser-
indi.
17.10 IFrá tónleikum Sinfóníuhljómsveitar
íslands í Háskólabíói 12. þ.m., síðari
hluti. Stjórnandi: Jean-Pierre Jacquillat.
Hamrahlíðarkórinn og Kór Menntaskólans
við Hamrahlið syngur. Kórstjóri: Þorgerður
Ingólfsdóttir. a. „Diafónia" eftir Þorkel Sigur-
bjömsson. (Frumflutningur). b. Sálmasin-
fónía eftir Igor Stravinsky.
18.00 Um fiska og fugla, hunda og ketti
og fleiri íslendinga Stefán Jónsson
talar.
18.15 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.35 Bókvit Umsjón: Jónlna Leósdóttir.
19.50 „Gangan til Emmaus“ Steingerður
Guðmundsdóttir les eigin Ijóð.
20.00 Útvarp unga fólksins Stjórnandi:
Guðrún Birgisdóttir.
21.00 Hljómplöturabb Þorsteins Hannes-
sonar.
21.40 Útvarpssagan: „Syndin er lævís og
lipur“ eftir Jónas Árnason Höfundur
les (13).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins
22.35 Kotra Stjórnandi: Signý Pálsdóttir
(RÚVAK) (Þátturinn endurtekinn í fyrra-
málið kl. 11.30).
23.05 Frá tónleikum Kammersveitar
Reykjavíkur i Bústaðakirkju 1. þ.m.
Stjórnandi: Paul Zukofsky. Upplesari:
Rut L. Magnússon. „Facade" eftir Will-
iam Walton við Ijóð eftir Edith Sitwell. -
Kynnir: Sigurður Einarsson.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
mánudagur
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Guðlaug
Helga Ásgeirsdóttir flytur (a.v.d.v.). Á virk-
um degi - Stefán Jökulsson - Kolbrún Hall-
dórsdóttir- Krisfín Jónsdóttir. 7.25 Leikfimi.
Jónína Benediktsdóttir (a.v.d.v.).
8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. Morgunorð -
Helgi Þorláksson talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: „Elvis
Karlsson” eftir Maríu Gripe Þýðandi: Torf-
ey Steinsdóttir. Sigurlaug M. Jónsdóttir les
(11).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar. Tónleikar.
Þulur velur og kynnir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
10.30 Fomstugr. landsmálabl. (útdr.). Tón-
leikar.
11.00 „Ég man þá tíð“ Lög frá liðnum árum.
Umsjón: Hermann Ragnar Stefánsson.
11.30 Kotra Endurtekinn þáttur Signýjar Páls-
dóttur frá sunnudagskvöldi (RÚVAK).
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynning-
ar. Tónleikar.
13.30 Lög ur íslenskum kvikmyndum.
14.00 Ferðaminningar Sveinbjarnar Egiis-
sonar; seinni hluti Þorsteinn Hannesson
les (4).
14.30 Miðdegistónleikar Filharmóniusveitin i
New York leikur „Facade", svitu ettir William
Walton; Andre Kostelanetz stj.
14.45 Popphólfið - Sigurður Kristinsson.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir.
16.20 Síðdegistónleikar Sherill Milnes syng-
ur með Nýju fílharmóníusveitinni I Lundún-
um ariur úr óperum eftir Tsjaíkovský, Pucc-
ini og Levy; Anton Guadagno stjÆditha
Gruberova syngur með Sinfóníuhljómsveit
útvaqisins í Munchen ariur úr óperunni
„Hamlet" eftir Thomas; Gustav Kuhn stjJ
Sinfóníuhljómsveitin i Lundúnum leikur ball-
etttónlist úr „Papillon” eftir Offenbach; Ric-
hard Bonynge stj.
17.10 Siðdegisvakan Umsjón: Páll Heiðar
Jónsson og Borgþór S. Kjæmested.
18.00 Vísindarásln Þór Jakobsson ræðir við
Leó Kristjánsson jarðeðlisfræðing um
bergsegulmælingar.
18.20 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.35 Daglegt mál. Sigurður Jónsson talar.
19.40 Um daginn og veginn Guðjón B. Bald-
vinsson talar.
20.00 Lög unga fólksins. Þorsteinn J. Vil-
hjálmsson kynnir.
20.40 Kvöldvaka a. Úr minningum Ólafs
Tryggvasonar i Arnarbæli; fyrri hluti
Kjartan Eggertsson tekur saman og flytur.
(Seinni hlutinn er á dagskrá annað kvöld á
samatíma). b. Karlakórinn Svanur syngur
Stjórnandi: Haukur Guðlaugsson. Umsjón:
Helga Ágústsdóttir.
21.10 Nútímatónlist Þorkell Sigurbjömsson
kynnir.
21.40 Útvarpssagan: „Syndin er lævís og
lipur“ eftir Jónas Árnason Höfundur les
(14).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgun-
dagsins. Lestur Passíusálma (47). Lesari:
Gunnar J. Möller.
22.40 Skyggnst um á skólahlaði Umsjón:
Kristín H. Tryggvadóttir.
23.05 Kammertónlist - Guðmundur Vil-
hjálmsson kynnir.
23.50 Fréttir. Dagskrárfok.
Rás 2
Laugardagur 14. april
24.00-00.50 Listapopp (endurtekinn þáttur
frá Rás 1) Stjórnandi: Gunnar Salvarsson.
00.50-03.00 Á næturvaktinni. Stjórnandi:
Kristfn Björg Þorsteinsdóttir. Rásir 1 og 2
samtengdar kl. 24.00 og heyrist þá í Rás 2
um allt land.
sjónvarp
laugardagur
15.30 íþróttir Umsjónarmaður Bjarni Felix-
son.
16.15 Fólk á förnum vegi 22. Hýbýlaprýði
Enskunámskeið i 26 þátfum.
16.30 Húsið á sléttunni Eldsvoðinn -
síðari hluti Bandarískur framhalds-
myndaflokkur. Þýðandi Óskar Ingimars-
son.
18.55 Enska knattspyrnan
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Við feðginin Níundi þáttur. Breskur
gamanmyndaflokkur í þrettán þáttum.
Þýðandi Þrándur Thoroddsen.
21.05 Blekkingavélin - Litið inn i drauma
verksmiðjuna Þýskur sjónvarþsþátlur
sem sýnir skoðunarferð um kvikmynda-
verin f Hollywood. Þýðandi Jóhanna
Þráinsdóttir. Þulur Guðni Kolbeinsson.
22.00 Myndir úr gömlu Peking Ný, kín-
versk bíómynd gerð eftir sögu Lin Haivin.
Leikstjóri Wu Yigong. Aðalhlutverk: Shen
Jie, Zheng Zhenyao, Zhang Fengyi, Yan
Xiang og Yuan Jiayi. Höfundur sögunnar
er kona sem rifjar upp minningar frá
uppvaxtarárum sínum i höfuðborg gamla
Kina að liðinni hálfri öld. Horfnir grannar
og vinir birtast fyrir hugskotssjónum
hennar og atvik sem peim eru tengd.
Þýðandi Baldur Ragnarsson.
23.35 Dagskrárlok
sunnudagur
18.00 Sunnudagshugvekja Jóhanna Sig-
marsdóttir flytur.
18.10 Stundin okkar. Umsjónarmenn: Ása
H. Ragnarsdóttir og Þorsteinn Marels-
son. Stjórn upptöku: Tage Ammendrup.
19.00 Hlé
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Sjónvarp næstu viku. Páskadag-
skráin. Umsjónarmaður Magnús Bjarn-
freðsson.
21.00 Glugginn Þáttur um listir, menning-
armál og fleira. Umsjónarmaður: Áslaug
Ragnars. Stjórn upptöku: Valdimar Leifs-
son.
21.50 Nikulás Nickleby Fjórði þáttur. Leikrit
i níu þátlum gert eftir samnefndri sögu
Charles Dickens. Þýðandi Kristmann
Eiðsson.
22.45 Henrik Ibsen - maðurinn og leik-
ritaskáldið I. Þú lýgur, Pétur Heimilda-
mynd i tveimur hlutum um skáldjöfur
Norðmanna, Henrik Ibsen (1828-1906)
og verk hans. Umsjónarmaður Per Sim-
onnæs. í myndinni er rakinn æviferill
Ibsens og störf. Brugðið er upp fjölda
atriða úr verkum hans og reynt að
skyggnast inn I hugarheim skáldsins
sem skóp þau. Þýðandi Jóhanna Jó-
hannsdóttir. Þulur Þorsteinn Helgason.
Siðari hluti er á dagskrá mánudagskvöld-
ið 16. april. (Nordvision - Norska sjón-
varpið)
23.55 Dagskrárlok
mánudagur
19.35 Tommi og Jenni Bandarískteiknimynd.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskra
20.40 jþróttir Umsjónarmaður Bjarni Felix-
son.
21.15 Engin teikn af himni (Fireworks for El-
speth) Breskt sjónvarpsleikrit. Leikstjóri Al-
vin Rakoff. Aðalhlutverk: Fiona Shaw, Bar-
bara Leigh Hunt, Dinah Sheridan og David
Langton. Ung stúlka sem lengi hefur hugleitt
að ganga i klaustur, afræður að hlýða þeirri
köllun. Áform hennar vekja furðu og mótbár-
ur foreldra hennar, vina og unnusta. Þýð-
andi Guðrún Jörundsdóttir.
22.30 Henrik Ibsen - maðurinn og leikrita-
skaldið II. Með lik i lestinni. Heimildamynd
um skáldjöfur Norðmanna, Henrik Ibsen, og
Verk hans. Umsjónarmaður Per Simonnæs.
Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir (Nordvisi-
on - Norska sjónvarpið)
23.30 Fréttir í dagskrárlok
Sjónvarp sunnudag og mánudag:
Per Christensen leikur skáldjöfurinn Henrik Ibsen.
Þættir um Ibsen
Iicnrik Ibsen - maðurinn og
leikritaskáldið nefnist heimilda-
mynd í tveimur hlutum, sem
sjónvarpið sýnir á sunnudags- og
mánudagskvöld. Þættir þessir eru
gerðir af norska sjónvarpinu og
fjalla þeir um skáldjöfur Norð-
manna, Henrik Ibsen og verk
hans.
í myndinni er æviferill skáld-
sins rakinn og störf hans. Brugðið
er upp fjölda atriða úr verkum
hans og reynt að skyggnast inn í
hugarheim skáldsins, sem skóp
þau. Fyrri þátturinn nefnist: Þú
lýgur, Pétur, og hinn síðari: Með
lík í lestinni. Þýðandi er Jóhanna
Jóhannsdóttir og þulur Þorsteinn
Helgason.
Sjónvarp laugardag kl. 21.05:
Litið við í
Hollywood
Blekkingavélin heitir mynd frá
Þýskalandi, sem sýnd verður í
sjónvarpinu í kvöld kl. 21.05. Þar
er litið inn í kvikmyndaverin í
sjálfri Hollívúdd, þessari
draumaborg allra tíma.
Um 3 og hálf milljón túrhesta
koma árlega í stúdíóin í Hollí-
vúdd í skoðunarferð og fyrir tæp-
lega þrjú hundruð krónur fá þeir
að ferðast um svæðið í sérhönn-
uðum vögnum. Hverjum vagni
fylgir leiðsögumaður sem þylur
upp öll stóru nöfnin, sem þarna
hafa gengið um götur, og segir frá
, stóru kvikmyndunum, sem þarna
hafa verið framleiddar. Túrhest-
unum er sagt, að Ava Gardner
hafi verið skíthrædd við köngulær
og Robert Wagner hafi átt sitt
eigið förðunarhús. Sömuleiðis
fást þær upplýsingar, að Albert
Hitchcock hafi verið meinilla við
að ganga spönn úr rassi og að
honum hafi verið ekið hvert sem
hann vildi fara, þótt stuttar hafi
vegalengdirnar stundum verið.
I myndinni er ekið framhjá 500
byggingum og þarna er ýmislegt
kunnuglegt á ferðinni. Þarna eru
leikmyndirnar úr Kofa Tómasar
frænda, húsið í myndinni Psycho
og alls kyns kunnuglegir leik-
munir úr frægum kvikmyndum
fyrr og síðar. Til þess að lífga nú
upp á allt saman eru túrhestarnir
hræddir og skelfdir í þokkabót
með alls kyns blekkingum og
brögðum. En nánar um það í
myndinni í kvöld.
Sjónvarp laugardag kl. 22.00:
Myndir úr gömlu Peking
Sjónvarpið sýnir í kvöld nýja
kínverska bíómynd og kallast
hún Myndir úr gömlu Peking. Því
miður getum við ekki gefið um-
sagnir kvikmyndahandbóka um
myndina, þar sem þetta er glæný
mynd og ekki enn komin á blað í
bókum.
Bíómyndin er gerð eftir sögu
gamallar konu, sem rifjar upp
minningar frá uppvaxtarárum í
höfuðborg gamla Kína að liðinni
hálfri öld. Horfnir grannar og
vinir birtast fyrir hugskotssjónum
hennar og atvik sem þeim eru
tengd. Nú býr þessi gamla kona
langt fjarri Peking og allir þeir,
sem hún kynntist í uppvextinum
eru löngu horfnir af sjónarsviði
hennar.