Þjóðviljinn - 18.05.1984, Page 17
Föstudagur 18. maí 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17
Konur og friðurinn:
Friðarbúðir
í Stokkhóbni
Friðarhreyfingar kvenna á
Norðurlöndum hafa undanfarin
þrjú ár skipulagt göngur fyrir frelsi
í Evrópu, Sovétríkjunum og í
Bandaríkjunum. Þetta árið verður
engin ganga á þeirra vegum heldur
stofnað til friðarbúða við Stokk-
hólm í Svíþjóð f tengslum við
Stokkhólmsráðstefnuna. Búðirnar
verða opnaðar hinn 25. júní og
standa til 22. júlí.
í fumkvæðishópnum að friðar-
búðunum eiga sæti konur frá u.þ.b.
40 friðarsamtökum í Noregi, Sví-
þjóð, Danmörku, Færeyjum og fs-
landi. Tilgangur hópsins með því
að setja friðarbúðir á laggirnar er
að þróa áfram og vinna úr þeirri
reynslu, sem fengist hefur úr göng-
unum þremur til Parísar, Minsk og
Washington. Kjörorð hópsins eru
þessi: Kjarnorkuvopnalaus Norð-
urlönd. Kjarnorkuvopnalaus
svæði í Evrópu. Kjarnorkuvopna-
laus Evrópa í austri og vestri. Al-
gjör stöðvun á tilraunum, fram-
leiðslu og dreifingu kjarnorku-
vopna. Bann við fyrstu notkun
kjarnorkuvopna.
Friðarbúðirnar verða opnar
öllum, konum, körlum og börnum,
fyrstu tvær vikurnar, en síðari tvær
vikurnar eru eingöngu ætlaðar
konum og börnum. Tvö hús eru til
ráðstöfunar á svæðinu með gistiað-
stöðu og ennfremur góður fundar-
salur. Einnig verður hægt að tjalda
á svæðinu. Skammt frá þeim stað,
sem friðarbúðirnar eru, er að finna
eina bestu baðströnd Svíþjóðar.
Fólk verður að hafa með sér
(tjald), svefnpoka, dýnu, hand-
klæði, mál, disk og hnífapör, en
matur verður seldur á staðnum
gegn vægu verði.
Svart á hvítu
Bókafélag - bók-
menntatímarit
Hleypt hefur verið af stokkunum
nýju bókafélagi, sem ber nafnið
Svart á hvítu - Bókafélag. Þetta
bókafélag er óvenjulegt um margt,
t.d. eru reglur félagsins talsvert
frábrugðnar því sem tíðkast í öðr-
um bókafélögum eða klúbbum.
Inngönguskilyrði eru þau að kaupa
skal þrjár bækur á sérstöku til-
boðsverði, en síðan er kaupskylda
alls engin. Það þarf hvorki að af-
panta félagsbækur né heldur þarf
að greiða póstburðargjöld eins og
tíðkast í örðum bókaklúbbum. Það
eru sem sagt engar duldar kvaðir
lagðar á herðar félagsmanna. Lögð
er áhersla á þjónustu við félags-
menn, þeir fá sent fréttablað félags-
ins sem jafnframt verður vísir að
bókmenntatímariti, og kemur
fyrsta tölublað þess út nú innan
skamms.
Svart á hvítu - Bókafélag leggur
mikla áherslu á að forðast skrum
og dýra auglýsingamennsku (sem
hækkar verð bóka) en kappkostar
þess í stað að vanda til útgáfunnar,
fylgjast með þróuninni á erlendum
bókamarkaði og reyna að bæta úr
þeim tilfinnanlega skorti sem er á
íslenskum þýðingum á því besta af
samtímabókmenntum. Ennfremur
eru margar af dýrustu perlum
heimsbókmenntanna enn óþýddar
og er brýnt að bæta úr því.
Nú þegar hefur bókafélagið
:Á
NÝR VALKOSTUR Á
BÓKAMARKAÐI
Sk
SVARIÁHVÍTU
BOKA
hlotið frábærar viðtökur, sem sýnir
að stefna þess er rétt og bók-
menntaunnendur hafa tekið við
sér. Væntanlegar bækur bókaút-
gáfunnar Svart á hvítu standa fé-
lagsmönnum bókafélagsins að
sjálfsögðu til boða en auk þess hef-
ur félagið náð samkomulagi við
ýmis önnur bókaforlög um tilboð-
sverð á bókum þeirra til félags-
manna.
Svart á hvítu - Bókafélag er til
húsa að Borgartúni 29, símar 22229
og 18860.
Hreinlætisaðstaða
bætt um helming
segir Guðrún Fjeldsted í Ferjukoti,
en í júlí verður fjórðungsmót
á Kaldárbakkamelum
„Við eigum von á fjölda manna,
og vitum að fjöldi kemur ríðandi úr
Reykjavík. Við ætlum að bæta
mjög úr aðstöðunni hér, stækka
hreinlætisaðstöðuna og verðum
síðan með matvöruverslun og
sportvöruverslun á staðnum. Við
getum tekið á móti miklum fjölda,
því nóg er landrýmið“, sagði Guð-
rún Fjeldsted í Ferjukoti, fulltrúi
hestamannafélagsins Faxa í Borg-
arfirði í framkvæmdanefnd fyrir
fjórðungsmót hestamanna á Vest-
urlandi. Dagana 5.-8. júlí í sumar
verður fjórðungsmótið haldið á
Kaldárbakkamelum, en síðast var
haldið fjórðungsmót þar fyrir 4
árum og komu þá milli 3 og 4 þús-
und manns.
Flestamannafélagið Faxi er 60
ára og eitt þeirra félaga sem standa
að skipulagningu mótsins. Ef að
líkum lætur koma enn fleiri gestir á
mótið á Kaldárbakkamelum í
sumar en fyrir 4 árum.
Margt verður á dagskránni í
friðarbúðunum: ræðuhöld,
skemmtiþættir, dagskrá lista-
manna, samræður, uppákomur í
Stokkhólmi og margt fleira. Þess
má geta, að tveimur íslenskum
konum hefur verið boðið til friðar-
búðanna til að taka þátt í umræð-
um og eru það þær Guðrún Agn-
arsdóttir, alþingiskona, og Hanna
María Lárusdóttir, kennslukona.
Til þessara umræðna hafa konur í
austri og vestri verið boðaðar og er
ætlunin að leggja á sameiginleg ráð
um það hvernig konur geta stuðlað
að því að byggja upp friðsamlegri
veröld, byggja brýr milli þjóða og
eyða óvinaímyndum.
Þær íslenskar konur (og karlar),
sem hug hafa á því að dvelja í búð-
unum í lengri eða skemmri tíma,
eru vinsamlegast beðnar að láta
ínu Gissurardóttur vita milli kl. 14
og 18 alla virka daga í síma 13725.
ína tekur við staðfestingargjaldi
(200 krónum) og veitir allar nánari
upplýsingar. Ennfremur veita upp-
lýsingar Kristín Jónsdóttir í síma
78189, Kristín Einarsdóttir í síma
72797 og Hanna María Lárusdóttir
í síma 73311.
Aðalfundur KRON
Þröstur
✓
Olafsson
formaður
Á aðalfundi KRON sem haldinn
var fyrir skömmu var ný stjórn
kjörin og hefur hún skipt með sér
verkum. Þröstur Olafsson er for-
maður, Páll Bergþórsson varafor-
maður, Jón Þór Jóhannsson ritari
og Ásgeir Jóhannesson vararitari.
Aðrir í stjórn cru þau Þórunn
Klemensdóttir, Björn Kristjáns-
son, Sigurður Magnússon, Kjartan
Ólafsson og Gylfi Kristinsson.
Á fundinum var rætt um aðild
Sambandsins að ísfilm hf og einnig
var gerð svofelld ályktun um skatt-
amál samvinnufélaga sem verið
hefur til umræðu að undanförnu:
„Aðalfundur KRON 1984 átelur
harðlega árásir á KRON og alla
samvinnuhreyfinguna og mótmælir
tilefnislausum fréttaflutningi um
skattafríðindi samvinnufélaga.
Samvinnuhreyfingin hefur ekki
skattafríðindi umfram önnur
rekstrarform og óskar ekki eftir
þeim. Hins vegar tekur fundurinn
eindregið undir kröfur almennings
um stórlega hert eftirlit með skilum
á söluskatti og óskráðum rekstri í
iðnaði og viðskiptum."
-v.
OPIÐ:
Mánud.-fimmtud. 9-19.
Föstud.9-20. Laugard. 9-16.
JUUtJdjjj
Jon Loftsson hf
Hringbraut 121 Sími 10600
VERSLUNARMIÐSTÖÐ
VESTURBÆJARIN
~á á markaðsverði.
E
RAFTÆKJADEILD
II. HÆÐ
Raftæki - Rafljós
og rafbúnaður
JL-GRILLIÐ
Grillréttir allan daginn
MUNIÐ OKKAR
HAGSTÆÐU
GREIÐSLUSKILMÁLA
Eiðfaxi er mánaðarblað um hesta og hestamenn.
Geta hestamenn verið án þess
að fylgjast með?
Minnum á þrjár frábærar bækur um íslenska
reiðmennsku.
Verð kr. 350.-
+ póstkröfukostnaöur
Pöntunarsíminn er 91 - 85316
Innkaupin eru þægileg hjá okkur
Svo geturðu líka slappað af í Kaffiteríunni
EI-DFAXI