Þjóðviljinn - 24.05.1984, Qupperneq 3
Fimmtudagur 24. maí 1984 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
Hver eru laun skólafólksins?
tímakaup 73,04 kr.
Lœgsta
Undanfarna daga hafa glumið í útvarpinu
auglýsingar frá Alþýðusambandi íslands
þar sem það er áréttað að lægstu laun sem
greiða má fólki sem náð hefur 16 ára áldri
nema nú 12.660 krónum á mánuði. Ástæð-
an fyrir þessum auglýsingum er væntanlega
sá ruglingur með sérstakan unglingataxta
sem uppi var í vetur.
Þessa dagana streyma þúsundir ung-
menna út á vinnumarkaðinn. Öll þurfa þau
að ganga frá launamálum sínum við at-
vinnurekendur. Það er því eins gott að þau
viti að lægstu leyfilegu tímalaun eru nú
73,04 kr. í dagvinnu, 83,33 kr. í eftirvinnu
og 107,14 kr. í næturvinnu. Þetta er sam-
kvæmt 9. taxta Dagsbrúnar sem er lægsti
taxti félagsins.
Margir munu undrast hversu lítill munur
er á dagvinnulaununum annars vegar og
eftir- og næturvinnulaunum hins vegar.
Ástæðan er samningurinn frá því í vetur en
þá röskuðust hlutföllin illiiega. Fram að
þeirri samningagerð var eftirvinna greidd
með 40% álagi á dagvinnukaup og nætur-
vinna með 80% álagi, en nú eru þessi hlut-
föll 14% og 46,7%. Þetta var eitt þeirra
atriða sem hvað mestri óánægju olli með
samningana í vetur.
í nokkrum atvinnugreinum, einkum hjá
smærri verktökum í byggingar- og jarð-
vinnu, tíðkast það að semja um svonefnt
jafnaðarkaup en þá er greitt sama kaup
fyrir alla vinnu hvenær sem hún er unnin.
Þröstur Ólafsson hjá Dagsbrún kvað fé-
lagið engin afskipti hafa haft af þessum
samningum en hann hafði heyrt því fleygt
að sumsstaðar í byggingarvinnu væru
greiddar 80 kr. á tímann sem jafnaðarkaup.
„Við höfum ekki viljað vera að skipta
okkur af þessu af ótta við að við værum að
hafa eitthvað af mönnum. En það segir sig
sjálft að jafnaðarkaup getur verið hagstætt
þar sem eftirvinna er tiltölulega lítil en
verður æ óhagstæðari eftir því sem vinnu-
tíminn lengist", sagði Þröstur og bætti því
við að væntanlega teldu atvinnurekendur
sig hagnast á því að bjóða mönnum jafnað-
arkaup, „annars væru þeir varla að því“.
Fiskvinnsluskólinn
Utskrifar
14 nemendur
Endurmenntunarnámskeið um rafeinda-
og tölvutœkni, auk gœðamats haldið
Fiskvinnsluskólinn útskrifaði þ.
11. maí 14 fiskiðnaðarmenn. I ár
eru 10 ár liðin frá því að fyrstu
fiskiðnaðarmennirnir útskrifuðust
frá skólanum og hafa samtals 185
fiskiðnaðarmenn útskrifast á þessu
tímabili. Af þeim fjölda hafa 47
haldið áfram námi við skólann og
lokið prófi sem físktæknar. Um
90% allra fískiðnaðarmanna frá
skólanum munu starfa við fískiðn-
aðinn, flestir sem verkstjórar, eft-
irlitsmenn og stjórnendur fyrir-
tækja.
Nú stendur yfir endur-
menntunarnámskeið fyrir fiskiðn-
Neskaupstaður:
Glæsilegt
sjómanna-
dagsblað
í Neskaupstað er verið að leggja
síðustu hönd á eitt stærsta blað sem
gefíð hefur verið út hér á landi,
sjómannadagsblað uppá 144 blað-
síður. Það er Sjómannadagsráð í
Neskaupstað sem gefur blaðið út,
eins og venjulega, en aldrei fyrr
hefur blaðið verið svona stórt. Það
kemur formlega út á Sjómanna-
sunnudaginn.
Að sögn Smára Geirssonar, sem
er ritstjóri blaðsins skiptist blaðið
nokkuð jafnt í efni og auglýsingar.
í blaðið skrifar her manns um hin
fjölbreyttustu málefni. Blaðið er
nú í fyrsta sinn algerlega unnið í
Neskaupstað, en það varð mögu-
legt eftir að Nesprent hefur nýveriði
endurnýjað mjög allan vélakost
sinn.
í ritnefnd blaðsins eru auk
Smára, Magni Kristjánsson, skip-
stjóri, Guðjón Marteinsson, Ragn-
ar Sigurðsson og síðan var sérstakt
starfsfólk fengið til að annast um
auglýsingar í blaðið.
-S.dór
Á morgun kl. 17.30
Samkoma við
Sr. Friðrik
Sérstök útisamkoma verður í
Lækjargötu í Reykjavík á morgun,
föstudag 25. maí, við styttuna af
séra Friðriki Friðrikssyni stofn-
anda KFUM á íslandi. Þar mun
lúðrasveit leika og flutt verða
ávörp.
Útisamkoma þessi, sem er eins
konar Biblíuhátíð, er haldin í til-
efni Biblíuárs, en í ár eru liðin 400
ár frá útkomu Guðbrandsbiblíu.
aðarmenn og verkstjóra í frystihús-
um. Hér er um að ræða 9 daga
námskeið og stendur það frá kl.
9-17 á daginn. Þetta er í fyrsta sinn
sem skólinn heldur slíkt námskeið
og fjallar fyrri helmingur nám-
skeiðsins um rafeindabúnað og
tölvuvinnslu fyrir frystihús og
síðari helmingur m.a. um gæða-
bónus, fiskvinnsluvélar og fiskmat.
í tilefni af 10 ára afmælinu gáfu
fyrstu nemendur sem útskrifuðust
þaðan, skólanum örtölvubúnað af
bestu gerð. Búist er við, að á næstu
árum verði flest öll frystihús lands-
ins komin með heildar skráningar-
og tölvukerfi, sem þjónar jafnt
þörfum vinnslunnar og því rekstr-
arbókhaldi sem við hana tengist.
Verið er að gera ýmsar tilraunir
með að nota rafeindavogir og
önnur rafeindatæki til þess að betr-
umbæta pökkun fisks.
Síðustu ár hefur verið mikil um-
ræða um gæðamál í fiskiðnaði og
það launakerfi sem hefur verið í
gangi í fiskiðnaði hefur hingað til
einungis tekið mið að afköstum
starfsmanna og nýtingu hráefnis.
Vöruvöndun hefur verið þar út-
undan sem hvati á greiðslu. Til-
raunir með svokallaðan gæðabón-
us, þar sem vöruvöndun er verð-
launuð hefur verið í gangi nú um
tíma hjá frystihúsi KEA á Dalvík
og Bæjarútgerð Reykjavíkur. Hér
er um að ræða tvær mismunandi
aðferðir við útreikning og fram-
kvæmd, sem miða þó báðar að
sama markmiði. Á endur-
menntunarnámskeiði Fiskvinnslu-
skólans sem nú stendur yfir verður
farið yfir bæði þessi kerfi og ne-
mendum kynntar helstu niðurstöð-
ur, auk þess sem rafeinda- og tölv-
ubúnaðurinn verður kynntur.
ss
Tíu af fjórtán nemendum sem nú útskrifast, ásamt skólastjóra og tveim kennurum.
Lengra fæðingarorlof við fleirburafæðingar
Þríbura foreldrar á
Djúpavogi fá viðbót
Eitt af síðustu verkum nýliðins n
þings var að samþykkja breyting-
artillögu frá Guðrúnu Helgadóttur
um fæðingarorlof.
Samkvæmt þessari tillögu bætist
einn mánuður við hið lögskipaða
3ja mánaða fæðingarorlof fyrir
hvert barn sem fæðist umfram eitt
við fleirburafæðingu. Þannig fær
kona sem fæðir tvíbura fjögurra
mánaða orlof og fimm mánaða or-
lof ef hún eignast þríbura.
Þessi breyting er afturvirk frá og
með 1. janúar 1983 og munu því
foreldrar þríburanna á Djúpavogi
sem fæddust á s.l. ári fá leiðrétt-
ingu mála sinna.
Guðrún Helgadóttir sagði í sam-
tali við Þjóðviljann að hér væri um
réttlætismál að ræða sem allir
hefðu verið sammála um að lag-
færa. „Það tók að vísu allan vetur-
inn að fá þetta mál útúr nefnd en
það hafðist fyrir þinglok", sagði
Guðrún. -«g-
Eggjadreifing-
arstöðin að
taka til starfa
• Verður staðsett í Kópavogi
• Stóru framleiðendurnir óttast
samkeppni.
í kringum næstu mánaðarmót tekur eggjadreifíngarstöðin, sem svo
mjög hefur verið deilt um, til starfa og verður hún staðsett í Kópavogi.
Eins og flestir muna urðu slíkar deilur um málið hjá eggjaframleiðendum,
að hópur manna gékk af fundi, sem var á móti máiinu en varð undir í
atkvæðagreiðslu um það á fundinum. Þar var um að ræða nokkra stærstu
eggjasalana á landinu.
Hinir sem hlynntir voru stöðinni hófust handa og er málið nú að komast
í höfn. Eigendur stærstu hænsnabúanna eru mjög óánægðir og óttast
samkeppnina sem stöðin mun veita þeim, en þeir hafa verið alls ráðandi á
markaðnum til þessa. Sameining smærri framleiðenda og stofnun
dreifingarstöðvarinnar mun breyta þessu mjög og er talið að stöðin muni
spara mikið fé í dreifingarkostnaði. -S.dór
íþróttafélag fatlaðra
Æfíngabúðir á Selfossi
Starfrækslu Geimskemmtistöðvarinnar Svarthol i Tjarnarbíói lýkur um helg-
Ina. Verður farin ferð í kvöld, föstudagskvöld og laugardagskvöld kl. 21.00
stundvíslega. í geimskemmtistöðinni hafa geimkarlar spriklað og stórrokk-
hljómsveitin OXMÁ spilað vlð frábærar undirtektir.
Hópur úr íþróttafélagi fatlaðra mun hefja æfíngar um næstu helgi fyrir
Ólympíuleika fatlaðra í æfíngabúðum hjá íþróttamiðstöðinni á Selfossi.
íþróttamiðstöðin nýtur vinsæida íþróttafélaga og hópa sem nýtt hafa
nýtt sér fjölþætta þjónustu í miðstöðinni. Nýverið var hópur handbolta-
drengja frá sænska Gautaborgarliðinu Heim í miðstöðinni og kepptu
drengirnir við selfysska jafnaldra sína.
-óg