Þjóðviljinn - 24.05.1984, Side 5

Þjóðviljinn - 24.05.1984, Side 5
Fimmtudagur 24. maí 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5 Friðarfrumkvæði í fjórum heimsálfum Stuðningsyfirlýsing frá Jóhannesi Páli páfa Eg vona að þetta frumkvœði hljóti góðar undirtektir 1 Ég hefifengið fregnir af Friðarfrumkvœði ífjórum heimsálfum sem samtökin Parlamentarians for World Order ogýmsir afleiðtogum heimsins hafa stuðlað að. Ég sendi í bæn góðar óskir til allra þeirra sem sameinast hafa um þetta verðuga átak. Ég vona að þettafrum- kvœði og önnur svipuð muni hljóta góðar undirtektir og örlátan stuðning þeirra sem bera þá ábyrgð að efla mál- stað friðar. Vegna þess að hœttur og afleiðingar kjarn- orkuátaka mundu hrikalegar verða eins og glöggt kemur fram í nýlegri skýrslu Vísindaakademíu Páfagarðs. Um leið og ég tek undirþettafrumkvœði bið ég þess einnig að Almáttugur Guð blessi ríkulega viðleitni allraþeirra sem vinnafyrir sönnum og traustum friði milliþjóða og ríkja. Jóhannes Páll páfi annar. Heimskir kj uráðið fagnar frumkvæðinu Yfirlýsing sem Philip A. Potter aðal- ritari Heimskirkjuráðsins gaf út í gœr 1. Heimskirkjuráðið metur mikils þýðingarmikið frum- kvæði í þágu friðar, sem þau hafa tekið Indira Gandhi for- sætisráðherra, Miguel de la Madrid forseti, Julius Nyerere forseti, Olof Palme forsætisráð- herra og Andreas Papandreaú forsætisráðherra, með sam- eiginlegri yfirlýsingu þann 22. maí 1984 um afvopnun, þar sem lögð er áhersla á það að afvopn- un á sviði kjarnorkuvígbúnaðar er orðin afar brýn. 2. Sameiginlegt átak þeirra í þágu friðar verðskuldar ein- lægan stuðning af hálfu allra hópa manna, sem leita friðar á þessum dögum þegar ástand í alþjóðamálum fer ört versnandi og árekstrar stig- magnast. 3. Heimskirkjuráðið tekur sterklega undir áskorun þeirra til Bandaríkjanna, Sovétríkj- anna, Bretlands, Frakklands og Kína um að ríkin „stöðvi allar tilraunir með kjarnorkuvopn, framleiðslu á þeim og út- breiðslu þeirra og fari strax á eftir verulegur niðurskurður á kjarnorkuvígbúnaði“. Minnir Heimskirkjuráðið á ávarp Sjötta heimsþings síns um að brýn nauðsyn sé að taka slíkt skref. 4. Um leið og tekið er undir frumkvæði þetta ítrekar Heimskirkjuráðið hvatningu sína til kirkna um að þær efli viðleitni sína í þágu friðar og réttlætis í samvinnu við aðra þá sem leitast við að vekja al- menning til vitundar um þann háska sem nú steðjar að friðnum. Yfirlýsingin gerir ráð fyrir sérstökum aðgerðum sem kirkjur geta stutt,sem og hreyf- ingar þeiip tengdar, til að virkja almenningsálitið. 5. Sjötta heimsþingið lýsti því yfir að „skyndilega hefur hert á æðislegu kapphlaupi til kjarn- orkuvoðans“. Sagan þekkir enga hliðstæðu við þá ógnun við möguleika mannsins til að lifa af sem kjarnorkuvopnin skapa. Kapphlaupið þarf að stöðva og snúa við þeim straumum sem nú ráða ferðinni til að mannkynið og sköpunar- verk guðs megi varðveita. Því fagnar Heimskirkjuráðið frum- kvæði fyrrnefndra leiðtoga. Guð hefur skapað okkur og allt sköpunarverkið og hann krefst þess að við leitum friðar, rétt- lætis og virðuleika á heimi þar sem enginn þarf að óttast og líf hvers og eins er heilagt. Bréf til Ronald Reagan forseti 22. maí 1984 Hvíta húsinu Washington Kæri herra forseti. Við skrifum yður til að vekja athygli yðar á yfirlýs- ingu sem var gefin út í dag af leiðtogum Indlands, Mexíkó, Tanzaníu, Svíþjóðar, Grikklands og Arg- entínu en sú yfirlýsing er þáttur í Friðarfrumkvæði úr fjórum heimsálfum. Þessir þjóðarleiðtogar hafa lýst því yfir að þeir muni á næstu mánuðum gera allt sem er í þeirra valdi til að rjúfa þann vítahring sem nú einkennir vígbúnaðarkapphlaupið. Þetta frumkvæði á sér ekkert fordæmi. Það endurspeglar áhyggjur fólks um allan heim, allra kynþátta, allra trúarsamfé- laga og einstaklinga frá ólíkum stjórnkerfum. Það sýnir okkur hve mikið er í húfi fyrir allt mannkyn að ríkisstjórnir, sérstaklega ríkisstjórnir risaveldanna, sýni fulla ábyrgð í þessum málum. Reagan Nýlegar niðurstöður vísindamanna sýna að jafnvel minniháttar kjarnorkuátök gætu gjörspillt svo öllu umhverfi og lífkerfi jarðarinnar að útilokað yrði að líf gæti þrifist áfram eftir slík átök. í ljósi slíkra niður- staðna vísindamanna er enn ljósara en áður að af- vopnun er ekki aðeins viðfangsefni risaveldanna held- ur einnig allra ríkja, stórra og smárra. Okkur er ljóst að einstaklingar og ríkisstjórnir get- ur greint á um með hvaða hætti eigi helst að ná árangri í afvopnunarviðræðum. Engu að síður hvetjum við yður eindregið til að íhuga vandlega frumkvæði leiðtoganna sex því þar er á ferðinni alvarleg tilraun til að rjúfa vítahring árangursleysisins og beitt áhrifum til að airt mannkyn geti lifað áfram þótt heimurinn verði sífellt hættumeiri. Virðingarfyllst, Thomas J. Downey Jin Leach Berkley Bedell George Miller Paul Simon. frá þingmönn- um úr Demo- krataflokknum og Republik- anaflokknum • Forsetinn hvattur til að takafrum- kvœðinu vel Gandhi - Palme - Papandreoú - Alfonsín - Nyerere - de la Madrid

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.