Þjóðviljinn - 24.05.1984, Qupperneq 5
Fimmtudagur 24. maí 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5
Friðarfrumkvæði í fjórum heimsálfum
Stuðningsyfirlýsing frá Jóhannesi Páli páfa
Eg vona að þetta frumkvœði
hljóti góðar undirtektir
1 Ég hefifengið fregnir af Friðarfrumkvœði ífjórum
heimsálfum sem samtökin Parlamentarians for World
Order ogýmsir afleiðtogum heimsins hafa stuðlað að.
Ég sendi í bæn góðar óskir til allra þeirra sem sameinast
hafa um þetta verðuga átak. Ég vona að þettafrum-
kvœði og önnur svipuð muni hljóta góðar undirtektir og
örlátan stuðning þeirra sem bera þá ábyrgð að efla mál-
stað friðar. Vegna þess að hœttur og afleiðingar kjarn-
orkuátaka mundu hrikalegar verða eins og glöggt kemur
fram í nýlegri skýrslu Vísindaakademíu Páfagarðs. Um
leið og ég tek undirþettafrumkvœði bið ég þess einnig
að Almáttugur Guð blessi ríkulega viðleitni allraþeirra
sem vinnafyrir sönnum og traustum friði milliþjóða og
ríkja.
Jóhannes Páll páfi annar.
Heimskir kj uráðið
fagnar frumkvæðinu
Yfirlýsing sem Philip A. Potter aðal-
ritari Heimskirkjuráðsins gaf út í gœr
1. Heimskirkjuráðið metur
mikils þýðingarmikið frum-
kvæði í þágu friðar, sem þau
hafa tekið Indira Gandhi for-
sætisráðherra, Miguel de la
Madrid forseti, Julius Nyerere
forseti, Olof Palme forsætisráð-
herra og Andreas Papandreaú
forsætisráðherra, með sam-
eiginlegri yfirlýsingu þann 22.
maí 1984 um afvopnun, þar sem
lögð er áhersla á það að afvopn-
un á sviði kjarnorkuvígbúnaðar
er orðin afar brýn.
2. Sameiginlegt átak þeirra í
þágu friðar verðskuldar ein-
lægan stuðning af hálfu allra
hópa manna, sem leita friðar á
þessum dögum þegar ástand í
alþjóðamálum fer ört
versnandi og árekstrar stig-
magnast.
3. Heimskirkjuráðið tekur
sterklega undir áskorun þeirra
til Bandaríkjanna, Sovétríkj-
anna, Bretlands, Frakklands og
Kína um að ríkin „stöðvi allar
tilraunir með kjarnorkuvopn,
framleiðslu á þeim og út-
breiðslu þeirra og fari strax á
eftir verulegur niðurskurður á
kjarnorkuvígbúnaði“. Minnir
Heimskirkjuráðið á ávarp
Sjötta heimsþings síns um að
brýn nauðsyn sé að taka slíkt
skref.
4. Um leið og tekið er undir
frumkvæði þetta ítrekar
Heimskirkjuráðið hvatningu
sína til kirkna um að þær efli
viðleitni sína í þágu friðar og
réttlætis í samvinnu við aðra þá
sem leitast við að vekja al-
menning til vitundar um þann
háska sem nú steðjar að
friðnum. Yfirlýsingin gerir ráð
fyrir sérstökum aðgerðum sem
kirkjur geta stutt,sem og hreyf-
ingar þeiip tengdar, til að
virkja almenningsálitið.
5. Sjötta heimsþingið lýsti því
yfir að „skyndilega hefur hert á
æðislegu kapphlaupi til kjarn-
orkuvoðans“. Sagan þekkir
enga hliðstæðu við þá ógnun
við möguleika mannsins til að
lifa af sem kjarnorkuvopnin
skapa. Kapphlaupið þarf að
stöðva og snúa við þeim
straumum sem nú ráða ferðinni
til að mannkynið og sköpunar-
verk guðs megi varðveita. Því
fagnar Heimskirkjuráðið frum-
kvæði fyrrnefndra leiðtoga.
Guð hefur skapað okkur og allt
sköpunarverkið og hann krefst
þess að við leitum friðar, rétt-
lætis og virðuleika á heimi þar
sem enginn þarf að óttast og líf
hvers og eins er heilagt.
Bréf til
Ronald Reagan forseti 22. maí 1984
Hvíta húsinu
Washington
Kæri herra forseti.
Við skrifum yður til að vekja athygli yðar á yfirlýs-
ingu sem var gefin út í dag af leiðtogum Indlands,
Mexíkó, Tanzaníu, Svíþjóðar, Grikklands og Arg-
entínu en sú yfirlýsing er þáttur í Friðarfrumkvæði úr
fjórum heimsálfum. Þessir þjóðarleiðtogar hafa lýst
því yfir að þeir muni á næstu mánuðum gera allt sem
er í þeirra valdi til að rjúfa þann vítahring sem nú
einkennir vígbúnaðarkapphlaupið. Þetta frumkvæði
á sér ekkert fordæmi. Það endurspeglar áhyggjur
fólks um allan heim, allra kynþátta, allra trúarsamfé-
laga og einstaklinga frá ólíkum stjórnkerfum. Það
sýnir okkur hve mikið er í húfi fyrir allt mannkyn að
ríkisstjórnir, sérstaklega ríkisstjórnir risaveldanna,
sýni fulla ábyrgð í þessum málum.
Reagan
Nýlegar niðurstöður vísindamanna sýna að jafnvel
minniháttar kjarnorkuátök gætu gjörspillt svo öllu
umhverfi og lífkerfi jarðarinnar að útilokað yrði að líf
gæti þrifist áfram eftir slík átök. í ljósi slíkra niður-
staðna vísindamanna er enn ljósara en áður að af-
vopnun er ekki aðeins viðfangsefni risaveldanna held-
ur einnig allra ríkja, stórra og smárra.
Okkur er ljóst að einstaklingar og ríkisstjórnir get-
ur greint á um með hvaða hætti eigi helst að ná árangri
í afvopnunarviðræðum. Engu að síður hvetjum við
yður eindregið til að íhuga vandlega frumkvæði
leiðtoganna sex því þar er á ferðinni alvarleg tilraun til
að rjúfa vítahring árangursleysisins og beitt áhrifum
til að airt mannkyn geti lifað áfram þótt heimurinn
verði sífellt hættumeiri.
Virðingarfyllst,
Thomas J. Downey Jin Leach
Berkley Bedell George Miller
Paul Simon.
frá þingmönn-
um úr Demo-
krataflokknum
og Republik-
anaflokknum
• Forsetinn
hvattur til
að takafrum-
kvœðinu vel
Gandhi - Palme - Papandreoú - Alfonsín - Nyerere - de la Madrid