Þjóðviljinn - 24.05.1984, Síða 10
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 24. maí 1984
Kjartan Jóhannsson
Guðmundur Einarsson
Kjartan Jóhannsson
Alþýðuflokki
Einkennst
af óðagoti
„Ég hef ekki langa þingreynslu
en af þeim kynnum þá hefur þetta
þing einkennst af meira óðagoti og
minni tíma til að vinna almennilega
að málum í nefndum en ég hef áður
kynnst“, sagði Kjartan Jóhannsson
formaður Alþýðuflokksins.
Skipulagsleysiö hefur eiginlega
keyrt um þverbak. Málþófið hefur
mest verið hjá stjórnarþing-
mönnum, mál hafa festst í nefnd-
um og stjórnarflokkarnir hafa stað-
ið í alls kyns hrossakaupum um af-
greiðslu mála. Stjórnarflokkarnir
hafa gefist upp í afstöðumyndun og
mál afgreidd til frekari umræðu,
síðar meir, eins og t.d. kartöflurn-
ar, mangóið, jarðalög, Búseti,
skipstjórnarréttindi og vélstjóra-
réttindi og þannig mætti lengi
halda áfram“, sagði Kjartan Jó-
hannsson.
-Ig-
Kristín Halldórsdóttir
Kvennalista
Meiri hamagangur
en ég átti von á
„Það er búin að vera gífurleg
pressa á þingstörfum og manni of-
býður gersamlega hvernig vinnu-
brögðin hafa verið. Það er erfitt að
sætta sig við þetta og það hefur
komið fram í máli bæði stjórnar-
andstöðunnar og stjórnarþing-
manna hér síðustu dagana“, sagði
Kristín Halldórsdóttir þingmaður
Samtaka um kvennalista.
„Þetta hefur verið meiri hama-
gangur en ég átti von á, þó ég hafi
ekki mikið velt þessum málum fyrir
mér. En þetta er verra en ég hélt.
Ég trúi ekki öðru en hægt verði að
færa þetta í betra horf.“
Kristín sagði að þingmenn
Hvað flnnst stjórnarandstöðunni um afgreiðslu þingmála
og starfsháttu á lokaspretti þinghaldsins?
Guðmundur Einarsson
Bandalagi jafnaðarmanna
Meira kapp
en forsjá
„Það verður fróðiegt fyrir fólk
að fletta því upp í þingtíðindum
hvernig talsmenn hinna ýmsu
nefnda hafa kynnt niðurstöður
sínar fyrir þingheimi undanfarna
daga. Nefndin hafði ekki nógan
tíma til að ræða málið ýtarlega
o.s.frv. Þannig hefur verið unnið
hér á þingi síðustu daga, meira af
kappi en forsjá“, sagði Guðmund-
ur Einarsson þingmaður Banda-
lags jafnaðarmanna.
„Það eru ýmis mál sem menn sjá
á eftir og hefði þurft að skoða betur
eins og t.d. fjarskiptamálið sem
dvaldi aðeins örfáa sólarhringa í
neðri deild. Þegar dró að þinglok-
um og ráðherrar óttuðust að þeirra
mál næðu ekki fram þá komu í ljós
miklar deilur stjórnarþingmanna
og í kjölfar á því mikil hrossakaup á
milli stjórnarflokkanna. Það sem
fyrst og fremst olli erfiðleikum í
störfum þingsins nú síðustu dagana
var ósamkomulag innan stjórnar-
innar sem gerði ókleift að skipu-
leggja þinghaldið", sagði Guð-
mundur Einarsson.
-lg-
Helgi Seljan
Alþýðubandalagi
Stjórnarþingmenn
fóru í hár saman
„Afgreiðslumátinn hér hefur
verið óvenjuhraður síðustu daga
miðað við það að ekkert hefur knú-
ið á. Oft hafa verið hátfðir fram-
undan eða þingrof og kosningar en
slíku var ekki til að dreifa nú“,
sagði Helgi Seljan.
„Eitt einkennið á þingstörfunum
síðustu daga er að stjórnarþing-
menn hafa lent í hár saman og mál-
þófið hefur fyrst og fremst verið
þeirra megin“.
„Það er rétt að minna á það að
stærsta kosningaloforðið frá því í
fyrra, jöfnun hitakostnaðar, liggur
úti. Þegar frumvarpið kom fram frá
ráðherra vildi enginn kannast við
barnið og það var því svæft í efri
deild, enda taldi frumvarpið allt í
lagi með kostnaðinn á landsbyggð-
inni þar sem orkureikningar hefðu
hækkað í Reykjavík.
Einnig má nefna að sjaldan eða
aldrei hefur eins mikil tregða verið
varðandi afgreiðslu mála frá
stjórnarandstöðu og í vetur og
verður að fara allt aftur til við-
reisnar til að finna samjöfnuð“,
sagði Helgi Seljan.
Kvennalistans ætluðu að nota
sumarið til að fara yfir það sem þeir
hefðu lært af þingstörfunum í vet-
ur. „Ég vona að sumarvikurnar
endist til að vinna úr því sem við
höfum lært og kynnst og komum
reynslunni ríkari til þings í haust.
Frá Sjúkraliðaskóla
íslands
Umsóknareyðublöö um skólavist fyrir haustið
1984 liggja frammi á skrifstofu skólans að Suð-
uriandsbraut 6IV hæð frá kl. 10 -12 daglega, til
loka umsóknarfrests 18. júní n.k.
Skólastjóri
HÚS VARÐARST AÐA
Við Félagsheimilið Aratungu Biskupstungum
er laus til umsóknar. Staðan er laus 1. júlí.
Umsóknum skal skila til formanns húsnefnd-
ar, Sveins A. Snæland, Espiflöt, fyrir 7. júní.
Nánari upplýsingar gefa:
Sveinn sími 99-683
Karítas sími 99-6875
Róbert sími 99-6888.
Húsnefnd.
- ig- - ig.
PÓST- OG
SÍMAMÁLASTOFNUNIN
Auglysing um frímerki
Miðvikudaginn 6. júní 1984 gefur Póst- og
símamálastofnunin út smáörk eða blokk með
einu frímerki að verðgildi 4000 aurar. Verð
arkarinnar er 6000 aurar (60 krónur) og renn-
ur mismunur á verðgildi frímerkisins og ark-
arinnar í sjóð til styrktar hinnar fyrirhuguðu
norrænu frímerkjasýningar, NORDIA 84,
sem haldin verður í Reykjavík 3. til 8. júlí
1984.
Þessi smáörk verður aðeins til sölu til 8. júlí
1984, ef hún verður ekki áður uppseld.
Frímerkið gildir til greiðslu burðargjalds á
hvers konar póstsendingar þar til öðruvísi
kann að verða ákveðið.
Reykjavík, 21/5, 1984
Póst- og símamálastofnunin