Þjóðviljinn - 31.05.1984, Blaðsíða 3
Þetta er bara
okkar skoðun!
Tökum málið fyrir aftur ef sterkar
ábendingar koma fram, segir for-
maður skipulagsnefndar
„Það kann vel að vera að það
hefði verið eðlilegra að lcita um-
sagnar umhverfismálaráðs fyrir-
fram, en ef það koma fram sterkar
ábendingar, þá tökum við málið
fyrir á nýjan leik“, sagði Vilhjálm-
ur Þ. Vilhjálmsson, formaður
skipulagsnefndar vegna lóðar-
stækkunar Húsasmiðjunnar, sem
Þjóðviljinn greindi frá í gær. „Við
erum bara að lýsa okkar skoðun“.
Vilhjálmur lagði áherslu á að
málið hefði verið lengi í vinnslu og
Höfum
óskað
skýringa
segir Gísli Gíslason
hjá Náttúruverndarráði
„Okkar fyrstu viðbrögð við þess-
um fréttum eru þau að senda skipu-
lagsnefnd Reykjavíkur bréf sem
verður boðsent til þeirra á föstu-
dagsmorguninn og þar óskum við
upplýsinga hjá nefndinni um fyrir-
hugaðar framkvæmdir við
Háubakka“, sagði Gísli Gíslason
hjá Náttúruverndarráði í samtali
við Þjóðviijann í gær.
„Ef uppdráttur að fyrirhuguðum
framkvæmdum gefur til kynna að
of langt sé byggt að bökkunum má
segja að það sé allt annað en
skemmtileg afmælisgjöf sem
Háubakkar fá, því einmitt í dag er
eitt ár liðið frá því þeir voru form-
lega friðlýstir", sagði Gísli enn-
fremur. „Eg vil hins vegar ekki tjá
mig neitt um þetta mál efnislega
fyrr en svör hafa borist frá Skipu-
lagsnefnd. Ef skipulagið gengur á
hið friðlýsta svæði munum við
stöðva fyrirhugaðar framkvæmdir
því til þess hefur Náttúruvemdar-
ráð alla möguleika“, sagði Gísli að
síðustu. —v.
Guðrún Jónsdóttir, þáverandi for-
stöðumaður Borgarskipulags hefði
lagt mikla vinnu í það. „Við förum
ekki inn á friðlýsta svæðið", sagði
hann.
- Nú sýna teikningar að
skemmubyggingarnar eiga að
ganga alveg að friðlýsingarlínunni
og 20 metra inn í fólkvanginn?
„Menn töldu að þetta gæti
gengið og ég man ekki eftir neinum
ágreiningi um þetta mál. Það komu
engar athugasemdir og Guðrún
lagði málið svona fram. Annars
skil ég ekki af hverju þeir eru að
sækja um þessa lóðarstækkun því
þeir hafa lóð hinum megin við
Kleppsmýrarveginn“.
- Hvað með holræsið? Nú mælir
gatnadeildin gegn þessu?
„Það er auðvitað ekki gott að
holræsi liggi undir húsum, en þess
eru þó dæmi, eins og í Mjóddinni.
Ef umhverfismálaráð kemur með
sterkar ábendingar þá verður mál-
ið endurskoðað. Það hefur margoft
komið fyrir“.
- Geturðu nefnt dæmi um slíkt?
„Nei, - ekki svona alveg“.
- Veit formaður skipulagsnefnd-
ar hvað fólkvangsfriðun þýðir?
„Það er opið svæði til almanna-
nota, - svæði fyrir almenning“.
- Er eðlilegt að úthluta lóð inn á
slíkt svæði?
„Það verður að skoða það hverju
sinni. Það hreyfði enginn athuga-
semdum. Við samþykktum þetta
aðeins fyrir okkar leyti og um leið
að sú niðurstaða yrði kynnt um-
hverfismálaráði og hafnarstjórn
vegna vegatenginga. Þetta er ekki
lokaákvörðun“.
- Hefði ekki verið réttara að
leita umsagnar fyrirfram, - um-
hverfismálaráð fer t.d. með eftirlit
Háubakkanna?
„Það kann að vera rétt, en þetta
er ekki lokaákvörðun. Það er opin
leið ef sterkar ábendingar koma
fram að taka málið upp á nýjan
leik“.
- Eru þá tök á að breyta niður-
stöðu ykkar?
„Tvímælalaust“.
-ÁI
Éimmtudagur3í.maí'19&4 ‘MÖtíVtLjlNK — SÍÐÁ'3
Húsasmiðjan
Súðarvogi 1-5
Sklpulagið á stækkaðri lóð Húsasmlðjunnar. Eins og hér sést er áformað að byggja skemmur út að nýju
lóðamörkunum, 20 metra inn í fólkvanginn og alveg upp að friðlýsta svæðlnu við Háubakka.
Gatna- og holræsadeildin
lagðist gegn lóðarstækkun:
Ekki alltaf farið
að okkar ráðum
nauðsynlega að koma holræsi
þarna".
- Kemur ekki til greina að flytja
holræsið utan í bakkana?
„Nei, það er alveg vonlaust,
enda er þar snarbratt og ekki hægt
að vinna við lagningu þess. Borgar-
skipulagið hefur spurst fyrir um
hvort hægt yrði að leggja holræsið í
lóðina, undir opnum geymslu-
skemmum en ég tók ekki of vel í
það. Við viljum ekki vera undir
byggingum með holræsin og erum
enn á sömu skoðun að þarna eigi
ekki að byggja, heldur setja hol-
ræsið á fyrirhugaðan stað og leggja
stíg eða götuslóða þar yfir“.
Þess má geta að í bréfi gatna- og
holræsadeildar er skipulagsnefnd
minnt á friðlýsta svæðið við
Háubakka. ÁI
segir Ólafur
Guðmundsson,
yfirverk-
frœðingur
„Þeir fara nú ekki alltaf eftir því
sem við segjum“, sagði Ólafur
Guðmundsson yfirverkfræðingur á
gatna- og holræsadeild borgarinn-
ar um afgreiðslu skipulagsnefndar
á Húsasmiðjulóðinni. Deildin hafði
lagst gegn þvi bréflega að byggt
yrði yfir fyrirhugaðalegu holræsis
sem er utan við fyrri lóð Húsa-
smiðjunnar.
„Holræsin fara núna beint fram
af bökkunum", sagði Ólafur, „og
það er óviðunandi. Það þarf
Frárennsllð steyplst úr opnum
rörum fram á bakkana og var ætlun-
in að leggja það I eitt ræsl meðfram
núverandl lóð Húsasmlðjunnar.
Ljósm. Atll.