Þjóðviljinn - 21.06.1984, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 21.06.1984, Blaðsíða 5
s Viðtal við Oskar Garibaldason á Siglufirði Texti og myndir: Ari Trausti Guðmundsson Óskar Garibaldason: Það er ábyggilega grundvöllur fyrir meira og betra starfi og þar þurfa að koma til miklu róttækari menn en hafa valist til þeirra starfa núna. Að vera verkakellingum og verkaköllum til einhvers gagns Þegar klukkan kirkjunnar glumdi Siglfirðingum, hélt ég af stað; ekki þó í guðshúsið, heldur norður í bæ. Það var hlýleg sunn- angola, sem þyrlaði upp stöku rykbólstrum; menn undirbjuggu hátíðahöld í sólinni á íþróttavell- inum. Það var hátíðisdagur sjó- manna. Bærinn var syfjulegur; hljóður. Við Hvanneyrarbrautina, utan við (þróttavöllinn, býr Óskar Garí- baldason, núorðið einn. Lífsförunauturinn, Anney, látin fyrir nokkrum árum og börnin hér og hvar, fimm að tölu. Ég stefni heim til Óskars. Við höfðum mælt okkur mót til viðtals. Óskar er orðinn „löggiltur elli- lífeyrisþegi“, eins og hann eitt sinn orðaði það, hættur að verma stóla niðri á Vökuskrifstofu - hjá verkalýðsfélaginu. Hann hefur ýmislegt fyrir stafni, meira að segja svæðanudd fyrir vini og kunningja. Óskar hefur verið framarlega í róttækri verkalýðs- hreyfingu í meira en 50 ár og um hríð formaður verkalýðsfélagsins Vöku. í gamla daga var hann kallaður bolsi, nú líklega kommi, en þó oftast Óskar Gari og lítur fjandakornið ekki út fyrir að vera orðinn 75 ára þar sem hann er á hraðferð um bæinn, með svarta alpahúfuna á ská. Vináttan of mikil Við settumst í rauða, slitna hægindastóla í lítilli stofunni. Óskar föndraði við pappírs- stranga með stórgerðum höndun- um. Hann talar lágt, ofurlítið hásri röddu; alls ekki viss um að hann hafi neitt nothæft að segja. Ég bað hann að segja mér frá kjörum fólks á Siglufirði um þess- ar mundir. „Þótt ótrúlegt virðist hafa Siglfirðingar það sæmilega gott. Margir vaða enn í peningum, hvernig í fjandanum sem á því stendur, miðað við launin sem menn hafa. Vitanlega er ein skýr- ingin sú að menn leggja hreint hroðalega á sig. En manni blöskr- ar samt hvað fólk leyfir sér hvað sem öllum þræidóminum líður. Fyrir 10-20 árum var hreint ekki hægt að veita sér allt sem það veitir sér nú. Líklega eru áhrif kjararýrnunar bara lítið komin í ljós. Það er nú svo, vinur minn“. Óskar horfir á mig í gegnum þykk gleraugun og hlær lágt og hálft í hvoru afsakandi. Ég fer fram á mat hans á verkalýðs- hreyfingunni. „Stórt er spurt. Ef við lítum á verkalýðshreyfinguna í heild sinni, er margt við hana að at- huga. Sjáðu til dæmis þessa undarlegu vináttu milli forystu- manna okkar og milli atvinnurek- endavaldsins. A faglega sviðinu finnst mér þessi vinátta, sem þó er kannski ekki rétta orðið, ganga út yfir allt sem eðlilegt er. Og þegar okkar forystumenn láta út úr sér að þeir geti ekki svarað einföldustu spurningum um kaup og kjör án þess að hafa samráð við fulltrúa VSÍ, finnst manni langt gengið og sjálfstæðið orðið lítið. Og í framhaldi af sjálfstæð- inu finnst mér rétt að taka fram að auðvitað tel ég samtök okkar sjálfstæð í sjálfu sér, en skil ekki nauðsyn þess að sækja samráð í smiðju andstæðingsins; mér finnst það voðalega óyndislegt.“ A móti samningunum Þegar ég ber upp á Óskar að hann hafi verið á móti síðustu kjarasamningum, strýkur hann skallann, hlær aftur, hugsar sig um og segir svo alvarlegri en áður: „Ég var á móti þeim og lét í ljósi sérstæða skoðun. Ég óskaði eftir því að samningarnir fengju ekki eitt einasta atkvæði; þeir væru hundsaðir. Þá hefðum við staðið betur að vígi, Auðvitað bætti það úr að þeir voru þó felld- ir á fáeinum stöðum, en ég held samt að samningarnir hafi ekki verið alvondir, en þá átti ekki að gera á þessari stundu og forystan okkar þurfti aðhald sem hefði fengist með því að fólkið hunds- aði þessa ákveðnu samnings- gerð.“ Til þess að sýnast rannsóknar- blaðamaður spyr ég: „Úr því at- vinnurekendur segjast ekki hafa peninga til að bæta kjörin, þá hlýtur þú að vita hvar aurarnir eru“. Ekki stendur á svari: „Engin er nú leyndin yfir því. Er ekki hvert fyrirtækið á fætur öðru að auglýsa hreinan afgang í afkomu, jafnvel upp á milljónir? Þar eru stórar upphæðir og þetta eru þeirra eigin orð, hvað svo sem þeir þykj- ast aflögufærir um“. Asmi í herbúðunum Ég beini talinu aftur að verka- lýðshreyfingunni og minni á að stundum sé sagt að hún eigi þá forystu skilið sem hún hefur á hverjum tíma og fólk vilji einfald- lega ekki harðari stefnu eða meiri baráttu. Hvað skyldi Óskar segja við því? „Æ, já... égheld að bæðiáfag- Umsjón: Magnús H. Gíslason Flmmtudagur 21. júni 1984 ÞJÓÐVILJINN — SlÐA 5

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.